Þjóðviljinn - 05.10.1950, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.10.1950, Blaðsíða 1
Sauma- 15. árgangur. Fimmtudagur 5. október 1950. 221. tölublað. er einn af 15 vinningum í HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVIUANS k fjögörra ára afmæli Keflavíkursamningsins undir- búa valdamenn afturhaldsflokkanna ný landráð Þríflokkarnir sifja nú é stöðugum leynifundum til að rœða skýrslur Bjarna Benediktssonar um nýjustu kröfur Bandaríkjanna Undanfarið hafa ráðamenn þríflokkanna setið á þrá- látum leynifundum til að ræða skýrslu þá sem Bjarni Benediktsson hafði heim meö sér af Atlanzhafsbandalags- fundinum. Hefur Alþýðuflokknum að sjálfsögðu veriö sýndur sami trúnaður og hinum afturhaldsflokkunum og sátu þingmenn hans á fundum í Alþingishúsinu allan síðari hluta mánudagsins, enda líður nú brátt aö því að Alþýðuflokkurinn taki sæti í ríkisstjórn á ný eftir unnin afrek í „stjórnarandstööu“. Að sjálfsögðu er farið með skýrslu Bjarna Benedikts- ronar af hinni mestu leynd, en fullvíst er að í henní fel- ast sömu kröfurnar sem Bandaríkin lögöu fram þegar í maí, en þær eru í' meginatriðum þessar: 1. Stöðvamar á Keílavíkurílugvelli og í Hval- íirði verði stækkaðar og íullkomnaðar taíarlaust i samræmi við þá reynslu sem fengizt hefur í sumar af komu þrýstiloftsflugvéla á Keflavíkur- flugvöll og herskipa í Hvalfjörð. Keflavíkurflug- völlur verði formlega afhentur Atlanzhafsbanda- laginu þegar Keflavíkursamningurinn gengur úr gildi eða fyrr. 2. Komið verði upp víðtæku hlustunarkerfi á íslandi til hemaðamota í sambandi við styrjaldar- fyrirætlanir Bandaríkjanna á Norðuratlanzhafi. . Komið verði á hersetu á fslandi, annað- hvort innlendri eða erlendri. Hefur sérstaklega verið um það rætt að hingað kæmi norðurlanda- her, enda væri það vel viðeigandi að hér væri dönsk herseta á næsta afmæli íslenzka lýðveldisins. 4. Framlag fslands til hins sameiginlega styrjaldarundirbúnings verði tekið úr mótvirðis- sjóði þeim sem íslenzk alþýða hefur greitt í fé fyrir hinar bandarísku „gjafir". Má telja líklegast að samkomulag þríflokkanna um þessi atriði verði lagt fyrir Alþingi þegar í upphafi þings. \ Þeir feingn ekki samið af oss réttimi til að berj- ast meðan vér lifum „Atgerðir þeirra ömurlegu manna sem ætla að svíkja ísland með jáyrði sínu í dag eða á morgun bindur enda á þann vorhug íslensku þjóð- arinnar og þann bjartsýnis- fulla vilja til bræðralags og samvinnu innanlands sem honum fylgdi á þessu stutta tímabili frá 17. júní 1914. Eftir stendur íslenska þjóðin einsog ker sem ómar ekki leingur við áslátt, af því það stendur ekki leingur cin- samalt, heldur hefur ókunn hönd verið lögð á barm þess. Hin frjóa gleði yfir því að vera sjálfstætt fólk hefur verið tekin frá okkur af nokkrum landráðamönnum, einsog á 13. öld. Dimmir dagar eru frammundan, von- brigði og sorg munu þýngja hreyfíngar okkar um sinn. Aðeins fáeinir innlendir ag- entar útlends ríkis munu hlakka, og þó ekki heils hug- ar; en örðugleikar, óró og| stríðlyndi einkenna þetta únga riki sem nú er reynt að myrða í reifum. Eingu að síður munum vér samkvæmt lögmáli lífsins halda baráttu vorri áfram; þó landráðamönnum takist að semja rétt vorn í hendur erlends herveldis munu þeir ekki fá samið af oss réttinn til að berjast meðan vér lif- um. Ný íslensk sjálfstæðis- barátta er frammundan — . einsog sú sem raunverulega» hófst með undirskrift Gamla sáttmála 1262 og lauk með þeirri viðurkenningu full- veldis vors sem gefin var af nálægum höfuðríkjum 1944 — og nú hefur sem sagt verið tekin aftur í verki, svikin.“ Halldór Kiljan Laxness i Þjóðviljanum fyrir f jórum !! árum. Glæpaílokkar bannáranna þrífast enn vel í USA Velta árlega 15000 railljónum dollara í ólöglegum veðmálum og f járhættuspilum Sömu glæpaflokkarnir og myrtu og rændu víðsveg- ar um Bandaríkin á bannárunum raka þar enn. saman, þúsundum milljóna meö lögbrotum. Rannsóknarnefnd skipuð af Bandaríkjaþingi hefur komizt að þessari nið- 22 eru eftir <! Það voru 32 alþingismenn:; !! sem þvert ofan í svarna eiða;; !;frömdu landráðin 5. október;! ]; 1946. Af þeim eiga þessir ■! !; enn sæti á þingi: !! ;; Ásgeir Ásgeirsson !: ; Bjarni Benediktsson ; Eiríkur Einarsson <! Emil Jónsson !: Eysteinn Jónsson !: Finnur Jónsson ;| !; Gísli Jónsson i; Gunnar Thoroddsen !: ; Halldór Ásgrímsson ! ;| Ingóifur Jónsson !; Jóhann Hafstein !; !: Jóhann Þ. Jósefsson j; !: Jón Sigurðsson jj ! Jón Pálmason j: !; Jörundur Brynjólfsson j! ;; Lárus Jóhannesson ; | Ólafur Thórs j Pétur Ottesen !: Sigurður Bjarnason !; Stefán Jóhann Stefáns-j; !: son ij Steingrímur Steinþórs- i i: son j| Þorstcinn Þorsteinsson Bandaríkjamenn jála árás á Kína Bandaríska herstjómin hefur játað ákæru kínversku alþýðu- stjórnarinnar um árás banda- rískra flugvéla á borgina Ant- ung í Mansjúríu. Er þetta þriðja árás Bandaríkjamanna á Antung síðan Kóreustyrjöldin hófst. Bandaríkjastjóm játar, að tvær flugvélar hafi varpað sprengjum á Antung úr mikilli hæð og segir, að um mistök hafi verið að ræða. Sjóliðar notaðir Eil verkfallsbrota Brezka stjómin tilkynnti í gær, að hún liefði skipað flot- anum að taka á sitt vald í dag gasstöðvar í norðurhverfum London, þar sem starfsmenn hafa verið í verkfalli í þrjár vikur. f dag eru liðin fimm ár frá samþykkt Keflavíkursamnings- ins og á þessum afmælisdegi eru enn frekari landráð þannig efst í huga valdamanna þjóð- Alltaf stækkar Atlaizkafið, nær nn tiE Tyrklands Tyrklandsstjórn hefur að boði Acheson utamikisráð- herra Bandaríkjanna ákveðið að hefja samstarf við Miðjarð- arhafsdeild Atlanzhafsbanda- lagsins, ítalíu, Bretland og Frakkland. Það þótti á sínum tíma nýstárleg Jandafræði, að Italía væri í tölu Atlanzhafs- ríkja, en nú er Tyrkland sem sagt orðið það líka! arinnar. Það skref sem stig- ið var fyrir fjórum árum hef- ur reynzt afdrifaríkt. Til þess má raunverulega rekja ófarn- að fslendinga á síðustu árum, beint og óbeint. Andstyggð Keflavíkurvallarins, lögbrotin, smyglið og ólifnaðurinn eru nú að verða smáræði hjá þeim sjúkdómum sem gagnsýra alla stjórn landsins. Á eftir Keflavíkursamningi kom marsjallsamningur sem bein og rökrétt afleiðing, en með honum hefur Bandaríkj- unum tekizt að tryggja sér yf- irráð yfir öllu efnahagslífi lands ins. Sjálfstæður islenzkur at- vinnurekstur er nú varla lengur til, allt er háð bandarísku sam- þykki, bandarísku eftirliti og bandarískum „gjöfum“. Tvenn- ar gengislækkanir hafa fylgt í kjölfar þessa samnings og lífs- kjör almennings eru nú hröð- Framh. á 7. síðu urstööu. Ncfndin hefur ekki enn skil- að áliti en Estes Kefauver öld- ungadeildarmaður, formaður hennar, hefur skýrt frá því i ræðu á fundi bandarísks lög- fræðingafélags, að glæpaflokk- arnir leggi nú einkum fyrir sig rekstur ólöglegra veðbanka og fjárhættuspila og velta þessi fyrirtæki hvorki meira né minna en 15.000 milljónum dollara ár- lega. Kefauver sagði, að rannsókn arnefndin hefði ekki enn komizt til botns í þvi, hvort samstarf á landsmælikvarða væri millí glæpaflokkanna, en hann stað- hæfði að „það er engum cfa bundið, að glæpastarfscini cr Framhald á 6. ríðn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.