Þjóðviljinn - 05.10.1950, Side 3

Þjóðviljinn - 05.10.1950, Side 3
Fimmtudagtir 5. október 1950. v . c j s ' :. i ÞJÓÐVILJINN Ritstjóri: Þóra Vigfúsdóttir. FÓRNIN A ALTARIFATIKTARINNAR Fátækt almúgans á Ítalín mun ekki geta farið fram lijá neinum ferðalang, sem augu hefur að sjá. Ítalía hefur hlotið Marshall-„blessunina“ eins og fleiri og þar eins og annarsstaðar finnur almenningur ekki mikið fyrir endurreisninni. Tímaritið „Við konur“ birti nýlega nokkr- ar greinar eftir hinn kunna blaðamann, Ezio Taddei, sem hafði ferðazt bæði um norður og suður Ítalíu og einkum kynnt sér tvennt: skólagöngu öreigabarna og fæðuna sem þau fá. Eins og lesandinn kannski man varð uppi fótur og fit í hinum vestræna heimi, þegar öreigarnir á Ítalíu gerðust svo djarfir að taka sjálfir landspildur til ræktunar af stórjarðeigendum. Lesandinn man kannski líka að stjórn de Gasperi lét lögregluna kenna þessu fólki undirgefnina aftur en sýnilega hafði verið skortur á henni. Hér fer á eftir stuttur útdráttur úr þessum greinum Taddeis. Tilefni ferðalaga hans var einkum það að al- þýðulýðveldi Austur-Evrópu höfðu boðið 300 börnum ítalskra öreiga í sumarleyfi, en börnunum verið neitað um fararleyfi á þeim forsendum að „með því að senda hungruð og klæðalaus börn til annarra landa yrði ítalska stjórnin sér til skammar.“ Frjálslynd félög í Austurríki höfðu einnig boðið 50 börnum, en börnunum var ekki heldur veitt fararleyfi. LUCANIA Vagninn stanzaði. „Þarna er Cesina“. ,,Hvar?“ „Húsin þarna yfir frá“. Ég hélt í áttina. Bóndi nokk- ur vísaði mér leiðina til kenn- arans. Hún bjó á litlu bænda- býli. Helming stofunnar notaði fjölskylda bóndans fyrir svefn- hús. Hinn helmingurinn var skólastofan. Kennarinn svaf í skólastofunni bak við páppírs- tjöld. Þarna voru borð og bekk- ir fyrir 18 nemendur. Sjö af átján nemendum voru mættir þennan morgun. „Hvar er Tonius í dag?“ „Tonius kemur ekki meira í skólann, hann gætir kúa“. „Lucia, þú hefur ekki sczt í viku“. „Ég var að gæta kinda“. „Þú líka, ykkur vantar öll meir og minna í skólann. Ég fór út. Ég kom við í öll- um húsunum i Cesina. Allstaðar fékk ég sama svarið. Þegar börnin eru sex til sjö ára verða þau að fara að vinna, gæta kinda eða kúa. Launin eru lamb á ári. Þegar ég spurði um fæð- una sem þau fengu, var eir.nig alltaf svarið: Brauð, og einnig stundum „eitthvað soðið“. „Fáið þið kjöt?" „Áðeins þegar við erum veik“. I bænum Potenza búa börnin við ömurleg skilyrði. í sjálfri póstbyggingunni hýrast heim- ilislausar fjölskyldur. Þarna eru börnin eins og mý á mykju- skán. Á göngunum í bygging- unni gerir fólk elda á stein- gólfinu. Yfir þessum eldum er búin súpa úr brauðskorpum og grasi. Þetta er það sem börnin eiga við með „eitthvað soðið“. I Potenza eru 35.000 ibúar. Læknar eru tveir. „Stór hluti barnanna er berklaveikur, þau éta allt sem tönn á festir, og hver getur látið meðöl við slík um kvilla“, sagði annar lækn- irinn við mig. FU CINO-D ALURINN Frá Potenza fór ég til Fucino. Á fjölda húsa í Fucino stóð skrifað „Burt með Torlonia“. „Niður með Torlonia". Torlonia á hér allt. Fólkið hatar hann. „Hvað borðið þið á morgn- ana?“ spurði ég fyrstu kon- una og börnin sem ég hitti. „Stundum fáum við aðeins eina kartöflu hvert“. „Og svo ?“ „Um kl. 4 á eftirmiðdaginn fáum við súpu, ef hún er til“. „En ef hún er ekki til?“ „Þá ekkert“. — Börnin í skólanum eru flest fátækra foreldra. Þau ganga í druslum og eiga engin vetrar- föt. Því koma þau ekki nema stöku sinnum í skólann á vetri. MILANO Það virðist ekki beinlínis auð- velt að fá að sjá líf fátækl- inganna í Milanó. „Farðu og skoðaðu minnstu húsin“, sagði maður við mig. Skrítið. Minnstu húsin? Þegar ég kom þangað var fyrsta spurning mín: „Hvar sefur fólkið ?“ „Þarna niður í kjöllurunum. Tvö hundruð og sjötíu fjöl- skyldur búa þarna“. Ég fór niður um gatið sem átti að heita gangurinn "niður. Það fyrsta sem ég sá var skolp- ræsi sem lá um gangana niður í kjallarana. Börnin í þessum neðanjarðarholum eru lystar- laus og sljó. Þau stara á mann þegjandi, svara ekki þegar þau eru spurð og reyna að leyna sannleikanum ef þau svara. En öll hafa þau eina scgu að segja: „Pabbi er atvinnulaus. Við erum hér af því að við get- um hvergi annarsstaðar verið. Það er dimmt inni og drýpur af veggjunum. Konurnar reyna Tölur sem tala Síðan í ársbyrjun 1947 hafa mjólkurafurðir hækkað í útsölu sem hér segir, auk hinna stór- felldu niðurgreiðslna, sem nú nema 30 aurum á hvern lítra: Mjólkurlitrinn um 72 aura, eða rúm 36%. Rjómalítrinn um 6.40 eða rúm 49%. Skyrkílóið um kr. 1.20 eða rúm 36%. Smjörkílóið um kr. 12.50 eða 42%. allt hvað hægt er að halda hreinu, en loftið er svo ger- samlega mettað af ódauninum frá skolpræsinu, að það er eins og maður standi við sorptunn- una. Maturinn er að mestu leyti grænmeti. Kjöt afarsjaldan. Mjólk sést varla, segir kona ein við mig. Lítill drengur held- ur í pils hennar. Og konurnar segja: „Guði sé lof að nú er grænmbtis-tíminn. Þá er lífið ekki eins erfitt.“ „Stundarðu skóla?“spurði ég dreng nokkurn. „Nei, hvernig ætti ég að geta það ?“ „Hvað færðu að borða?“ Hann leit á mig án þess að svara. „Hvað fékkstu í dag?“ „Ekkert“. „Hvað ertu að segja?“ „Ég hef ekki borðað neitt. Ég er hungraður“. Já, það er ekki auðvelt að kynnast lífi fátæklinganna í Milanó. Það er miklu auðveld- ara að ganga um borgargöngin í Galleria, lífæð borgarinnar, og finna hið iðandi líf, yndislega ilmvatnslykt af hefðarkonum sem ganga þar, láta sem maður viti ekkert um hvað er að ger- ast í kringum mann, og brosa glaðlega, og vera ekkért að hirða um allsleysi annarra. Mjólkurostur um kr. 3.50 kílóið, eða 22%. Mysostur um kr. 3.00 kílóið, eða um 46%. Fiskverð hefur hækkað ný- lega um 5—25 aura pr. kg. (það er athyglisvert að fisk- tegundir sem hafa áhrif á vísi- töluna hækka aðeins um 5 aura, en þær sem ekki hafa áhrif á vísitöluna hækka um allt að 25 aurum á kg). Verð á bjúgum, pylsum, kjöi- farsi hækkaði um ca. 25%. Verð á vínarpylsum og bjúgum hækkaði um 3 kr. kg. eða úr 13 í 16 krónur. Miðdegispylsur hækkuðu um 4.30 hvert kg. eða úr kr. 10.45 í kr. 14.75. Kjötfars hækkaði úr kr. 9 í kr. 10 pr. kg. eða um 1 kr. 4. sept. hækkaði kaffið aftur um 45 aura kg., kaffibætir um 30 aura, blautsápa um 20 aura og smjörlíki um 10 aura kg. (Þessar tölur eru teknar úr tímaritinu Vinnan og gefa góða hugmynd um hækkun verðlags af völdum gengislækkunarinn- ar.) I Tékkóslóvakíu vinna konur með brermandi áliuga að framkvæmd liinnar sósíalistísku á- ætlunar. Kökur úr vatnskökudeigt 125 gr hveiti | 125 gr smjör 11 " j % I vatn 1 4 stk. lítil egg Ví 1 rjómi Vatnið og smjörið er látið sjóða (smjörið brætt fyrst) potturinn tekinn ofan og allt hveitið hrært í einu út í vatnið. Sett augnablik yfir eidinn aftur, þar til deigið losar sig við pottinn, en þá er hann tekinn ofan og eggin hrærð út í, eltt í einu. Eklti má hræra mikið, eftir að búið er að láta síðasta eggið út í. Deigið er sett með lítilli skeið á smurða plötu og bakað góða stund við hægan hita. Kökurnar geta ekki annað en heppnazt vel, ef gætt er þess að vigta nákvæmlega og hafa eggin lítil. Þegar kökurnar eru kaldar, er gerður skurður í miðj- una og þær fylltar þeyttum rjóma með vaniljusykri. • Smjörstengur ‘ 2 egg * | 2 matsk. rjómi t % kg sykur »" 1 % kg hveiti % kg smjörlíki Eggin, sykur og rjómi er hrært vandlega saman. Hveitið er látið í og smjörinu núið saman við. Þetta er svo hnoðað lauslega sam- an, breitt út heldur þunnt og skor- ið 1 nokkuð langar ræmur, genf eru bakaðar ljósgular. Látnar kólna. Ofan á er borin sykurbráð, sem er búin til úr flórsykri, möndlum og 3 eggjahvítum. Hýð- ið er tekið af möndlunum, þær saxaðar og látnar saman við syk- urinn, og stífþeyttar eggjahvít- urnar hrærðar saman við, þessi sykurbráð er borin ofan á kök- urnar, og þær þurrkaðar við. vægan hita inni í ofni. __ j

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.