Þjóðviljinn - 12.11.1950, Side 4
'I
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 12. nóv. 1950.
Þióðviljinn
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Préttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19, — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mánuði. — Lausasöiuverð 60 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
172 MILLJÓNIR
í
Togarastöðvunin stóð í 129 daga, og samkvæmt út-
reikningi Morgunblaösins kostaöí hún þjóöina 97 mill-
jónir króna í dýrmætum erlendum gjaldeyri. Til þessarar
stöövunar hefði aldrei þurft aö koma. Kröfur sjómanna
voru svo hófsamlegar og sjálfsagöar aö hvert heiöarlegt
þjóöfél. hefði gengið aö þeim umsvifalaust, enda hefði upp
fylling þeirra aðeins kostaö örlítiö brot af gjaldeyris-
sóuninni. Ástæöan til þess aö togararnir voru stöðvaöir í
staöinn var ekki aðeins sú að útgeröarauövaldið vildi
reyna að kúga sjómenn og beygja. heldur engu síöur hin
meginhluta verkfallsins aö ríkisstjórnin taldi sig ekki geta
selt togaraaflann, ísfiskmarkaöur væri enginn og saltfisk-
framleiöslan væri oröin meira en nægileg! Þótt ekki
'heföi verið ngin vinnudeila hefði togurunum engu aö
síöur verið lagt í sumar fyrir beinan tilverknaö stjórnar-
valdanna. En afleiöingin af getuleysi ríkisstjórnarinnar
og ofstæki útgerðarauðvaldsins er sú að fyrir þjóðinni er
sóaö gjaldeyri sem nemur 97 milljónum króna.
★
Um síðustu áramót lýstu sérfræðingar ríkisstjórnar-
innar í afuröasölumálum yfir því aö engin tök myndu
veröa á aö selja meira en 15 þús. tonna af freöfiski,
en eölileg ársframleiösla er 30 þúsundir tonna. í samræmi
við þetta hefur framleiöslan verið takmörkuð á þessu ári.
Bátunum hefur veriö bannað aö afla meira en þessu
svarar, bankarnir hafa neitað aö lána frystihúsunum út
á meira, og afleiöingin er sú að 15 þúsundir tonna af fiski
lifa enn góðu lífi í sjónum þótt auövelt heföi veriö að afla
beirra. 15 þúsundir tonna af freöfiski samsvara sam-
kvæmt núverandi gangverði 75 milljónum króna í er-
lendum gjaldeyri. Samtals nemur því gjaldeyristjóniö af
togarastöövuninni og banni ríkisstjórnarinnar viö fram-
leiðslu á freðfiski 172 milljónum króna í dýrmætum er-
lendum gjaldeyri.
★
172 milljónir króna, þaö er upphæö sem skilur á
milli skoi’ts og sæmilegra lífskjara á íslandi. í sjónum
liggja neyzluvörurnar sem alþýðuheimilin skortir sárar
en nokkru siinni fyrr. í sjónum liggja heimilin sem unnt
heföi verið aö byggja upp ef byggingarefni heföi fengizt
flutt inn til landsins. í sjónum liggur atvinnan sem
hundruð og þúsundir manna hefur skort og skortir í
sívaxandi mæli. Öll sú sára fátækt sem verið er aö lsiða
yfir islenzka alþýöu er -s.kipulögö af herrunum uppi í
stjórnarráði, skipulögö meö banni þeirra við því að þjóðin
hagnýti auðlindir lands cg sjávar.
Þaö stoöar ráðherra skortsins ekki að halda því fram
að ísienzkar afurðir séu ,,óseljanlegar“. Meöan sósíalistar
voru í rikisstjórn opnuðu þeir þjóðinni víðtæka og dýr-
mæta markaði, sem nú hefur verið lokaö af pólitísku
ofstæki. Síðast í haust flutti Einar Olgeirsson þjóðinni
tilboð frá stjórn Þýzka lýðveldisins um kaup á „óselj-
anlegum“ afuröum fyrir 33 milljónir króna, en hinir of-
stækisfullu ráðherrar skortsins hafa ekki heldur viljað
anza því. Ogisf þessir herrar tryöu sjálfir kenningum sín-
um, hvers vegna neita þeir þá framleiðendum um leyfi
til aö selja afuröir sínar sjálfir? Hvaða ,,hætta“ er í því
fólgin aö' gefa mönnum frelsi til aö selja þær afuröir
sem eru „óseljanlegar"?
★
En ráðherrarnir halda fast við neyöarstefnu sína.
Þeir fagna vöruskortinum, fátæktinni og atvinnuleysinu.
Fyrir þremur dögum birti blað forsætisráðherrans sigri
hrósandi grein um það aö nú hefði tekizt aö' haga málum
svo aö reykvísk alþýða hsföi ekki lengur efni á þvi aö
kaupa bækur — , og er þaö vel.“ í fyrradag sagöi Bjarni
Ásgeirsson á þingi þegar rætt var um áhugaleysi stjórn-
arinnar fyrir kjörum atvinnuleysingja í samanburði við
sjálfsagöan áhuga hennar fyrir lífi húsdýra í sveitum:
„Þeir verða þó ekki skornir." Það skal verða sú eina náð
sem atvinnuleysingjar njóta frá núverandi ríkisstjórn: að Iþá er Ólafur Bjömsson mikill
losna við slátrun. jhagfræðingur. — Húsmóðir."
Vildi gera skortinn að
skömmtunarstjóra.
Húsmóðir skrifar: ,,Áður en
gengislækkunarlögin voru sam-
þykkt heýrði ég Ólaf Björns-
son prófessor einhvern tíma
halda ræðu í útvarpi. Hann
sagði þar að kjaraskerðing al-
mennings stafaði ekki hvað sízt
af vöruskortinum, og er það
auðvitað sannmæli. Síðan bætti
hann við að gengislækkunin
my.idi útrýma vöruskortinum,
brúa bilið milli framboðs og
eftirspurnar, og því verða til
mikilla hagsbóta fyrir allan al-
menning. Þessi viðbót prófes-
sorsins var öllu hæpnari en
fyrri hlutinn, en þó studdist
hún við þau rök að með stór-
hækkuðu verðlagi hefur almenn
ingur raunverulega minni tekj-
ur og getur því ekki sótzt eins
eftir lífsnauðsynjum. Tilgangur
Ólaís var þannig að gera skort
inn að skömmtunarstjóra í stað
Elísar Ó. Guðmundssonar, eins
og Katrín Thoroddsen komst
einhverntíma réttilega að orði“.
•
Vöruskorturinn sárari
en nokkru sinni fyrr
„Þótt slík ráðstöfun gæti
sízt af öllu talizt til hagsbóta
fyrir almenninginn. eins og
prófessorinn hélt fram, var
þarna þó stefnt að ákveðnu
markmiði, bent á afleiðingu
gengislækkunarinnar sem tal-
in var alveg augljós. iEn reynd-
in hefur orðið önnur. Vörurn-
ar hafa að vísu hækkað geysi-
lega í verði og sumar marg-
faldazt eins og t. d. kaffið.
Kaupgeta almennings hefur
minnkað að sama skapi eða
öllu heldur miklu meira því að
atvinna hefur nú verið stop-
ulii en fjölmörg undanfarin ár.
En vöruskorturinn hefur einn-
ig orðið meiri og sárari en
nokkurn tíma fyrr. Bilið milli
framboðs og eftirspurnar hef-
ur aukizt en ekki minnkað, sök-
um þess að innflutningurinn
hefur minnkað enn meir en
kaupgeta almennings sem þó er
komin á algert lágmark. Skort-
urinn hefur orðið eins lélegur
skömmtunarstjóri og Elís og
miklu harðleiknari.
•
Lítill hagfræðingur
— eða mikill?
,,Ég er ekki hagfræðingur og
hef lítið vit á þeim málum —
en þó virðist mér Ólafur Björns
son vera ennþá minni hagfræð-
ingur en ég eða hver óbreytt
manneskja. Allir hans spádóm-
ar og útreikningar hafa reynzt
fjarstæður og endiieysur. En
ef til vill er það þó hin eina
sanna hagfræði. Ef til vill eiga
prófessorar í þeirri grein að
hafa það hlutverk helzt að
blekkjj almenning og ljúga að
honum svo að hægt sé að
skerða kjörin æ ofan í æ, koma
á atvinnuleysi og auka þannig
völd efnamannanna. Ef svo er,
Skipadeild SIS
Arnarfell fór frá Reykjavík 8.
þ. m. áleiðis til Grikklands. Hvassa
fell er væntanlegt til Reykjavik-
ur frá Spáni 16. þ. m.
Rikisskip
Hekla er á leið frá Austfjörðum
til Akureyrar. Esja fór frá Reykja
vik kl. 20 í gærkvöld vestur um
land til Akureyrar. Herðubreið og
Þyrill eru í Reykjavík. Skjald-
breið ei' væntanleg' til Reykjavik-
ur siðdegis í dag að vestan og
norðan. Straumey er á leið frá
Breiðafirði til Reykjavíkur.
Elmskip
Brúarfoss fór frá Stykkishólmi
i gær til Ólafsvíkur, Sands og
Akraness. Dettifoss fór frá Akur-
eyri i gærkvöld til Hofsóss og
Skagastrandar. Fjallfoss fór frá
Leith 10. þ. m. til Khafnar. Goða-
foss fór frá Rvik 8. þ.m. til Ncw
York. Gullfoss er i Khöfn. Lagar-
foss fór frá Rvik 10. þ. m. til
Bremerhaven og Varnemiinde.
Selfoss fór frá Uleá í Finnlandi
3. þ m. og frá Khöfn 8. þ.
m. til Reykjavíkur. Tröllafoss fór
frá New York 7. þ. m. til Rvíkur.
Laura Dan fermir í Halifax um
20. þ.m. til Rvikur. Pólstjarnan
fór frá Leith 7. þ. m. til Rvíkur.
Heika fór frá Rotterdam 10. þ. m.
til Reykjavíkur. Foldin fór frá
Leith 10. þ. m. til Reykjavikur.
X ' Fastir liðir eins og
venjulega. KI. 14.00
Messa í Kapellu
Háskólans (Sigur-
björn Einarsson
prófessor). 15.15
Útvarp til lslendinga erlendis:
Fréttir. 15.30 Miðdegistónleikar
(plötur). 18.30 Barnatími (Þorst.
ö. Stephensen): a) Upplestur:
„Bjössi á Tréstöðum", bókarkafli
eftir Guðmund L. Friðfinnsson
(höfundur les). b) Barnakór út-
varpsins syngur; Páll Kr. Pálsson
stjórnar. c) Framhaldssagan: „Sjó
mannalif" eftir R. Kipling. (Þ.Ö.
St.). 19.30 Tónleikar: Fiðlulög eftir
Paganini (plötur). 20.20 Tónleikar:
Ungir söngvarar syngja: Anne
Ballinger, Frank Guarrera og
Anne McKnight (plötur). 20.35
Erindi: Saga og örnefni (Stefán
Jónsson námsstjóri). 21.00 Tónleik-
ar: „Brúðkaupið", tónverk fyrir
einsöngvara, kór og hljómsveit eft
ir Stravinsky (plötur). 21.25 Upp-
lestur: Elías Mar og Thor Vil-
hjálmsson lesa frumsamið efni.
22.05 Danslög (plötur) til 23.30.
Helgidagslæknir: Theódór Skúla-
son, Vesturvallagötu 6. Simi 2621.
BarnaverndarfélaglS í Hafnarfirði
heldur framhaldsstofnfund í Al-
þýðuhúsinu í dag kl. 4.30. Dr.
Matthías Jónasson flytur erindi
um afbrigðileg börn og uppeldis-
kjör þeirra.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
heldur fund annað kvöld kl. 8.30
í Tjarnarcafé. Til skemmtunar
verður einleikur á fiðlu og dans.
Matarsýning-
Athygli er vakin á mataræðis-
sýningu Náttúrulækningafélagsins.
Er þar sýndur mikill fjöldi rétta
og mun mönnum gefast kostur á
að bragða á sumum þeirra. Sýn-
ingin er ’í húsakynnum Húsmæðra
félagsins að Borgartúni 7, efstu
hæð. Opin sunnudag, mánudag og
þriðjudag kl. 2—10 e. h.. Aðgang-
ur ókeypis. — Sjá auglýsingu á
öðrum stað i blaðinu.
Aðalfundur Bandalags kvenna
hefst á.morgun kl. 2 í Iðnó uppi.
1 fýrradag voru
gefin saman i
hjónabánd af
borgardómara
Anna Pálsdóttir
.(Jónss. bónda
að Satiðanesi) og Ragnar Stefáns-
son, bóndi að Skaftafelli í Öræf-
um. — 1 gær voru gefin saman
af sr. Bjarna Jónssyni ungfrú
Halldóra Valdimarsdóttir frá Rauf
arhöfn og Guðmundur Halldórs-
son, Karlagötu 9. Heimili ungu
hjónanna verður á Raufarhöfn.
— 1 gær voru gefin saman í
hjónaband af sr. Jóni Thoraren-
sen ungfrú Magnea Magnúsdóttir,
Leifsgötu 16 og Jón Kr. Jónsson,
verkstjóri hjá h. f. Miðnes, Sand-
gerði. —- Nýlega voru gefin saman
í hjónaband af sr. Jóni Thoraren-
sen ungfrú Sigrún Brynhildur
Björnsdóttir og Helgi Sigurður
Hallgrímsson. Heimili ungu hjón-
anna verður að Hrisateig 16.
Ætli nokkr-
ir menn játi J
oftar á
prenti ást
sína á frels-
inu en rit-
stjórar Vís-
is, blaðs viðskiptamálaráðherrans,
coca-cola-Björns? — Síðast í gær
skrifuðu þeir um „athafnafrelsi",
og aldrei þessu vant skilgreindu
þeir frelsishugsjón sina: þeir unna
frelsinu „EFTIR ÞVl SEM VIÐ
Á“. 4 Það hefur Iíklega verið eft-
ir þessari skilgreiningu Visis á
frelsinu sú stjórn viðskiptamál-
anna þegar 18. júli í sumar var
gefin út tilkynning um að „öll
verðlagsákvæði" á coca-cola „skuli
tir gildi fallin"; fullt frelsi til að
græða á coca-cola. Daginn eftir gaf
viðskiptamálaráðherrann, Björn
Ólafsson út tilkynningu um að
kaupgjaldsvísitalan sem verka-
menn fá greitt kauþ sitt eftir,
skuli fölsuð til lækkunar a. m k.
um 3 stig! Það er víst líka frelsi
„eftir því sem við á“ að leyfa
mönnum að veiða fisk en banna
þeim að selja hann úr landi! —
og svo vill Smiðurinn fá að vera
með í frelsisjátningunum: „Þrefajt
húrfa fyrir frjálslyndinu!" segir
hann í gær (hann átti við frelsi
í ástamálum).
Loftleiðir h. f. —
Innanlandsflug. I
dag er áætlað að
fljúga til Vcst-
mannaeyja kl. 14.
— Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar kl.
10.00, til Isafjarðar, Bíldudals, Flat
eyrar og Þingeyrar kl. 10.30 og til
Vestmannaeyja kl. 14.00.
I gærkvöld opin-
beruðu trúlofun
sina, Inga Búadótt-
ir, Þingholtsstræti
II og Einar Helga-
son stud. med.,
Bragagötu 22.
Atlnigasemd
Út af grein, sem birtist i Þjóð-
viljanum í dag undir fyrirsögninni
„Menningarfjandsemi. .. .“, viljum
við undirritaðir fulltrúar hafn-
firzkra skólanema taka fram:
Við höfum engin viðskipti átt
við Helga Lárusson. Framkvæmda
stjóri Landleiða h. f., Ágúst Haf-
berg, stud. jur., hefur sýnt fyllstu
sanngirni í samningaumleitunum
okkar við fyrirtæki hans og hét
þegar þann 27. okt. s. 1., þann
dag, sem við fórum þess á leit við
hann, 20% afslætti, án nokkurs
skilyrðis, enda skilur hann manna
bezt þarfir skólanema.
Við væntum þess, að Þjóðviljinn
vilji birta þessa örstuttu athuga-
semd, þar sem við teljum greinar
á borð við þá, sem birtist í því
blaði í gær, sizt til þess fallnar
að greiða fyrir framgangi þessa
hagsmunamáls okkar námsmanna
í Hafnarfirði. — Hafnarfirði, 10.
nóv. 1950. — Guðmundur H. Garð-
arsson, Þorgeir Einarsson, Ólafur
Thordersen.
Misskilningur er það hjá nem-
endum að skrif Þjóðviljans muni
verða til óþurftar fyrir þá. Sé það
nokkuð sem komið getur Helga
Lárussyni til að hegða sér citt-
hvað i likingu við siðaðan mann
eru það cinmitt opinberar lýsirig-
ar á athöfnum hans. . .