Þjóðviljinn - 03.12.1950, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 03.12.1950, Qupperneq 6
6 ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. desember 1950. Úr fórum Jóns Arnasonar Sendibréf cg samtíntafrásagnir Finniír Sigraunetssen landsbékavörður gaf ú! „Það er gullfallegt, það verður undrasaín". sagði Guðbrandur Vigfússon í fögnuði sínum, þegar hon- um var að berast handritið að þjóðsögumun. Þessi bók segir frá safnanda þjóðsagnanna og hinum ótal möigu hjálparmönnum hans um land allt. Hún er einskonar myndasafn af mönnum og málefnum umvmiðja síðustu öld og koma þar við sögu menn úr öllum stéttum og óteljandi atriði daglegs lífs, er setja svip sinn á þessa kynslóð Jóns Sigurðssonar og hinna rísandi íslenzku þjóð- ar. En fyrst og fremst er hér rætt um þjóðsögurnar, uppá- haldsbók þjóðarinnar. Um bókina segir Finnur landsbókavörður í inngangi: „Reynt hefur verið að velja bréf við hæfi þeirra lesenda, Fcm leita sér dægrastyttingar og hugarhægðar í þjóðlegum fróðleik og hafa gaman af að skyggnast um borð og bekki í híbýlum og hugarfylgsnum þeirra kynslóða, sem lokið hafa erli og <>nn dagsins. Frseðilegar og hnátmiðaðar frásagnir af lífi og liáttum genginna kynslóða geta verið góðar og lærdómsríkar, en með því að Iilusta á rödd bréfritarans, kemst mað'ur næst líf- inu sjálfu, sem að vísu er sjálfu sér líkt á öllum öldum, þó að umgerð þess breyti sváp ineð margvíslegum hætti.“ * ★ * Hlaðbúð .V.V^//.-.V.VAWWWJW.‘.VAVW.V/.V.VJVJV/J1 Lesið smáauglýsingarnar á 7. síðu. Undir eiláiðarst) örnum Eftir A.J. Cronin D A G U R ,,að þú hefðir keypt þér lakkskó, ég var búin að biðja þig um það fyrir viku". „Uss, það eru allir í svona skóm á dansleikn- um; ég spurði strákana". „Fífl geturðu verið. Eins og ég viti ekki betur. Það er ekki gaman fyrir mig að vera með manni í brúnum skóm. Ertu búinn að fá leiguvagn- inn ?“ „Leiguvagn?" Hann setti upp stór augu; hélt hún að hann væri milljónungur; hann sagði fýlu- lega og án þess að líta á hana: „Við förum í sporvagni". Augu hennar loguðu af reiði. „Ég skil. Ég- er ekki nógu góð til að aka í leiguvagni". Ada kallaði til þeirra ofanaf stigapallinum: „Verið þið ekki lengi frameftir. Ég er búin að taka höfuðskammt og er að fara í rúrnið". „Vertu alveg róleg, mamma“, svaraði Jenný sármóðguð. „Við verðum áreiðanlega ekki lengi frameftir" . Þau náðu í sporvagn sem var til allrar óham- ingju mjög hlaðinn farþegum. Það gerði Jenný cnn ólundarlegri; hún starði gremjulega á vagnstjórann, svo að hann fór hjá sér, þegar hann bað Jóa um smápeninga. Hún mælti ekki orð af vörum alla leiðina. En loks komust þau til Yarrow og fóru út úr troðfullum vagninum. Þau gengu þögul í áttina að Oddfellowhöllinni. Þegar þau komu inn í anddyrið var skemmtun- in þegar byrjuð. Jenný leit yfir samkunduna. Hún sá íburð- arlausar veitingarnar, skemmtiskrárnar sem voru límdar upp á raka veggina, ódýra, skræpótta kjólana, hárauða, bláa og græna, hin hlægilegu kjólföt á Mike McKenna sem var veizlustjóri; hún sá að hanzkar og dansskór voru talin óþörf; hún sá hinar rosknu, feitlögnu eiginkonur verka- mannanna sitja í hópum í hornunum og tala saman, meðan afkvæmin hoppuðu og dönsuðu á gólfinu fyrir framan þær. Jenný tók eftir þessu öllu í einu vetfangi. Svo reigði hún sig, svo að litla nefið hennar stóð beiþt upp í loftið. „Þetta gengyr of langt“, sagði hún við Jóa og hleypti brúnum. „Hvað þá?“ spurði hann undrandi. Hún hreytti út úr sér: „Þetta er ófínt, þetta er lítilfjörlegt, simpilt". „Ætlarðu þá ekki að dansa?" Hún hnykkti til höfðinu með kæruleysissvip. Við getum auðvitað notað okkur dansgólfið úr því sem komið er. Það er búið að borga mið- ana, er það ekki?“ Svo fóru þau að dansa, en hún hélt sig í hæfilegri fjarlægð frá honum og hún þóttist hátt hafin yfir hlæjandi, syngjandi og hopp- andi mannfjöldann. „Hver er þetta? spurði hún fyrirlitlega þeg- ar þau dönsuðu framhjá dyrunum. Jói leit í sömu átt og hún. ,,Þetta“ var sak- leysislegur náungi, miðaldra maður með kringlu- leitt andlit, þrekvaxinn skrokk og dálítið bogna fætur. * „Jack Lynch“, sagði Jói. „Hann er smiðirr hjá okkur. Honum virðist lítast vel á þig“. „Honum", sagði Jenný og glotti kuldalega að sinni eigin fyndni. „Ég hef séð þá betri í dýragarðinum". Hún varð aftur þegjandaleg og svaraði aðeins einsatkvæðisorðum, reigði höfuðið og lítillækk- aði sig. Hún vildi láta líta svo út sem hún væri yfir alit þetta hafin. En Jenný var of fljót á sér að kveða upp dóm. Þegar leið á kvöldið bættist fleira fólk við: ekki verkafólkið, meðlimir skemmtifélagsins sem höfðu fjölmennt í byrjun, heldur heiðursfélag- amir, nokkrir teiknarar af skrifstofunni, herra Irving, bókhaldarinn og kona hans, Morgan, gjaldkerinn og Clegg gamli, eftiriitsmaðurinn. Jenný miidaðist lítið eitt; hún brosti jafnvel til Jóa: „Það virðist vera að batna". Um leið og hún sleppti orðinu opnuðust dyrn- ar og Stanley Millington kom inn, herra Stan- ley sjálfur, herra Stanley okltar. Það var hátíð- leg stund. Hann gekk liðlega. inn, brosandi og alþýðlegur í glæsilegum samkvæmisfötum og unnustan hans var með honum. Nú teygði Jenný úr sér og starði forvitn- islega á ungu hjónaleysin þegar þau heilsuðu ýmsum af eldri meðlimum félagsins. „Lára Todd er með honurn", hvíslaði hún með öndina í hálsinum. „Þú veizt að faðir hennar er námuverkfræðingur. Ég sé hana oft niðri í bæ. Þau trúlofuðust í ágúst, það stóð í' blöðun- um“. Jói starði á ákefðarsvipinn á andliti hennar. Hann botnaði ekkert í hinum takmarkalausa áhuga hennar fyrir „heldra" fólkinu í Tyne- eastle. En nú var hún ekkert nema blíðan við hann. „Af hverju dönsum við ekki, Jói“, tautaði hún og reis á fætur og þau fóru að dansa í námunda við Millington og ungfrú Todd. „Kjóllinn hennar. . . . það módel.... beint frá Bonar", hvíslaði hún í eyra honum um leið og þau dönsuðu framhjá. Bonar var auðvit- að hið allrafínasta í Tynecastle. „Og þessir kniplingar. . . .“ hún lyfti briinum á þýðing- armikinn hátt. Kátínan jókst, trumban var slegin af miklu fjöri. Allir voru svo fegnir að herra Stanley hefði „haft tíma til að koma“. Og að hugsa sér að hann skyldi koma með ungfrú Láru með sér! Stanley Millington var í góðu áliti í Yarrow. Faðir hans hafði dáið fyrir nokkrum árum, þeg- ar Stanley var seytján ára og í skóla í St. Bede. Stanley hafði því komið inn í verksmiðjuna beint af skólabekknum — hressilegur, stæltur, með hraustlegan litarhátt og vísi aá yfirskeggi —- B AVIII

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.