Þjóðviljinn - 22.12.1950, Side 4

Þjóðviljinn - 22.12.1950, Side 4
I ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. desember 1950. ÞlÓÐVILJINN Útgeíandi: Sameiningarfloltkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason. Auglýsihgástjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjörn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólayörðustíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur). Áskriftarverð: kr. 14.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. I Pélitískir stigamenn „Heiðarlegt fólk stendur undrandi andspænis þeirri staðreynd, aö ríkisstjórn og meirihluti alþingis hefur nú fellt úr gildi . .. að dýrtíðaruppbót á kaup skuli reiknuð ut . .. Annað eins blygðunarleysi og svikin um dýrtíðar- uppbótina á kaupið ... er alveg óhugsanlegt í nokkru ná- lægu landi . . Blandast engum heiðarlegum manni hug- ur um að í núverandi ríkisstjórn eru pólitískir stigamenn að verki ... Nú á að svíkja launafólkið um alla frekari dýrtíðaruppbót síðarihluta komandi árs hvað svo sem vísitala framfærslukostnaðar kann að hækka. Og þessi svik við það eru framin þó að það sé öllum vitanlegt að dýrtíðin heldur áfram að vaxa hröðum skrefum.“ Þetta eru nokkrar setningar úr leiðara Alþýðublaös- íns í gær, en hann var eins og sjá má hin skelsggasta árás á kaupræningja og vísitölufalsara. Skal vissulega tekið undir hvert orö sem þar stendur, en óneitanlega grípur lesandann einkennileg kennd andspænis þessum ágætu skrifum. Kaupræningjarnir og vísitölufalsararnir í núverandi ríkisstjórn eru nefnilega ekki að fitja upp á neinu nýmæli, heldur feta þeir troönar slóöir. Þaö hafa áður verið blygöunarlausir pólitískir stigamenn í stjórn á ísland’ sem bundu vísitölu og stálu kaupi og frömdu þannig þau svik sem eru „alveg óhugsanleg í nokkru ná- lægu landi.“ Hafi Alþýöublaðið gleymt nöfnunum hétu váðherrarnir Stefán Jóhann Stefánsson og Emil Jórrison, sá síðarnefndi taldi allar kjarabætur launamanna glæp, og þeir nutu stuönings alls þingsflokks Alþýðuflokksins. Þsir stóðu sem veggur gegn öllum tillögum sósíalista um afnárn hinnar pólitísku stigamennsku. Þessar staðreyndir rifjast upp fyrir manni meö nokkurri ónotakennd andspænis hinum vígreifu skrifum Alþýðublaösins nú. En batnandi manni er sém kunnugt er bezt aö lifa og sjálfsagt er að reyna að trúa því aö hinir „blygðunarlausu stigamenn" séu nú allt í einu orðn- ir „heiðarlegt fólk.“ En sú trú fengi óneitanlsga greiðari aögang í hugskotið ef ekki truflaöi sú staðreynd að að- standendur Alþýðublaðsins eru enn í hinni nánustu sam- vinnu við vísitöluþjófana og kaupræningjana í gengis- lækkunarflokkunum og aðeins eru liðnir nokkrir dagar síðan völdin í Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Feykja- vík voru fyrir tilverknaö þeirra aflient stigamönnunum Sæmundi Ólafssyni ksxverksmiðjuforstjóra, Friðleifi Friðrikssyni gengislækkunaragent og Ólafi Pálssyni upp- mælingafulltrúa. Þetta eru menn sem beinlínis hafa þaö hlutverk að draga frá lokur svo aö kaupræningjarnir eigi sem auðveldast með aö fremja óhæfuverk sín. Það er vissulega lágmarksskilyrði til þess að hægt sé aö festa nokkurn trúnað á hugarfarsbreytingu þá sem ætlazt er til aö sldni út úr hinum baráttufúsu skrifum, að allri samvinnu sé slitiö við fimmtulierdeildaragentana innan verkalýðshreyfingarinnar. Umhyggja fyrir þjóðarhag Það er staðreynd að dagar og ef til vill vikur líða af vetrar- vertíð án þess að fiskur sé dreginn úr sjó, þar sem útvegs- menn hafa lýst yfir verkfalli þar til fundinn sé starfsgrund- völlur fyrir vélbátaflotann. Tapið af slíkri stöðvun myndi nema tugum miiljóna króna í erlendum gjaldeyri. Á.ndspænis þeirri alvarlegu staðreynd kom Einar Olgeirsson með þá tillcgu síð- asta dag þingsins að útvegsmönnum yrði leyft að selja það sem þeir öfluðu þar til starfsgrundvöllurinn væri fundinn og kaupa í staðinn nauðsynjar samkvæmt venjulegum verðiagning- arreglum. Þríflokkamir allir fóllu á þessari ofureinföldu próf- WftWWaWAViW.VWAVAV.VW.V.W.V.V 5 Fjöíbreytt úrval af leikföngum í Bankasiræti 2 Kíkisskip Hekla er á Austfjörðum á suð- urleið. Esja var á Akureyri í gær. Herðubreið er á Vestfjörðum á norðurleið. Skjaldbreið er vænt- anleg til Reykjavíkur í dag að vestan og norðan. Þyrill er i Rvík. Ármann fór frá Reykjavík i gær- kvöld til Vestmannaeyja. Eimskip Brúarfoss fór frá Rvík 18. þ. m. til Hull, Warnemunde og Kaup- mannahafnar. Dettifoss er í Rvík. Fjailfoss er á Akureyri; fer það- an væntanlega í dag til Bergen og Gautaborgar. Goðafoss kom til Hull 20. þ. m.; fer þaðan til Leith og Reykjavíkur. Lagarfoss er á Hjalteyri; fer þaðan væntanlega i dag til Eskifjarðar og útlanda. Selfoss er í Antwerpen. Trölla- foss er í New York; fer þaðan væntanlega 29. þ. m. til Rvíkur. Skipadeiid S.Í.S. Arnarfell er á Akureyri. Hvassa- fell fór frá Akureyri 20. þ. m. á- leiðis til Stettin. Fastir liðir eins og venjulega. — Kl. 20.3Ö Jólakveðjur. — Tónleikar. 21.55 Fréttir og veður- fregnir. hagskrár- lok. (22.05 Endurvarp á Græn- iandskveðjum Dana). Austfirðingafélagið í Reykjavík heldur jólatrésskemmtun fyrir börn í Breiðfirðingabúð á 3. í jól- um. Jólasveinn kemur i heimsókn. sókn. •Jólaglaðningur til blindra. Gjafir bafa borizt*frá A.G. kr. 35,00, frá Sigríði kr. 50.00, frá Ingibj. Jónsd. kr. 10.00, frá N.N. kr. 50.00, frá N.N. kr. 25.00, frá G.J. kr. 100.00, frá G.J.E. kr. 100< 00, frá V.K. kr. 30.00, frá H. Þ. áheit kr. 50.00, frá, G.A.S. kr. 200, 00. Innilegar þakkir Blindravina- félag íslands Þ. Bj. Allt um íþróttir, des. heftið 1950, er komið út. Efni: Gunnar Huseby var kjörinn íþrótta maður ársins 1950, Sigursælasta árið í sögu íslenzkra frjálsíþrótta er senn liðið, viðtal við Benedikt Jakobsson. Knatt- spyrnan 1950.. Frank Swift segir frá fyrsta leik sínum á Wembley, Meistaramót Reykjavíkur í hand- knattleik 1950. Sundmeistaramót Reykjavíkur. Islenzkir iþrótta- menn V.: Hörður Óskarss. Fyrsti sigurinn, smásaga. Knattspyrnu- getraun o.m.fl. Flugferðir Loft- leiða h.f. Innan- landsflug: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyrar kl. 10 og til Vestmannaeyja kl. 14. Á morgun, laugardag, er áætlað að fljúga til Akureyrar kl. 10, til Isafjarðar, Flateyrar, Þingeyrar, Bíldudals og Hólmavíkur kl. 10.30 og til Vestmannaeyja kl. 14. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Sigríður. Guðjóhnsen, Lauga veg 40 og Einar Sigurjónsson, bók- bindari, Hringbraut 103. — Ný- lega hafa opinberað trúlofun sina ungfrú Elísabet Jóhannsdóttir frá Melgerði í Eyjafirði og Magnús raun; þeir kusu heldur stöðvun flotans og milljónatuga sóun en að nokkuð yrði linað á einokuninni. Alþýðublaðið gengur nú fram fyrir skjöldu til að verja þessa afstöðu á þeirri forsendu að ætlun Einars< sé sú að eitt- hVert „kommúnistafyrirtæki" græði! Það er ágæt röksemd. Stöðvun bátaútvegsins, atvinnuleysi, vöruskortur, svartur mark aður, einokun og svindl átta heildsala — allt er þetta betra en að eitthvert dularfullt, óskilgreint „kominúnistafyrirtæki” græði fé! Slíkt nuui kallast umhyggja fyrir þjóðarhag. Kristjánsson frá Arnarfirði, Bíldu. dal, nú til heimilis að Sunnuhvoli, Reykjavík. Nýl. voru geíin saman i hjóna- band i Míla.nó á ítalíu Ketill Jensson og Guð leif Ólafsdóttir. Jólasöímm Mæðvastyrksnefndar. H.F. Fiskroð 200 — Gunnvör og Lóa 150 — Prentsmiðjan Edda starfsfólk, 330 — Lindin 70 — Ónefnd 100 — Kristján Siggeirs- son 500 — Kristján Siggeirsson starfsfólk 125 — Jórunn Erla 50 — NN 100 — F. Bl. 100 — Heild- verzlunin Eddá ,250 Lárus Blöndal 200 — Þórður Sveinsson* & Co. 500 — Hallgrímur Benedikts son & Co. 500 — Hallgrímúr Benediktsson, starfsfólk 450 —Ing- ólfsapótek og starfsfólk 170 — Ið- unnarapótek 150 — Reykjavíkur- apótek, starfsf. 220 — NN 150 — Landsbankinn starfsf. —■ 800 — H. 25 — Davíð S. Jónss. 400 — Ste- fán Guðmundss. Skipholti 1000 — Gústaf Jónasson 200 — Flóra starfsfólk 576 — Arnheiður 124 — HH 50 — N 100 — Sólveig Jóns dóttir 300 — HB 1000 — Sólveig Jónsd. 125 — Kristín Björnsdóttir 25 — AP 50 — Völundur 500 — Leiftur starfsfólk 150 — Ljós <fc Björnsson & Ásgeirsson 200 - J. S. 100 — Sigríður og Herbert 50 — Kláus Eggertsson 50 — Eld- ing Trading & Co. 200 — íslenzk- erl. vei'zlunarfélagið 200 — Helgi litli 50 — Verðandi h.f. 500 — Guðmundur Hermannsson 100 — Kol & Salt 500 —■ Brynjólfsson & Kvaran 200 — Guðrún Her- mannsd. 50 — NN 50 —- ÁK 20 — BS 25 — Guðriður 100 — G. 50 — Ölgefðin Egiil Skallagrímsson starfsfólk 325 — Gísli Jónsson & Co. starfsfólk 80 — Mat'ía Guð- mundsd. 100 — Þorbjörg Sigurð- ardóttir 10 — NN 50 — VK 100 ■— Sigurður 20Q — Hampiðjan 300 — Kassagerðin og starfsfólk 1000 — Edda og' Inga 100 — Ó^ nefnd 100 — Sigríðui’ Pálsdóttir 25 — Kærar þakkir. Nefndin. Næturlæknir er í Iæknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum — Sími 5030. Næturvörður er í Ingólfsapóteki. — Sími 1330.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.