Þjóðviljinn - 16.01.1951, Side 8

Þjóðviljinn - 16.01.1951, Side 8
Frumvarpi sósíalista um tólf stunda hvíld togaraháseta á öllum veiðum var vísað frá í neðri deild í gær <----------------\ „Hanrt vex af verkism stnum“ I gær fór fram eítir 2. umr. í neðri deild atkvæðagreiðsla nm vökulagafrumvarp þeirra Sigurðar G'uðnasonar og Ein- ars Olgeirssonar. Urðu úrslit atkvæðagreiðslunnar þau, að sam- þykkt var hin rökstudda dagskrá meirihluta sjávarútvegsnefr.d- ar, og málinu þannig vísað frá. Þar með hefur stjórnarliðið tekizt á hendur ábyrgð af því tjóni, sem það kann að hafa í för með sér að láta mál þessi ennþá óleyst af þingsins hálfu, tjóni því, sem verða mun, ef endanleg lausn þessara mála á að kosta nýja deilu eins og þá sem orsakaði togarastöðvunina í sumar. Ríkisstjóminni nægir sem sagt ekki að hafa kastað á glæ hundruðum milljóna á siðast- liðnu ári með togarastöðvun- inni. Hún lætur lið sitt ennþá einu sinni hindra framgang eins sjálfsagðasta réttlætismáls þeirrar stéttar, sem með hinu erfiða starfi sínu stendur undir öllu efnahagslífi þjóðarinnar, lætur það enn einu sinni neita togarahásetum um lögboðna 12 stunda hvíld á öllum veiðum, — og þannig býður hún heim hættunni á nýrri togarastöðv- un og öllu því tjóni, sem af henni mundi leiða. Atkvæði féllu þannig (að við- höfðu nafnakalli), að þingmenn Sósíalista og Alþýðuflokksins voru allir á móti frávísunartil- lögu nefndarmeirihlutans, en þingmenn stjórnarliðsins voru allir með henni, nema Jörund- ur Brynjólfsson, sem gerði grein fyrir atkvæði sínu, kvaðst vilja leyfa frumvarpinu að kom ast til 3. umr., og sagði nei við frávísunartillögunni. Infláensan væg [ og fer hægt yfir T ogararnir Togarinn Karlsefni seldi 3228 kit í Grimsby 13. þ. m. fyrir 9900 pund. í þessari viku selja a. m. k. fjórir togarar afla smn í Bretlandi. Eru það Jörundur, Ingólfur Amarson, Egill Skalla grímsson og Helgafell. Happdxætfi Sósíalisíaflokksins Tveggja vinninga í happ- drætti Sósíalistaflokksins hefur enn ekki verið vitjað, en þeir eru: Nr. 13429 Gólfteppi. 721 Hrærivél. — Vinninganna skal vitjað til Guðmundar Hjártar- sonar, Þórsgötu 1, sími 7511, Hver keypti skautana? Kaupmaður í fomverzluninni Vöruveltan, Hverfisgötu 59, hefur skýrt rannsóknarlögregl- unni f'rá að hann hafi nokkru eftir hádegi í gær selt dreng skó með áfestum hoekey-skaut- um og hafi drengurinn greitt 225 kr. fyrir skautana og skóna. Kaupmaðurinn telur að drengurinn hafi verið á að gizka 12 ára gamall. Rannsóknarlög- reglan biður þennan dreng góð- fúslega að koma til viðtals. Frumvarp stjérnarinnar gegn vinnu miðlun endanlega samþykkt í neðri áeild í gær Það máfti ekki einu siniti faka inn í það keimilc handa ríkisvaldinu ao hiaupa undir bagga þega; sérstök þörf þætti! Stjómarliðið samþykkti í gær, eftir 3. umr. í neðri deild, frumvarp um að vinnumiðlunarskrifstofur verði algjörlega sviptar fjárstuðningi af hálfu ríkisins. Þingmenn Sósíalista og Alþýðuflokksins greiddu atkvæði gegn því. : Inflúensan væg j:og fer hægf yfirj !; Inflúensufaraldur sá er ;j hingað hefur borizt reynist !| ilfremur vægur, bæði hér og !; !; í nágrannalöndunum, og;j ;jmunu fregnir um að veikin !| !; só illkynjuð og mannskæð,!; ;; t.d. á Bretlandseyjum, vcra ;! meira eða minna ýktar. Á í j! Keflavíkurfl'ugvelli gengur ; !; veikin mjög hægt yfir, að- ;j eins 15—16 tilfelli enn, og i; !| öil væg. Vitað er 'um eitt> ;; inflúensutilfelli í Kópavogi j! ; j og hafði sá sjúklingur haft! !; samneyti við fólk á Kefla- ;; víkurflugvelli. Sérfræðingum ; ber saman um að inflúensu- !; faraldur þessi sé sízt verri ;;en hér hefur gengið á und- j! anförnum árum, og ekki á- !;stæða fyrir fóík að óítast;j ; útbreiðslu hans neitt sér-j; j staklega. BJaðið átti tal við;; ! Bjöm Sigurðsson lækni, sem;j ; hefur með höndum rannsókní ! veikinnar hér á landi, og!; ! staðfesti Iiann það að inflú- ; ensah væri væg. Veikin hefði!; j verið að breiðast út um ná-;| ;; grannalöndin síðan snemma!! ;!í haust, færi hægt yfir ogl; !: tæki margt fólk, en tölur,; j ;;sem blöðin hefðu birt umj: j dauðsföll af völdum veik-1; !; innar hefðu vaxið mönnum ;j óþarflega í augum. !; Fulltrúar Alþýðuflokksins og Sósíalistaflokksins i heilbrigðis- og félagsmálanefnd deildarinn- ar, Gylfi Þ. Gíslason og Jónas Árnason, freistuðu þess að fá fram nokkra bót á frumvarp- inu og fluttu breytingartillögur þess efnis, áð félagsmálaráð- herra heimilaðist að fyrirskipa vinnumiðlun, þar sem þörf þætti, og skyldi ákveða í fjár- lögum framlög ríkissjóðs til hennar, þó skyldu þau ekki nema meiru en % af kostnaði hverrar vinnumiðlunarskrif- stofu, sem starfx'ækt væri í samræmi við lögin. En svo mik- ið kappsmál er ríkisstjórninni að koma fram óbreyttu þessu illa þokkaða nxáli sínu og lama vinnumiðlunarstarfsemina sem mest, að hún lét lið sitt allt beita sér gegn þessari málsbót, og fella tillögur þeirra Gylfa og Jónasar. Þáð má ekki einu sinni vera í lögum heimild fyrir ríkisvaldið að hlaupa undir bagga með bæjarfélögunum um miðlxm vinnu handa verkamönn- um þegar sérstök þörf þykir! Frumvarpið fer nú fyrir efri deild. ÐVILHNM Akureyrarkdupstaður nœst- um alveg rofmagnslaus Háspennulínan frá Laxá rofin af snjóflóði í Ljósavatnsskarði S.l. laugardagskvöld rofnaði háspennulínan frá Laxárvirkj- uninni til Akureyrar. Hafði snjóflóð myndast í brattri fjallshlíð við austanvert Ljósavatn í Ljósavatnsskarði og brotið 5—6 staura í línunni. Hefur verið rafmagnslaust á Akureyri síðan að heita má, en vonir standa til að bráðabirgðaviðgerð á Iínunni frá Laxá verði lokið á morgun. Blaðið átti tal við fréttarit- ara sinn á Akureyri í gær. — Skýrði hann svo frá, að raf- straumurinn hefði rofnað á 12. tímanum á laugardagskvöldið. Á sunnudagsmorgunimx fóru vi'ðgerðarmenn á vettvang, en Norsk kvikmynd af skógrækt Norska landbúnaðarráðuneyt- ið hefur sent skógrækt ríkisins að gjöf litkvikmynd frá Troms- fylki, og sýnir hún skóga og skógrækt í þessu næst nyrsta fylki Noregs og háttu maxma þar. Mynd þessi var sýnd boðs- gestum í Tjarnarbíói á sunnu- daginn en verður bráðlega send til skógræktarfélaganna úti á landi. Happdrætti Háskólans: Nr. 10783 hlaut 25 þús. kr. 1 gær var dregið í happ- drætti Háskóla íslands. Hæsti vinningurinn, 25 þús. kr., féll á nr. 10783, sem eru hálfmiðar, seldir í umboði Kristjáns Jóns- sonar og Pálínu Ái’mann í Reykjavík. 10 þús. kr. vinn- ingur kom á nr. 1442, sem einn- ig eru hálfmiðar, seldir í um boði Þorvaldar Bjarnasonar i Hafnarfirði. 5 þús. kr. vinn- ingur fél'l á nr. 21657. Er það fjórðungsmiði, % seldir á Sel- fossi og % hjá Helga Sívert- sen. Aukavinningur að upphæð 5 þús. kr., kom upp á 22633, sem eru kvartmiðar seldir hjá Guðm. Gamalíelssyni, Arndísi Þorvaldsdóttur og í umboðun- um á Akureyri og í Stykkis- hólmi. SkautamóíiS Fyrri hluti skautamótsins fór fram á Tjörninni á sunnudaginn að viðstöddu fjölmenni. í 500 m og 3000 m hlaupi karla bar Kristján Árnason KR sigur úr býtum á 52,2 sek. og 6:02,4 sek. 1 500 m hl. kvenna varð Guðný Steingrímsdóttir KR hlutskörpust á 72,4 sek. I 500 m hl. 14—16 ára drengja Karl Jóhannesson Á. á 68 sek. og 10—12 ára drengja Jón Hilmar Bjarnason ÍR á 75,3 sek. Það vakti allmikla athygli áhorf- enda, að 83 ára gamall .maður, Guðmundur Guðmundsson a'ð nafni, hljóp einn hring á braut- inni. Notaði hann skauta af þeirri gerð sem tíðkaðist hér um aldamótin. — Á sunnudag- inn fer fram seinni hluti móts- ins og verður þá keppt í 1500 m og 3000 m hlaupi. þá kom í ljós að varastaurar, sem geymdir voru við Ljósa- vatn, höfðu lent í snjóflóðinu, og urðu viðgerðarmennirnir þá að sækja staura austur á Fljótsheiði. Olli þetta allmikl- um töfum við aðgerðina, og ekki hægt að segja hvenær henni muni ljúka, en gefnar vonir um að samband fáist á morgun. Akureyringar fá nú aðeins rafmagn frá stöðinni við Glerá, en það hrekkur vitanlega mjög skammt, en verður þó að nægja handa sjúkrahúsi og lækninga- stofum bæjarins. Nokkur fyrir- tæki í bænum hafa rafmótora, s. s. prentsmiðjurnar og KEA, en allur almenningur verður að elda mat sinn á olíuvélum þessa daga. Var mikil ös hjá olíusöl- um á Akureyri í gærmorgun, en sú eftirsótta vara er aðeins seld á 2—3 stöðum í bænum. Beethoven- tónleikar Svissneski píanóleikarinn Paul Baumgartner, heldur Bee- thoventónleika í Austurbæjar- biói n. k. fimmtudag og föstu- dag kl. 7 síðdegis á vegum Tón- listarfélagsins. Á efnisskrá tónleikanna eru sónata í F-moll op. 57 (Appas- sionata), sónata í cís-moll op. 27 nr. 2, Eroicatilbrigðin op. 35 og sónata í as-dúr op. 110. LÍF 0G LIST byrjar annað árið LÍF OG LIST er komið á ann- að ár, og virðist eitt þeirra barna sem rætist úr með aldrin um, Gunnar Bergmann hverfur iiú frá ritstjórninni en Stein- grímur Sigurðsson verður einn ritstjóri tímaritsins. 1 fyrsta hefti annars árgangs er forsíðumynd af lítt þekktri stúlkumynd eftir Guðnxund Thor steinsson; viðtal við Tómas Guðnxundsson; kvæði eftir Sig- urð Nordal, „Eftirmáli við aðra próförk;“ Um keramik (leir- munalist), eftir Ástu Sigurjóns- dóttur; „Rós til Emilíu“, saga Framh. á 2. síðu. Handknattleiksmótið Meistaramót íslands í hand- knattleik hófst í gærkvöld. 1 meistarafl. A. deild fóru leikar þannig að Víkingur vann Aftur eldingu með 14:9 og Ármaxm Fram með 13:11. Á morgun keppa í B-deild FH og KR og í A-deild Valur og iR.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.