Þjóðviljinn - 01.02.1951, Blaðsíða 1
TrúaaSarmaimafíiKdm
Sósíalistaíélags Reykia
víkur annað kvöld ao
Þórsgötu 1, og hoísi
stundvíslega I;I. Ö..30.
Fjoimenniö':
Stjémíá.
1G. ájrgangur.
Fimmtudagur 1. febrúar 1951.
26. tölublað.
AKNAÐ MEÐ
' r
Síðast heyrðist til flugvélannnar kl. 5,14 yfir Alftanesi
Tvær flugvélar fóru til Vestmannaeyja í gær
og var önnur þeirra TF ISG, Glitfaxi, frá Flugfé-
lagi íslands. Fór hún frá Vestmannaeyjum kl. 4,35
í gær. Flaug hun blindflug hingað í öruggri hæð
og kom yfir stefnuvitann á Álftanesi kl. 4,58 og
ætlaði þá að taka venjulegt aðflug á Reykjavíkur-
flugvöll, en hætti við lendingu vegna þess hve
syrt hafði að. V'ar henni þá sagt að hækka sig
aftur og bíða þess að rofaði til. Rétt á eftir rofaði
til aftur og var henni þá sagt að gera aðflug aftur
og heyrðist síðast til hennar í grennd við stefnu-
vitann á Álftanesi, var hún þá í 700 feta, eða 200
metra hæð. Síðan hefur ekkert til hennar spurzt.
Með vélinni voru 17 farþegar og þriggja
manna áhöfn.
LeiEað á sfé.
Slysavarnafélagið náði sam-
bandi við 3 skip á Faxaflóa, á
svæðinu frá Garðskaga að Álfta
nesi, var Ægir eitt þeirra og
var leitað með ljósum á sjón-
um, en árangurslaust.
Leltao með mdarsjá.
Þá var einnig leitað me’ð rad-
artækjum frá Keflavíkurflug-
velli um hálfri stundu eftir að
eíðast hevrðist til vélarinnar,
en hvergi varð hennar vart með
radartækjunum.
Leitað á landi.
Slysavarnafélagið bað björg-
unarsveitir suður með sjó og á
Álftanesi að leita og 6 flokkar
leituðu í nágrenni bæjarins og
fram á nótt. Ennfremur var
hringt víða um nágrennið en
engar upplýsingar fengust um
ferðir vélarinnar.
Leit hafisi með bÍKtingn.
Ákveðið var að hefja leit með
birtingu í morgun og verður þá
leitað úr lofti, á landi og á
sjó.
Vom með Ougvélmm.
Þessir menn voru með flug-
vélin.ii:
sfiöldin 11 kr.!
Enn einu sinni hækka
Gjúkrasamlagsicgjöldin. —
Hækkunin nemur að þessu
sinni 2 kr. á mánuði, þannig
að gjöldin verða 22 kr. á
mánuði, eða 528 kr. á ári
fyrir hjón.
Fyrir ári voru sjúkrasam-
Jagsgjöldin 16 kr. og er þetta
þriðja hækkunin siðan þá.
Hækkunin nemur 38% eða
144 kr. á ári fyrir hjón. Or-
sök þessara hækkana er að
sjálfsög'ðu gengislækkun aft-
urhaldsflokkanna.
V,-
AHOFN:
Ólafur Jóhannsson, flug-
stjóri, Bergstaðastræti 86,
Reykjavík. Kvæntur. 22
ára gamall. Sonur Jó-
hanns Þ. Jósefssonar, al-
þingismanns.
Garðar P. Gíslason, 2. flug-
maður, Drápuhlíð 9,
Reykjavík. 22. ára gamall.
Olga Stefánsdóttir, flug-
freyja, Hringbraut 26,
Reykjavík.
FARÞEGAR:
Herjólfur Guðjónsson, verk-
stjóri, Einlandi, Vest-
mannaeyjum. Kvæntur og
á börn.
Jón Steingrímsson, píanó-
leikari, Hvítingaveg 6,
Vestmannaeyjum. Ókvænt
ur.
María Hjartardóttir, Vest-
mannaeyjum, og barn
hennar
Björn Gunnarsson, á fyrsta
ári.
Páll Jónsson, skipstjóri, Vest
mannaeyjum. Kvæntur og
á börn.
Sigiús Guttormsson, Vest-
mannaeyjum. Bróðir Ein-
ars læknis í Eyjum.
Sigurjón Sigurjónsson, Vest-
mannaeyjum. Ungur pilt-
ur.
Snæbjörn Bjarnason, tré-
smiöur, Vestniannasyjum.
Ekkjumaður og á uppkom
in börn.
Þorsteinn Stefánsson, Vest-
mannaeyjum.
Ágúst Hannesson, húsgagna
smiður, Grænahvammi
viö Kringlumýrarveg. 23
ára gamall. Kvæntur og á
3 börn.
Gunnar H. Stefánsson, full-
trúi Ferðaskrifstofunnar.
Bjargarstíg 15, Reykjavík.
35 ára gamall. Kvæntur
og á 2 börn.
Ólafur Jónsson, Karlagötu
14, Reykjavík.
Sigurbjörn F. Meyvantsson,
sölumaöur, Laugaveg 68,
Reykjavík. 37 ára gamall.
Kvæntur og á 2 börn.
Guðmann Guðmundsson,
matsmaður, Vatnsnesvegi
20, Keflavík.
Magnús Guðmundsson, mats
maður, Keflavík. Bræður
Jóns gcstgjafa á Brúsa-
stööum.
Guðmundur Guðbjartsson,
Arnarholti, Mýrum.
Hreggviður Ágústsson, Nes-
kaupstað.
Pílatusar
Hannes M. Stephensen
varaformaður Dagsbrúnar
og Jón GuÖIaugsson stjórn-
armeðlimur í Þrótti gengu
í gær á fund borgarstjóra
og spurðust fyrir um það
hvort ekki væri hægt að
bæta við í bæjarvimiuna
verkamönnum og bílum við
snjómokstur og annað slíkt
vegna hins geigvænlega at-
vinnuleysis. Gunnar Thor-
oddsen kvaðst ekkert um
það geta sagt, en vísaði til
bæjarverkfræðings. — Bæj-
arverkfræðingarnir sögðust
hinsvegar enga heimild hafa
til að bæta við mönnum eða
tækjum — og vísuðu á borg-
arstjóra!
Bandarílij ameim láta tugi
stríðsglæpaiiazista íausa 1
Krupp fær milljarðaeignir sínar á.ný
Bandaríska hernámsstjórnin í Þýzkalandi hefur náð-
að tugi nazista, sem dæmdir höföu veriö til dauða eöa
í langa fangelsisvist fyrir stríðsglæpi.
McCloy hernámsstjóri Banda-
ríkjanna í Þýzkalandi ,tiikynnti
náðanirnar í gær, og kvað þær
gerðar eftir langa athugun á
dómunum.
Af 28 stríðsglæpamönnum, er
dæmdir höfðu verið til dauða
fyrir hlutdeild í milljónamorð-
um í fangabúðum nazista, og
beðið árum saman í fangelsinu
í Landsberg, hefur McOoy náð-
að 21 og breytt dómi þeirra í
mismunandi langa fangelsis-
vist.
Breytt hefur veri'ð dómum 62
háttséttra nazista, sem dæmdir
voru til fangelsisvistar og verða
32 þeirra-Játnir lausir á laugar-
daginn. Meðal þeirra er Alfred
Krupp von Bohlen, aðaleigandi
vopnaverksmiðjanna, sem á-
samt átta meðforstjórum sín-
McCloy
Vinnuveitendafélagið og iðnrekendafélag-
ið haía sent frá sér auglýsingu þess efnis að
vísitala febrúarmánaðar sé 123 stig og^ banna
öllum atvinnurekenaum að greiða hærra kaup.
Þessi yfirlýsing er sem sagt fyrirskipuii
til atvinnurekenda um að svíkja samninaa við
öll þau verkalýðsfélög, sem hafa þau ákvæði
í samningum sínum að kaup beri að greiða
mánaðariega með fullri vísitölu. Þau samn-,
ingsákvæði fengu íullt gild.i með samþykkt
laga nr. 117 frá 19. des. s.l. þar sem kaup-
bindingarákvæoi gengislækkunarlaganna voru
með öllu íelld úr gildi miðað við 1. febrúar.
Þetta ósvífna samningsbrot atvinnurek-
enda fer að sjálfsögðu fyrir félagsdóm, og
þótt launþegar séu ýmsu vanir af þeim dóm-
stóli er þetta mál svo augljóst að eng.in tök
ættu að vera á því að smeygja sér undan
réttlátum úrskurði.
Um var dæmd-
ur í margra
ára fangelsi
fyrir að hjálpa
til að undir-
búa árásar-
stríð Hitlers
óg að ræna
hernumin lönd
Forstjórarnir
verða einnig
látnir lausir. Segist1- McCloy
enga ástæðu sjá til að halda
stjórnendum Kruppverksmiðj-
anna í fangelsi, þar sem ekk-
ert hafi verið gert í máli fjölda
annarra1' kaupsýslumaiina, sem
séu að minnsta kosti jafn sek-
ir. Stríðsglæpadómstóllinn hafði
gert upptækar eignir Krupps,
sem nema milljörðum króna, en
McCloy veitir honum fullan rétt
til þeirra á ný á þeirri for-
sendu, að upptaka eigna stríði
gegn bandarískum réttafars-
hugmyndum.
Náðun nokkurra hershöfð-
ingja segist McCloy byggja á
„eðli skæruhernaðarins á viss-
um vígstöðvum“ en menn þcssir
voru dæmdir fyrir að láta
myrða fanga og gisla í Austur-
Evrópu. Hala Þjóðverjar bent
Bandaríkjamönnum á, að þeir
geti ekki með góðu móti rcfsað
öðrum f.vrir að gera það sama
og bandarískir hershöfðingjar
láta nú gera í Itóreu.
Rau aðvarar i
Vesturveldin1
, Rau fulltrúi Indlands lýsti
yfir er stjórnmálanefnd þings
SÞ liafði í fyrrakvöld samþykkt
tillögu Bandaríkjanna um að
lýsa Kína árásaraðila pg undir-
búa refsiaðgerðir, að þetta.vcrk
gæti vel leitt til versta ófarn-
áðar fyrir allar þjóðir. Sam-
þykktin var gerð með 44 atkv.
gegn 7, Austur-Evrópuríkj-
anna, Indlands og Burma. Hjá.
sátu 8, fulltrúar 5 Araba’íkj-
anna, Svíþjóðar Indónesíu og
Júgóslavíu. — Allsherjarþingið
sjálft á að halda fund um til-
iöguna í dag.