Þjóðviljinn - 14.02.1951, Page 6

Þjóðviljinn - 14.02.1951, Page 6
P30ÐVILJINN Miðvikudagur 14. febrúar 1951. Tvær yfirlýsingar ... Framhald af 3. síðu. í þeim væri nokkur snefill af marxistísku ra.unsæi, en það er nú til of mikils mælzt. Það bezta þess vegna, sem við get- tun gert í þessu sambandi fyrir unga jafnaðarmenn, er að bsnda þeim á að kynna sér á- lyktanir suðurkóreska sósíal- demókrataflokksins frá 29. apríl 1948 cg 25. júní 1949 og baráttu flokksins á suðurkór- cuka þinginu gegn þeirri fyrir- ætian Syng Man Rhees að ráð- ast gegn Norður-kóreu strax eumarið 1949. IV. Ungum jafnaðarmönnum h'ýtur að vera Ijóst, að all ó- friðlega horfir nú í heiminum, og ekki heldur fara þeir í graf- götur um það, að brjótist heims styrjöld út, er sjálfu lífi og til- veru íslenzku þjóðarinnar stefnt í beinan voða. Boð okkar til ungra jafnaðarmanna um þátt- töku í Berlínarmótinu grund- vallast á því, að við erum reiðu búnir til að leggja til hliðar pólitisk ágreiningsmál, ef þeir vildu hafa samstöðu með okkur cg .70 milljónum ungra manna cg kvenna úr öllum löndum heims í baráttunni fyrir friði og vildu taka undir þá kröfu með okkur, að stórveldin leysi ágreiningsmál sín á friðsam- legan hátt. Þessu boði okkar taka þeir með því að krefja okkur um yfirlýsingar, sem að vísu eru fúslega.gefnar, en sem eýna, að Samband ungra jafn- aðarmanna hefur neikvæða af- stöðu til Berlínarmótsins. Ber að harma það. En fyrst menn cru farnir að bera upp spurn- ingar, þá væri fróðlegt — vegna þess hve samtök ungra jafnaðarmanna hafa að undan- förnu látið lítið til sín heyra og lítið til sín taka — að fá svör við eftirfarandi spurning- urn: 1. „Er Samband ungra jafn- aðarmanna þeirrar skoðunar, að hagkerfi sósíalismans og hagkerfi kapítalismans geti lif- að friðsamlega sn.man hlið við hlið í heiminum?" 2. „Álitur Samband ungra jafnaðarmanna að þær aðstæð- Úr, pólitískar eða hernaðarleg- ar, gætu verið fyrir hendi, sem réttlættu kjarnorkusprengju- c4ás?“ 3. „Gæti Samband ungra jafnaðarmanna af áhuga fyrir friðnum cg virðingu fyrir mannslífum staðið að sameigin- legri yfirlýsingu með Æsku- lýðsfylkingunni, þar sem þess væri krafizt að vopnaviðskipt- um í Kóreu væri hætt þegar í stað og allt erlent . herlið væri kallað þaðan í burtu ?“ Rangsleitmn... Framh. af 5. síðu stæði, en þau hafa sem kunn- ugt er staðið fram á þennan dag og eiga enn að standa til 1. júli 1951, skv. nýsamþykkt- um lögum. Með þessu laga- fyrirmæli voru sjómenn sviptir möguleikanum til að hagnýta sér sjóveðsrétt þann, er þeim var tryggður með lögum til að knýja fram greiðsiu á kaupi sínu. En með því að lögin um frestun aðfarar eru sett í árs- lok 1948 og gengu i gildi þegar, er útvegsmenn sóttu um síldar- styrktarlán í janúar 1949, sem langflestir gerðu, voru sjómenn, sem áttu kaupkröfu á þessa útvegsmenn frá árinu 1948 eða jafnvel eldri, hindraðir í að knýja fram greiðslu á kaupi sinu. Það er rétt fram tekið í greinargerð þingsályktunarinn- ar á þskj. 202, að sjómenn hafa í s. 1- 3 ár verið hindraðir með lagafyrirmælum í að knýja fram greiðslu á kaupi sinu á grundvelli sjóveðsréttarins. — Enda er þessi skilningur nú staðfestur með hæstaréttardómi sem kveðinn var upp 20. des. s. 1. Ég mæli mjög eindregið með því, að háttvirtir alþingismenn samþykki tillögu h."?a og bindi þar með endi á I rangsleitni, að sjómenn fái ekki greitt kaup sitt ár eftir ár, eins og átt hef- ur sér stað s. 1. 3 ár. Ég vil benda á, að það gegn- ir furðu, að samtök sjómanna og heildarsamtök verkalýðsins í Iandinu skuli ekki hafa skorizt í þetta mál og stöðvað skip þeirra útgerðarmanna, sem ekki hafa gert upp kaup við sjómenn sína frá fyrri vertíðum. Aug- Ijóst er þó, að að því rekur nu, að þessi samtök munu láta málið til sín taka, ef Aiþingi ekki nú bindur endi á þetta ranglæti. Alþingi, 7. febr. 1951. Ásmundur Sigurðsson“. Undir eilífðarstjörnizin Eftir A.J. Cronin 89. D A G U E Bæjarpósturinn Framh. af 4. siðu — En það gætir bara dálítils misskilnings hjá manninum. Hér var ekki verið að kvarta um ónógar fréttir af ræðuhöld um og hátíðlegheitum kringum sýninguna, af slíku höfum við fengið yfrið nóg. Undan hinu var aftur á móti réttilega kvart að, að útvarpið og aðrir frétta- aðiljar hirtu næsta lítið um að segja íslenzkum a’menningi frá því, hvernig sýningin fííli Norðmönrium í geð.' þangað af einskærum kvikindishætti, til að reyna að saurga einn af okkar mestu mönnum, mann, sem útvegaði þér þetta starf, sem þú hef- ur aldrei átt skilið. Þú hefur glefsað í þá hönd sem gaf þér brauðið. En eins og guð er yfir mér, þá skaltu fá ástæðu til að iðrast þess“. „Ég er sjálfur bezt dómbær á það“, sagði Davíð stuttaralega og bjóst til að fara. „Dokaðu við“, æpti Ramage. „Ég er ekki búinn að ljúka mér af. Mér hefur alltaf fundizt þú vera vandræðagripur eins og faðir þinn var. Þú ert ekki annað en bölvaður sósialisti. Við höf- um enga þörf fyrir kennara af þínu tagi í okkar skólum. Þú verður rekinn“. Þögn. Davið virti Ramage fyrir sér. „Þið getið ekki rekið mig“. „Ekki það? Ekki það?“ Það var sigurhrós í rödd slátraransí' „Þér þykir þá kannski fróðlegt að heyra að við héldum skólanefndarfund í gær- kvöld til að ræða framkomu þína og samþykkt- um einróma tillögu um að þú yrðir rekinn“. „Hvað þá?“ „Það stoðar litið að segja hvað þá. Strother afhendir þér uppsögnina í fyrramálið. Hann vill fá kennara sem hefur lokið prófi, ekki fá- fróðan námustrák eins og þig. „Drykklanga stund stóð Ramage kyrr og naut þess að virða fyrir sér svipbrigðin á andliti Davíðs, síðan sneri hann sér við og gekk inn í búðina með illgirnis- legt glott á þykkum vörunum. Davíð hélt áfram eftir Lamb stræti, niðurlút- ur og hugsandi. Hann fór inn í húsið sitt, fram 3 eldhúsið og fór í leiðslu að hita handa sér te. Jenny var í Tynecastle hjá móður sinni; hann hafði sent hana þangað í vikunni á undan til að hlífa henni við áhyggjum út af réttarrann- sókninni. Hann settist við boröið, hrærði í boll- anum áfram og áfram, án þess að bragða á te- inu. Svo að þeir voru að reyna að losna við hann. Hann vissi að Ramage hafði verið full al- vara. Auðvitað gæti hann barizt, leitað til kenn- arasambandsins um aðstoð. En til hvers væri það? Hann varð hörkulegur á svipinn. Nei, það var bezt að láta þá hafa mál sitt fram. Hann ætlaði að tala við Nugent klukkan sex. Hann vildi losna við þessa tilgangslausu kennslu. Hann varð að réttlæta sig í augum sjálfs sín, aðhafast eitthvað. Kortér fyrir sex skellti hann útidyrunum á eftir sér og gekk áleiðis til brautarstöðvarinnar. En þegar hann var kominn hálfa leið, heyrði hann hróp og hávaða i nánd við sig: þegar hann leit upp sá hann tvo blaðsöludrengi koma hlaup- andi niður brekkuna með blöðin á lofti. Hann keypti biað. Allar lausafregnirnar, allur óttinn, sem atburðir siðustu viku höfðu yfirgnæft, komu skyndilega upp í huga hans aftur. Og yfir þvera forsíðuna stóö með risavöxnum bókstöfum: FRESTUR BRETA ER ÚTRUNNINN Á MIÐNÆTTl 1 NÓTT. 26 Skömmu eftir hádegi annan laugardaginn í september 1914, kom Arthur heim úr Neptún- námunni. Vinnan i námunni hafði verið tekin upp að nýju, hið hörmulega slys virtist grafið og gleymt. En það var enginn ánægjusvipur á andliti Arthurs. Hann gekk upp trjágöngin eins bg þreyttur maður, hann nálgaðist „Brekku“, og eins og hann hafði búizt við og kviðið fyrir, var nýi bíllinn kominn. Bartley hafði verið mán- DAVfB . .A uð i Tynecastle til að læra að aka, hann hafði ekið bílnum heim og nú stóð hann fyrir framan aðaldyrnar, sléttur og gljáandi, ljómandi af messingi og dökkrauðu lakki. Barras stóð hjá honum og um leið og Arthur gekk framhjá, kajlaði hann: „Sérðu Arthur, loksins er hann kominn“. Arthur nam staðar. Hann var í vinnufötunum, Hann starði á bílinn með alvörusvip og sagðl: „Já, ég sé það“. „Ég hef svo mikið að gera að ég verð að eiga bíl“, sagði Barras til skýringar. „Það er hlægi- legt að mér skuli ekki hafa dottið það í hug fyrr. Bartley segir að vélin sé prýðileg. Við för- um í reynsluferð til Tynecastle í kvöld“. Arthur stóð kyrr og hugsaði sig um. Síðan sagði hann: „Því miður get ég ekki komið“. Barras hló. Hláturinn var nýr eins og bíllinn. Hann sagði: ,,Hvaða vitleysa. Við verðum með Toddfólkinu í kvöld. Ég er búinn að panta kvöldverð á Cent- ral hótelinu handa okkur öllum“. Arthur leit af vagninum á föður sinn. Barr- as var ekki rjóður í andliti en þó var eins og hann ætti að vera það. Augun og munnurinn virtust stærri en venjulega, einkum virtust nær- sýn ’augun undir gleraugunum vera framstæð. Hann virtist eirðarlaus og eftirvæntingarfullur; ef til vill var það vegna nýja bílsins. „Ég hélt ekki að þú legðir í vana þinn að bjóða fólki til kvöldverðar á veitingahúsum“, sagði Arthur. „Ég geri það ékki heldur“, svaraði Barras með skyndilegri gremju. „En þetta er sérstakt tækifæri. Alan er að fara á vígstöðvarnar með herfylki sínu. Við erum öll hreykin af honum, Auk þess hef ég ekki séö Todd í langan tíma. Mig langar til að heimsækja hann“. Arthur virtist aftur í þungum þönkum, siðan spurði hann: Hefurðu ekki séð Todd síðan slysið varð í námunni?“ „Nei“, svaraði Barras stuttur í spuna. Það varð dálítil þögn. „Mér hefur alltaf fundizt skrýtið pabbi, að þú skyldir ekki láta Todd hjálpa þér í réttar- höldunum“. Barras sneri sér snöggt við. „Hjálpa mér. Hyað áttu við ? Var úrskurður- inn ekki viðunandi?" „Viðunandi?“ „Já, ég sagði það“, hreytti Barras út úr sér. Hann tók upp vasaklútinn sinn og þurrkaði ryk- korn af bílnum. „Ætlarðu að koma til Tyne- castle eða ekki ?“ Arthur svaraði og horfði niður fyrir sig: „Já, ég kem, pabbi“. Það varð þögn og svo hljómaði hádegisverðár- bjallan. Arthur gekk inn á eftir föður sínum, Barras gekk dálítið hraðar en venjulega. Arthur íannst hann vera að flýta sér; upp á síðkastið var faðir hans farinn að ganga svona hratt. „Glæsileg bifreið“, sagði Barras við borðið og horfði í áttina til Carrie frænku. „Þú verður að reyna hann einhvern tíma á næstunni, Caró- lína“. Carólína frænka roðnaði af ánægju, en áður en hún fengi ráðrúm til að svara, var Barras búinn að taka dagblaðið, aukablað, sem Bartley hafði komið með frá Tynécastle. Hann renndi augunum yfir forsíðuna og sagði síðan með ánægjuhreim í röddimii: „Aha: hérna eru fréttir í lagi. Meira að ségja góðar fréttir“. Sjáöldur hans þöndust lítið ci1;t út. „Stórósiguf Þjóðverja við Marne. Mikið mann- tjón. Vélbyssur okkar brutu alla vörn óvinanna á bak aftur. Geysilegt manntjón. Lauslega áætl- að að fjögurþúsund hafi falliö og særzt“. Arthur tók eftir því að faðir hans lagði mesta áherzluna á manntjónið, þetta blóðbað, þessa slátrun fjögur þúsund manna. Það fór hrollur um hann. ,,Já“, sagði hann með undarlega blælausri röddu. „Það er geysilegt. Fjögur þúsund menn. Það er næstum fjörutíu sinnum meira en við fhisátúiri 'í Neptúrinámunni“i Dauðaþögn. Barras lagði frá sér blaðið. Hann leit framstæðum augunum á Arthur og sagði hárri röddu: „Það bendir á undarlegan hugsanagang, að þú skulir minnast á þetta tvennt í sama orðinu. Ef þú hættir ekki bráðum að brjóta heilann um það sem liðið er og . gleymt,, þá*ndar það

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.