Þjóðviljinn - 18.02.1951, Page 4
3
ÞJÓÐVILJINN
Sunaudágur 18. febrúar 195Í.
Þióðviliinn
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíallstaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, SigurBur Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjórl: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfl ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustíg
19. — Síml 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 76 aur. elnt
Prentsmiðja Þjóðviljans b. f.
Burgeisar Sjál fstæðisflokksins
stöðva strætisvaguana
íhaldið í bæjarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að
stöðva strætisvagnana heldur en verða við sanngjörnum
kröfum bílstjói-anna um kjarabætur. íhaldshyskið sem
þessa ákvörðun tekur og flokksbroddar íhaldsins aðrir
finna ekki mikið til óþæginda við stöðvun strætisvagn-
anna, lúxusbílar þess þjóta um götur Reykjavíkur eftir
sem áður, það verður engin truflun á ferðum þess, Og
hvað varðar þá fína Sjálfstæöismenn um möguleika tug-
þúsunda alþýðumanna í þessum bæ að komast til vinnu
qg frá og yfirledtt fara ferða sinna um bæinn? Reykjavík
er orðiri það stór borg, að mjög erfitt er fyrir venjulegt
bíllaust fóík að fara ferða sinna án þess að hafa strætis-
vagnana, enda er fólk farið að treysta því að þeim innan-
bæjarsamgöngum sé haldið uppi. Og nú bætist þar ofan
á að ein versta færð sem komið getur í Reykjavík er á
öllum götum, svo gamalt fólk og lasburða veigrar sér
við að fara milli húsa gangandi.
Það finnst í einu og öllu hve gersamlega áhugalaus
Sjálfstæðisflókkurinn er fyrir velferð bæjarbúa. Hann
treystir á það, að sé byrjað á einhverju áberandi brölti
síðustu mánuðina fyrir bæjarstjórnarkosningar, blekki
það nógu marga til að framlengja völd bitlingahers
íhaldsins í bæjarstofnununum og við bæjarfyrirtækin.
Svo þegar þetta hefur tekizt, bitlingaherinn fengið fram-
lengingu til fjögurra ára, er skjallinu við fólkið og fögru
loforðunum gleymt — fram á síðasta ár kjörtímabilsins.
Stjórn Strætisvagna Reykjavíkur hefur löng'um verið
með endemum, ekki sízt eftir að Sjálfstæöisflokknum
kom það snjallræði í hug að setja mann eins og Jóhann
Ólafsson yfir reksturinn. Oft gæti manni virzt að af
stjórnendanna hálfu væri rekstrinum hagaö þannig að
hann yrði tilvalin röksemd fyrir einkabraskara íhaldsins
gegn opinberiun rekstri. Við erfiðustu skilyrði, hálfónýta
bíla, vaktavinnu alla daga vikunnar verða strætisvagna-
bílstjórarnir að vinna, á þeim dynja aðf innslur og skamm-
ir vegna sleifarlagsins á rekstri fyrirtækisins, án þess að
þeir eigi nokkra sök á því sem aflaga fer eða geti að því
gert. Og þegar þeir fara fram á nokkra kauphækkun til
að hiamla á móti hinu tryllta dýrtíðarflóði, einn frídag í
viku og viku lengingu á sumarfríi, þá stöðvar Sjálfstæðis-
flokkurinn strætisvagnana, alveg án tillits til þeirra tug-
þúsunda reykvískra alþýðumanna sem hafa af því veru-
leg óþægindi, — og reynir svo að beina reiði fólksins
gegn bílstjórunum.
Það mun ekki takast. Reykvísk alþýða veit að hér
eru að verki burgeisar Sjálfstæðisflokksins sem sjálfir
þjóta um í hinum velfengnu lúxusbílum sínum og treysta
því að um næstu kosningar verði Reykvíkingar búnir
að gleyma því hvernig þessi ósvífna burgeisaklíka hagar
sér gagnvart alþýöu bæjarins. Og lærdómsrík má þessi
afstaða vera fyrir þá Hreyfilsmenn sem nýbúnir eru aö
sjá málgagn þessara sönnu íhaldsburgeisa hossa „lýð-
ræðissinnunum" er „unnið“ hafi Hreyfil. Lærdómsríkt að
vita sömu burgeisa Sjálfstæðisflokksins sem fögnuðu
ákafast sigri Bergsteins & Co. reyna að berja niður sann-
gjarnar kröfur strætisvagnstjóranna, og hika ekki við að
gera öllum þorra Reykvíkinga veruleg óþægindi ef tak-
ast mætti með því að kúga bílstjórana til að falla frá
sanngirniskröfum sínum.
En alþýða Reykjavíkur Iætur ekki blekkjast. Hún
veit hvert hún á að beina reiði sinni vegna strætisvagna-
stöðvunarinnar. Krafa bæjarbúa er: Tafarlausa samninga
yið bílstjórana.
Góa geugur inn.
Maður úr sveit skrifar: —
„Góa kom í dag. Á öllum tím-
um hefur koma Góu verið tal-
in merkur þáttur í sögu vetr-
arins og boðað lengri og bjart-
ari daga, sem fram undan
voru. Þó að segja megi að Góa
væri oft mörgum kærkominn
gestur, var þó þræll hennar enn
kærkomnari. Góunni var oft
fagnað sem merkisdegi og mörg
stakan hefur henni áskotnazt
um dagana eins og þessi hug-
ljúfa staka bendir til:
Velkomin sértu góa mín
og gakktu inn í bæinn,
vertu ekki út i vindinum
vorlangan daginn.
Þá hefur þeim er orti þessa,
stöku, ekki fallið Góa sú illa í
geð:
Góa yndi görpum ól
gladdi kindur lands um ból,
elju vindur fannir fól
færði vind af suður pól.
En Góa fékk stundum kaldar
kveðjur og ekki sem bezt orð af
gamla Þorra:
Þegar hún Góa gengur inn,
gefur hún Þorra meydóm sinn,
reif hann af henni ræfilinn
svo ráðlaus varð kerlingin.
•
Vonandi boðar húa
bætur.
„Þegar Góa gekk í garð, var
talið að fyrstu dagar hennar
þrír, sýndu hana í raun og veru
alla, því „Góður skyldi góu
dagurinn fyrsti, annar og þriðji,
þá mun Góa góð verða“. Þetta
var margra veðurspá fyrri tím-
ans, aðrir töldu að betur ætti
við að fyrstu dagarnir væru
„grimmir“. Margir kannast
við þessa vísu við burtför
Þorra og komu Góu:
Góa kemur með gæðin sín,
gefst þá nógur hitinn.
Fáir sakna Þorri þin,
þú hefur verið skitinn.
Þessi vetur hefur víða um sveit
ir landsins verið mörgum erfið-
ur tími, langvarandi jarðbönn
fyrir skepnur, í fáum orðum
sagt ■—- frekar harður —. Við
skulum vona að Góan, með
lengri og lengri daga, jafni það
og bæti. — Maður úr sveit.“
Önnur rödd úr Biesu-
gróf.
Kæri Bæjarpóstur. — Ég sé
það að þú ert orðinn aðalmál-
gagn okkar Blesgræfinga. Enda
er það í fullu samræmi við all-
ar aðstæður. En það er nú svo
um okkur hér sem aðra, að
syngur hver með sínu nefi.
Maður úr Blesugróf skrifar um
mörg okkar vandkvæði og er
ég albúinn að taka undir, en
þó með fyrirvara. Og er þess
þá fyrst að geta, að ég get
ekki og vil ekki taka undir
neinn niðrunarsón um Ásgeir
Þorstéinsson. Ég veit ekki til
að sumarhöll hans hér sé nein-
um til meins. Hefur hann veitt
mönnum hér stuðning, og það
hefur komið fyrir, að hann hef-
ur þama að vetrinum leyft nauð
stöddu fólki húsaskjól. Hann
hafði ráð á síma og setti hann
þar sem bezt hagaði fyrir al-
menning, en sjálfum sér til ó-
þæginda. Verð ég að skoða það
svo, að þessi urgur um Ás-
gei rsé eitthvað persónulegur.
•
Mjólkurmálið?
Þá er það mjólkurmálið. .—
Þar skiptast menn hér í tvo
flokka, eftir hagsmunum hvers
ög. eins. Um það atriði hygg ég
að ékki þýði að deila. Þó vil ég
ekki fallast á það að gamla
búðin sé meira við hæfi okkar
hér en þessi skúrhöndlun, sem
hann svo nefnir, og segir að
standi skammt frá Breiðholts-
végi. Þá athugasemd skil ég
ekki, þar sem búðin, sem hann
mælir með, stendur svo fast við
Breiðholtsveg áð það er rétt
svo að bílar geti þar mætzt. —
Og svo eru það strætisvagnam-
ir— þar er ég manninum sam-
mála en ég er hræddur um að
það eigi langt í land að þeir
fari að sækja okkur upp á
Réttarmel, á meðan þeir svíkja
um far af Bústaðahorni, hvenær
sem þeim býður svo við að
horfa.
Til 'áð finna orðum mínum
stað, vildi ég mega nefna, eitt
dæmi. Morguninn 29. janúar,
laust fyrir háifátta, var fjöldi
farþega á Bústaðahorni, þar á
meðal skólabörn. Þeirra bíll
kom ekki, en strætisvagn var
kominn inn á rafstöð. — Soga-
vegur var ófær bílum, en Breið
holtsvegur var snjólaus, svo að
allir töldu vÍ3t að vagninn kæmi
upp á Bústaðahorn, en færi svo
sömu leið til baka. Svo fer vagn
inn af stað frá stöðinni og norð
ur á Langholtsveg, en það eru
hans vanakúnstir sem enginn
skilur. Þar hittir hann annan
vagn, að sjálfsögðu vagninn
sem er stimplaður Sogamýri, en
kemur þar aldrei. Það virtist
sem vagnstjóramir færu að
skeggræða, en fólkinu á Bú-
staðahorni þótti háttalagið
kyndugt, svo það gengur allt
af stað í áttina til þeirra, en
þá fóru þeir að hypja sig í
átt tii bæjarins.
★ ★ ★
Ríkisskip
Hekla fór frá Rvík x gær austur
um land til Siglufjarðar. Esja
kóm til Rvíkur i gærkvöld að aust
an og norðan. Herðubreið, Skjald-
breið og Þyrill eru í Rvík. Ár-
mann fór frá Rvik siðdegis í gær
til Vestmannaeyja. Oddur kom til
Rvíkur seint í gærkvöld að vestan
og norðan.
Eimskip
Brúarfoss er í Reykjavík Detti-
foss er á Akureyri. Fjallfoss er í
Kristiansand; fer þaðan til Rotb-
erdam, Antwerpen, Hull og Rvík-
ur. Goðafoss er í Rvik. Lagarfoss
fór frá Hamborg í gær til Rotter-
dam, Leith og Rvíkur. Selfoss
fór frá Antwerpen 14. þ. m. til
Djúpavogs. Tröllafoss fór frá New
York 11. þ. m. til Rvíkur. Aud-
umla fór frá Hull 13. þ. m. til
Rvíkur. Foldin fór frá Rotter-
dam 14. þ. m. til Reykjavikur.
Næturlæknlr er i læknavarð-
stofunni. — Simi 5030.
Skipadeild SIS
Arnarfell fór frá Malaga í gær-
kvöld áleiðis til Reykjavíkur.
Hvassafell er í Cadiz.
Laadssamband biandaffra kóra
gengst-fyrir skemmtun í Vetrar-
garðinum i dag. Söngfólk sam-
bandskóranna verður látið sitja í
Cyrirrúmi með miða fyrir sig og
ge3ti sina. Simi 6710.
Athygii skal vakin á auglýsingu
frá Húsmæðrafélagi Reykjavíkur
í blaðinu i dag, varðandi sýni-
kennslunámskeið félagsins.
Fastir liðir eins og
venjulega. — Kl.
11.00 Messa í Hall-
grimskirkju (Séra
Sigurjón Árnason).
15.15 Útvarp til Is-
lendinga erlendis: Fréttir. 15.30
Miðdegistónl.: a) Gladys Swart-
hout og Jussi Björling syngja (plöt
ur). b) 15.55 Lúðrasveit Reykja-
vlkur leikur; Paul Pampichler
stjórnar. 18.30 Barnatími (Baldur
Pálmason): a) Guðmundur M.
Þorláksson kennari les ævintýri:
„Heimski Villi“. b) Árni Arinbjarn
arson leikur ýmis lög á harmon-
iku. c) Baldur Pálmason les bók-
arkafla. 19.30 Tónleikar: Fritz
Kreisler leikur á fiðlu (plötur).
20.20 „Bláa stjarnar": Fegurðar-
samkeppnin (blönduð dagskrá).
22.15 Danslög (plötur) til 23.30.
í gær voru gaf-
in saman í
hjónaband í K-
höf n, ungfrú
Minni Kalsæg
frá Eiðsvelli í
Noregi og Ólafur Gunnarsson frá
Vík í Lóni. Heimili þeirra verður
fyrst um sinn Frederiksborggade
41. Kbh.
Helgldagalæknir: Þórður Þórðar-
son, Miklubraut 46. — Sími 4655.
Kvennadelid Slysavarnafélagsins
efnir til merkjasölu á götum bæj-
arins í dag til fjáröflunar fyrir
starfsemi deildarinnar í slysa-
varnamálum. — Reykvíkingar!
Styöjið starfsemi sjysavarnadeild-
arinnar með því að kaupa merki
hennar í dag. Foreldrar! Leyfið
börnum ykkar að selja merkin.
Þau eru afgreidd til sölubarna í
húsnæði Slysavarnafélagsins, Gróf-
inni 1, uppi.
Flugfétag Islands
Innanlandsflug: I dag eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyrar
og Vestmannaeyja. Á morgun pr
ráðgert að fljúga til sömu staða.
Millilandaflug: Gullfaxi fer á
þriðjudagsmorgun til Prestvíkur
og Kaupmannahafnar.
Nýlega háfa opin-
berað trúlofun sína
ungfrú Ingibjörg
Gísladóttir Helga-
vatni og Hinrik
K. Einarsson,
Hömrum, Þvei'árhlíð, Mýrarsýslu.
Þingeyingafélagið í Reykjavík
heldur aðalfund í Café Höll (uppi)
mánúdagskvödið n. k. kl. 8.30.
Þjóðleikhúsið sýnir „Flekkaðar
hendur" eftir P. J. Sartre í kvöld
og er það 7. sýning þess á leik-
ritinu.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1618.
FASTEIGNA
■> SÖLU
MIÐSTÖÐIN
Lækjargötu
10 B
SÍMI 6530
C .