Þjóðviljinn - 11.03.1951, Blaðsíða 8
vörutegunir á lögvernduðu
svartamarkaösverði
I síðasta tbl. Lögbirtingablaðsins er birtur listi yfir hinar
snonefndu „bátavörur“, |s.e. þær vörur sem útgerðarmenn mega
flytja inr. fyrir sinn gjaldeyri.
Á þessum lista eru um 160 vörutegundir, þ.e. 160 vöru-
tegundir hafa verið settar á lögverndaðan svartan markað.
Gildistaka þessa lista þýðir
að allt verðlagseftirlit er afnurn
ið á þeim vörum sem á listan-
um eru, en þar er fjöldi naúð-
synjavara svo sem nýir ávextir,
sápur allskonar og þvottaefni,
ytri fatnaður úr ull, baðmull
og liör, regnkápur, hreinlætis-
vörur, bílvélar og varahlutir í
bíla, flugvélahreyflar og vara-
hlutir í flugvélar, margskonar
heimilisvélar, leðurvörur og ljós
myndavörur, svo nokkuð sé
nefnt af þessum langa lista, en
Þjóðviljinn mun skýra nánar
frá honum síðar.
Verðgæzlustjóri, Pétur Pét-
ursson, ræddi við blaðamenn í
gær um hið breytta viðhorf í
verðgæzlumálum, þegar allt
verðlagseftirlit er afnumið á ca.
160 vörutegundum. Verðlagseft-
irlit verður áfram á samskonar
vörum sem framleiddar eru hér
á landi, svo ,og vörubirgðum
þeim sem þegar eru til í land-
inu af samskonar vörum og
þeim sem nú hafa verið settar
á „bátalistann", — en hætt er
við að erfitt reynist að líta
eftir því að eitthvað af þeim
vörum sem keyptar voru inn á
gamla verðinu verði ekki seldar
út á nýja verðinu. Allt sem al-
menningi finnst grunsamlegt í
þessu efni ætti hann að láta
verðlagseftirlitið vita um.
Allar þær vörur sem tollaf-
greiddar voru áður en „bátalist
ínn“ gekk i gildi, þ. e. allar
eldri erlendar vörubirgðír eru
Stærstu vinningar
1 gær var dregið í 3. flokki
happdrættis Háskóla Islands.
Stærsti vinningurinn, 25 þús-
und krónur, féll á nr. 6590,
fjórðungsmiðar seldir í umboði
Marenar Pétursdóttur. Tíu þús-
und króna vinningur á nr.
13382, fjórðungsmiðar, einn
seldur á Akureyri, 2 á Fá-
skrúðsfirði og einn í umboði
Pálínu Ármann. Fimm þúsund
króna vinningur féll á nr.
18787, fjórðungsmiðar, 2 í Hafn
arfirði og 2 í Reykjavík.
háðar verðlagseftirliti.
Vænta má þess að eitthvað
af vörum með hinu löghelgaða
svartamarkaðsverði komi í
verzlanir á næstunni — klósett
pappírinn á 5 kr. rúllan, er
þegar kominn í búðir.
Verðgæzlustjóri mun láta sér
prenta fyrir almenning lista
yfir vörur þær er fluttar verða
inn fyrir bátagjaldeyrinn og
verður listinn fáanlegur í skrif-
stofu verðlagseftirlitsins.
Lík litla
drengsins fannst
í Selsvör
Lík litla drengsins, sem hvarf
í Vesturbænum í fyrradag,
fannst í Selsvör, neðanvert við
lýsisstöð Bernhards Petersens,
skömmu fyrir hádegi í gær.
Mörg huhdruð manns tóku
þátt í leitinni að drengnum í
fyrrakvöld og frameftir nóttu.
Með birtingu í gærmorgun var
leitin hafin aftur af auknum
krafti og tóku þá m. a. mörg
hundruð skólabörn þátt í henni.
Það var Jónas Björnsson, Þver-
holti 5, sem fann ]íkið, en hann
var í leitarflokki sem leitaði
um f jörurnar vestur frá.
Eins og skýrt var frá í blað
inu í gær, hét drengurinn Þór-
arinn Kjartansson og var til
heimilis að Laugavegi 76. Hann
var sonur hjónanna Ásdisar
Ársælsdóttur og Kjartans Þór-
arinssonar flugmanns. Hafði
móðir barnsins farið méð bað
í heimsókn til afa þess og
ömmu vestur á Seljaveg 15.
Fór drengurinn þar út til að
leika sér ásamt bróður sínum,
sex ára, og fleiri börnúm með-
an móðir hans var að þvo þvott.
Stuttu síðar var litil telpa send
með drenginn heim í húsið Selja
veg 15 og skildi hún við hann
í forstofunni. Er talið sennilegt
að hann hafi farið út aftur til
að leita barnanna, en til þeirra
sást ekki frá anddyrinu.
Munið aðalfund M, L R. í
Sfjörnubíé
Sýíid verÖK? ný lívikmýnd frá Kína
Aðalfundur MÍB — Menningartengsla íslands og
Ráðstjórnarríkjar.na, verður haldinn í dag í Stjörnu-
bíói, og hefst hann klukkan 2 e. h.
S Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða kosnir full-
5 trúar á landsfund M IR, sem haldinn verður dagana
? 17.—18. marz í tilefni af því að þá er ár liðið frá því
i M í R var stdfnað.
Að Iokum verður sýnd ný kvikmynd frá Kína, en
5 valdatáka kínverskrar alþýðu er áhrifamesti viðburð-
k ur hcimsmálanna á síðlistu árúm, og nú Ioks gefst
( mönnum hér tækifæri til að kynnast lífi hinnar sókn-
I djörfu og sigurfagnandi kínversku alþýðu.
l Allir MI R-félagar ættu því að sækja aðalfundinn.
t í Stjörn'ubíói í dag klukkan 2 e. h.
Vilja reka
strætisvagnana
Á síðasta bæjarráðsfundi lá
fyrir bréf frá nokkrum mönn-
um um það að til mála hafi
komið að bærinn hætti rekstri
strætisvagnanna og óska eftir
viðræðum við bæjarráðið um
að þeir taki rekstur strætisvagn
anna að sér.
Fimm af þessum mönnum eru
starfsmenn strætisvagnanna, og
bendir Imð óneitanlega til þess
að þeir hafi trú á því að hægt
sé að reka strætisvagnana með
hagnaði.
Þeir sem . gjarna vilja taka
rekstur strætisvagnanna að sér
eru: Skúli Halldórsson, sem
verið hefur skrifstofustjóri
strætisvagnanna frá upphafi
vega, líka þegar þeir voru í
einstaklingsrekstri, Haraldur
Stefánsson og Ragnar Þorgnms
son, báðir eftirlitsmenn hjá
strætisvögnunum, Gunnar Egils
son lagermaður hjá strætisvögn
unum, Lúðvík Á. Jóhannesson,
Kristján Þorgrímsson og Ólaf-
ur Þorgrímsson.
Sunnudagur 11. marz 1951 — 16. árgangur
59. tölublað
Fjölmennið á framhaldsfuiid
Dagsbrúnar í Lisfamanna-
skálanum í dag kl.
Nýjar tillögur á
Parísarfimdinum
Fulltrúar fjórveldanna á dag
skrárfundinum í París ræddust
við í 3 klst. í gær. Fulltrúar
Vesturveldanna lögðu fram
nýjar tillögur til nánari skil-
greiningar á 1. dagskráratrið-
inu, en það ér um athugun á
orsök þeirrar spennu milli aust
urs og vesturs, sem ríkir í
Evrópumálum. Grómíkó, full-
trúi Sovétríkjanna, lýsti því yf-
ir, að hann teldi tillögur þessar
ekki nógu ákveðnar, en kvaðst
annars mundi gera nánari
grein fyrir afstöðu sinni til
þeirra, næst þegar fulltrúarnir
koma saman. Það verður á
morgun.
Dagsbrúnarmenn! Framhaldsaðalíundurinn er í dag
kl. 2 e. h. í Listamannaskálanum. Verður þar lokið þeim
störfum aðalfundar sem ekki vannst tími til í janúar.
Þýðingarmesta mál fundarins er atvinnuleysismálið,
en það snertir ekki aðeins þann mikla fjölda verka-
manna sem nú er atvinnulaus, heldur einnig þá sem enn
hafa vinnu, og búast við að halda henrii. Atvinnuleysið
er mál allra verkamanna.
Annað mikilsvert mál verður einnig rætt á fund-
inum, en það er uppsögn samninga félagsins.
Enginn Dagsbrúnarmaður sem getur komið því við
að sækja fundinn má sitja heima.
Fjölmennið Dagsbrúnarmenn, og mætið stumlvíslega.
Mðrðlngja fúslega veift
vegabréfsáritun til
„Óvenjulegar kringumstæður" greiða götu
mannsins sem myrti Peter Vojkelf, sendi-
herra Sovétrikjanna í Póllandi
Gamlir fasistar í Evrópu og pólitískir glæpamenn
eiga sannarlega hauk í horni þar sem eru stjórnarvöld
Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn eru ekkí fyrr búnir aS
hleypa þýzkurn stríösglæpamönnunum út úr fangels-
unum og leiða þá til hárra embætta, en fregn berst um
þaö, aö félagsmálanefnd bandarísku fulltrúadeildarinnar
hefur staðfest sérstaka undanþágu í lögum til aö veita
alræmdum morðingja vegabréfsáritun til Bandaníkjanna.
Maður þessi heitir Boris Kov-
erda, og það var hann, sem
í júní 1927 myrti Peter Vojkoff,
sendiherra Sovétríkjanna í Pól-
landi. I Reutersfregn segir, að
þingnefndin veiti Koverda land-
vistarleyfið á þeirri forsendu,
að „óvenjulegar kringumstæð-
ur“séu tengdar máli hans. Fólk
Skinnaverksmiðjan Iðunn byrjar
framleiðslH á sólaleðri
Skinnaverksmiðjan Iðunn á
Akureyri hefur nýlega byrjað
framleiðslu á sólaleðri, og er
þetta alger nýung hér á landi.
Þessi framleiðsla mun bæta úr
brýnni þörf', þar eð oft heíur
verið skortur á sólaleðri í land
inu undanfarin ár.
Iðunn starfar í tveim deild-
jum, sútun og skógerð. Á síðast
lliðnu ári voru sútuð 272.000
kg. af ýmis konar húðum og
skinnum, en það skiptist þann-
ig: 8 364 nautgripahú'ðir, 5 012
hrossa- og tryppahúðir, 28 980
sauðskinn, 1 055 gærur loðsút-
aðar, og loks 956 skinn af ýms-
um öðrum tegundum.
Úr þessu framleiddi verk
smiðjan ýmsar tegundir af
skinnum og leðri, svo sem
hanzkaskinn, fataskinn, hús-
gagnaleður, söðlasmíðaleður,
töskuleður, bókbandsskinn og
boxcalb, cheveráux og vatns-
leður til skógerðar. Við þetta
bætist svo sólaleðrið, sem áður
er getið. Skógerðin framleiddi
á síðastliðnu ári 42.305 pör af
allskonar skóm, karla, kvenna
og barna. Báðar juku verk-
smiðjurnar framleiðslu sína frá
árinu 1949. Við sútunina vinna
nú 34 menn og við skógerðina
62. Greiddu þessar verksmiðj-
ur samtals tæpar tvær milijón-
ir króna í vinnulaun á síðast-
liðnu ári.
sem dæmt hefur verið fyrir
meiriháttar glæpi, getur annars
ekki fengið landvistarleyfi í
Bandaríkjunum.
Eftir morðið á Vojkoff reyndi
þáverandi fasistastjórn Pól-
lands að skjóta Koverda undan
hegningu, en þegar ráðstjórnin
sýndi fram, á að hún vissi
hvernig í öllu lá, sá pólska
stjórnin sér ekki annað fært en
láta dóm ganga yfir morðir.gj-
ann. Koverda var dæmdur í ævi
langt fangelsi.
í apríl 1934 var frá því skýrt
í bandaríska tímaritinu The
Fascist (Fasistinn), að rit-
Framhald á 7. síðu.
Sfarfsfálki
strætisvagnanna
sagt
Á bæjarráðsfundi í fyrradag
lagði íhaldið fram tillögu um
að segja upp öllu starfsliði
strætisvagnanna, og var sú til-
laga samþykkt með 3 atkv. 1-
haldsins, en Sigfús Sigurhjart-
arson og Magnús Ástmarsson
sátu hjá.
I tillögunni er ákvæði um
það a’ð samþykki borgarstjóra
þurfi til við ráðningu starfs-
manna strætisvagnanna eftir-
leiðis.
£f einhverjiz shyldu
hafa dáið
íhaldið virðist hafa vaknað
af sínum langa Þyrnirósusvefni
varðandi sumarbústaðalöndin
við Rauðavatn. Þrjú ár munu
vera liðin síðan úthlutun þeirra
var á döfinni. Nú auglýsir 1-
haldið að menn verði að endur
nýja umsóknir sínar um löndin,
og verði „ýmissa upplýsinga
ki'afizt". Umsóknimar geta
menn endurnýja'ð hjá ræktunar
ráðunaut Reykjavíkur, Ingólfs-
stræti 5, á virkum dögum frá
ki. 1—3 e. h. og skulu hafa
lokið endurnýjunarbeiðnum sín
um fyrir kl. 12 á hádegi 28. þ.
m. — Ekki mun ætlunin að
breyta gömlu úthlutuninni, held
ur mun þetta gert til að kanna
hve margir kunni að hafa flutzt
burt eða dáið á þessum árum
sem liðin eru frá síðustu út-
hlutun!