Þjóðviljinn - 16.03.1951, Side 1
Föstudagjur 16. marz 1951 — 16. árgapgur — 63. tölublað
sm a mm m
Óperusöitgkonan Kazankeva og píaitösis illisi guri nn
Walter koma fram á opíuberum tónleikum í
t AusturbæJarMói n. k. sunnudag
bapiisiMair
í París
l Vesturveldafulltrúarnir á
fundi staðgengla utanríkisráð-
herra fjórveldanna í París svör
uðu í gær hinum nýju tiilög-
um Gromikos um dagskrá ut-
anríkisráðherrafundar með því
að siaka nokkuð til fyrir sitt
leyti. Féllust þeir á að nefna
sérstaklega afvopnun Þýzka-
lands i fyrsta dagskrárliðn-
um. Davies fulltrúi Bretlands,
kailaði þetta mikla tilsiókun
og kvaðst vonast tiJ, að aJgert
samkomulag væri nú skammt
undan. Gromiko sagði að um
nokkra framför vera að ræða,
þótt Vesturveldin vildu enn
Framhald á 8. síðu.
Blaðamenn áttu í gær viðtal við sovézku menningar-
fulltrúana sem hingað eru Itomnir á vegum MÍR. Prev-
entzev rithöfundur, sem er formaður sendinefndarinnar,
hafði orð fyrir fulltrúunum, lýsti ánægju þeirra yfir því
að hafa átt kost á að koma til íslands sem fyrsta sendi-
nefndin frá Sovétríkjunum og þakkaði MÍR og Halldóri
Kiljani Laxness fyrir frumkvæðið að auknu menningar-
sambandi landanna, Kváð hann fulltrúana haía hug á
að koma hér fram opinberlega og kynna íslenzku þjóðinni
það sem gerzt hefur og er að gerast í menningarlífi
Sovétríkjanna og einnig að kynna sér menningarlíf hér-
lendis. Kvaðst hann vona að hliðstæð íslenzk sendinefnd
kæmi til Sovétríkjanna bráðlega. Slík menningartengsl
myndu efla vináttu milli þjóðanna og stuðla að því að
tryggja. lieimsfriðinn.
Þrír fulltrúanna hafa hlotið Stalínverðlaunin. æðstu
viðurkenningu Sovétríkjanna, fyrir afrek sxn á sviði bók-
mennta og lista. Næstkomandi sunnudag efnir MÍR til
opinberra hliómleika í Austurbæjarbíói kl. 1.30 og koma
þá fram söngkonan Kazantzeva og píanóleikarinn Walter.
Eru tónleikarnir auglýstir á öðrum stað í'blaðinu í dag.
Blaðamennirnir yfirheyrðu
fulltrúana um helztu æviatriði
þeirra og verk, og sag'ðist þeim
þannig frá í meginatriðum':
Fararstjórinn Arkodii Perv-
entzev er kósakki frá Kúban.
Hann tók þátt í borgarastyrj-
öldinni, gekk síðan á verkfræði-
háskóla og er vélaverkfræðing-
nr að menntun. Hann vann um
skcið í Moskvu og skrifaði þar
fyrstu skáldsögu sína um hetj-
ur borgarastyrjaldarinnar. —
Vakti hún þegar mikla athygli,
,var þýdd á mörg erlend mál
og kom m. a. út í Englandi.
Önnur kunn skáldsaga hans
nefnist Við ána Kúban. Á
styrjaldarárunum ski’ifaði hann
bók sem nefnist Prófraunin
(The Test á ensku) og hef-
ur hún verið þýdd á mjög mörg
tungumál, m. a. kínversku,
frönsku og bandarísku; hún
fjallar aðallega um tJral og
lífið þar. Eftir stríðið skrifaði
hann bók sem kvikmynduð hef-
ur verið og nefnist Þriðja högg-
ið. Fjallar hún um ósigur fas-
istaherjanna á Krím. Kvik-
myndin hlaut fyrstu verðlaun á
I-vikmyndaþingi í Praha. Enn
má nefna bók eftir hann frá
Kóreu, en þar ferðaðist hann
mikið um 1949.
Perventzev hefur tvívegis
fengið Stalínverðlaun fyrir bæk-
ur sínar, hann er meðlimur í
heiidarstjórn rithöfundasam-
bandsins og einnig þingmaður,
fulltrúi í Æðsta ráði Sovétríkj-
anna.
Tónskáldið Arim Khatjsatúrí-
an er fæddur í Grúsíu í Geor-
gíu og fyrir löngu heimskunn-
ur fyrir tónsmíðar sinar. Hann
hóf seint tónlistarnám, 19 ára
gamall, en lauk síðan prófi frá
tónlistarháskólar.um í Moskvu.
Ilann hefur síðan samið sin-
Franska þingio samþykkir
ofnám hiutfellsbsiiinga
Franska þingið samþykkti í' gær aö' afnema hlutfalls-
kosningar til neöri deildarinnar.
Þingið samþykkti með 318
atkv. gegn 282 að viðhafa
meirihlutakosningar í einni um-
ferð, er ný neðrideild verður
kosin í sumar.
Hlutfallskosningarnar eru af-
numdar til að þurrka kommún-
istaflokkinn, stærsta flokk
landsins, sem nýtur fylgis um
þriðjungs kjósenda, út af
franska þinginu. — Samkvæmt
sarnþykktinni í gær á áð gera
það á þann hátt, að kosið verð
ur áfram í allstórum kjör-
dæmum, en listi eða listabanda-
lag, sem fær hreinan meirihluta
atkvæða, fær alla þingmennina
í kjördæminu. Stjórnarflokk-
arnir treysta því, að með sam-
vinnu við Gaullista geti þeir
allstaðar borið kommúnista of-
urliði og þannig hindrað sex
milljón kjósendur þeirra frá
áð fá nokkurn fulltrúa á
franska þinginu.
Róttæki flokkurinn vildi i
fyrstu hafa tvær kosningaum-
ferðir og ekki leyfa iista-
bandalag fyrren í þeirri seinni.
Framhald á 8. síðu.
Myud þessi er tekin þegar sovézka sendinefndin kom á Rejkjavíkurflugvöll. Frá vinstri til
hægri sjást á myndinni: Arim Khatjsatúrian tónskáld, Arkadii Perventzev rithöfundur, Nadezda
Kazantzeva söngkona, Halldór Kiljan Laxness forseti MÍR, Naum Walter píanóieikari og Igorj
Lupukov ri thöfundur.
Þing Irans samþykkir að
þjóðnýta olíulindirnar
Brezka siJéFitiii Iiétar Eiöréu
Þing Irans samþykkti í gær einróma tillögu olíu-
nefndar sinnar um aö þjc'önýta olíulindirnar í landinu.
fóníur, píanókonserta, ljóðlög,
tvo balletta, músík með kvik-
myndum osfr. og hefur músík
hans verið leikin um gervallan
heim. Hann hefur fjórum sinn-
um hlotið Stalínverðlaun og er
auk þess þjóðlistamaður, en
það er æðsta nafnbót lista-
manns í Sovétrikjunum.
Khatjsatúrian skýrði svo frá
að Stalinverðlaununum væri út-
hlutað af 50 manna nefnd sem
starfaði tvo mánuði á ári
hverju. Eru þau í tveim flokk-
um,100.000 rúblur og 50.000
rúblur, en fyrir hærri upphæð-
ina getur fjölskylda lifað í
2—3 ár góðu lífi. Eru verð-
launin ekki aðeins veitt lista-
mönnum, heldur t. d. einnig
verkamönnum sem fundið hafa
nýjar aðferðir í starfi sínu.
Khatjsatúrían kvaðst telja
mcst um vert við músík að hún
væri bæði þjóðleg og aðgengi-
leg almenningi. í Sovétrikjun-
um væru 16 lýðveldi sem hvert
hefði sína þjóðlegu músík.
Söngkonan Nadezda Kazant-
zeva er fædd í Síberíu. Hún
byrjaði að fást við hljómiist
mjög snemma og kom 18 ára
gömul fram opinberlega sem
pianóieikari. Þá'hóf hún. einnig
söngnám sitt og hélt því áfram
i Moskvu. Árið 1935 var liún
fastráðin við útvarpið í Mcskvu
og hefur síðan haldi'ð mikinn
fjölda hljómleika, Meða' ann-
ars hefur hún sungið ýms
helztu óperuhlutverk. Fyrir
starfsemi sína hlaut hún fyrst
Framhald á 6. síðu.
Samþykktinni var tekið með
miklum fagnaðárlátum í þ-ing-
inu og af mannfjölda úti fyr-
ir þinghúsinu.
Skálkaskjól fyrir banda-
rísku olíuhringana?
Samþyltkt þingsins bindur
endi á sérréttindi Breta til olíu-
vinnsiu í Su’ður-Iran. Olíu-
nefndinni er falið að semja á
tveim mánuðnm lög um rekst-
ur olíulindanna. Sérstakt á-
kvæði heimilar henni að kalla
til erlenda sérfræðinga. Hefur
það styrkt grunsemdir um. að
þjóðnýtingin, sem samþykkt
er af þingi, er telur ejnungis.
fulltrúa' stórjarðaeigenda og
Rætt iim 38,
breiddarbaugmn
Dean Rusix, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hef-
ur kallað fulltrúa allra fylgi-
ríkjanna, sem her eiga í Kóreu,
til viðræðu um hernaðarlegar og
Framhald á 8. sííu.
annarra yfirstéttarafla, verði
aldrei nema nafnið eitt og
skálkaskjól til að fá banda-
rískum olíuhringum olíuvmnsl-
una í hendur. Bandarísku oiíu-
hringarnir hafa lengi sé’ð of-
sjónum yfir aðstöðu Breta í
Iran og síðan styrjöldinni lauk
hafa bandarísk itök aukizt mjög
í landinu á kostnað Breta.
Hafna mótmælum Breta
Massadegh formaður oliu-
nefndarinnar og foringi pjóð-
ernissinnaflokksins, sagði í um-
ræöunum á þingi í gær, að
mótmæiaorðsending brezku
stjórnarinnar gegn þjóðnýtingu
olíulindanna yrði að engu höfð.
Samningnum, sem veitt.i Anglo
Iranian Oil Co. sérréttindi til
olíuvinnslu í Iran liefði verið
þröngvað uppá landið með of-
beldi.
Reutersfréttastofan hafði
það eftir stjórnmálamönnum í
London í gær, a'ð brezkn r 'órn-
in myndi gripa til r'ttadrra
aðgerða ef með þyrfti V' nð
vernda olíuhagsmuni Breta í
Iran,