Þjóðviljinn - 08.04.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 8. apríl 1951
----------------------------------------------------------------\
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75. aur. einL-
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
\----------------------------1-------------------------->
Sömu hvatirnar og 1947
* , r
,,Kommúnístar undirbúa pólitískt ævintýri með lyg-
um . . . Kommúnistar í Dagsbrún ráðgera pólitískt verk-
j'all . . Ekki verkalýðsbarátta heldur glæpur. Verkfalls-
hótun kommúnista er glæpur . . . Dagsbrúnarmenn verða
að hafa vit íyrir stjóminni og trúnaðarráðinu. Félags-
fundurinn í dag á að sýna kommúnistum, að hið pólitíska
ævintýri þeirra muni mistakast . . . Pólitískt verkfalls-
brölt er fjandsamlegt og hættulegt hagsmunum hinna
vinnandi stétta í Iandinu.“
Þetta eru örlítil dæmi um fyrirsagnir Alþýðublaðsins
sumarið 1947, þegar Dagsbrún átti í hinni hörðu deilu
fyrir bættum kjörum meðlima sinna. Alþýðublaðið og
Alþýðuflokksbroddamir reyndu þá ekki aðeins að koma
í veg fyrir að verkamenn legðu til baráttunnar, heldur
beittu þeir öllum ráðum til að knýja fram ósigur þeirra.
í þeim átökmn hafði ríkisvaldið í fyrsta sinn beina for-
ustu fyrir atvinnurekendum í kjaradeilu við verklýðs-
eamtökin, og það var „fyrsta stjórn Alþýðuflokksins" sem
kom þeirri forustu á. Framkoma Alþýðuflokksbroddanna
og Alþýðublaðsins sumarið 1947 var ömurlegt dæmi um
spillingu þess flokks sem 1 upphafi var ótrauður málsvari
clþýðu og alþýðusamtaka.
Síðan eru liðin fjögur ár, og nú bregður allt í einu
svo við að AlþýðublaðiÚ þykist hafa það hlutverk nær-
.tækast að eggja Dagsbrún til kjarabaráttu. Daglega birtir
það ögrunargreinar: Hvers vegna segir Dagsbrún ekki
upp . . . Þorir Dagsbrún ekki að segja upp . . . Eru Dags-
brúnarmenn þeir aumingjar að þeir þori ekki í verk-
fall . . .
Svo viðbjóðsleg sem skrif Alþýðublaðsins voru
sumarið 1947 eru þessi skrif þó enn skítmannlegri. Menn-
irnir sem hafa það að hlutverki sínu að ganga erinda
atvinnurefkenda innan alþýöusamtakanna, auðstéttar-
þýin við Alþýðublaðið, þykjast þess umkomnir að ögra
.verkamönnum í Dagsbrún, þeim mönnum sem ævinlega
hafa staðið í fylkingarbrjósti og tekið á sig þyngsta
skerfinn í kjarabaráttunni. Embættismannaklíkan sem
stjórnar Alþýðuflokknum, ríku mennirnir í fínu stöðun-
um með margföldu tekjurnar, þykjast hafa heimild til
þess að segja Dagsbrúnarverkamönnum, sem í vetur
hafa háð baráttu við atvinnuleysi og skort á brýnustu
nauðsynjum, fyrir verkum.
En á bak við ögrunarorðin nýju felst sama hugarfar
og bak við árásirnar 1947. Hvatirnar geta aðeins verið
þær að hleypa af stað kjarabaráttu alþýðusamtakanna
sem sé sundruð og illa undirbúin andspænis samstilltu
valdi ríkisstjórnarklíkunnar. Slíkt er það hlutverk sem
Stefáni Jóhanni er falið í hinni konunglegu stjórnarand-
stöðu Alþýðuflokksins.
En Dagsbrúnarmenn munu ekki láta svik Alþýðu-
flokksbroddanna hafa áhrif á sig nú frekar en 1947. For-
ustumenn Dagsbrúnar hafa gengið markvisst að því
hlutverki sem samþykkt var á síðasta Alþýðusambands-
þingi og stjórn Alþýðusambandsins hefur algerlega van-
rækt, að koma á fullkominni einingu í baráttu þeirri sem
framundan er fyrir mánaðarlegri vísitölugreiðslu. Þeir
vita að andstaða ríkisstjórnarklíkunnar er alger og því
þarf að undirbúa baráttuna þannig aö sem mest öryggi
fáist og fórirnar verði sem minnstar. Þeir hafa þegar
lagt drög að samvinnu sem er víðtækari en dæmi eru
til áður og búa sig undir að greiða það högg sem dugir
þegar bezt er færi.
Það er þessi undirbúningur, þetta víðtæka samstarf
verklýðsfélaganna, sem er Alþýðuflokksbroddunum þyrn-
ir í augum. Þeir sjá fram á að þeir fái ekki unnið óþokka-
verk sín nú fremur en 1947.
Of löng dvöl á torginu
S. L. bendir á það í bréfi
að vissar áætlunarferðir stræt-
isvagnanna eru dálítið skrítnar:
,.... Vilji maður t. d. fara
með vagninum milli vesturbæj-
ar og austurbæjar, þá kemst
n,aður ekki hjá því að stanza í
það minnsta 5 mínútur á Lækj-
artorgi. Það er nú allur hrað-
inn!. ... Auðvitað eiga þessir
vagnar ekki að hafa nema
augnabliks dvöl á torginu. Mér
skilst að ferðir þeirra, sumra
að minnsta kosti, eigi að heita
„hraðferðir“, en eins og nú er
virka slík nöfn á þeim sem
púra grín. — S. L.“
□
Þýðingarmlkil
starfsemi
Ég held að mörgum muni
hafa komið þiægilega á óvart
þær upplýsingar, sem í gær
voru gefnar hér í blaðinu um
starfsemi „Gúmmíbarðans“. Þó
að ungt sé, aðeins 5 ára, verð-
u>* ljóst að hagur sá sem bif-
reiðaeigendur hafa þegar" haft
af starfsemi þess er ekkert
smáræði, þar sem sólun á hjól-
barða kóstar hjá því aðeins %
hluta af verði nýs hjólbarða, svo
ekki sé talað um þann gjald-
eyrisspamað, sem hér er um
að ræða: efnið í sólun kost-
ar sem sé aðeins 1/10 hluta af
verði nýs hjólbarða frá verk-
smiðjunni.
□
Verklaust í eitt ár
Ofan á allt þetta bætist svo,
að sólaður hjólbarði endist yf-
írleitt betur en nýr! Síðan fyr-
irtækið var stofnað hefur það
verið verklaust samanlagt í
eitt ár vegna efnisskorts, en
það er nú ætlandi, að gjaldeyr-
isyfirvöldunum sé orðin svo
ljós hin mikla þýðing þess, að
til slíkrar stöðvunar komi ekki
aítur.
□
Hvað um ritvélamálið ?
Vélritunarstúlka kom að máli
við mig um daginn og spurði
hvað orðið hefði af frumvarpi
því um samræmingu á letur-
borðum ritvéla, sem í vetur
var flutt á alþingi. Kvað hún
þetta mál ekki eins þýðingar-
laust og margir vildu vera iáta,
að minnsta kosti ekki fyrir sig
og sínar stéttarsystur, og því
væri sér forvitni á upplýsing-
um um afdrif þess. En það er
im afdrif þau að segja, að
nefnd sú, sem fékk málið til
thugunar, virðist einhvernveg-
inn hafa gleymt því; svo mikið
er víst. að frá henni kom það
ekki aftur.
n
Vorið að koma ?
Og nú er helzt svo að sjá sem
vorið sé að koma. Manni get-
ur orðið illilega heitt að ganga
í vetrarfrakkanum sólarmegin
á götunni. Snjórinn leysist
stindur, og það er for þar sem
hann var í vetur. Rauðir rab-
babaraneppar sjást í görðum.
Dúfnakarrarnir stunda af á-
huga sín márgbortnu ástarat-
lot; milli þess sem þeir hjálpa
frúm sinum að safna stráum
i hreiðrið. Krakkarnir eru farn-
ir að leika sér í parís. Samt er
ekki að vita nema aftur skelli
á okkur kuldakafli. Enda sé ég
að þó Haraldarbúð sé að
vísu búin að setja sundföt útí
einn gluggann hjá sér þá hef-
ur hún samt ekki enn tekið
skíðafötin úr næsta glugga.
Ríkisskip
Hekla er í Reykjavík; fer það-
ar. á þriðjudaginn vestur um land
t;l Kópaskers. Esja, Skjaldbreið
og Þyrill eru i Reykjavík. Herðu-
breið er á Austfjörðum á norður-
lt ið. Straumey er ■ væntanleg- til
Reykjavikur I dag frá Austfjörð-
um. Ármann var í Vestmannaeyj-
um í gær.
Sklpadeild SIS
Hvássafell fór frá Reykjavík 5.
þ. m. áleiðis til London. Arnar-
fell losár sement á norð-aústur-
landi. Jökulfell fer á hádegi í dag
frá Oskarshamn áleiðis tii Is-
lands með viðkomu í Kaupmanna
höfn og Halmstad.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Tálknafirði i
gærkvöld tii Ólafsvíkur. Detti-
foss fór frá Reykjavík 6. apríl
>il Italíu og Palestínu. Fjallfoss
tór frá Kaupmannahöfn í g^er til
Leith og Reykjavkur. Goðafoss og
Tröllafoss eru í Reykjavik. Lag-
s rfoss fer frá New York 10. þ. m.
tfl Reykjavikur Selfoss fór frá
Leith 4. þ. m. til Hamborgar,
Antwerpen og Gautaborgar. Dux
lór frá Kaupmannahöfn 3. þ. m.
tii Reykjavikur. Hesnes fór frá
Hamborg 5. þ. m. til Reykjaviltur.
Tovelil fermir í Rotterdam um
10 þ. m. til Reykjavíkur.
Ioftleiðir h.f.
1 dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja. — Á morgun er
áætlað að fljúga til Vestmanna-
eyja, Isafjarðar, Akureyrar, Pat-
reksfjarðar, Sauðárkróks, Hólma-
víkur, Flateyrar, Þingeyrar og
Bildudals.
Fiugfólag Islands h.f.:
f dag er áætlað að fljúga til:
Akureyrar og Vestmannaeyja. —
A morgun eru ráðgerðar flugferð-
iv til sömu staða.
- » / f Hjónnnum Ingi-
N re / björgu Þorsteinsi-
S dóttur og Kris^
[ jfjl ' jáni Oddssyni, Óð-
1 W k insgötu 21, fædd-
ist 14 marka son-
ur 21. marz. — Hjónaefnunum
Önnu Kristjánsdóttur og Einari
Sigurðssyni fæddist 15 marka
dóttir 30. marz. — Hjónunum
fcvövu Arnórsdóttur og Guðbjarti
Stefánssyní, féhirði, Reykjavíkur-
vegi 29, fæddist 18 marka sonur
þann 5. april.
írá Barðstrendingafélaginu:
Dregið var hjá Borgarfógeta 2.
apríl i hlutaveltu-happdrætti fé-
lagsins. Vinninganna verður að
vitja til Guðbjartar Egilssonar
hjá Helga Magnússyni og Co. fyr-
ir 15. maí n. k.
Samningar við STEF.
Nýlega hafa verið undirritaðir
samningar milli STEFS og Iþrótta
bandalags Reykjavíkur um greiðsl
ur til STEFS fyrir flutningsrétl;
tónverka á skemmtunum meðlima
iþróttabandalagsins, en í því eru
18 félög. Telja báðir aðilar að
samningar þessir hafi af beggja
hálfu farið fram með mikilli sann
girni og velvild.
Snædrottningin verður sýnd í
dag ki. 2. Nú fer að fækka sýn-
ingum á þessu leikriti.
Helgidagslæknir: Óskar Þ. Þórð
A arson, Flókagötu 5. — Sími 3622.
Næturlæknir: er í læknavarð-
stofunni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
Næturvöröur er i lyfjabúðinni
Iðunn. — Sími 7911.
MlR-sýningin frá neðanjarðar-
járnbrautinni i Moskvu er opin
kl. 1—10 i dag. Athygli áhuga-
monna um iþróttir skal vakin á
því, að kl. 5 og kl. 9 er sýnd
kvikmynd frá Dínamó-leikvangin-
x;m i Moskvu. Sýnir hún þjálfun
og lceppni í fjölmörgum íþrótta-
greinum, m. a. keppnina um meist
aratitilinn í knattspyrnu milli
Dínamó og Torpedó.
Fastir liðir eins og
venjulega. Klukk-
an 15.15 Miðdegis-
tónleikar (plötur):
a) ,Grand Canyon'
svita eftir Ferde
Crofé (Kostelanetz og hljómsveit
hans leika). b) Ýmis létt lög
(Patrice Munsel, Jan Pierce og
Charles Fredericks syngja; hljótn
sveit og kór A1 Goodmans að-
stoða). 16.15 Útvarp til Islendinga
tilendis: Fréttir. 18.30 Barnatími
(Þorst. Ö. Stephensen). 19.30 Tón
leikar (plötur): „Folies d’Esp-
agne“ stef og tilbrigði eftir Ponce
(Andrés Segovia leikur á gitar).
20.20 Sinfóníuhljómsveitin; dr.
t tctor Urbancic stjórnar: Forleik
ut og danssýningarlög eftir Árna
Pjörnsson úr sjónleiknum „Nýárs-
nóttin". 20.40 Erindi: Kevin helgi
og klausturbærinn forni (Þóroddur
Guðmundsson rithöf.). 21.45 Kór-
söngur: Kór Hállgrimskirkju í
Reykjavík syngur; Páll Halldórs
son stjórnar og leikur á orgelið:
a) Vakna, Síons verðir kalla, eftir
Joh. Seb. Bach. Ó, eilíft líf, eftir
joh. Seb. Bach. Kyrie eleison, eft
ir Giuseppe Antonio Bernabei. Af
himnum ofan, eftir Adam Gumpelz
haimer. Dýrð sé Guði, eftir
Cloude Goudimel. Agnus Dei, eftir
Hans Leo Hassler. Dona nobies
pncem; gamall keðjusöngur. Nú
fjöll og byggðir blunda, eftir Joh.
Seb. Bach. 21.30 Upplestur: Veð-
málið, smásaga eftir Anton Tsje-
kov (frú Margrét Jónsdóttir). 21.50
Tónleikar (plötur): Cellósónata i
A-dús eftir Weber (Gregor Piati-
gorsky leikur). 22.05JDanslög (plöt
ur). — 01.00 Dagskrárlok.
Úfvarpið á morgun:
18.20 Framburðarkennsla í esp-
eranto. 18.30 Islenzkukennsla; II.
fi. — 19.00 Þýzkukennsla; I. fl.
19.30 Tónieikar: Lög úr kvikmynd-
um (plötur). 20.20 Útvarpshljóm-
sveitin; Þórarinn Guðmundsson
stjórnar. a) Norsk alþýðulög. b)
Lagaflokkur eftir Verdi. 20.45 Um
daginn og veginn (Thorolf Smith
biaðamaður). 21.05 Einsöngur:
Eiisabeth Schumann'syngur (plöt
ur). 21.20 Erindi: Islandsvinurinn
Lúðvik Kristján Múller; fyrra er-
indi (Hannibal Valdimarsson
aiþm.). 21.45 Tónieikar (plötur):
Ungversk fantasia fyrir flautu og
pianó op. 26 eftir Doppler (Marcel
og Louise Moyce leika). 22.10
Raddir hlustenda (Baldur Pálma-
son). 22.45 Dagskrárlok.
MESSUR I DAG:
Hallgrímskirkja.
Klukkan 11 f. h.
Messa, séra Jakob
Jónss. Ræðuefni:
Hjálpræðið í
Kristi. Kl. 1,30
Barnaguðsþjónusta séra Jakob
Jónsson. Kl. 5 e. h. Messa, séra
Sigurjón Þ. Árnason. — Laugar-
nesprestakall. Méssað kl. 2. Ferm
ing. Sr. Garðar Svavarsson. Barna
guðsþjónusta fellur niður vegna
fermingarinnar. — Nesprestakall.
Messa i kapellu Háskólans kl. 2
e. h. Sr. Jón Thorarensen.
{liggur leiðin |
Pir^n