Þjóðviljinn - 26.04.1951, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 26.04.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 26. apríl 1951 tHÓÐVIUINN Útgrefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Arnason. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Simi 7500 (þrjár línur). Askriftarverð: kr. 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75. aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Mræsni Alþýðublaðsins Alþýðublaðið sagði í gær aö stöðvun á blöðum sem gengju erinda atvinnurekenda í verkfalli værí „furðuleg krafa ... að sjálfsögðu ekki sæmandi nokkrum frelsis- unnandi eða lýðræðissinnuðum manni, enda ekki erfitt að sjá á henni fingraför kommúnista. Engum öðrum hefði nokkru sinni dottíð í hug að fara fram á slíkt og því líkt ... beinlínis álitsspillandi .. . hneyksianlegt samnings atriði ... bolabrögð ... til stórtjóns og álitshnekkis .. . kommúnistískur óþverri . .. einræðis og kúgunarbrölt..“ Eins og sjá má hefur greinarhöfundi Alþýöublaðs- ins verið mikið niðri fycir. Þó eru ekki nema fáein ár síð- an það atriði var í samningum Hins íslenzka prentara- félags við atvinnurekendur að Alþýðublaðið mætti koma lit í verkföllum, og töldu Alþýöublaðsmenn það ákvæði, sjálfsagt og óhjákvæmilegt. Árið 1941 — rétt áður en kosningar áttu að fara fram — kom Alþýðublaðið eitt út vegna verkfalls, og datt aðstandendum þess ekki í hug aö það væri ,,einræðis og kúgunarbrölt“. Engu að síður segir Alþýöublaðið nú aö engum öðrum en komm- únistum hafi „nokkru sinni dottið 1 hug að fara fram á slíkt og þvílíkt.“!! Hliðstæð dæmi mætti nefna úr öllum löndum heims. Hvarvetna koma blöð verkalýðssamtakanna út þótt verk- íöll séu, og þegar prentarasamtökin leggja til samúðar- aðgerða með öðrum scéttarfélögum er þeim aðgerðum auðvitað ekki beint gegn þeim blöðum sem styðja kjara- baráttuna. Alþýðubláðsmenn ættu t.d. að vita það að eitt sinn stöðvuðu brezku verkalýðssamtökin allan blaða- kost Bretlands um langt skeið, nema Daily Herald, aðal- málgagn Verkamannaflokksins. Og það eru ekki nema fjögur ár liðin síðan öll blöð Danmerkur voru stöövuð um lang skeið í verkfalli nema Social-Demokraten og Land og Folk. Ólíkindalæti Alþýðublaðsins eru þannig eins frá- Jeit og hugsazt getur. En skýringin á þeim er auðsæ. Aö standendur Alþýðublaösins líta ekki lengur á það sem málgagn verkalýðsins, þeir líta réttilega á sig sem agenta atvinnurekenda og hafa gert sjónarmið þeirra að sínum. Hvers vepa er ekki samið við Hlíf? Alþýða landsins hefur með dagvaxandi undrun fylgzt með vinnubrögðum Alþýðuflokksbroddanna und- anfarnar vikur. Á sama tíma og Reykjavíkurfélögin á- kváðu sameiginlegar og vandlega undirbúnar aðgerðir um miðjan maí reyndu þeir með öllum ráðum ao ýta einangruöum félögum úti um land út 1 óundirbúin verk- íöll sem fyrirsjáanlega gátu ekki til annars orðið en að leggja hinar þyngstu byrðar á verkafólk. Þessar furðu- legu aðgeröir hafa nú endanlega mistekizt. Verkafólk befur hvarvetna neitað að fylgja fyrirmælum Alþýðu- ílokksbroddanna, þar sem þau rákust auðsjáanlega á heilbrigöa skynsemi og hagsmuni verkafólks. í staðinn hafa þessi félög ákveðið að hafa samvinnu viö Dagsbrún og önnur Reykjavíkurfélög. Síðast þessara félaga var verkakvennafélagið Fram- tíðin í Hafnarfirði en stjórn þess reyndist lengi treg að láta undan vilja verkakvenna. Málalok uröu þar með nokkuö sérstæðum hætti. Fyrirtæki bæjarins og einka- ívrirtæki eins Alþýðufiokksforingjans, Óskars Jónsson- vr, hafa ákveöið að greiöa eftirleiðis fulla uppbót á kaup verkakvenna í samræmi viö verðlagsvísitölu hvers mán- aðar. Er þetta auðvitaö sjálfsögð ráðstöfun. En hvers vegna fá haínfirzkir verkamenn ekki sömu kjör? Hversvegna fá meðlimir Hlífar ekki fulla dýrtíðar- uppbót mánaðarlega hjá fyrirtækjum bæjarins og Ósk- ori Jónssyni? Eins og kunnugt er samþykkti bæjarstjórn- in skilyröislaust að ganga aö þessum sjálfsögðu kröfum og Alþýðublaðið lýsti yfir því dag eftir dag að hafn- íirzkir verkamenn hefðu kr. 12,20 um tímaim, en þeg- ar á átti að herða voru verkamenn sviknir af Helga Hannessyni forseta Alþýðusambandsins. Varla geta þau ^vik nú haldið áfram eftir að bæjarfyrirtækin og Óskar „Gjöríð svo vel að skila þessu á lögreglu- stöðma“. Alltaf er fólki að detta eitt- hvað merkilegt í hug. I fyrra- dag kynutist ég til dæmis manni einum, sem er búinn að út- hugsa einfalt kerfi sem ætti að geta komið í veg fyrir að nokkur Reykvíkingur glati að fuilu lyklum eða öðrum þýð- ingarmiklum hlutum úr vösum sínum. ■— Hann hefur látið gera lítil málmspjöld, sem bera svohljóðandi áletrun: „Gjörið svo vel að skila þessu á lögreglustöðina". Maður kaup ir spjaldið á 6—7 krónur, og um leið er skrifað niður nafn manns, heimilisfang og síma- númer, ef það er til. Það er ákveðið númer á spjaldinu, og er það nú loks, ásamt nefnd- um upplýsingum um eiganda þess, fært inn á spjaldskrá, hjá lögreglunni. En spjaldið sjálft festir maður við lyklakippuna eða annan þann hlut sem manni er sérstaklega annt um. □ Hægðarauki fyrir lögregluna. Ég býst við, að þessar skýr- ingar nægi til að menn skilji kerfið. Og ekki ætti heldur að leynast sú þýðing, sem það hef- ur fyrir fólk almennt. Að ekki sé talað um, hvílíkur hægðar- auki er að því fyrir lögregluna, sem alltaf mun eiga í mestu vandræðum með týnda muni og óskila. — Mér þótti því rétt a'ð vekja athygli á þessu. Spjöldin geta menn keypt í verzlunum víða um bæinn, m. a. í búsá- haldaverzlun KRON í Banka- stræti. Annars heitir maður sá, sem fyrir þessu stendur, Lárus Fjeldsted og á heima í Blöndu- hlíð 18. □ Fáein orð um mjólkurglas og vína.rbra'uð. A. skrifar: •— „Þó að Reyk- víkingar séu yfirleitt ekki ár- vakrir þá er það víst að marg- ir fara. tímanlegar á fætur en ég. — Eg þarf ekki að mæta á skrifstofunni fyrr en kl. 9, og það skeikar varla að þar er ég á réttum tíma. — Og kl. á níunda tímanum skálma ég niður í bæinn (því mér finnst ekkert jafn leiðinlegt og að ferðast með strætisvagni). Og svo kem ég við á kaffistofu og fæ mér mjólkurglas og vínar- brauð. Meira þarf ég ekki fram að liádegi, því ég fer svo seint á fætur. □ EMsi sama hvar keypt. „En það er vissulega ekki sama hvar maður fær sínar góð gjdrðir. Stundum er vínarbrauð ið svo lítio, að það er hægðar- leikur að stinga því uppí sig í einum bita. Þá kostar eitt mjólkurglas og vínarbrauð, (sem ekki er uppí nös á ketti) kr. 3.50. En svo er ég stund- um svo lánsamur að fá helm- ingi stærra vínarbrauð og jafn stórt mjólkurglas fyrir kr. 2,00. Þá er ég heldur glaður og þyk ist hafa gert góð kaup. □ Hvert er hið rétta verð’? „Þar sem ég nú hef haft mjólk og vínarbrauð fyrir morgunverð um skeið, er ekki með öllu óhugsandi að einhver freistaðist til að leita upplýs- inga hjá mér um hvert verð sé á slíkum lífsins gæðum, en ég vil hérmeð eindregið skor- ast undan slíkri vizkukönnun. Og þó er engum ofgott að vita hvað þessi einfaldi morgun- verður tekur mikið af mánað- arkaupi mínu. Og miðað við það sem að framan er sagt þá getur þetta kostað mig allt frá 60 kr. uppí 105 kr. Og svo auðvitað allt þar á milli. Það tekur víst varla að hreyfa svona smámunum, og þó sýnist manni að verðlagningin mætti vera dálítið nákvæmari. Og gaman væri að vita, hvað eitt mjólkurglas og tveggja bita vínarbrauð ikostar á réttu verði kaffihúsanna. — A.“ * ★ * Ríklsskip Hekla er á leið frá Austfjörð- um til Reykjavíkur. Esja verðui væntanlega á Akureyri i dag. Herðubreið er á Austfjörðum á suðurleið. Skjaldbreið er í Reykja- vík. Þyrill vár á Skagaströnd : gær. Oddur er á Austfjörðum á norðurleið. Ármann fór frá Rvik í gærkv. til Vestmannaeyja. Haf- borg er á Breiðafirði. Skipadeild SIS Hvassafell losar sement fyrir norðurlandi;. Arnarfell ;fei1 frá Blyth i dag áleiðis til Islands. Jökulfell er væntanlegt til Reykja víkur kl. 10—11 f. h. í dag. Eimskip Brúarfoss fór frá London 23. þ. m. tii Grimsby, Hull og Reykjavíkur. Dettifoss kom til Haifa í Palestínu 21. þm. Fjall- foss fer frá Rvík 26. þm. til vest- ur- og norðurlandsins. Goðafoss kom til Reykjavíkur i gærkvöld. Lagarfoss er í Bolungavík; fer þaðan til Langeyrar, ísafjarðar og Súgandafjarðar. Selfoss fór frá Gautaborg 22. þm. til Reykja- víkur. Tröllafoss kom til New York 24. þm. frá Reykjavik. Tov- elil fór væntanlega frá Rotterdam í gær til Reykjavíkur. Barjama fermir í Leith um þessar mundir til Reykjavikur. Dux fermir i Rotterdam og Hamborg um 26.— 28. þm. til Reykjavíkur. Hilde fermir í Rotterdam og Leith um 27.—30 þm. til Reykjavíkur. Hans Boye fermir í Álaborg og Odda í Noregi i by.rjun maí til Reykja- vikur. Katla fór frá Reykjavik í gær til New York; fermir þar vörur til Reykjavíkur. Liibeck fermir í Antwerpen og Hull 2.—6. maí til Reykjavíkur. Jónsson hafa samiö við verkakonur? Eöa á aö refsa Hlíf- arverkamönnum fyrir þaö að þeir geröu ekki nokkurra daga verkfall í ráðleysi og berhöggi viö almenna skyn- semi? Flugfélag lslands 1 dag eru ráðgerðar flugferðir til Akureyrar, Vestmannaeyja, Reyðarfjarðar, .Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar, Seyðisfjarðar og Sauðárkróks. — Á morgun er á- ætlað að fljúga til Akureyrar, Vest mannaeyja, Kirkjubæjarklaustur3, Fagurhólsmýrar og Hornafjarðar. Loftleiðir h.f. í dag er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja og Akureyrar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja, Akureyrar og Sauðárkróks. HVAÐ hefur þú gert til að út- vega Þjóðviljanum áskrifenclur ? \ Sjötíu ára er i dag Sigurveig Vig- fúsdóttir, Óðinsgötu 17A. 8.30 Morgunútvarp. 9.00 Húsmæðraþátt ur. 10.10 Veðurfr. 12.10—13.15 Hádeg- isútvarp. 15.30 Mið- degisútvarp. — Kl. 18.30 Dönskukennsla; I. fl. 19.00 Enskukennsla; II. fl. 19.25 Veður- fregnir. 19.30 Tónleikar: Danslög (plötur). 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir 20.30 Frá útlöndum (Jón Magnússon fréttastjóri). 20.45 Tónleikar (plötur). 20.50 Lestur fornrita: Saga Haralds hárðráða. (Einar Ól. Sveinsson próf.) 21.15 Sextugsafmæli Björgvins Guð- mundssonar tónskálds: a) Erindi (Hreinn Pálsson forstjóri). b) Lög eftir Björ.gvin Guðmundsson (pl). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Tónleikar (pl.): Þættir úr óratorí- inu „Örlagagátan" eftir Björgvin Guðmundsson (Kantötukór Akur- eyrar og einsöngvarar flytja; höf- stjórnar). 23.00 Dagskrárlok. . Hjónunum Þuriði \' f / Einarsdóttur og l W — Árna H. Brands- ■jfjí \ syni, Karfavógi 21, M v fæddist 10 marka ^ dóttir 21. apríl. — Hjónunum Jóhönnu Halldórsdótt- ur og Vigfúsi Vigfússyni, Lauga- teig 18, fæddist sonur 20. apríl. — Hjónununi Wallý og Guðmundi Gunnlaugssyni, Austurstræti 7, fæddist 14 niarka sonur 23. þ. m. Rafmagnsskömmtunin 1 dag verður straumlaust kl. 11—12, í Hafnarfirði og nágrenní, á Reykjanesi og í Árnes>- og Rangárvallasýslum. Á sumardaginn fyrsta opinberuðu trúlofun sína uhg- frú Sigríður Jóns- dóttir verzlunar- mær og Lúðvík Þórarinsson, bakari. Bæði til heim- ilis í Borgarnesi. — Nýiega opin- beruðu trúlofun sína Erna FIóv- entsdótljir og Jakob Júlíusson kembumeistari á Álafossi. Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur skemmtifund í Tjarnar- kaffi föstudaginn 27. apríl og hefst fundurinn kl. 9. Söngfélagið Húnar skemmtir með söng. Á sumardaginn fyrsta voru gef- in saman í hjónaband ung- frú Magnea Þ. Aðalgeirsdóttir frá Grindavík og Guðmundur Haukur Þórðarson í Keflavík. — Heimili ungu hjónanna er að Ás- braut 16 í Keflavik. Næturlæknir er í læknavarð- stofunni. — Sími 5030. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki, simi 1760. SÖFNIN: Landsbókasafnið er opið kl. 10-~ 12, 1—7 og 8—10 alla virka daga nema laugardaga kl. 10—12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 10—12 og 2—7 alla virka daga nema laugardaga yfir sumarmánuðina kl. 10—12. Listasafn Einars Jóns- sonar kl. 1.30—3.30 á sunnudögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—10 alla virka daga nema laugardaga kl. 1—4. Náttúrugripasafnið opið sunnudaga kl. 1.30—3 og þriðju- daga og fimmtudaga kl. 2-—a,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.