Þjóðviljinn - 26.04.1951, Síða 6

Þjóðviljinn - 26.04.1951, Síða 6
6) _ ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 26. apríl 1951 H.3 H|úpncilelli Tileinkað Björgvini Guöniundssyni tón- Bkáidi á sextugsaíniæli lians í dag. Gömlu hrófi svartar svigna súlur í dala þröng; grisjar fúi gólf cg súðir; geiist hljótt um söng. Spurul sezt að gastsins geði gamals bæjar sorg. Aldrei írarnar ljóð mun leita lags í Söngvaborg. Samt er enn af sóklskinsvonum svipazt þar um garð, og úr íjarska bláum borinn bjarmi þess er varð. Þangaö rekur rætur saman rósar, draums og manns, ævíntýr frá aldar morgni allra vona lands. Konungslund af kotungsþreki kleif þar tæpan stíg; ekkert verk til valda og muna vannst þar fyrir gýg. Barnsins þrá og dulardraumi, dagsins kalli og þörf sór þar hjartans helga trúnað höndin styrk og gjörv. Þaðan höfðu heimangengi hverju meira’ á braut drengsins spor, er drýgði stærsta. dáð í brattans þraut. Ungur las hann letrin háu leynd á dalsins spjöld; sigurstöfum sólar er hann signdur undir kvöld. Vaxtarþrá og vetrarríki, voröld blóms er grær, eiga hvert sinn hulduhreiminn hörpunnar sem hann slær. Láttu saggasveitta veggi sjatna, bæjarhró; barniö þitt í heimi hljóma hærra ris þér bjó. Hver á stærri hlut aö una, hljóöa Söngvaborg: heillar þjóðar hrósi og gleði, heillar þjóöar sorg? I»orsteinn Taldimarsson. - „ ■ , 4 * T Undis* eilííðarsti ömum Eftir A. J. Cronin 145, DAGUR Hún tók snögga 'ákvörðun. Hún greip um handlegg hans. „Hlustaðu á mig, Arthur. Ég tek ekki í mál að senda þig burt svona á þig kominn. Þú ferð í rúmið .... hérna .... núna. Það þýðir ekk- ert að andmæla. Ég segi pabba allt af létta þegar hann kemur heim'1. Hún studdi hann yfir anddyrið og upp stigann. Hún kveikti upp í svefnherberginu, hjálpaði honum að afklæð- ast og fara í rúmið. Þegar þetta var búið fyllti hún hitapoka og setti hann í rúmið hjá honum. Hún virti hann fyrir sér með áhyggjusvip. „Hvernig líður þér núna?“ „Betur“, sagði hann gegn betri vitund. Ilann lá á hliðinni og hnipraði sig saman. Hann tók eftir því að hann var í herbergi Hettýar. Það var svei mér skemmtilegt! — hann lá í litla rúminu hennar Hettýar litlu. Kvenmaður í kvöld, gamla gunga. Hann lang- áði til að hlæja hátt, en gat það ekki. Aftur var eins og eitthvað brysti í hjarta hans. , Klukkan var fimm um dag. Sólin brauzt í ígegnum skýin og lýsti upp veggfóðrið í her- berginu. I litla bakgarðinum heyrðist kvak í þröstum. Allt var kyrrt og óraunverulegt, rúm Hettýar var óraunverulega mjúkt og Lára hlaut að vera farin í burtu. „Drekktu þetta, Arthur. Þá geturðu sofnað". Lára var komin aftur. En hvað hún var góð við hann. Hann reis upp við olnboga og drakk heita súpuna sem hún hafði fært honum. Hún settist á rúmstokkinn hjá honum og fyllti þög- ult herbergið méð þægilegri návist sinni. Hend- ur hennar sem héldu á bakkanum fyrir hann voru hvítar og mjúkar. Hann hafði aldrei fyrr hugsað mikið um Láru, aldrei haft neinar mæt- ur á henni; en nú var hann heillaður af alúð hennar. Hann hrópaði gagntekinri þakklæti: „Hvers vegna ertu að gera þér þessa fyrirhöfn mín vegna, Lára?“ ' „Ég mundi ekki brjóta heilann um það í þín- um sporum, Arthur“, sagði hún. „Þetta lagast allt saman“. ' ‘ ' ! Hún tók tóma súpuskálina og setti hana á bakkann. Hún bjóst til að fara. En hann rétti út höndina í áttina til hennar, eins og lítið barn sem er hrætt við að vera eitt. „Farðu ekki frá mér Lára“. „Jæja, ég skal vera kyrr“. Hún settist niður aftur og lagði bakkann á borðið við rúmið. Hún fór að strjúka enni hans blíðlega. Hann kjökraði og fór síðan að gráta eins og hjarta hans ætlaði að bresta. Hann lét undan hinni nístandi örvæntingu sem heltók hann og lagði höfuðið í kjöltu hennar. Mýkt, líkama hennar færði lionum ósegjanlegan frið; þægi- leg ró streymdi um líkama hans. „Lára“, hvíslaði hann. „Lára“. Meðaumkunareldur blossaði allt í einu upp í huga hennar. Veikleiki hans, þrá hans eftir huggun, meðvitundin um höfuð hans í kjöltu sinni, vakti sterka ástríðu hjá henni. Hún starði fram fyrir sig í herberginu og kom auga á andlit sitt í spegiinum. Hún átti i baráttu við sjálfa sig. Nei, nei, hugsaði hún og fylltist ofsa. Þeirrar gjafar þarfnast hann ekki. Hún leit aftur á Arthur. Hann var hættur að gráta og svefninn var í þann veginn að sigra hann. Munn- ur hans var opinn, svipur hans hjálparvana og var.narlaus. Hún sá hina opnu und i sál hans. Þáð var óéndanlegur dapurleiki og angurværð yfir augnalókum háns og veikbyggðri hökunni. yi—1 DAVlÐ i Úti fyrir voru þrestirnir hættir að syngja og húmið lagðist yfir herbergið. Hún sat kyrr þótt hann væri sofnaður og höfuð hans hvíldi í kjöltu hennar. Svipurinn á andliti hennar var friðsæll og fagur. 45 I hálfan m'ánuð lá Arthur rúmfastur í húsi Todds. Dobbie læknir sem Lára leitaði til hristi höíuðið og sagði: Blóðleysi. Dobbie læknir var gamall vinur Toddfjölskyldunnar; hann vissi deili á Arthur og framkoma hans var þægileg og alúðleg. Hann tók nokkur blóðsýnishorn og gaf lionum ýmsar sprautur. En það var miklu frekar Láfa en Dobbie læknir, sem flýtti fyrir bata Arthurs. Hún annaðist hanh af frábærri ósérplægni. Hún var búin að loka húsinu á Hæðarenda og fórnaði sér algerlega fyrir Arth- ur, bjó ti] mat handa honum, las fyrir hann, eða sat við rúm hans eins og góður vinur. Það var eins og hún liti á þetta. starf sitt fyrir Arthur eins og friðþægingarfóm, eins og hún vildi sýna sjálfri sér, að enn byggi eitthvað gott í lienni. Hvert batamerki hjá Arthur, hver þakklætisvottur sem hann sýndi henni, var bals- am á þjakaða sál hennar. Með því áð hjúkra honum, græddi hún sín eigin sár. Faðir hennar skipti sér ekki af neinu. Það var ekki í hans eðli. Auk þess hafði hann inni- lega samúð með Arthur sem hafði háð svo harða baráttu. Tvisvar á dag leit hann inn til sjúklingsins og stóð þar vandræðalegur og reyndi að halda uppi samræðum, ræskti sig, þagði, og tvísteig þarna á gólfinu eins og gam- all, rytjulegur rauðbrystingur. Hann forðaðist öll hættuleg umræðuefni eins og heitan eldinn: Námuna, styrjöldina, Hettý og endaði allar heimsóknir sínar með því að segjá: „Ekkert liggur á, drengur minn. Þú mátt vera hérna eins lengi og þú vilt“. Arthur fór að smáíiressast. Hann fór að klæða sig og sitja við arininn í setustcfunni, svo gat hann farið í smágöngúferðir með Láru. Þau forðuðust fjölförnustu göturnar og fóru oft í skemmtigarðinn, þar sem útsýnið var mjög fag- urt þegar heiðskírt var. Enda þótt Arthur væri ekki enn fyllilega ljóst hversu mikið hann átti Láru að þakka, þrýsti hann handlegg hennar stundum ósjálfrátt og sagði: „Þú hefur gert svo mikið fyrir mig, Lára“. „Það er ekkí neitt“, svaraði hún þá. Einn bjartan, heiðan morgun höfðu þau sezt andartak á bekk í garðinum. „Ég veit ekki hvað um mig hefði orðið án þín“, sagði hann. „Ég hefði dregizt niður í svaðið. Þú veizt ekki hversu freistandi er að vera aðgerðalaus og láta allt danka“. Hún svaraði ekki. „Mér finnst beinlínis að þú hafir gert mig áð nýjum manni, Lára, gert mig að manni. Ég get aftur liorfzt í augu við lifið og tilveruna. En þetta er svo undarlega óréttlátt — ég hef fengið allt. Hvað hef ég getað geíið þér í stað- inn ?“ „Þú yrðir hissa...“ svaraði hún undarlegri röddu. Meðan hressandi vindblærinn lék um þau sat hann og virti fyrir sér fölt, reglulegt andlit hennar og furðaði sig á hinni hlutlausu ró í svip hennar. „Veiztu hvað þú minnir mig á, Lára,“ sagði hann “allt í einu. ,,Á mynd i bók sem ég á heima — eina af madonnumyndum Rafaéls." Hún eldroðnaði og það fóru þjáningardrættir um andlít hennar. „Láttu ekki eins og kjáni,“ sagði hún hörku- lega, reis á fætur og gekk rösklega niður mal- arstíginn. Hann starði ringlaður á eftir henni. Svo reis hann einnig á fætur og gekk niður stíginn. Eftir því sem kraftar hans jukust gat hann farið að hugsa um föður sinn, Sleescale og heim- komu sina. Og heim varð hann að fara, þess kra'fðist hann af sjálfum sér. Enda. þótt hann væri reikull, hi'kán'di og forð- aðist að taka ákvarðanir, þá var hann gæddur ótrúlegri seiglu og þrákelkni. Auk þess hafði fangavistin hert hann og fyllt hann þrjózku gegn því óréttlæti og andstreymi sem hann hafði.orðið fyrir. • , Kvöld eitt undir lok þriðju vikunnar voru Lára og hann að spila, eins og þau gerðu oft

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.