Þjóðviljinn - 28.04.1951, Blaðsíða 5
Laugardagur 28. apríl 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Bandarískt mansaf
Domari rænir svertingjakonu börnum henn-
ar og afhendir þau fjölleikahúsi til sýninga
Samkvæmt bandarískum lögum skal réttur ósvíf-
inna fjárplógsmanna til að gera sér vansköpuð börn að
féþúfu ganga fyrir rétti foreldranna til að annast þau,
að minnsta kosti ef foreldrarnir eru fátækir og þar að
auki svertingjar.
Fréttaritari Kaupmannahafn-
arblaðsins „Aftenbladet“ í
New York skýrir svo frá:
Samvaxnii tvíburar.
■ „Grátandi svertingjakona,
frú Willie Jones, flýði nýlega
útúr fjölleikatjaldi, þar sem
tveggja ára gamlir samvaxn-
ir tvíburar hennar, vaxnir sam
an á höfðunum, voru hafðir til
sýnis. Hún er móðir fimm ann-
arra barna.
Fáum klukkutímum áður
stóð frú Jones í réttarsal öng-
viti nær og hlustaði á dóm-
arann kveða upp úrskurð um
það, að taka mæ.tti börn henn-
ar af sjúkrahúsinu, þar sem'
þau hafa verið hingað til. Frú
Frægð fgrir
3300 hr.
Jones neyddist til að reyna að
fá börn sín „gefin frjáls“
vegna þess að hún skuldaði
sjúkrahúsinu 5000 dollara
(80.000 ísl. kr.) fyrir læknis-
hjálp og hjúkrun barnanna
fyrstu hörmungaárin. Nú gat
hún fengið peningana, ef hún
vildi afhenda börnin fjölleika-
hússtjóra, sem vildi greiða
78.000 kr. fyrir að sýna þau í
sex mánuði og sömu upphæð
áfram, ef börnin héldu áfram
að draga að áhorfendur. Úr-
skurður dómarans var: 78.000
kr. greiðsla á misseri í fimm
ár, hvort sem aðsókn verður
áð börnum eðá ekki, Úrskurð-
urinn var kveðinn upp þrátt
fyrir mótmæli móðurinnar.
Dómarinn sagði: „Ef börnun-
um er ekkert gert, geta for-
eldrarnir ekkert haft á móti að
þau séu hötfð til sýnis“.
„Eg ætla að spara og spara,
þá get ég kannske eftir nokk-
ur ár keypt mér lítið hús og
haft öll börnin mín hjá mér“,
sagði frú Jones milli grátkvið-
anna, er hún fór útúr réttar-
salnum“.
25.100.01 dollaratntlúensa ™Mnð * e^nm
Danska „Ekstrabladet“ birtir
verðlista eins þeirra mörgu
bandarísku fyrirtækja, sem
taka að sér að gera menn fræga
með þvi að koma nafni þeirra
i. blöðin. Þetta fyrirtæki, Bor-
by Sons, selur ymiskonar
ustu, svo sem blysfarir til
heimila manna eða troðning
þar sem menn sýna sig á al-
mannafæri fyrir frá 3300 til
23.000 krónur. Og vilji menn
iáta 250 blómarósir hópast. um
sig til að ná í eiginhandarnafn
sitt kostar það 4300 krónur.
Dómarinn Leibowits í Brook-
lyn segir það sína skoðun, að
lögreglan í New York taki á
móti 25.000.000 dollurum í
mútur á ári. Máli sínu til sönn-
unar bendir hann á að einung-
is einn fjárhættuspilakóngur
Harry Gross, hafi greitt millj.
dollara í mútur á ári. Mútu-
greiðslurnar ná allt frá götu
lögreglunni til lögreglustjór-
anna, segir Leibowits. I New
York eru um 19.000 lögreglu
þjónar, svo að ef múturnar
skiptust jafnt ættu um 1.300
dollarar (20.000 ísl. kr.) að
koma í hlut.
Vaxandi
eitttrlyfjaneyzla
uiiglinga
Bandaríska heilbrigðismála-
stjórnin hefur tilkynnt, að
vegna vaxandi eiturlyfjaneyzlu
unglinga hafi orðið að taka
fyrir þá 300 sjúkrarúm. Síðan
1946 hefur eiturlyfjasjúkling-
um innan 21 árs fjölgað svo í
Bandaríkjunum, að tala þeirra
hefur hundrað og fimmfaldazt.
-I ■ 1 '■»i»lltlltíil’ rtll I
iMnMIWlP*
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur miltla inflúensurann-
sóknarstöð í Londoín. Hér sést einn starfsmaðurinn þar sprauta
inflúens’uvírus í egg, en í þeim er vírusinn ræktaður a fyrsta
stigi hverrar tilraunar
Sjö friðarverðlaun
Stalíns veitt
Fyrír nokkru voru hin alþjóðlegu friöarverölaun,
sem kennd eru við Stalín, veitt í fyrsta skipti.
Verðlaunin, sem veitt eru
fyrir afburða framlag í barátt-
unni fyrir friði án tillits til
þjóðernis, kynþáttar, trúar-
bragða eða stjórnmálaskoðana,
v.oru stofnuð á sjötugs afmæli
Stalíns í liitteðfyrra.
Efstur á lista þeirra, sem
verðlaun
hlutu, er
franski kjarn-
orkúilraiYng-
urinn pró-
fessor Frédé-
ric Joliot-
Curie, for-
seti heimsfrið
arhreyfjhgar-1
innar. Sex
menn aðrir
hafa- fengið verðlaunin en það
voru: Madame Eugenie Cotton
frá Frafcklandi, bandaríski mót
mælendabiskupinn Arthur Mol-
ton, Pak Enlai formaður
kvennasamands Kóreu, kín-
verska konan Soong Sjingling
formaður hjálparnefndar al-
Joliot Curie
þýðustjójrnarinn-
ar, dr. Hewlett
Johnson dómpró-
fastur í Kantara
borg og Heri-
berto Jara fyrr-
verandi flota-
málaráðherra í
Mexíkó.
Stalínsfriðar-
Dr. Johnson verðlaunin eru
100.000 rúblur,'
heiðursskjal og gullpeningur.
Alþjóðleg nefnd, þar sem m. a.
a. eiga 'sæti franska skáldið
Aragon og brezki eðlisfræði-
prófessorinn Bernal, veitir verð
launin frá fimm til tíu mönn-
um árlega.
Það er enn eitt dæmi um á-
standið í Bandaríkjunum, að
er vitnaðist að Moulton biskup
hefði fengið friðarverðlaunin,
varð hann að gefa út yfirlýs-
ingu um að hann tilheyrði ekki
neinum „kommúnistiskum sam-
tökum“ til að reyna að komast
hjá ofsóknum.
Fiuidin leið til að græða á
roenn afkulibaða limi?
Merk sovéinýjung í skurðlæknmgum
Bandaríska fréttastofan Associated Press heíur eft-
ir sovéttímaritinu ,,Ogonjok“, að skurölæknar i Sovét-
ríkjunum hafi uppgötvaö lækningaaöferö, er geri fært að
skipta um hin þýöingarmestu líffæri í mannslíkaman-
um.
Blaðið segir, að rökstuddar
vonir standi til, að með þessari
nýju aðferð takist brátt að
setja á menn aftur útlimi, sem
kubbast hafa af, svo sem fót-
leggi og handleggi, svo ekki
sé talað um fingur og tær.
Prófessor að nafni V. F.
Gudoff liefur stjórnað rann-
sóknum þeim, sem nú hafa bor-
Met svJfflug
uppl háloftln
1 vetur settu tveir Pólverjar
nýtt hæðarmet í svifflugi, kom-
ust 9850 metra uppí loftið eða
í neðri mörk háloftanna. Flug-
garparnir, Brzuska og Parzze-
wski, voru þrjá klukkntíma
að stíga uppí þessa hæð. og
3i/2 tíma á leiðinni niður. Frost
ið þarna uppi var svo mikið, 45
stig, að Parzzewski kól á hönd
unum. Þegar hæst var komið
var kuldinn svo mi-kill og loftið
svo þurrt, að líkast var því að
svifflugan ætlaði að liðast i
sundur. Fyrra hæðarmet í svif
flugi áttu Frakkar og var það
8130 metrar.
ið þennan árangur. Hann og
samstarfsmenn hans nota. litla
vél, sem kölluð er sjálfvirk
skurðlækningasaumavél. Með
henni er bæði hægt að skera
í sundur og tengja aítur sam-
an æðar, þannig að blóðrásin
heldur áfram óhindruð eftir
nokkrar sekúndur.
Smíði þessarar nýju vélar
hefur þegar verið verðlaunuð
með Stalínverðlaunum. Henni
hefur þegar verið beitt marg-
oft á allskonar æðar í mönn-
um. Einnig hefur vclin verið
notuð með góðum árangri til
að opna á ný stöðvaða blóð-
rás.
Páfagaukar og
500 apar og 24 páfagaukar
háðu nýlega hina hörðustu
sennu hátt í lofti milli Kairo
og London. Rétt eftir að flug-
vél með þennan dýrafans lagði
af stað frá Kairo byrjaði ball-
ið, því að apar sluppu. útúr
búrum sínum, hleyptu páfa-
gaukunum út og fóru svo að
elta þá um vélina. En páfa-
gaukarnir beittu goggnum og
aparnir urðu fljótt fegnir að
flýja í búr sín. Meðan þessu fór
fram hcngu tíu flughundar á
afturlöppunum og horfðu á bar-
dagann með heimspekilegri ró.
Lent var í Róm og hvert dýr
lokað inni sínu búri. E-n ekki
var búið að vera lengi á lofti
er páfagaukarnir nöguðu sig
útúr sínum búrum og réðust á
apana. Ný neyðarlending 1
Amsterdam, þar sem fuglarnir
voru settir í járnbúr.
Iferskáir
itiiiiikar
Yfir 50 búddatrúarmunk-
ar réðust nýlega inná ritstjórn-
arskrifstofu blaðs í Rangoon,
hrutu allt og brömluðu og mis-
þyrmdu einum blaðamanni. Lög
regla vopnuð vélbyssum var'ö
að skakka leikinn. Blaðið, sem
varð fyrir árásinni, hafði skýrt
frá óviðurkvæmilegu atferli
munks á almannafæri.
FSýðu 500
km á fteka
Grísk hjón, sem sátu í
fangelsi í Missolonghi á
Vestur-Grikklandi fyrir
stjórnmálaskoðanir sínar,
sluppu þaðan á fiótta mcð
einstæðu móti. Þau srníð-
uðu sér fíelca, eftir að þau
höfðu komizt úr fangels-
inu, og sigldu á Iionum
heilu og höldnu þvert
yfir Jónahaf til ítalíu.
Sú vegalengd er um 500
kílónietrar, Hjónin segja
að 300 pólitískir fangar
hafi verið í haldi í Miss-
olonghi.