Þjóðviljinn - 03.06.1951, Síða 4
4)
ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 3. júní 1951
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartaneson, SlgurSur Guðmundssoa (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólaísson, Jónas Árnason.
Auglýsin'gastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
13. — Sími 7600 (þrjár lír.ur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
\______________________________________________________________k
Nýsköpunin og sjávarútvegurinn
Nýsköpun íslenzká fiskiskipaflotans eftir styrjöldina er
mikið afrek, svo óvenjulegt átak smáþjóðar að vakið hefur at-
hygli og öfund víða um lönd. íslenzku nýsköpunartogararnir
vekja eftirtekt hvar scm þeir koma, keppinautar Islendinga á
sviði fiskveiðanna hafa fylgzt nákvæmlega með útbúnaðj þeirra
og veiðimagni, og finnst mikið til um hvorttveggja. Mikið vant-
ar á að íslendingar hafi gert sér ljóst hvílík bylting varð í
fiskveiðum, nýtingu afians og markaðsútvegunum af völdum
nýsköpunar atvinnulífsins á Islandi 1944—46, en sú bylting er
ævintýri Jíkust, svo snögg og mikil eru umskiptin, togararnir,
síldarverksmiðjurnar, fiskiðjuver, hraðfrystihúsin, bátaflotinn,
— og samtímis opnaðir stórfenglegir nýir markaðir fyrir ís-
lenzkar sjávarafurðir í Austur-Evrópu. Á þessari miklu ný-
sköpun fiskiskipaílotans og fiskiðnaðarstöðva hefur afkoma ís-
lenzku þjóðarinnar að langmestu leyti hvílt síðustu árin. —
Cg nýsköpun kaupskipaflotans hélzt í hendur við nýsköpun
fiskiskipaflotans, Skipaeign Islendinga nú ber stórhug þjóðar-
innar glæsilegt vitni.
Það er lærdómsríkt að minna á þá uppáhaldskenningu aftur-
haldsins að sósialistar eigi enga löngun heitari en að atvinnu-
vegir landsins lirynji í rúst — einmitt í sambandi við nýsköpun-
ina. Um það er ekki lengur deilt, enda söguleg staðreynd, að
nýsköpunarstefuan er beeinlínis framlag Sósíalistaflokksins til
íslenzkra þjóðfélagsmála kringum lýðveldisstofnunina, það er
þegar orðin íslandssaga hver áhrif Sósíalistaflokksins urðu þann
stutta tíma sem hann átti hlutdeild að ríkisstjórn á Islandi, hve
mikið honum tókst að knýja fram til nýsköpunar öllu atvinnulífi
þjóðarinnar, ekki sízt risaátökin í sjávarútvegi, fiskiðnaði og
markaðsöflun — og það í samstarfi við afturhaldsöfl, er jafnan
sátu á svikráðum við nýsköpunina. En hugsjón nýsköpunarinn-
ar snart þjóðina og knúði fast á flokkana, boðun Sósíalista-
flokksins á því fagnaðarerindi að alþýða Islands þyrfti ekki að
búa við skort ef þjóðin skilur sinn vitjunartíma og nýtir auð-
lindir sínar í þjóðarhag, fann djúpan hljómgrunn um allt land.
Eh til þess að rryggja framhald nýsköpunarinnar, hefði þjóðin
crðið að stórefla áhrif Sósíalistaflokksins í þingkosningunum
1946 og 1949. Vegna þess að hún lót blekkjast af þeim áróðri
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins að þeim væri nýsköp-
unin líka mál málanna, fór sem fór.
Þeir sem lagt höfðu trúnáð á þann áróður að sósíalistar
ættu enga ósk heitari en hrun atvinnuveganna hljóta að hafa
beðið þess með ofVæni hvernig hann beitti áhrifum sínum sem
stjórnarflokkur. En svo undarlega brá við, að þó Björn
Ólafsson, Eysteinn Jónsson ásamt öllum Sjálfstæðisflokknum
cg Framsókn sæju ekkert nema hrun atvinnuveganna fram-
undan sumarið 1944, tókst Sósíalistaflokknum og verkalýðs-
hreyfingunni undir forystu sósíalista að gera næstu ár að
fraxnfaraárum meiri en nokkru sinni höfðu komið á Islandi og
stórbæta kjör allrar alþýðu. En það leið hins vegar ekki á löngu
eftir að gömlu ílokkárnir, Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Al-
þýðuflokkurinn voru einvaldir um landsstjórnina á ný að tækist
að skapa það öngþveiti, atvinnuleysi og vandræði ásamt afsaji
íslenzkra iandsréttinda er íslenzkt auðvald telur nauðsynlegt til
að geta viðhaldið skefjalausu arðráni sínu. Nýsköpunin var
svikin, togárarnir bundnir tímum saman, mörkuðunum miklu
fyrir íslenzkar sjávarafurðir fleygt vegna pólitísks ofstækis og
bandarískra fyrirskipana.
Það er sérstök ástæða til að minnast á þessi mál einmitt
L..1 ,i-. .
Ber.zíniaus flugvél býr
s;g til flugs.
Maður nokkur, sem ætlaði að
senda barn sitt til sumardvalar
austur í Hornafjörð með flug-
vél frá Flugfélagi Islands í
fyrradag, kom að máli við Bæj-
arpóstinn og hafði eftirfarandi
sögu að segja: „Farþegarnir,
en mikill hluti þeirra voru börn
sem áttu að fara i sveit í
Skaptafellssýslu, höfðu kvatt
foreldra sína og aðra aðstand-
endur sem fylgdu þeim á flug-
völlinn, farþegarnir eru allir
seztir inn í flugvélina, dyrum
hennar lokað, hreyflar settir í
gang og vélin rennur af stað
út brautina. Engum kemur ann
að í hug en að allt sé í lagi og
flugvélin taki sig fljótlega á
loft. En von bráðar snýr flug-
vélin við á brautinni og kem-
ur sömu leið til baka. Hafði
þá flugmaðurinn uppgötvað að
flugvélin var benzínlaus eða
benzínlitil og því óhæf til þeirr-
ar ferðar sem framundan var.
Sló miklum óhug á alla við-
stadda er þetta upplýstist, því
hér virtist litlu muna að illa
færi.
Hvar er öryggís-
eftirlitið?
Maðurinn var gramur og
þarf vist engan að undra, því
allir ættu að geta sagt sér það
sjálfir hvernig því fólki hefur
orðið innanbrjóst, sem þama
var að kveðja börn sín og ætt-
ingja. Er það vægast sagt full-
komið undunarefni að annað
eins og þetta skuli geta gerzt í
sambandi við flugþjónustuna.
Við höfum orðið fyrir hörmu-
legum áföllum í sambandi vvið
farþegaflugið innanlands og
ættu þau sannarlega að minna
alla aðila á, að fyllsta öryggis
og strangasta eftirlits þarf að
viðhafa í öllu er flugið varðar,
ef það á að njóta þess trausts
sem nauðsynlegt er til þess að
flugstarfsemin eigi framtíð fyr
ir sér í landinu. — En þessi at-
burður á Reykjavíkurflugvelli
í fyrradag virðist óneitanlega
benda til þess að hér sé eitt-
hvað öðruvísi en vera ætti og
verða þarf hvað öryggiseftirlit
með flugvélum og flugferðum
snertir.
•
Kráfa almennings.
Það hlýtur að verá krafa
alls almennings að ekkert sé
til þess sparað að halda uppi
sem allra fullkomnastri örygg-
isþjónustu og strangasta eftir-
liti með öllu er að fluginu lítur.
Og eftir því á að ganga án
hlífðar að settum reglum só
fylgt út í æsar og. án allra
undanbragða. Sé það ekki gert
er verið að Ieika sér að hætt-
unni, og beinlínis stefnt að því
að eyðileggja þá tiltrú sem al-
menningur verður að geta borið
til þessa þýðingarmikla þáttar
í samgöngumálum þjóðarinnar.
Rauðamöíin og skrúð-
garðarnir.
„Garðvinur" biður fyrir þessi
skilaboð til forráðamanna
gatnagerðar hæjarins: „Vill
ekki Bæjarpósturinn koma
þeim skilaboðum til þeirra sem
ráða gatnagerð bæjarins, að
hætt verði að nota rauðámölina
á götur í bænum sem liggja
meðfram íbúðahverfum a.m.k.
Flestir reyna að koma sér upp
einhverjum trjám við hús sín,
en rauðamölin er versti spell-
virki í görðum, fýkur inn í þá,
étur og særir stofna og grein-
ar svo að um hreina eyðilegg-
ingu er að ræða.. Hefur þetta
valdið mér og öðrum sem er
annt um tré sín og garða mikl-
um áhyggjum og leiðindum. —
Eg trúi ekki öðru en hægt sé
að finna eitthvað annað efni
til þessara nota en rauðamölina
og forða þannig trjánum frá
eyðileggingu."
VIII fá endanleg úrslit
birt í útvarpinu.
„Fróðleiksfús" skrifar: Eg
hef verið að bíða eftir því að
útvarpið okkar birti atkvæða-
tölur frá ítölsku sveitarstjórn-
arkosningunum. Við fengum
spásagnir um úrslit þeirra fyr-
irfram í útvarpinu, óljóst
fréttaslitur af fyrstu talningu,
en engar niðurstöðutölur. Nú
skiptir það vitanlega mestu
máli, vilji maður mynda sér
skoðun um stjórnmálaþróuniná
á Ítalíu, hver endanleg úrslit
hafa orðið, hvert atkvæðamagn
hinar stritandi fylkingar hafa
hlotið í kosningunum. Og ekki
spillti að fá þá um leið saman-
burð á fylgi flokkanna nú og
síðast þegar kosið var í sömu
svéitarstjórhir. Eg trúi ekki
öðru en að útvarpinu sé Ijúft
að láta okkur hlustendum þessa
fræðslu í té og treysti Bæjar-
póstinum til að reka á eftir
því.“
Iausri baráttu við afturhald landsins á Alþingi og í Landsbank-
Eimskip
Brúarfoss er í Hamborg’. Detti-
foss fer fjá London 2.6. til Leith
og Reykjavíkur. Goðafoss kom til
R.eykjavíkur 1.6. frá Antverpen.
Gullfoss fór frá Leith 31.5. til R-
víkur og kemur á ytri höfnina um
kl. 8 ;í dag 3.6. Skipið kemur að
bryggju kl. 9 f.h. Lagarfoss fór
frá Reykjavík kl. 10.00 í gærmorg
un 2.6. til Dublin óg Hamborgar.
Selfoss fer væntanlega frá Húsa-
vík í gær 2.6. til Isafjarðar og
Reykjavíkur. TröIIafoss er í N.Y.
Katla kom til Gautaborgar 30.5..
frá Reykjavik. Hans Boye hefur
væntanlega farið frá Odda í Nor-
égi 1.6. til Reykjavíkur.
Skipadeild SÍS
Hvassafell er væntanlegt til
Patrás n. k. þriðjudag frá Akur-
eyri. Arnarfell er í Napoli. Jökul-
fell fór frá N.Y. 31. f.m., áleiðia
til Ecuado.
Helgidagslæknir: Bjarni Jónss.,
Reynimel 58. — Sími 2472.
11.00 Messa í Dóm
kirkjunni (séra
Bjarni Jónsson
vígsiúbiskúp). 14.00
Dagskrá sjómanna
(útisamkomá vió"
Austurvöll): a) Minnzt látinna sjó
manna (Sigurgeir Sigurðsson bislc
up talar. — Ævar Kvaran syngur).
b) Ávörp (Björn Ólafsson ráðh.
Oddur Helgason útgerðarmaður
og Guðmundur Jensson loftskeyta
maður). c) Lúðrasveit Reykjavik
ur leikur; P. Pampichler stjórnar.
— Einnig fer fram afhending verð
launa. 18.30 Barnátimi sjómanna-
dagsins (Guðjón Bjarnas.): Barna-
kórinn Sólskinsdeildin syngur.
Börn senda feðrum sínum kveðjur.
Einsöngur. Tvísöngur. Kvartett-
söngur. Söngéikur. Upplestrar.
Einleikur á pianó. 19.30 Erindi:
Um dvalarheimili aldraðra. sjó-
manna (Kristján Eyfjörð Guð-
mundsson sjómaður). 20.20 Dag-
skrá sjómanna: Ávarp: Gunnar
Thoroddsen borgárstjóri. — Sam-
töl. — Leikþáttur. — Óskalög sjó-
manna — o. fl. 22.30 Danslög:
a) Útvarpað frá dansleik sjómanna
í Tjarnarcafé. Hljómsv. Kristjáns
Kristjánssonar leikur. b) Ýmis
danslög af plötum. Dagskrárok.
Loftlelðir h.f.
1 dag á að fljúga til Vestmanna-
eyja. — Á morgun eru áætlaðár
flugferðir til Akureyrar, Vestm,-
eyja, Isafjarðár, Patreksfjarðar,
Hólmavíkur, Sauðárkróks, Þingeyr
ar, Flateyrar og Bíldudals.
Nýlega opinberuðu.
trúlofun sína ung-
frú Helga Jónsd.,
Vífilsgötu 24 og
Þór Eliasson, Lang
holtsveg 93.
Kirkjukór Nessóknar gengst fyr
ir samkomu i Hallgrímskirkju 5
Reykjavík, mánudagskvröldið 4.
júni kl. 9. — Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill. Þar verðúr
samsöngur undir stjórn Jóns ís-
leifssonar með aðstoð Páls Hall-
dórssonar organleikara. Einar
StUrluson óperusöngvari syngur
einsöng, og erindi flytúr séra
Jón Thórarensen. Þarna verða
flutt sönglög eftir erlenda og inn-
lenda höfunda, meðal annars eftir
iíú á sjómannadaginn. Þennan dag koma mennirnir, sem barizt
hafa af alefli gegn nýsköpuninni, gegn hinu stórlkostlega átaki
er þurfti til að eignast nýjan glæsilegan togaraflota, nýjan flota
stórra vélbáta ný fiskiðjuver, hraðfrystihús og síldárverk-
Emíðjur, nýja óþrotlega markaði fyrir íslenzkar sjávarafurðir
•— °S gala hver í kapp við attnan um ást sína á sjávarútvegi,
nýjurtí skipúm og sjómönnum. í dag koma mennirnir í ræðu-
stólana ssem áratugum saman hafa barizt gegn mannsæmandi
hvíld fyrir togaraháseta og hverri einustu tilraun þeirra að fá
hjör sín bætt og vitna um elsku sína til sjómanna, kalla þá
þúsund sinnum „hetjur hafsins". Þess vegna er einmitt í dag
nauðsyn að staldrá við og minnast þess hverjir það voru sem
bófu íslenzkan sjávarútveg á nýtt og hærra stig með stórhug
Og afrekum nýsköpunarinnar, hverjir það voru sem í vægðar-
anum tryggðu það að bæjarfélögin úti um iand gætu eignazt
nýsköpunartogara, skipin sem víða eru nú undirstaða at-
vinnulífs heilla bæja. Minnast þess að endurnýjun kaupskipa-
flotans er einnig verk nýsköpunarinnar. Rifja það upp hvaða
flokkur hefur barizt ár eftir ár fyrir 12 stunda hvíldartíma tog-
araháséta og bættum kjörum sjómannastéttarinnar. Minnast
þess að það er Sósíalistaflokkúrinn, sem þannig hefur haft
forystu í málum íslenzks sjávarútvegs, málum íslenzku sjó-
mannastóttarinnar, — að framgángs nýsköpunarstefnu og hags-
munamála sjómanna er því aðeins að væntk að Sósíalistaflokk-
urinn eflist svo að hann geti á riý ihaft mótandi áhrif á stjórn-
arstefriuná á Islandi. Sjómenn sjá þetta skýrar nú en áður. Og
þeir riiunu þess albúnir að sýria afturhaldinu þann skilning
í verki. - i
Isólf Pálsson, séra Halldór Jóns-
son, Sigfús Einarsson og Sigurð
Þórðarson.
MESSUR I DAG:
Laugainesklskja.
Messa kl. 11 f.b.
Sr. Garðar Svav-
arsson. — Fríklrkj
an. Messa kl. 2 e.
h. — Sr. Þorsteinn
Bjönsson. HaHgrímsklrkja. Messá
kl. 5 e. h. (Sjómannamessa). Sr.
Jakob Jónsson.
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Iðunni. — Sími 7911.
NæturVörður er í Reykjavíkurapö-
teki. — Sírni 1760: -