Þjóðviljinn - 24.06.1951, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.06.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 24. júní 1951 þlÓÐVlUlNN I Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn. Hitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðrn. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur). Askriftarverð kr. 16 á mánuði. — Bausasöluverð 75, aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. V:______;___________________________________________/ Stöndum vörð um íslenzka menningu Fj'rsta kvöld hins nýja heniáms var haldinn fundur í Kvenréttindafélags íslan<j(s. 1 fundarlok lcvaddi Þórunn Eifa Magnúsdóttir, rithöfundur, sér hljóðs og vék að atburð- um þeim sem gerzt höfðu. Minntist hún á nauðsyn þess að samtök kvenna beittu sér fyrir tafarlausum ráðstöfunum til verndar æskulýðnum, siðgæði hans, menningu og tungu. Þór- ún hafði þó ekki lengi talað þegar annarlegir atburðir gerð- ust í hópi áheyrenda. Guðrún Pétursdóttir, hin aldurhnigna móðir Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra, rauk upp, barði saman hnefum og æpti með fyllsta raddstyrk: „Komm- únistaáróður, rússaþjónusta.“ Því næst vék hún að því með torskiljanlegu orðalagi að Þórunn Elfa væri að undirbúa að myrða Bjarna son sinn, en ýmsar lagskonur hennar hófu klapp og stapp og arg undir forustu Guðrúnar Guðlaugsdótt- ur. Leystist fmidurinn upp við þessi' ósköp, þegar undan er skilinn áframhaldandi fúkyrðaaustur Guðrúnanna og stall- systra þeirra. Fundur þessi várð umræðuefm í blöðum, eins og alkunn- ugt er, og lýstu bæði Morgunblaðið og Vísir yfir mikilli-hrifn- ingu á framkonu ráðherramóðurinnar og fylgikvenna hennar. Þarna var fundin sú framkoma sem rétt var að beita „komm- únista“ á tímum hins nýja hernáms. Þetta voni þau við- brögð sem hæfðu hverjum jieim sem dirfðist að vilja vernda siðgæði, menningu og tungu íslenzkrar æsku fyrir banda- riskum afsiðunaráhrifum og spillingu. Lögmálin að baki voru ekki færð í letur en þau blasa þó við hverjum manni: Ótakmarkað samneyti íslenzkrar æsku og setuliðsins, niður með siðgæði, íslenzka menningu og tungu ef hin vestræna herraþjóð á í hlut. Það var mikið rætt um þessa atburði næstu daga á eftir, og fylgismenn afturhaldsflokkanna fengu nýjan skilning á þ\n hugarfari og sálarástandi sem mótaði líf ráðherranna og aðstandenda þeirra. Þeim nægði auðsjáanlega ekki að selja landið, heldur skyldi íslenzk æska einnig seld hinum er- lendu mönnum til gamans. Þær uppástungur hafa þegar birzt opinberlega að ísland yrði 49. ríki Bandarikjanna, og þótt ráðherrarnir hafi ekki enn flíkað þeim svo vitað sé, virðast þær ekki fjarlægar hugskoti þeirra. Að minnsta kosti er útþurrkun íslenzkra sérkenna, menningar og tungu forsenda þess að slikur samruni geti orðið. Það er vægilega orðað að öllum almenningi hafi ofboðið afstaða landsölukvennanna, og hún var fordæmd algerlega án tillits til stjórnmálaskoðana. Jafnvel þeir Islendingar sem fylgja hernáminu líta að miklum meiri hluta á það sem þungbært böl, sem bezt sé að losna við sem fyrst og þannig að þaö raski lífsvenjum íslendinga sem minnst. Sem betur fer er það enn aðeins fámenn landráðaklíka sem vill íslenzka menningu og tungu feiga og telur islenzkar stúlkur aðeins hæfilegt leikfang handa bandarískum hermönnum. Varnaoa rorð Þórunnar Elfu voru borin fram í tillöguformi á uppeldismálaþingi því sem haldið var hér í bænum fyrir skömmu. Og þar var ekki æpt um kommúnista og Rússa, þar var ekki fylgt kjörorðum Morgunblaðsins og Vísis um klapp og arg og stapp. Þvert á móti samþykktu kennarar úr öll- um flokkum eftirfarandi tillögu: „Vegna setu erlends herliðs í landinu vill uppeldismála- þingið 1951 livetja foreldra, kennara og allan almenning til að varðveita um alla hluti fram þau verðmæti, er öðru frem- ur sérkenna íslenzkt þjóðemi. Sérstaklega brýnir þingið fyrir sérliverjum íslenzkum Jiegni — að virða og vernda móðurrnálið, sögu þjóðarinnar og bókmenntir, — að efla þau uppeldisálirif, er stuðla að mótim heil- steyptrar skapgerðar, heilbrigðs félagsh'fs og kristilegs sið- gæðis, .. ■ —í-æ ■a.ijc Herliðið og Sunclhöiiin Þeir bæjarbúar, sem só.tt hafa Sundhöllina undanfarna daga, hafa ekki getað þverfót- að þar fyrir amerískum her- mönnum, er sækja Sundhöilina á sama tíma og hún er opin almenningi til afnota. Þetta hefur vakið feikna gremju fólks sem eðlilegt er. íslend- ingar vilja ekki una því að þurfa að sækja Snndhöllina samtímis því ameriska herliði sem hér dvelur í óþökk þjóðar- innar. Þeir óska eftir að geta treyst því, að þótt þeir bregði sér upp í Sundhöll sér til hress- ingar og heilsubótar, þurfi þeir ekki að vera þar innan um erlenda herdáta. Á stríðsárun- um fékk setuliðið að risu. að- gang að Simdhöllinni, en því var ætiaður viss tími og sóttit fslendingar ekki Simdhöllina á sama tíma. Þennan saraa hátt á að. taka. upp nú, þótt ameríski herinn fái aðgang að Sundhöll- mni er með öllu ástæðulaust og gjörsamlega \ óviðunandi að hann sé að flækjast þar imian- um islenzka baðgesti. Við ís- lendingar viljum ekki að nauð- svnjalausu hafa neitt saman að rælda við ameríska herliðið. Á Þingvöllum 17. júni. Út af fyrir sig var það virð- úngarvért aö innrásarliðið ame- ríska lét ekki sjá sig í höfuð- borginni á þjóðhátíðai'daginn. Þjóðviljinn hafði horið fram þá kröfu að fslendingum yrði ekki s'ka.praunað með nærveru þess 17. júní. Nú munu flestir liafa húizt við því, að herliðiö héldi sig í aðálstöðvum sínum súður á Keflavíkurflugvelli þennan dag en svo reyndist ekki. Aust- ur á Þingvöll komu 17. júní þrír bílar fullskipaðir amerísku her- liði sem dvaldist þar daglangt. Virðist sem yfirmönnum her- liðsins og ríkisstjórninni hafi þótt það sérlega vel við eigandi að hinn erlendi innrásarlier heiðraði hinn forna sögu- og þingstað íslendinga með heim- sókn sinni á þjóðhátíðardaginli. Móðgun við þjóðina.. Það verður að segja það eins og það er, að þaÖ er hrein- asta óhæfa og fulikomin móðg- un við sögulegar minningar þjóðarinnar, sem tengdar eru Þingvöllum öllum öðrum stöð- um fremur, að þangað skyldi hinu útlenda herliði stefnt á þjóðhátíðardaginn. Verður vissulegá engin afsökun fundin fyrir því, að þeir sem eiga að hafa með höndum samskipti af fslands hálfu við herina, skuli ekki gæta skyldu sinnar gagnvart því sem þjóðinni er helgast betur en raun er á. Þessi helgasti reitur íslenzkr- ar réttinda- og sjálfstæðisbar- áttu á sannarlega að vera frið- helgur fyrir heimsóknum inn- rásarliðsins alla daga ársins, og Joó alveg sérstaklega 17. júni. Þessa ættu vinir hersins að gæta eftii'leiðis og gera sér ekki leik að því að óvirða og særa tilfinningar, sem allir góð- ir íslendingar bera í brjósti til Þingvalla. Ættar Valtýr að lieykjast? Svo er að sjá sem Valtýr ætli að 'heykjast á að taka tilboði Þjóðviljans mn mynda- skiptin. Hefur honum nú tvisv- a.r verið boðið að birta einu sinni í Mbl. mjmd Þjv. af mótr mælafundinúm sem ea. 5000 Reykvíkingar sóttu, gegn því að Þjv. birti tvisar hina föls- uðu mynd Mbl. ,,með Einar í ræðustólnum“. Af einhverjum ástæðum færist Valtýr enn undan og heldur uppi mark- lausu röfli um rannsókn „dóm- kvaddra og óvilhallra“ manna á fjölda fundarmanna. Hvers vegna lætur maðurinn svona í stað þess að taka tilboðinu og leggja spilin á borðið fyrir bæjarbúa. Það skyldi ekki vera af því að Valtýr veit upp á sig skömmina. Þorir Valtýr ekki að birta mynd af fundinum? Þjóð- viljinn er enn sem‘fyrr reiðu- búinn til að standa við sitt boð. En hvað dvelur Valtý? Var þessi litli vottur um bre\Ttt hugarfar, sem fram kom á dög- unum, aðeins stundarfvrir- brigði ? Hefur forherðingin gripið hiiin garnla sjTidásel nýj- um heljartökum ? Við bíoum enn og sjáum hvort Valtýr heldur áfram að herja höfðinU við steininn. * ★ * Kimskjp Brúarfoss er í Hamborg-. Detti- foss fór frá Akranesi í gærkvöld til Keflavíkur. Goðafoss fór frá Hamhorg 21. þm. til Aiitwerpen og Rotterdam. Gullfoss fór frá Rvík í gær til Leith og Khafnar. Lagarfoss, Selfoss, Tröllafoss. og Katla eru í Reykjavík. Vollen fer frá Hull 26. þm. til Reykjavíkur. Leiðrétting: Tilkyr.ning sú um skreytingu Háskólalóðarinnar sem birt var í blaðinu í gær var ekki frá Háskólaráði heldui' Matthíasi Þórðarsyni prófessor, formanni dómnefndar, Einari Ólafi Sveins- syni, settum rektor Háskólans og Herði Bjarnasyni skipulagsstjóra. — að forðast óþörf samskipti við hið erlenda lið, en gæta stillingar og sjálfsvirðingar í óhjákvæmilegum viðskiptum við það.“ Þaö hefur ekki farið mikiö fyrir þessari ályktun á síðum afturhaldsblaðanna, en engu að síður túlkar hún áreiðanlega skoðanir meginþorra þjóðarinnar. Og þótt landráðablöðin séu nú varkárari en fyrst, ættu atburðirnir á Kvenréttinda- félagsfundinum og eftir hann að sanna hverjum hugsandi manni hverjar hættur eru framundan á þessu sviði. Laugarneskirkja, Messa kl. 11 f. h. Séra Jónmundur Halldórsson, Stað í Grunnavik pré- dikar. — Fríkirltj- an. Messa kl. 2. Sr. Gísli H. Kol- l>eins, prestur i Sauðlauksdal pré- dikai-. Óliáði fríkirkjusöfnuðuf- inn. Messa í Aðventkirkjunni kl. 2 e. h. Sr. Þórarinn Þór prédikar. Sr. Emil Björnsson þjónar ■ fyrir altari. Þann 22. þ.m. voru gefin sam- an i hjónaband af sr. Sigurjóni Guðjónssyni, prófasti í S.aur- bæ á Hvalfjarðarströnd, Svanhild- ur Gestsdóttir (Pálssona.r leikara) og Þórarinn Elmar Jensen. Heim- ili þeirra verður á Víðimel 49. — I' gær voru gefin saman í hjóna- hand af séra Þorsteini Björnssyni, ungfrú Margrét Árnadóttir, frá Seyðisfirði, og Guðjón Valgcirsson Njálsgötu 32. — Nýlega voru gef- in sarnan i hjónaband Ásta Vil- mundardóttir frá Illugastöðum i Fljótum og Guðm. Guðmundsson, Hverfisgötu 6A, Hafnarfirði. — 1 gær voru gefin saman í lijóna- barid ungfrú Guðrún Björg Hjálm- arsdóttir og. Bergþór N. Jónsgon. Heimili þeirra er að Langholtsveg 106. —1 gær ’voru géfin saman í lijónaband af' prófessoi- Ásmundir Guðmundssyni . ungfrú Jóhanna • Friðriksdóttir . og Baldur Þor- steinsson, skógfræðingur. Naetii’rvörður er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911. Næturlseknir er í læknavarðstof- unni, sími 5030. Ungbarnavernd Líknar, Templara sundi 3, er opin þriðjudaga kl. 3,15—4.00 og fimmtudága ki. 1,30 til 2,30 e. h. Heigidagslæknir: Óla.fur Sigurðs- son, Barmahlið 49. — Sími 81248. Iteykjavfkurdeild Kauða Iíross ts- lands hefur beðið blaðið að til- kynna aðstándenduriv þeirrá Uarna sem suniardvöl: eiga að hafa á Skógum, að þau eigi að mæta kl. 9 f.h. þriðjudaginn, 26. júni,. hjá Ferðaskrifstofu yíkisiiis. '—■ Og börnin að 'Varmalandi mæti á sama stað miðvikudaginn, 27. júní kl.’9 f. h. • ■ ; Sumarheiinili Mæðrastyrksnefndar tek.ur til starfa í byrjun júlimán- aðar. Ivonur er sækja- vilja . um dvöl þar geri svo. vel að tala sem fyrst við skrifstofu nefndarinnat- í Þingholts’stræti 18, sími 4349, sem er opin frá kl. 3—5 daglega. Munið Jónsmessumót sósialista . á Þingvöllum í dag. Ferðir austur kl. 8,30 og 11.30 f. h. Útifundur- inn hefst ki. 1,30 e. h. Þann 17. júni op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Ing- unn Ingólfsdóttir, Hamri, Svarfaðar- dal og Bjarni Hjaltalín, Ránargötu 6. — Nýlega hafa opinberað trúlofun slríð ung- frú Svanhildur Bernharðsdóttir og Kjartan Sigúrðsson, lögregluþjónn, Akureyri. —■ Nýlega hafa oþin- berað trúlofun sína ungfrú Sigur- laug Jakobsdöttir og Guðbrandur Sigurðsson, húégag’nasmiðanemi, 8.30—9.00 Morgun- útvarp. 10.10 Veð- urfregnir. — 11.00. Moiguntónleikar (plötur): a) Kvart- ett í D-dúr op. 44 nr. 1 eftir Mendelssohn (Stradiv- arius-kvartettinn leikur). b) Kvart ett í ,g-moll op. 27 eftir Grieg (Budapest-kvartettinn leikur). 12.10 Hádeigisútvarp. 13.00 Dagskrá Hvítasunnusafnaðarins: Söngur hljóðfæraleikur o. fl. 14.00 Messá. í Aðventkirkjunni: Óháði fríkirkju söfn^ðurinn í Reykjavík (séra Emil Björnsson). 35.15 Miðdegis- tónleikar (plötur): a) Lög úr óp- erunni „Tannháuser" eftir Wágn- er. b) „Svanavatnið", þallettmúsík eftir TschaikoWaky (Philharm^ hljómsv. í London; Antal Dorati stjórnar.) 16.15 Fréttaútvarp tit Islending-a erlendis. 36.30 Veður- fregnir. 18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö. Stephensen): a) Bernskuminn- ingar: „Sendur í sveit"; fyrri liluti (Theódór Árnason). b) Upp- Framhald á 6. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.