Þjóðviljinn - 18.08.1951, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 18.08.1951, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 18. ágúst 1951 PIÓÐVIUINN Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýtlu — Sósíallstaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, SigurSur Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi ólaísson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (þrjár linur). Askriítarverð kr. 16 á mánuðl. — LausasöluverO 75 aur. elnt. Prentsmiðja Þjóðviljans hJ. --------------------------------------------------' Eining verkalýðsins og baráttan gegn bandarísku yfirdrottnuninni Heimsmeistararnir í dýrtíóaraukningn lialda áfram aö bæta met sitt eins og fréttir blaðanna báru meö sér í gær. FramfærsJuvísitalan er komin upp í 144 stig og hefur marshallfiokkunum og ríkiástjórn þeirra þannig tekizt aö auka dýrtíðina um 44% á einu ári og fjórum mánuðum, samkv. sínum eigin útreikningi. Stangast þessi staðreynd heldur betur á við „vísindalega“ útreikn- inga ráðunautanna Benjamíns og Ólafs, er fullyrtu á sín um tíma aö gengislækkunin myndi ekki auka dýrtíðina nema um 11—13 %! Málgögn ríki sstjórnarinnar Morgunblaöiö og Tíminn cru ótrúlega hógvær í frásögnum sínum af þessum nýj- asta árangri heimsmeistaranna. Bæöi skýra blööin frá vísitöluútreikningnum i lítið áberandi smáklausum. Þaö er eins og jafnvel þau skynji, að hrifning almennings yf- ir afrekum afturhaldsflokkanna muni nokkur takmörk sett, þegar margfölsuð verölagsvísitala gengislækkunar- innar sýnir þungan og jafnan stíganda dýrtíöarinnar mán uö eftir mánuö. En þetta er bein afleiöing óheillastefnu. sem bandarísku leppflokkarnir mörkuöu meö gengislækk uninni, bátagjaldeyrisbraskinu og'afnámi allra verölags- hamla. Þeir hafa vísvitandi gefið dýrtíöinni lausan taum- inn og aukið hana svo gífurlega á skömmum tíma, aö stjórn þeirra er orðin aö viðundri og til hennar vitnað til varnaöar um víða veröld. Og eru þó ekki aðrar lepp- stjórnir Bandaríkjanna allar í sómanum í þessu efni. Fyrir markvissar og framsýnar aögeröir Dagsbrúnar og fleiri verkalýðsfélaga, sem stóðu aö hinum nýju samn- ingum í vor, fá nú flestir launþegar aukna dýrtíð aö nokkru bætta frá næstu mánaðamótum. Vísitalan sem kaupgjaldiö veröur greitt eftir næstu þrjá mánuöi reynd- ist 139 stig, eö ‘imm stigum lægri en framfærsluvísital- an. Sá mikli sigur sem verkalýðsfélögin unnu í vor, þrátt fyrir skernmdarverk afturhaldsþjónanna í stjórn Alþýðu- sambandsins ætti því aö veröa öllum verkalýö aukin hvatning til aö treysta samtök sín, losa þau undan fargi atvinnurekendasendlanna og gsra þau á allan hátt hæf- ari til þeirrar ^baráttu, sem þau jafnan veröa að heyja íyrir viöunandi iifskjörum og rétti verkalýösstéttarinnar. ÞaÖ var eining verkafólksins sjálfs, félaga þess og heið- arlégra. forustumanna, sem vann þann sigur í deilunum í vor sem greiðsia dýrtíðaruppbótarinnar byggist á. Sú barátta ssm þá var háö braut skarð í múra marehall- stefnunnar. Þ’aö var beinlínis skilyröi af hálfu hinna bandarí-ku húsbænda ríkisstjórnarinnar, aö kaupgjald verkalýðsíns og launþeganna tæki engum breytingum til hækkunar, þegar hún tók viö þeim 100 millj. króna mút- um, sem gerðu henni bátagjaldeyrisbraskið^ mögulegt. Þetta er engin órökstutt fullyröing. Einn þingmanna marshallflokkanna, Hannibal Valdimarsson, lýsti þessu yfir á Alþingi og enginn forustumanna stjórnarflokk- anna treysti sér til að bera brigöur á aö rétt væri meö íarið. Baráttan lyrir greiöslu dýrtíöaruppbótarinnar var því ekki aöeins orusta um krónur og aura viö samtök íslenzkra atvinmirekenda, heldur einnig um leið framlag verkalýösstéttarmnar í því stríöi sem þjóöin á í gegn því bandaríska vald., sem nú liggur eins og mara á fram- kvæmdum íslsnzku þjóðarinnar og læsir helklóm sínum um allt efnahagslíf hennar. ÞaÖ er hlutverk hinnar ungu og þróttmiklu verka- lýösstéttar íslands aö linna ekki baráttu sinni fyrr en largi bandarískrar yfirdrottnunar er létt af landi og þjóö. í því stríöi fyrir endurheimtu efnahagsfrelsi þjóóar- Innar þarf verkalýösstéttin á sterkum bandamönnum aö halda, stuóningi og atfylgi allra heiðarlegra afla sem hrærast meö þjóöinni. Því fyrr sem verkalýðurinn skap- ar algjöra einingu í eigin röðum, því fyn* tekst honum aö afla sér þessara nauösynlegu bandamanna, Þess- vegna er eining verkalýösstéttarinnar nauösynleg for- senda fyrir því, aö hún geti rækt þaö hlutverk sem nú- verandi aðstæöur leggja henni á heröar. Margvísleg vandamál Móðir skrifar: — „Mig lang- ar til að biðja bæjarpóstinn fyr- ir þessar illa skrifúðu línur. Það er í sambandi við amerisku hermennina og stúlkumar okk- ar. Það hefur ekki farið fram hjá mæðrunum í Reykjavík, að komur hermanna hingað í bæ- inn á kvöldin og vera þeirra á skemmtistöðum æskunnar bjóða heim uggvænlegri hættu fyrir dætur þessarar Jx>rgar, svo sem beir sáu fyrir, er frá upphaíi hafa ætíð barizt gegn því að erlent herlið væri í Jandinu. Nú stendur þannig á, að ég hef haft aðstöðu til að kynnast þess um málum og hverja þróun þau hafa tekið síðan herlið kom i'yrst hingað til bæjarins, og ég er þeirrar skoðunar að verr horfi í þessum málum nú en á fyrri hernámsárunum. Yngri stúlkur. Á fyrri hemámsárunum voru stúlkur þær, sem gáfu sig að hermönnum, á ýmsum aldri og þess voru dæmi að giftar kon- ur, margra bama mæður, „hlypu í ástandið" eins og það var kallað. Flestar munu þær þó hafa verið um tvítugt eða þar um. Nú horfa málin allt öðru vísi við. Stúlkur þær. sem gefa sig að hermönnum nú, eru ekki stúllvur heldur börn. Aldur þeirra er varla meiri en 14—17 ára. Þrátt fyrir fáeinar undan- tekningar er þetta sannleikur- inn í málinu. Þess vegna er hér voði á ferð. Er barnavyrndarnefnd vakandi? Er bamaverndamefnd Reykja- víkurbæjar kunnugt um þessa staðreynd og er hún sér með- vitandi um ábyrgð þá, sem á henni hvílir í þessu sambandi. Það vai kannski erfitt og raun- ar ókleyft að gera oplnberar ráðstafanir á fyrri herrámsár- unum til að stía í sundur full- orðnum konum og hermönnum, sem þá áttu vingott saman, en það er ekki aðeins kleift held- ur bein skylda hins opinbera að grípa í taumana nú, þegar sú staðreynd blasir við ,að stúlk- urnar, sem gefa sig að hermönn unum, eru svo til allar á aldr- inum 14 til 17 ára. — Eg segi frá þessari staðreynd af því að mér er kunnugt um hana, en barnavemdarnefnd ætti að rann saka málið hið bráðasta og gera rá'ðstafanir börnunum til vernd- ar. Hermennirnir eiga ekki að fá að koma í bæiiin. Ennþá eru hermennirnir fáir miðað við fyrri hernámsárin. en nógu margir efu þeir samt. Og að þeir skuli nær eingöngu gefa sig að börnum er óhæfa, sem verður að koma í veg fyrir. Þeir ryðja sér inn á helztu skemmtistaði bæjarins og eru í bænum langt fram eftir nóttu. Eina ráðið vir’ðist því vera að banna þeim að koma til bæjar- ins. Það er krafa sem barna- verndarnefnd ætti að setja fram og bæjarstjórnin að styðja. — Móðir.“ Fékk slæma byltu. ,,Vegfarandi“ slcrifar: — „Eg var á gangi niður Bankastræti áðan og staldraði aðeins við á horninu hjá Áma Björnssyni, en þar átti ég stefnumót við kunningja minn. Sé ég þá, hvar kona dettur á gangstéttarhorn- inu hinumegin sunnan við Bankastræti. Hún stóð rétt strax á fætur en gekk fyrst í stað hölt og hafði eyðilagt sokk inn sinn. Eg fór á staðinn til að sjá hvað valdið hefði og sá ég þá, að gangstéttarhellurnar voru óvenju hálar á þessu horni og of mikill halli á þeim. Veg- farendur, sem ekki ganga á gúmmísólum, verða að fara mjög gætilega á þessu horni. Er ekkert hægt að gera við þessu? — Vegafarandi." * Skipadeild S.I.S.: Hvassafell er á Akureyri. Arnar- fell fer væntániega frá Bremen í dag, til Stettin. Jökulfell fór frá Vaipariso 14. þ. m. áleiðis til Guayaquih með viðkomu í Talara. RlKISSKir: Hekla fer frá Glasgow á morgún til Rvíkur. Esja verður væntan- lega á Akureyri í dag. Herðubreið kom til Rvíkur i gærkvöld að auat an. Skjaldbreið var á Vestfjörðum i gær á norðurieið. Þyriil var i Hvalfirði í gær. Ármann er í Rvík. Eimskip Brúarfoss. kom til Patras 16. 8., væntanlegur til Pireaus i dag. Dettifoss kom til N. Y. 16-. 8. frá Reykjavík. Goðafoss fór frá Akur- eyri síðdegis i gær, til‘ Siglufjarðar og Drangsness. Gullfoss fer frá Rvík kl. 12.00 á hádegi. í dag til Leith og Kaupmannahafnar. Lag- arfoss fór frá Hull 6. 8. til Leith og Reykjavíkur. Selfoss er í Rvík. Tröllafoss fór frá Rvík 15. 8. til N. Y. Hesnes kom til Rvikur 10. 8. frá Hull. FLUGFÉLAG ISLANIJS: Innanlandsflug: t dag eru áætl- aðar flugferðir til Akureyrar (2 ferðir). Vestmannaeyja, Blönduóss, Sauðárkróks, ísafjarðar, Egils- staða og Siglufjarðar. Á morgun er ráðgert að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Sauðárkróks og Vest- mannaeyja. Millilandaflug: „Guil- faxi“ fór til Kaupmannahafnar i morgun. Flugvélin er væntanleg aftur til Reykjavíkur ki. 18.15 á morgun. LOFTLEIÐIR H.F.: í dag er ráðgert að fljúga til Vestmannaeyja (2 ferðir), Isa- fjarðar, Akureyrar og Keflavíkur (2 ferðir). Erá Vestmannáeyjum verður flogið til Hellu og Skóga- sands. Á morgun verður flogið til Vestmannaeyja,, Akureyrar og Keflavíkur (2 ferðir). Messuv á morgun: Laugarneskirkja. Messa ki. 11 f. h. Séra Garðar Svavarsson. Til Sólheimadrengsins: Frá fjöl- skyldunni S.R.K. kr. 50.00. HelgicíagsUeknir: Friðrik Ein- arsson, Ei'stasundi 55. — Sími 6565. Barnaheimiiið Voriioðiiui. Börnin sem dvalið hafa i Rauö- hóium i sumar koma tii bæjarins á þriðjudag 21. þ. m. kl. 10.% f. h. að Barnaskóla Aust.urbæjar. ,, __ ’la. það er Ijótt n l>otta með jáni- tjaldlð. Öllum æskulýð var frjálst að fara á Berlínar- mótið og tugir þús- unda leggja al s.tað. 1 þeim hópi voru kaþólskir, múhameðstrúar- menn og mótmælendur; róttækir, frjálslyndir, íhaldsmeim, ivratai-, framsóknarmenn, sósíalistar og kommúnistar. Á Ieiðinnl rekst Jietta fólk á járntjald: stórum lióp er meinað með vopnavaldi að lialda ferðinni áfrarn. Og hver er l>að, sem setur Jietta járntjald fyr- ir? Eru það Rússa, eins og aftur- haldsblöðin hér hafa s.ífelit klilað á? Ónei! f>að eru sjálfir Banda- ríkjamenn, frelsislietjurnar góðu úr guðs eigin landi. Þeirra er járntjaldið! 1 dag verða gef- in saman í hjónaband af sr. Jakobi Jóns- syni, ungfrú Lilja Bjarna- dóttir frá Norðfirði og Stefán Ágústsson, loftskeytamaður á botn vörpungnum Agli rauða. Heimili þeirra verður fyrst um sinn á Langholtsvegi 183. — Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Garðari Svavarssyni ungfrú Árn- ina Sigríður Benediktsdóttir og Ólafur Þorgrímsson bifreiðarstjóri. Heimili þeirra er í Miðtúni 80. SÖFNIN: Landsbókasafnlð er opið kl. 10— 12, 1—7 og 8—10 alla virka daga nema laugardaga kl.10—12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið er opið kl. 10—12 og 2^7 alla'virka dága nema laug- ardaga yfir sumarmánuðina kl. 10—12. — Þjóðminjasafnið er lok- að um óákveðinn tíma. — Lista- safn Einars Jónssonar er opið kl. 1,30—3,30 á sunnudögum. — Bæj- arbókasafniö er opið kl. 10—10 alla vírka daga ncma laugardaga kl. 1—4. — Náttúrugrlpasafnið er opið kl. 10—10 á sunnudögum kl. 2—3. — Listvinasalurinn, Freyju- götu 41, er lokaður um óákveðinn tima. Skrifstofa ÆF veróur framvegis opin alla virka daga frá kl. 8—10 e.h. nema á laugardögum. Hvíidarvika Mæðrastyrksnefndar. Næturlæknir er í læknavarðstof- unni. — Sími 5030. Næturvörður er í Reykjavikur- apóteki. — Sími 1760. Ungbarnavernd Líknar Templara sundi 3. Opið þriðjudaga 3,15—4 og fimmtudaga 1,30—2,30. Ljósatíml bifreiða og annarra ökutækja er frá klukkan 22,50— 04,15. 19.30 Tónieikar: Samsöngur (plöt- ur). 20.30 Útvarps- trióið: Tveir kafl- ar úr triói í E-dúr eftir Mozart. 20.45 Upplestur og tónleikar. (Andrés Björnsson les kvæði og Brynjólfur Jóhannesson les smásögur). 22.10 Danslög (plötur). Óameríska nefndin Framhald af 1. síðu. því yfir, að tilkynning nefndar- innar væri uppspuni frá rótum. Norman hefði verið í Tokyo árið 1939 í erindum Kanada- stjórnar. Til þess að gera bikar óamerísku nefndarinnar enn beiskari tilkynnti Pearson, að Norman yrði æðsti ráðunautur kanadisku sendinefndarinnar á friðarráðstefnuna við Japan í San Francisco.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.