Þjóðviljinn - 02.09.1951, Qupperneq 1
Sunnudagur 2. september 1951 — 16. árgangur — 199. tölub'.að
ðítQkkurmrt
Félagar, munið að koma £
skrifstofuna og greiða flokks
gjöld ykkar skiivislega. Skrif
stofan er opin daglega frá
kl. 10—7.
ALGERT ATVINNULEYSI ER FRAMUNDAN Á SIGLUFIRÐI
Horfur á Siglufirði aldrei eins slæmar og nú — Atvinnumálanefnd bæjar-
ins mun krefja stjórnarvöldin um ráðstafanir til úrbóta
Algert atvinnuleysi er nú yíirvoíandi á Siglu-
firði, og hafa afkomuhorfur aldrei verið jafn slæm-
&r og nú. Eftir atvinnuleysisvetur kom tekjurýrasta
sumar og fimmtudaginn kemur ganga um 400
manns úr kauptrygginu þeirri er þeir höfðu við síld-
arvinnuna og er þá algert atvinnuleysi framundan.
Afkomuhorfur almennings
eru ákaflega slæmar og hefur
úthtið aldrei verið verra á
Siglufirði, sagði Gunnar Jó-
hannsson formaður Þróttar á
Siglufirði í viðtali við Þjóð-
viljann í gær. Tekjur almenn-
ings á Siglufirði í sumar hafa
verið rétt til að framfleyta
lifinu og fólkið sem gengur úr
tryggingu nú í vikunni mun
hafa til lífsnauðsynja næstu
viku til hálfan mánuð. Síðan
tekur við algert atvinnuleysi.
Sameiginleg atvinnuleysis-
nefnd
Bæjarstjórn Siglufjarðar,
verkalýðssamtökin, síldarverk-
sm. og atvinnurekendur hafa
skipað sameiginlega atvinnu-
leysisnefnd og ef ekki veiðist
síld á næstunni er lítt hugs-
anlegt annað en krefja verði
stjómarvöld landsins ráðstaf-
ana til að bæta úr atvinnuleys-
inu. Reynt hefur verið að út-
vega mönnum vinnu hér syðra
en borið lítinn árangur.
Efnið dýrara en fullsmíð-
aðar tunnur!
Forráðamenn tunnuverksmiðj-
unnar' hafa verið spurðir um
hvað hugsað væri fyrir tunnu-
smíði og hafa þeir gefið þau
svör að efni í tunnur væri al-
staðar ófáanlegt, en ef það
fengist yrði það miklu dýrara
en tilbúnar tunnur kosta nú!
Gagnfræðaskólinn stöðvaðnr?
Ekkert er byggt á Siglu-
firði. nema lítilsháttar hefur
verið unnið að gagnfræðaskóla-
byggingu, en horfur á að það
stoppist vegna þess að lán til
byggingarinnar fæst ekki!
Von um síld ef veður batnar
Annar Siglufjarðartogarinn,
Elliði, er nú kominn á ísfisk-
veiðar, en Hafliði er enn fyrir
austan á síldveiðum. Hafa
skipin legið þar undanfarið í
von um að veður batni, því sjó-
menn segja þar mikla síld, að-
eins ef veður gefist til veið-
anna. Undanfarið hefur verið
norðaustanstormur á Siglufirði
og kuldarigning.
Verðhækkmi á kauphöll-
um, er viðræður hættu
Kóreu
r
1
Gleði bandaríska auðvaldsins yfir horfum á áframhald-
andi blóðsúthellingum komu fram í hækkandi verðlagi á
kauphöllunum daginn eftir aö vopnahlésviöræöunum í
Kóreu var slitið.
Daginn eftir að fregnin barst
um að griðrof bandarískrar flug
vélar við Kaesong hefðu haft
í för með sér viðræðuslit, var
fyrirsögnin á frétt „New York
Times“ af verðbréfakauphöll-
inni í New York svcliljóðandi:
Nýjura griðrof-
ui neitað
Pekingútvarpið skýrðí Ifrá
því í. gær, að bandarísk flug-
vél hefði á ný framið griðrof
og varpað tveimur sprengjum
á friðlýsta svæðið við Kaesong,
rétt hjá bústað Nam 11, for-
manny samninganefndar norð-
anhersins. Joy, formaður banda
rísku samninganefndarinnar,
sendi sambandsforingja sína til
að kynna sér vegsummerki, en
þeir neituðu að bandarísk flug-
vé] hefði verið að verki. Her-
stjórn Bandaríkjanna í Tokyo
lýsti því yfir í gær, að ef her-
stjórn norðanhersins hætti ekki
að fást um griðrof og byrjaði
viðræður á ný, yrði það tekið
sem henni væri engin alvara
með vopnahlésviðræðunum.
„ „STRÍÐSBÖRNIN“ I FAR-
ARBRODDI VERÐHÆKKUN-
AR Á MARKAÐINUM — þró-
unin talin stafa af viðræðuslit-
um í Kóreu“. Og í fréttinni seg-
ir kaupliallarfréttaritarinn:
„Hlutabréf í fyrirtækjum, sem
myndu græða mest á auknu
herbúnaðarátaki, hækkuðu yf-
irleitt í verði.“
Af vörukauphci’linni sagði
.,New York Times“ þessar frétt
ir sama dag: „Endalok vopna-
hlcisviðræðanna í Kóreu leiddu
til hækkandi verðlagg á vöru-
mörkuðunum í gær.“ Og frá
Chicago sagði „New Yr«"k
Times“ þessar fréttir af korn-
kauphöllinni: „Fréttirnar frá
Kóreu ásamt versnandi horfum
í Iran, héldu verðinu háu á
kornkauphöllinni framan af í
gær“.
Holland hélt völdum
Úrslit í þingkosningunum á
Nýja Sjálandi í fyrradag urðu
þau, að íhaldsmenn, flokkur
Hollands forsætisráðherra held-
ur velli. — Samkvæmt bráða-
birgðatölum var skipting þmg-
sæta óbreytt, íhaldsmenn höfou
46 og Verkamannaflokkunnn
34.
Teiknikvikmyndakóngurinn
Wa.lt Disney kom til Kaup
mannaliafnar í sumar, og sést
hér skála við danska blaða-
mern. Hann sagði þeim, að
ferð hans stæði í sambandi við
fyrirætlanir um teiknimyndir
eftir ævintýrum H. C.
Andersens.
Handtöhur í
JLos Angeles
Bandaríska leynilögreglan
FBI hefur enn handtekið þrjá
af forystumönnum Kommún-
istaflokks Bandaríkjanna. — I
þetta skipti voru handtökurn-
ar gerðar í Los Angeles á
Kyrrahafsströndinni, Hefur þá
Bandaríkjastjóm látið hand-
taka yfir 60 af trúnaðarmönn-
um flokksins.
Knattspyrnulið
blaðanna gegn
landsliðinu
Fullráðið mun nú að „..uatt-
spyrnulið blaðanna“, þ. e. lið
sem íþróttaritstjórar blaðanna
velja, keppi í næstu viku vic
landsliðið.
Knattspyrnulið blaðanna er
þannig skipað, talið frá mark-
manni til vinstri útherja: Helgi
Daníelsson Val, Steinn Steins-
son KR, Guðbjörn Jónsson KR,
Gunnlaugur Lárusson Víking,
Hörður Óskarsson KR, Halldór
Halldórsson Val, Gunnar Gunn-
arsson Val, Guðjón Finnboga-
son Akran., Sveinn Helgason
Val, Hörður Felixsson KR og
Ragnar Þórðarson Víking.
Marshallfé
stórlœkkaS
Öldungadeild Banda'ríkjaþing'í
hefur lækkað um 1200 milljönir
dollara fjárupphæð þá, sem
stjórnin bað um til Marshal'-
aðstoðar á næsta ári. Hernað-
araðstoðin hefur hinsvegar ver-
ið látin að mestu óskert.
Ilerbandalag
undirrltad
t gær var undirritaður í San
Francisco hernaðarbandalags-
samningur milli Bandaríkjanna
annarsvegar og Nýja Sjálands
og Ástralíu hinsvegar Fulltrú-
ar eru nú að drífa að til San
Francisco á friðarráðstefnuna
við Japan, sem hefst þar á
miðvikudaginn.
Búið að úthluta
112 lóðum
í væntanlegu smáíbúða-
hverfi við Réftarholisveg
Nefnd sú er bæjarráð fó] að
úthluta lóðum undir smáibúð-
ir við Réttarholtsveg, hefur nú
gengið frá úthlutun á 112 lóð-
um af þeim 200 sem látnar
verða. af hendi að þessu sinni.
100 menn er þarna hafa feng-
ið lóðir, hyggjast að byggja
eftir verðlaunauppdráttunum.
12 ætla að byggja eftir öðr-
um uppdráttum. Lóðirnar eru
leigðar til 50 ára.
Útlagar og fangar
í framboði
Þingkosningar fara frarn í
Grikklandi 9. þ. m. I þeim tek-
ur þátt Sameinaður lýðræðis-
flokkur vinstri manna og i
hópi frambjóðenda hans erii
ýmsir foringjar griskra lýðræð-
issinna, sem leppstjórnir Banda-
ríkjamanna hafa rekið í útlegð
eða varpáð í fangelsi. I Aþenu
er efstur á lista lýðræðissinna
Sarafis hershöfðingi, sem var
fyrirliði grísku mótspyrnuhreyf-
ingarinnar gegn Þjóðverjum en
er nú í útlegð á smáey í Eyja-
hafi. 1 Pireus er efstur á lista
Tony Ambatielos, ritari gríska
sjómannasambandsins, sem hef-
ur verið dæmdur til dauða en
hvað eftir annað verið bjargað
frá aftöku með mótmælum
viðsvegar að úr heiminum. 1
Saloniki er efstur Gavrilides,
ritari Bændaflokksins. Sá flokk
ur hefur verið bannaður og
Gavrilides er í útlegð á eynni
Ai-Stratis.
Gerum 15 ára afmœli Þ/óð-
viljans sem veglegast
Þann 31. október næstkomandi, eða eftir tvo mán-
uði, verður Þjóðviljinn 15 ára, en fyrsta tölublað lians
kom út 31. október 1936.
Starf og barátta Þjóðviljans öll þessi ár fyrir hags-
munum íslenzkrar alþýðu og sjálfstæði þjóðarinnar verð-
ur ekki metið til fjár. Hinsvegar hefur síaukin út-
breiðsla Þjóðviljans verið glöggur vitnisbvrður um þann
hug, sem íslendingar bera til blaðsins og er skemmst
að minnast hinnar öru áskrifendasöfnhnar á síðast-
liðnu vori.
Nú er undirbúningur liafinn að 15 ára afmæli blaðs-
ins, en það sem mest er um vert er það, að öll alþýða
landsins taki þátt í þessum undirbúningi, og geri afmæli
blaðsins þar með sem veglegast.
Miðstjórn Sósíalistafloikksins vill því beina þeim
tílmælum til allrar alþýðu Iandsins að undirbúa af-
mæli Þjóðviljans með því
að útvega blaðinu sem flesta nýja á-
skrifendur fram að afmælinu og
að færa Þjóðviljanum afmælisgjöf,
hver eftir sinni getu.
Sameinumst um að gera 15 ára afmælj Þjóðvilj-
ans sem veglegast.
MIÐSTJÓRN
SAMEININGARFLOKKS ALÞÝÐU —
SÓSÍ ALIST AFLOKKSIN S