Þjóðviljinn - 02.09.1951, Side 4

Þjóðviljinn - 02.09.1951, Side 4
3-) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 2. september 1951 0IÓÐVIU1NN Útgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson, SlgurSur Guðmundsson (á.b.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. BlaSam.: Ari Kárason, Magnús Torfi ólafssen, GuSm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmiSja: SkólavörSustig 19. — Sími 7500 (þrjár línur). XskriftarverS kr. 16 á mánuSi. — LausasöluverS 75 aur. elnt. PrentsmiSja ÞjóSviljans h.f. Helgustu minningar þjóðarinnar Valtýr Stefánsson ræður yfir stærsta blaði landsins. Dag hvem hefur hann til umráða 12 til 16 stórar lesmáls- síður. Hann gæti haft margar langar greinar í blaði sínu án þess að þrengt væri að fréttaefni blaðsins. Að vísu er þetta rúm ekki isem bezt notað, þar er allt að renna sam- an í endalausa þvælu um „kommúnisma“, erlendu hús- bændurnir eru að verða svo kröfuharðir að fram sé fylgt skuldbindingum marsjallflokkanna um áróðursframlög 1 hinni göbbelsku ..baráttu við kommúnismann“, að ís- lenzkir blaðalesendur era farnir að hlaupa yfir þann vaðal sem birtist samhljóða í Morgunbl., Tímanum, Alþýðu blaðinu og Vísi, og soðinn er saman í „upplýsingaþjón- ustu“ erlends ríkis. En þrátt fyrir fengna reynslu af Morgunblaðinu undruðust íslendingar er þeir flettu stærsta blaði landsins einn helgasta minningadag ís- lenzku þjóðarinnar, 9. ágúst í sumar. ★ Öld var liðin frá þeim degi er einna hæst ber í sögu íslenzkrar sjálfstæðisbaráttu. Þennan dag reyndu hin Reykjavíkurblöðin að minnast þjóðfundarins, þó nokkuð væri það með ólíkum hætti, og höfðu þó yfir miklu minna rúmi að ráða en Morgunblaðið. En Valtýr Stefánsson, maðurinn sem ræður stærsta blaði landsins og gaf út 12 síðna blað 9. ágúst hafði öðrum hnöppum að hneppa við undirbúning þess Morgunblaðs. Strax og flett er blaði, á annarri síðunni sem höfð er undir greinar Bjarna Ben. og álíka virðingarmanna, er aldarafmælis minnst á hinn virðulegasta hátt, mjög áberandi þrídálka fyrirsögn, margar undirfyrirsagnir og myndabirting. Fyrirsögnin er: „Frægásta spilavíti heimsins er aldargamalt um þess- ar mundir.“ En þótt leitað sé með logandi ljósi um hinar rúmgóðu 12 síður Morgunblaðsins er helgidags íslenzku þjóðarinnr þar hvergi minnzt. aldarafmælis hins rismikla þjóðfundardags var byggt út úr stærsta blaði landsins 9. ágúst 1951. ★ Þetta er rifjað upp að gefnu tilefni, til að minna á hvernig komið er málum á aldarafmæli þjóðfundarins. Stærsta blað landsins virðist ekki telja sér og flokki sín- um hollt að haldið sé vakandi með þjóðinni minningunni um baráttu Jóns Sigurðssonar og fylgismanna hans gegn erlendu kúgunarvaldi og íslenzkum þjónum þess. Var Valtýr Stefánsson smeykur um, að sumarið 1951 veittist íslendingum sérstaklega auðvelt að ískilja baráttu þjóð- hollra íslendinga gegn yfirgangi erlends ríkis og íslenzk- um þjónum þess? Var hann hræddur við dóm íslands- sögunnar yfir þeim mönnum og þeim stjórnmálaflokkum sem ofurseldu lýðveldið ísland á bemskualdri auðvalds- stórveldi, og gengu svo langt einmitt í sumar, að afhenda Bandaríkjunum íslenzkt land til herstöðva á friðartím- um? Óttaðist hann dóm Reykjavíkurblaðanna að hundr- að árum liðnum um þá íslendinga, sem lögðust flatir fyrir bandarísku kúgunarvaldi fyrstu ár lýðveldisins og sviku þjóöina á vald erlends auðvalds? Eða var það til að þóknast vinunum á Laufásvegi að ekki var haft í hámæli hve djarft vopnlausir íslendingar geta tsflt í baráttu við erlent kúgunarvald, í fullri vitund þess að þjóðin er þeirra megin, framtíðin, sigurinn er þeim vís. ★ Það er rétt skilið hjá Valtý Stefánssyni að aldaraf- mæli erlends spilavítis er viðfangsefni sem hæfir Morg- unblaðinu og þeirri glæfrastefnu sem bandarísku flokk- arnir á íslandi fylgja. Eins hitt, að helgustu minningar íslenzku þjóðarinnar úr sjálfstæðisbaráttunni eiga ekki heima í Morgunblaðinu og geta reynzt stefnu þess hættu- legar. „Baráttan" gegn dýr- tíðinni. Varla líður svo dagur að ekki eigi sér ,stað hækkun á verðlagi þeirra nauðsynjavara, sem almenningur getur ekki verið án. Ríkisstjórnin hefur, að eigin sögn, beitt allri orku sinni og viti í baráttu gegn hinni sívaxandi dýrtíð. Laun- þegar þekkja þessa ,,baráttu“ stjórnarvaldanna. Hún hófst í stjórnartíð Stefáns Jóhanns með tollahækkuninni frægu og síðar bindingu kaupgjaldsins við 300 stiga vísitölu. Svo komu enn tollahækkanir. Ekki var látið þar við sitja. Næst var gengislækkunin framkvæmd, og í kjölfar hennar kom svartur markaður bátagjaldeyrisins, skattahækkanirnar, afnám verð lagseftirlitsins og svo aukaút- svörin, eins og sérstök uppbót á allt saman fyrir Reykvíkinga. Allar tilheyra þessar ráðstafan- ir „baráttu" stjórnarvaldanna gegn dýrtíðinni, þótt það kunni að hljóma torkennilega í eyr- um venjulegra manna. • • Dýrtíðin vex. Fyrir almenning í landinu hefur „barátta" afturhaldsflokk anna gegn dýrtíðinni undan- tekningarlaust þýtt vaxandi dýr tíð. Svona eru sumir hlutir ein- kennilegir og öfugsnúnir. Og það er ekki nóg með það að vörurnar hafi þotið upp úr öllu valdi. Atvinnan hefp- dreg ist stórlega saman, og margir verkamenn eru á ný famir að glíma við gamla atvinnuleysis- drauginn. Þetta er einnig þátt- ur í dýrtíðarbaráttu stjórnar- valdanna. Þau hafa eyðilagt á- gæta og trygga markaði í lönd- um sósíalismans fyrir fram- leiðsluvörur landsmanna og ríg bundið mestalla utanríkisverzl- un þjóðarinnar við hrynjandi efnahagskerfi dauðvona auð- valdsstórvelda, þríflokkar aft- urhaldsins hafa flækt þjóðina inní marsjallkerfi Bandaríkj- anna og undirgengizt af fúsum vilja að stöðva þá' nýsköpunar- þróun, sem átti sér stað hér meðan áhrifa verkalýðsins og Sósíalistaflokksins gætti í stjórn landsins. Árangurinn þekkja allir af dýrkeyptri reynslu. • • Árangur einingar- innar. Núverandi ríkisstjórn ætlaði verkamönnum og launþegum al mennt að bera byrðar verð- hækkana og dýrtíðar bótalaust. Þetta tókst ekki vegna þess að verkalýðshreyfingin er enn sterk, þrátt fyrir klofningsstarf og sundrungu erindreka aftur- haldsins í verkalýðsfélögunum. Verkalýðsfélögin sameinuðust í vor til baráttu fyrir greiðslu dýrtíðaruppbótar á launin og þeim tókst að skapa þá einingu og samheldni sem nægði til sig- urs yfir sterkum andstæðing- um. Ekki vantaði þó endurtekn ar tilraunir af hálfu hjálpar- manna ríkisstjórnarinnar í Al- þýðusambandsstjórn til að af- vegaleiða félögin og torvelda baráttu þeirra. En ailt slíkt stóðu samtökin af sér og héldu 'sína leið. Þessvegna unnu þau sinn mikilsverða sigur í deilun- um í vor. • • Ný vísitala gengur í gildi. Hefði atvinnurekendavaldið, ríkisstjórnin og handbendi þeirra í stjórn Alþýðusambands ins fengið vilja sinn fram stæði kaupið óbreytt. En vegna þess að verkalýðurinn kunni að standa saman og sigra breytist kaupgjaldið nú til hækkunar á þriggja mánaða fresti meðan dýrtíðin heldur áfram að vaxa. Og í gær gekk ný kaupgjalds- vísitala í gildi. Lágmarkskaup verkamanna hækkar nú um 64 aura um tímann og mánaðar- kaupið (1830 kr. í grunn) um kr. 128,10. Hin nýja kaupgjalds vísitala gildir til 1. des n. k. Reynist dýrtíðin þá enn vax- andi, sem enginn efast um, verð ur kaupið enn umreiknað með nýrri vísitölu, og svo koll af kolli. Þannig fá launþegar að nokkru bættan þunga dýrtíðar innar fyrir samstilltar aðgerð- ir sterkustu verkalýðsfélaganna á s. 1. vori. ★ ★ Ríkisskip Hekla er á leið til Rvikur frá Glasg'ow. Esja fór frá Rvik kl. 20 1 gærkv. austur um land í hring-ferð. Herðubreið var á Horna firði í gærmorgun á suðurleið. Skjaldbreið er í Rvík. Þyriil var á Bíldudal í gærkv. Ármann er í Vestmannaeyjum. Eimskip Brúarfoss fór frá Milos 22 ág.; væntanlegur til Hull 2. september. Dettifoss kom til Rvikur 31. ág. frá N. Y. Goðafoss kom til Stett- in 31. ág.; fer þaðan til Gdynia, Hamborgar, Rotterdam og Gáuta- borgar. Gullfoss fór frá Rvik á hádegi’ í gær til Leifch og Khafn- ar. Lagarfoss fór frá Siglufirði i gær til Ólafsfjarðar og Vest- fjarða. Selfoss er í Rvík. Trölla)- foss er í N. Y. Skipadeild SIS Hvassafell er í Gautaborg. Arn- arfell losar kol á Austfjörðum. Jökulfell er í Valpariso. LOFTLEIÐIR II.F.: I dag er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja, Akureyrar, Kcfla- víkur (2 ferðir). Á morgun á að fljúga til Vestmannaeyja, Isa- fjarðar, Akureyrar, Hellisands og Keflavíkur (2 f.) Næturvörður er í Laugavegsapó- teki. — Sími 1616. Næturlæknlr er i læknavarðstof- unni. — Sími 5030. Bólusetning gegn barnaveiki Pöntunum veitt móttaka þriðju- daginn 4. september n. k. kl 10 til 12 f. h. í síma 2781. er opinn alla virka daga kl. 1—7 og á sunnudögum kl. 1—10. FLUGFÉLAG ISLANDS: Innanlandsflug: í dag eru ráð- gerðar flugferðir til Akureyrar og Vestmannaeyja. — Á morgun er áætlað að fljúga til Alcureyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja, Ólafsfjarð ar, Neskaupstaðar, Seyðisfjarðar, Siglufjarðar og Kópaskers. — Millilandaflug: Gullfaxi er vænt- anlegur til Reykjavíkur frá Kaup mannahöfn kl. 18,15 i dag. Flug- vélin fer til London og Nissa kl. 23,00 annað kvöld. Nýlega voru gefin saman í hjónaband ung- frú Þórunn Ein arsdóttir Lækj- arhvammi og Jón Guðbrandsson stúdent, Bjarn- arstíg 6. — I gær voru gefin sam- an í hjónaband ungfrú Þóra Krist- jánsdóttir, Bjargarstig 5 og Ein- ar Árnason bifvélavirki, Ásgarði, Ytri-Njarðvík. — Nýlega voru gef- in saman í hjónaband Lilja Sch- opke og Einar Þorsteinsson. — Heimili þeirra er á Shellveg 6. — ^ Svo virðist sem ^ Stefán Jóh. hafi hnippt í nafna l sinn Pétursson við Aiþýðublaðið eftir að Morgunblaðið spurði með mlklum hroka og yfir- Iæti hvort Stefán Jóhann stæði á balt við skrif Alþýðublaðsins um Miklagarðsför og Spánarreisu Gunnars borgarstjóra. A.m.k. hef- ur alveg tekið fyrir þessi skrif í Alþýðublaðinu síðan, og verður það varla skýrt með öðru en Stefán Jóhann hafi fyrirskipað nafna stnum að leggja niður róf- una til þess að fyrirbyggja fleiri álíka flengingar og Mbl. veitti hinum sísiglandi bitiingabroddum Alþýðuflokksins í iaunaskyni fyr- ir skrifin um Tyrklandsfarann. Frá Rvíkurdeild RKI Börnin frá Silungapolli koma að Ferðaskrifstofu ríkisins á morgun, mánudaginn 3. september kl. 10,30 f. h. Eru aðstandendur barnanna beðnir að vitja þeirra þangað. Frá sexfetungum Félag sexfetunga verður form- lega stofnað á morgun kl. 8,30 síðd. í Breiðfirðingabúð. Á fund- inum mun nefnd sú, er kosin var á fundinum um daginn til að semja drög að lögum fyrir félagið, skila áliti. Gera má ráð fyrir að félagsréttindi verði bundin því skilyrði að viðkomandi nái 188 cm hæð, en þó eru allir sem látið hafa skrá sig sem þátttakendur í félaginu og eru yfir 180 cm vel- komnir á stofnfundinn. 11,00 Morguntón- leikar (plötur): a) Kvartett í C-dúr op. 76 nr. 3 eftir Haydn (Léner- kvartettinn leik- ur). b) Kvintett í Es-dúr op. 16, fyrir píanó, óbó, klarínett, horn og fagott eftir Beethoven (Hljóð færaleikarar úr Philharmonisku hljómsveitinni í Berlin). 14,00 Messa i Fríkirkjunni (séra Þon- steinn Björnsson). 15,15 Miðdeg- istónleikar (plötur): a) Lög úr óperunni „Rígólettó" eftir Verdi. b) Hljómsv.-þættir úr óperunni „Rósariddarinn" eftir Richard Strauss (Tivoli-hljómsveitin í ICaupmannahöfn; liöfundurinn stj.) 16,15 Fréttaútvarp til íslendinga erlendis. 18,30 Barnafcími (Baldur Pálmason): Guðm. M. Þorláks- son kennari les tvær smásögur, Sigurður Einarsson leilcur á harm oniku, o. fl. 19,30 Tónleikar: Menu hin leikur á fiðlu. 20,20 Einleikur á píahó: Carnival op. 9 eftir Scihu mann (Lanzky-Otto leikur, —1 pl.). 20,35 Sinfóníuhljómsveitin leikur; Albert Klahn stjórnar: a) Laga- syrpa úr óperunni „Fuglasalinn" eftir Zeller. b) „Suði-ænar rósir“, vals eftir Strauss. c) „Frá Flor- enz“, marz eftir Fucik. 21,25 Upp- lestur: „Myndin'1, smásaga eftir Aldous Huxley (Þorstoinn Ö. Step hensen). 22,05 Danslög. 23,30 Dag- skrárlok. Útvarpið á morgun: Klukkan 19,30 Tónleikar: Lög úr kvikmyndum. 20,20 Útvarps- hljómsveitin (Þór. Guðmundsson stjórnar): a) Slavnesk þjóðlög. b) Lagaflokkur úr óperunni „II Trova tore" eftir Verdi. 20,45 Um daginn og veginn (Á rni G. Eylands stjórn arráðsfulltrúi). 21,05 Einsöngur: Paul Robeson. 21,20 íþróttaþáttur (Sig. Sigurðsson). 21,40 Tónleikar: Lög eftir Stephen Foster (pl.). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. Síld veiðiskýrsla Fiskifélags Islands. 22,20 Létt lög. 22,30 Dagskrárlok. Helgldagslæknir er í dag Karl Sig. Jónasson, Kjartansgötu 4, sími 3925.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.