Þjóðviljinn - 02.09.1951, Page 5
Sunnudagur 2. september 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (5
LD
Békaútgefandi
fangelsaður i
Bandaríkjunum
Bandaríkjastjórn hefur látið
handtaka Alexander Trachten-
berg, stjórnanda bókaútgáfunn-
ar International Publishers.
Þetta útgáfufélag er gamult og
iþekkt cg gefur aðallega út
marxistisk rit. Bandaríkjastjórn
hyggst kæra Trachtenberg fyr-
ir það, að með því að gefa út
bækur Marx og Engels og ann-
arra hinna sígildu höfunda
Marxismans, hafi hann tekið
þátt í samsæri um að steypa
henni af stóli með ofbeldi!
Þetta er í fyrsta skipti, sem
bandarískur bókaútgefandi er
settur i fangelsi fyrir útgáfu-
starfsemi sína.
SmygluSm peningum í
endaþarminum
Tollþjónar í Lindau í Vestur-
Þýzkalandi hafa haft hendur í
hári smyglara, sem smygluðu
peningum frá Vestur-Þýzka-
landi til Austurríkis — í enda-
þarminum. Tuttu farþegar af
Miinchenhraðlestinni voru tekn-
ir til iðrahreinusunar og úr
iþeim kom hálf milljón marka.
Þeir játuðu að hafa smyglað
30 milljónum marka á þennan
hátt. Svo að tryggt væri, að
þeim yrði ekki brátt í brók áð-
ur en komið væri yfir landa-
mærin, tóku smyglararnir inn
ópíum.
Stal höklum úr dóm-
kirkjunni og keypi
sér brennivín
Lögreglan í Árósum í Dan-
mörku. er búin að hafa upp á
náunga þeim, sem nýlega stal
þremur höklum úr dómkirkj-
unni þar. Hann hafði laumast
inní kirkjuna í vinnufötum,
þegar verið var að vinna þar
við viðgerð, og stal höklunum
án þess að eftir því væri tek-
ið. Síðan reif hann þá niður og
seldi og keypti sér brennivín
fyrir andvirðið.
Sjjónimrps-
tmki epði-'
ieggfa úr
Útvarpsvirkjar í London,
sem unnið hafa við að setja
saman sjcnvarpstæki, hafa lengi
kvartað yfir því, að vasa- og
armbandsúr, sem þeir ganga
með, séu alltaf að bila. Rann-
sókn var gerð á þessum bilana-
faraldi og í Ijós kom, að hann
stafaði frá sjónvarpstækjun-
um. Umhverfis hvert þeirra
myndast segulsvið, og það
getur verið svo öflugt, að úrin
verða segulmögnuð og eyði-
Íeggjast gersamlega.
Bandarískri þingnefnd sagt að Vil-
hjálmur Stefánsson sé kommúnisti
Louis Budenz, eitt aí aðalvitnum Bandaríkja-
stjórnar í ofsóknarherferð hennar gegn kommún-
istum og öðrum frjálslyndum Bandaríkjamönnum,
skýrði einni af nefndum Bandaríkjaþings frá því á
fimmtudaginn í íyrri viku, að Vilhjálmur Stefánsson
landkönnuður væri kommúnisti. Budenz var að bera
vitni fyrir undirnefnd öldungadeildarinnar, sem
fjallar um ,,innanlandsöryggi". Kvaddi nefndin Bud
tenz fyrir sig til að nafngreina þá Bandaríkjamenn,
sem væru „hættulegir öryggi Bandaríkjanna".
Budenz var helzta vitni
Bandaríkjastjórnar í málaferl-
um hennar gegn ellefu mið-
stjórnarmönnum Kommúnista-
flokks Bandaríkjanna, sem
dæmdir voru í fimm ára fang-
sagðist hann að sögn frétta-
stofunnar Associated Press
vera ,,hálfhissa“, og bætti við:
„Hvílíkur heiður, mér væri mein
illa við að flestir aðrir kölluðu
mig kommúnista, en ég tek það
ekki nærri mér þótt Budenz geri
það“. Vilhjálmur kvaðst ekki
vita neina ástæðu fyrir vitnis-
burði Budenz.
Vilhjálmur Stefánsson hefur
fyllt flokk hinna frjálslyndari
manna í Bandaríkjunum. Af
þeim sökum réðist sorpblaða-
maðurinn Westbrook Pegler
að honum í fyrra og kallaði
hann kommúnista og nú hefur
Budenz bætzt í hópinn. Eru of-
sóknartilburðir þeirra gegn Vil-
hjálmi enn eitt dæmi um það
ofsóknaræði, sem nú ríkir í
Bandaríkjunum. Afturhaldið
þar hefur komið þvi til leiðar að
verið er sem óðast að dæma
meðlimi kommúnistaflokksins í
margra ára fangelsi fyrir það
eitt að hafa barizt opinberlega
fyrir stjórnmálaskoðunum sín-
um, og nú þykir því jarðvegur-
inn svo rækilega undirbúinn, að
tími sé til kominn að láta til
skarar skríða gegn öðrum
frjálslyndum samtökum og ein-
staklingum, svo sem Vilhjálmi
Stefánssyni. Ef þróunin til
fasisma í Bandaríkjunum held-
ur eins ört áfram og hingað til,
má búast við því að ekki verði
langt að bíða að Vilhjálmi
Stefánssyni verði varpað í
fangabúðir eða hann gerður út-
lægur til ættlands síns, Is-
lands.
VILHJÁLMUK STEFÁNSSON
elsi. Hann var um tíma ritstjóri
„Daily Worker“, blaðs banda-
ríska kommúnistaflokksins, en
er nú prófessor við Fordham
háskóla, einn af skólum
kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkj
unum. Varla hefur verið sá
þáttur í ofsóknarherferðinhi
gegn bandarískum kommúnist-
um, sem Budenz hefur ekki
komið meira og minna við, oft-
ast sem aðal vitni og hæsta
tromp stjómarvaldanna.
Vllhjálmur seglst vera
„hálfhissa“.
Þegar Vilhjálmi Stefánssyni
var Skýrt frá framburði Budenz
Sköllóttir geta drengi
gigtveikir menn stúlkur
Ef sköllóttur maður getur barn eru meiri líkur til
r.5 það verði drengur en stúlka. Sé faðirinn hinsvegar
gigtveikur eru meiri líkindi til að afsprengi hans verði
stúlkur.
Þessar niðurstöður og aðrar
fleiri um sambandið milli kyns
barna og faðernis þeirra setur
vísindakonan Marianne E.
Bernstein fram í grein í banda-
ríska tímaritinu „Science“. Hún
fæst við þá 'fræðigrein, sem
nefnist lífmælingar, og er fólg-
in í því að beita tölulegum rann-
sóknaraðferðum við líffræðileg
fyrirbrigði.
Bernstein dettur auðvitað
ekki í hug, að beint samband
sé milli skalla eða gigtar föðurs-
ins og kyns barnanna. Kenning
hennar er, að hlutfallið milli
kynjanna standj í sambandi við
IKgisti lóðrétli lielllr f iielisil
fundlnn í
Tólf manna leiðangur undir forystu belgiska kjarna-
cðlisfræðingsins Max Cosyns hefur rannsakað dýpsta
lóðrétta helli, sem fundizt hefur.
Hellirinn er í Pyreneafjöllum fljúga inni í skúta. Hann fór á
Frakklandsmegin. Hellakönnuð
ur að nafni Lcpineux var þar á
rölti í vor, er hann sá hrafn
" ■ jp '
Tók áletrunina
bókstaflega
I Rudköbing í Danmörku hef-
ur maður verið dæmdur í fang-
elsi fyrir að stela eða reyna
að stela úr samskotabaukum í
öllum kirkjum á Langalandi
nema einni og mörgum kirkj-
um á Fjóni. Sökudólgurihn bar
það fyrir réttinum, að hann
hefði ekki séð neitt athugavert
við að hirða innihald samskota-
baukanna, því að á þeim öllum
hefði staðið: „Handa fátækum“.
eftir og stóð brátt á barmi gím-
alds, sem lá beint niður í jörð-
ina.
Þegar leiðangurinn kom til
að fullkanna fund Lépineux,
var hann fyrstur látinn síga
niður í göngin. Af bergmáli af
steinum, sem hent var niður,
hafði Cosyns getið þess til, að
hellii’inn væri 350 metrar á
dýpt, og hann reyndist vera
356 metrar, dýpsti lóðrétti hell-
ir, sem áður hafði verið kann-
aður, var 318 metrar.
Á botni gímaldsins fundu
leiðangursmenn afhella og læk,
sem rann beint inn í göng í klett
inum. Cosj'ns segist vona, að
með nauðsynlegum útbúnaði
verði hægt að komast þarna
allt að þúsund metra niður i
jörðina.
hormónajafnvægið í líkömum
foreldranna, skalla telur hún
merki þess að karllegir hor-
mónar föðursins séu ríkulegir
en gigt bendi til að þeir séu
af skomum skammti.
Sömuleiðis telur Bernstein
að „karlmennskustigið", sem
ráði því, hvaða starf menn
velji sér, hafi einnig áhrif á
kynferði barna þeirra. Hlutfallið
milli drengja og stúlkna var
sex á móti fimm í 5400 barna
hóp, sem áttu fyrir feður her-
menn, kaupsýslumenn, stjórn-
málamenn, lögfræðinga, bænd-
ur eða abstrakt vísindamenn.
En hlutföllin voru þveröfug
meðal barna, sem áttu að feðr-
um menn, sem unnu störf, er
konur skara oft framúr í, svo
sem leikarar, kennarar, félags-
málafulltrúar, skáldsagnahöf-
undar og myndlistarmenn.
Bernstein lætur undir höfuð
leggjast að skýra frá því, hvað
verður uppi á teningnum, ef
sköllóttur maður með gigt get-
ur barn.
(Úr Time).
arm var
að bana
I þorpinu Misteibach í Aust-
urríki hafa þrjú börn dáú
vegna þess að þeim var gefinn
cf stór’ skammtur af sænskum
þcrskalýsiskjama, sem nefnt
er Fortedol. Iljúkrunarkcnur
gáfu börnunum eitt skeiðar-
blað af þessu, einsog um ósam-
þjappað lýsi væri að ræða, en
áttu að gefa þrjá dropa. Af
sautján börnum eru þrjú dáin
af eitrun en fjórtán veiktust
lífshættulega.
Dýfingar prests-
ins borga kirkjuna
Séra Robert Simon, kaþólsk-
ur prestur í franska aípaþorp-
inu Saone, greiðir niður skuld-
ir kirkju sinnar með því að
stinga sér til sunds niður af
35 metra háum krana niður í
ána Doubs. Séra Simon er bú-
inn að stinga sér oft og síðast-
liðinn sunnudag vonaðist hann
til að geta rekið endahnútinn ■«
verkið. Hann selur aðgang að
dýfingasýningunum á fjórar
krónur og áhorfendur hafa
flykkzt að. Áður en haxm sting
ur sér les séra Simon alltaf bæn
og krossar sig. Hann hefur ekki
orðið fyrir meiriháttar slysum
en er oftast með að minnsta
kosti eitt glóðarauga, þegar
hann kemur uppá yfirborðið.
Hœringur
NorSmanna
kominn fil
Esbjerg
Meðan Hæringur þeirra Jó-
hanns Hafsteins og Jóns Gunn-
arssonar ryðgar í rólegheitum
hér í höfninni, hafa Norðmenn
vel uppúr sinni fljótandi síld-
arverksmiðju, sem heitir
Clupea. I vor var hún við Suð-
ur-Afríku og nú er hún komin
til Esbjerg í Danmörku til að
hjálpa til við að koma síldar-
aflanum þar í lóg, en um tíma
varð að henda miklu af honum.
Ekki vildu dönsku yfirvöldin
gefa Clupeu skýlaust leyfi til
að vinna síld í höfninni I Es-
bjerg, en lofuðu að fetta ekki
fingur útí veru hennar þar.
Bindaskattur
Engin ríkisstjórn nema sú ís-
lenzka mun vera svo ósvífin,
að leggja söluskatt jafnt á aíl-
ar vörur og þjónustu, nauðsynj
ar jafnt og munaðarvörur. Er
það víða deilumál, hverjar vöru
tegundir sé sanngjamt að skatt
leggja og hverjar ekki. Á
Ean.daríkjaþingi er komin fram
tillaga um að leggja 25% skatt
á hálsbindi, og er talið að tekj-
ur af þeirn skatti verði um 125
miíljónir króna.
Idiitg sprengir
dynamt, 8 meim
farasi
Eldingu sló niður í rafleiðsl-
ur að dynamithleðslum í gljúf-
urvegg í Colorado i Bandaríkj-
unum fimmtudaginn í fyrri viku
og varð til þess að hleðslurn-
ar sprungu. Verið var að troða
sprengiefnj í holur í báðum
gljúfurveggjum þegar spreng-
ingin varð, og höfðu verka-
menn engan tíma til að forða
sér. Átta lík fundust strax og
margir menn særðust af grjót-
liasti.