Þjóðviljinn - 02.10.1951, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 2. október 1951
ÞlÚÐVIUINH
Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SÓBÍalistaflokkurinn.
Rltstjórar: Magnús Kjartansaon, SigurBur Gu5mund3son (á,b.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason,
BlaSam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsaon, Gu5m. Vlgfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritatjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Simi 7500 (þrjár línur).
Áakriítarverð kr. 18 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. elnL
Frentsmiðja Þjóðviijana b-f.
Samskipfi fslands og Kína
Dagurinn 1. október mun síðar meir verða talinn einn
af örlagadögum mannkynsins. Þann dag fyrir tveimur
árum var stofnað Alþýðulýðveldið Kína. Kínversk alþýða
hafði sigrað irnlenda og erlenda óvini og hóf viðreisnar-
starf við hin örðugustu skilyrði.
íslendingum, eins og öllum þjóðum heims, er nauð-
syn að fylgjast með því eftir megni hvað sá fjórðungur
mannkynsins er byggir víðlendur Kína hefst að. Stofnun
félags til menningarlegra samskipta við hið unga al-
þýðulýðveldi Kínverja gæti orðið fyrsta skrefið í átt til
nánari kynna þjóðanna. Einmitt nú í tilefni tveggja
ára afmæli'sins *mun slík félagsstofnun fyrirhuguð, að
frumkvæði esperantóhópsins Mateno, sem haft hefur
samband við hið öfluga Esperantosamband Kína.
Ríkisstjóm Islands hefur fram að þessu.tekið ,þá af-
stöðu að láta ssm alþýðustjóm Kína væri ekki til, en
viöurkennt ræningjastjórn Sjang Kaisjeks á Taívan sem
löglega stjói’n alls Kína, gott ef ekki er íslenzkur konsúll
á hennar snærnm. Danmörk. Sviþjóð og Noregur eru
meðal þeirra þjóða sem hafa viðurkennt alþýðustjórnina,
hafa við hana stjómmálasamband og leita þar viðskipta.
ísland ætti að þessu leyti að feta í fótspor Norðurlanda,
þó ekki væri til annars en fylgjast með þeim markaðs-
möguleikum og viðskipta sem opnazt gætu við þjóðahaf
Kína. Viðurkenning íslands á alþýðustjóm Kína er sjálf-
sögö ráðstöfun, ekki sízt vegna þess að helztu keppinautar
íslendinga í markaðsöflun hafa komið á eðlilegu stjórn-
málasambandi austur þangaö.
Ráð gegn okri
Alþýðublaðið prédikar nú af offorsi miklu að taka
verði upp að nýju kerfi það í verzlunarmálum sem blómg-
aðist á valdadögum Stefáns Jóhanns Stefánssonar; það
sé ráðið við milljónaokri því sem nú er orðið uppvíst. Öll
þjóðin veit þó að aldrei hafa óheiðarlegir verzlunarhættir,
okur og spillir.g verið á hærra stigi á íslandi en meðan
Alþýðuflokkurinn hafði forustu í ríkisstjórn og Emil
Jónsson var viðskiptamálaráðherra. Sá efnahagslegi ólifn-
aður sem þróaðist í, skjóli skriffinnskunnar var jafnvel
ennþá siðlausari en okrið nú, og þeir munu fáir sem líta
þau ár með söknuði.
Ráðið gegn okrinu er vissulega ekki það að hverfa
aftur til þsss ömurlega skipulags. Ráðið er þvert á móti
hitt að koma á raunverulega frjálsri verzlun. Eins og
margsinnis heíur verið rakið á núverandi ástand ‘ ekbsrt
skylt við frjálsa verzlun. Það eitt hefur gerzt að valdið
yfir innflutningnum er tekið úr höndum Fjárhagsráðs og
afhent Landsbar.kanum. Ráðamenn Landsbankans beita
svo nákvæmlega sömu þrælatökunum og Fjárhagsráð
áöur, hygla þeim sem eru í náðinni en banna hinum allar
bjargir sém ríkisstjómin hefur ekki velþóknun á. í stað-
inn fyrir skriífinnskueftirlit er nú komið fjárhagslegt
eftirlit, sem er ekki síður öruggt. Þar við bætist svo báta-
gjaldeyriskerfið. sem ;r hin versta einokun sem hugsazt
getur og beinlínis sett á laggirnar til okurstarfsemi.
Það er þessi einokun sem veldur því að möguleikar
eru á okurstarfsemi, og gamalt form á einokuninni myndi
auövitaö ekkert bæta Ef samtök almennings hefðu hins
vegar sjálf möguleika að flytja inn ailan varning og verð-
leggja hann í samræmi við hagsmuni neytenda myndi
grundvellinum vera kippt imdan starfsemi okraranna, þá
fyrst kæmi raunveruleg samkeppni til greina. Almenningi
verður vissulega ekki bjargað frá okrinu með ráði Alþýðu-
blaösins, heldur með hinu að raunverulegt frelsi verði
veitt bæði til útflutnings og innflutnings, þannig að
hngsmunir almennings geti mótað viðskiptalífið allt. ,
„Vinnuskóli“
bæjarins
A. H. skrifar: „Síðastliðið vor
hóf starfsemi sína nýr skóli á
vegum bæjarins, er nefndur var
„Vinnuskóli". — Átti hann að
vera frábrugðinn „unglinga-
vinnunni" að því leyti að kenna
átti meðferð ýmissa vinnutækja
og véla. Ég var einn ef þeim er
fengu þessa vinnu. Vinnan hófst
en skólinn ekki og vorum við
látnir grafa skurði með flága.
Eftir nokkurn tíma fóru strák-
arnir að tala um það sín á milli
hvenær vélakennslan ætti að
hefjast. Spurði ég svo verk-
stjórann um þetta, en hann
sagði að verið væri að kenna
okkur að fara með skófluna.
Sáu aldrei vélarnar
„Einn góðan veðurdag kom
Ingólfur Davíðsson, grasafræð-
ingur, og hélt fyrirlestur um
ýmsar jurtir, sem voru þarna
á jörðinni. Við höfðum lítið
gaman af þessu því flestir
höfðu lesið grasafræðina í skól-
anum. Nokkru seinna hélt
Ragnar Lárusson fyrirlestur
um gamla sveitabæi, og var
hann heldur skárri. Þetta var
allt og sumt, aldrei fengum
við að vita né sjá neitt af
þessum vélum sem við áttum
að fá að læra á. Þetta reyndist
aðeins agn. Svona eru svikin
á öllum sviðum hjá þeim sem
stjórna bænum. — A. H.“
Óafgreiddar kærur
Sjómaður á Suðurnesjum
skrifar: „Undanfarið hefur mik-
ið verið rætt og ritað um land-
helgismál, og mikill fyrirgang-
ur hefur verið í íhaldsblöðun-
um út af landhelgisbrotum
rússnesku skipanna. Ég tel því
rétt að fá það upplýst hverju
það sætir að fimm karur á
hendur íslenzkum snurvoðar-
bátum hafa ekki veri'ð afgreidd-
ar, þótt þær séu búnar að liggja
hjá bæjarfógeta Keflavíkur og
sýslumanni Gullbringu- og
Kjósarsýslu í 2—3 mánuði. —
Kærur þessar eru þannig t’.l
komnar að í júní og júlí í sum-
ar gerðust snurvoðarbátar mjög
ágengir í Garðsjó og undan
Höfnum á Reykjanesi. Fóru
þá nokkrir formenn úr Garðin-
um á trillubátum að þessum
veiðiþjófum og stóðu þá að
verki, tóku mið af sta'ð skips-
ins og sendu kærur á henditr
viðkomandi bátum.
• A að svæfa málið?
„Síðan var varðskip ffngið
til að mæla upp stað veiðiþjóf-
anna og reyndust þeir vera ým-
ist 2 eða 3 sjómílur fyrir in.n-
an landhelgislínu. Þessar kær-
ur voru flestar sendar af hrepp-
stjóranum í Garðinum (á Garð-
skaga) og því hægt að fá þetta
staðfest hjá honum. Ég skrifa
þetta af því tilefni að ég hitti
fyrir skömmu þekktan íhalds-
mann í Keflavík og þegar ég
spurði hann um þetta sagði
hann að þetta væri orðið pólit-
íslct mál og yrði svæft.
e
Fyrirspurn 'til dóms-
málaráðuneytisins
„Svo er hér smá fyrirspurn
til dómsmálaráðuneytisins: Er
þa'ð rétt að ekki finnist í is-
lenzkum lögum neitt bann við
því að síldveiðiskip vinr.i að
viðgerð veiðarfæra í landbelgi?
Sé þetta ekki rétt, hver eru þá
sektarákvæði fyrir slík brot?
— Spurningin er borin fram
vegna þess að mér er tjáð að
þegar átti að dæma rússneska.
skipið, sem tekið var við að
vinna að veiðarfærum innan
landhelgislínu, hafi komið í
ljós að engin lagastafur væri
til um sektarákvæði fyrir siík
brot. Er mér og mörgum fleir-
um nokkur forvitni á að fá
þetta að fullu upplýst af kunn-
ugum og ábyrgum aðiljum. —
Sjómaður á Suðumesjum“. .
Kíkisskip
Hekla er í Reykjavík. Esja er í
Reykjavík og fer þaðan á föstu-
daginn vestur um land í hring-
ferð. Herðubreið var á Raufar-
höfn síðdegis í gær. Skjaldbreið
var væntanleg til Reykjavíkur
seint í gærkvöid eða nótt frá
Breiðafirði. ÞyriK er í Reykjavik.
Ármann fór frá Reykjavík í gær-
kvöld til Vestmannaeyja.
Eimskíp
Brúarfoss fór frá Vestmannaeyj
um í gærm. 1.10. til Breiðafjarð-
ar og Vestfj. Dettifoss kom til Ant
verpen 28.9. fer þaðan til Ham-
borgar og Rotterdam. Goðafoss fór
frá Rvik kl. 22.00 i gærkvöld
1»10. til N.Y. Gullfoss fór frá Rvík.
29.9. til Leith og Kaupmannahafn
ar. Lagarfoss fór frá N.Y. 29.9.
til Reykjavíkur. Reykjafoss kom
til Dordrecht í Hollandi 29.9. frá
Séte í Prakklandi. Sefoss er í R-
vik. Trö’lafoss fór frá Reykjavík
25.9. til N.Y. Röskva er í Gauta-
borg, fer þaðan til Reykjavíkur.
Bravo lestar í London 5.10., fer
þaðan til Hull og Reykjavíkur.
Loftleiðir li.f.: .
í dag verður flogið til Akureyr-
ar, Hellissands 'og Vestmanna-
eyja. — A morgun er áætlað að
fljúga ti! Akureyrar, Hó’mavikur,
Isafjarðar og Vestmannaeyja.
Frá Menningar- og minningar-
sjóði kvenna
‘Þær konur sem eiga eftir að
gera. skil fyrir merkjasölu sjóðs-
ins eru vinsamlega beðnar að
gera það í skrifstofu K.R.P.Í.,
Skálho’tsstíg 7 næstu daga kl.
4—6 e. h.
Lestrarfélag kvenna.
Vetrarstarf Lestrarfélag kvenna
er nú að hef jast. Bókasafn fálags.
ins, sem er á Laugaveg 39, 1.
hæð, verður opið í vetur alla mánu
daga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 4—6 og 8—9. Allmargt er
nýrra bóka, bæði cftir innlenda og
erlenda höfunda, sömuleiðis heim-
ilisrit og tízkub’öð. — Á mánudög-
um kl. 4—6 eru innritaðir nj’ir
félagai'. Árstillag er aðeins 20 kr.
Næturvörður er í Laúgavegsapó-
teki. — Sími 1616.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum.
Sími 5030.
Frú Þóru Björg-
vinsdóttur og Prið
rik Stefáns. Laugá
nesveg 81, fædd-
ist 16 marka dótt-
ir 30. september.
Ljósatími bifreiða og annarra öku-
tækja er frá kl. 20,25 til kl. 6,20.
8,00—9,00 Morgun-
útvarp. 10,10 Veð-
urfr. 12,10—13,15
Hádegisútv. 15,30
Miðdegisútv. 16,25
Veðurfr. 19,25 Veð-
urfregnir. 19,30 Þingfréttir. Tón-
leikar. 19,45 Auglýsingar. 20,C0
Fréttir. 20,20 Tón’eikar: Strengja-
kvartett op. 11 eftir Samuel Bar-
ber (Björn Ólafsson, Josef Felz-
mann, Jón Sen og Einar Vigfús-
son ieika). 20,40 Erindi: Spari-
fjárstarfsemi i skólum (Snorri
Sigfússon námsstjóri). 20,55 Tón-
leikar: Andrews Sisters syngja létt
lög (pl.) 21,15 Upplestur: „Áhorf-
endui-", smásaga eftir Maxim
Gorki (Hannes Sigfússon þýðir
og les). 21,45' Tónleikar: NBC-
h’jómsveitin leikur lög eftir Irving
Berlin o. f 1.; Milton Kaims stjórn-
ar (pl.) 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 Vinsæl lög (p'.) 22.30
Dagskrárlok.
Óháði fríkirkjusöfnuðuriim.
(Gjafir og áheit):
Kirkjubyggingarsjóður: Áheit frá
G. J. kr. 100,00; kona á Meðallandi
50.00; E. E. 100.00; A. A. 500.00;
S. J. 100.00. — Gjafir: Minningar-
gjöf um móður frá M. B. 100.00;
Jón í Brún 20.00; S. J. 100.00; Þ.
Jónsson 1.000.00; Afhent af presti
safnaðarins frá utansafnaðarkonu
K. E. kr. 1.000.00. — Safnaðarsjóð-
ur: — Áheit: Frá Sigurði kr. 50.00;
E. Jóhannsdóttir 100.00. -— Gjaflr:
Steindór kr. 80.00; kona 10.00;
kona 5.00; Sigurður og Ólafía 50.
00; H. Isleifsson 100.00; N. N. 100.
00; V. 100.00; Þ. L. Jónsson og frú
200.00; A. A. 100.00; afhent af frú
1. Isaksdóttur frá E. M. kr. 50.00;
N. N. 10.00 og frá ónefndri konu
50.00; Afhent af presti safn-
aðarins frá utansafnaðarmanni
H. L. kr. 300.00; vildarvin safnað-
arins 50.00; J. J. 100.00. —
Kærar þakkir. — Gjaldkerinn.
Til Sólheiinadrengsins. Frá S. Ó.
kr. 50.00.
Sl. sunnudag
voru gefin sam-
an í hjónaband
af sr. Garðari
S vavarss., ung-
frú Edit Ger-
hardt frá Lubeck í Þýzkalandi og
Örn Ásmundsson, Selby-camp 5 í
Reykjavík. — Nýlega voru gefin.
saman í hjónaband ungfrú Kristín
Ingvarsdóttir og Ólafur Ágúst Örn
ólfsson, loftskeytamaður. Heimili
ungu hjénanna verður á Langholts
vegi 37. — Nýlega voru gefin sam-
an í hjónaband á Akureyri ungfrú
Þórunn H. Björnsdóttir, Ijósmóð-
ir og Þorvaldur Gunnlaugsson, sjó-
maður.
50 ára er í dag Guðmundur Krist
insson verkamaður, Laugavegi
153. Hann er hægíátur eljumað-
ur, sem vinnur störf sín í kyrr-
þey. — Guðmundur hefur unn-
ið hjá Reykjavikurhöfn síðastlið-
in 26 ár. —■ Hann kynntist bar-
áttu verkalýðshreyfingarinnar á
unga aldri og hefur ávalt verið
traustur fylgismaður hennar. —■
Ái þessum merkisdegi ævi hans á
ég enga ósk betri, honum til
handa, en að honum auðnist, glöð
um og hraustum að sjá þann dag
rísa, sem stótt okkar þráir heit-
ast. Þ. Þ.
Bólusetning gegn barnaveiki
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 2. okt. n. k. kl. 10—12 f.
h. í síma. 2781.