Þjóðviljinn - 14.10.1951, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.10.1951, Blaðsíða 6
 6) ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 14. október 1951 14. DAGUR i Herrra Squires hafði ýmislegt annað í huga, sem hann minnt- ist ekki á. Hann vissi að hinir drengirnir myndu fræða hann á því. 1 staðinn bætti hann við, og það kom mjög flatt upp Clyde, sem hafði setið eins og í leiðslu: „Getið þér ekki byrjað að vinna undir eins?“ „Jú, jú,“ svaraði hann. ,,Ágætt.“ Svo stóð hann á fætur og opnaði dyrnar, sem þeir höfðu lokað á eftir sér. ,,Óskar,“ kallaði hann til pilts sem sat frem'stur á bekknum og hár og gelgjulegur unglingur í þröng- um, snyrtilegum einkennisbúningi svaraði undir eins. „Farið með þennan unga mann — Heitið þér ekki Clyde Griffiths ? — upp í fatageymsluna á tólftu hæð og athugið hvort Jacob get- ur fundið mátulegan einkennisbúning handa honum. Ef svo er ekki þá segið honum að hafa hann tilbúinn á morgun. Það mætti segja mér að búningur Silsbees stæði heima.“ Svo sneri hann sér að aðstoðarmanninum við afgreiðsluborð- ið, sem var að horfa á þá: „Ég ætla að taka hann til reynslu," sagði hann. „Látið einhvern drengjanna setja hann inn í starf- ið í kvöld, eða þegar hann nú byrjar. Flýtið yður, Óskar,“ kallaði hann til drengsins, sem átti að leiðbeina Clyde. „Hann er alveg óvanur, en ég hugsa að hann spjari sig,“ bætti hann við um leið og Clyde og Óskar hurfu í áttina að lyftunum. Svo gekk hann burt til að láta skrá nafn Clydes á starfsmannalistann. „Þú skalt ekki vera hræddur, þótt þú hafir aldrei komið nálægt svona starfi fyrr,“ sagði ungi maðurinn, sem hét Hegg- lund að eftirnafni, og var ættaður frá Jersey City, New Jersey. Hann var hár og sterklegur, ljóshærður, freknóttur, fjörugur og ræðinn. Þeir fóru inn í lyftu sem á stóð ,,starfsmenn“. „Þetta er ekki svo bölvað. Ég fékk fyrsta jobbið mitt í Buffaló fyrir þrem árum og þá vissi ég ekki baun í bala. Þú þarft ekki annað en gefa hinum auga og sjá hvað þeir gera. Ertu með ?“ Clyde stóð Hegglund töluvert framar að menntun, og í hug- anum gagnrýndi hann málfar hans; en hann var svo þakklát- ur fyrir alla aðstoð og velvilja, að hann var reiðubúinn til að fyrirgefa allt. „Horfðu á hina til að byrja með, ha, þangað til þú ert með á nótunum. Svoleiðis höfum við það. Þegar bjöllunni er hringt og þú situr fremst á bekknum, þá er komið að þér, skilurðu, og þú spanar af stað. Hér verður maður alltaf að vera á hörku- spani. Og þegar þú sérð einhvern koma inn um dyrnar, út úr lyftunni með tösku og þú situr fremst á bekknum þá þýturðu lika á fætur, hvort sem bjöliunni er hringt eða ekki. Það er til þess ætlazt. Gáðu vel í kringum þig, því að drykkjupening- arnir fylgja töskunum. Allir gestir, sem bera töskur eða annað slíkt, eiga að fá hjálp, nema þeir séu mótfallnir því, skilurðu? „Og svo skaltu bíða einhvers staðar nálægt afgreiðsluborð- inu eftir þeim, meðan þeir panta sér herbergi," hélt hann áfram á leiðinni upp í lyftunni. „Þeir taka næstum allir herbergi. Svo réttir afgreiðslumaðurinn þór lykilinn, og þá áttu bara að burð- ast upp með farangurinn. Svo áttu að kveikja ljósið í baðher- berginu og klósettinu, svo að þeir viti hvar það er að finna. Og svo áttu að draga gluggatjöldin frá að deginum til og draga þau fyrir á kvöldin, athuga hvort það er handklæði í herberginu og þú getur sagt stúlkimni til um það; og svo ef þeir gefa þér ekki drykkjupeninga, þá áttu að fara; en yfirleitt, ef gesturinn er ekki klára bjálfi, þá skaltu doka dálítið við — finna þér eitthvað til — fikta við hurðarhúninn eða athuga gluggajárn- in. Og þá færðu yfirleitt eitthvað. Annars verðurðu að fara og það strax. Þú mátt ekki einu sinni setja upp fýlusvip —ekki að lala um. Svo ferðu niður, og ef þeir vilja ekki kalt vatn eða svoleiðis, þá er það búið. Og þá seztu á bekkinn í hvelli. Þetta er hreint ékkert snúið. Þú þarft bara að flýta þér allan tím- ann og sléppa þeim ekki frmhjá þér, þegar þeir koma og fara — þáð er allt og sumt.“ „Og þegar þú ert kominn í gallann og byrjar að vinna, þá máttu ekki gleyma að afhenda yfirmanninum einn dollar eftir D A V 1 Ð hverja vakt. skilurðu — tvo dollara þann dag sem þú hefur tvær vaktir, annars einn. Svoleiðis höfum við það hérna og það verður þú líka að gera ef þú vilt halda jobbinu. En það er allt og sumt. Afganginn átt þú.“ Jú, Clyde skildi það. Hluti af tuttugu og fjórum eða þrjátíu og tveim dollurun- um hans fóru þarna í súginn í einu vetfangi — að minnsta kosti ellefu eða tólf — en hvað um það. Ætti hann ekki eftir að minnsta kosti tólf eða fimmtán eða jafnvel meira? Og ekki mátti gleyma matnum og einkennisbúningnum. Hamingj- an sanna! Hvílík dýrð! Þetta var nú atvinna í lagi! Herra Hegglund frá Jersey City fylgdi honum upp á tólftu hæð og inn í herbergi þar sem fyrir var visinn og hæruskotinn maður á óvissum aldri og með óvissa skapgerð. Hann afhenti Clyde strax einkennisbúning sem var svo mátulegur, að ekki Joótti ástæða til að lagfæra hann neitt. Og svo mátaði hann margar húfur og fann loks eina sem var mátuleg — hún átti að vera á skakk yfir öðru eyranu en Hegglund sagði: „Þú verður að láta klippaþig. Það þarf að klippa hárið í hnakk- anum. Það er of sítt.“ Og Clyde hafði einmitt verið að hugsa um það áður en Hegglund hafði orð á því. Hárið á honum var ekki fallegt undir nýju húfunni. Honum fannst hræðilegt að sjá það. Þegar hann kom niður og gaf sig fram við herra Whipple, aðstoðarmann herra Squires, sagði maðurinn: „Prýði- legt. Hann er alveg mátulegur, er það ekki? Jæja, þér eigið að byrja klukkan sex. Þér skuluð koma klukkan hálfsex og vera ið kominn í einkennisbúninginn klukkan kortér fyrir sex.“ BARNASAGAN 3. DAGUR Sagan af Fertram og Isól björtu uoum, og þykir mér niðrun fyrir mig að eiga hann". Þeir báðu hana bví betur að fara með sér. Loks lét hún íil leiðast að fara með þeim, en gaf þrælnum skálann með öllu því, sem í honum var. Héldu kóngsmenn síðan af stað með hana og dóttur henn- ar; gaf þeim vel byr og voru fáa daga á leiðinni Þegar kóngur sá ferð þeirra, lét hann aka sér í gull- vagni til strandarinnar, og var drottning sett í vagn- inn hjá honum, og fékk hann þegar ástarhug á henni, og var þá ekið heim aftur til borgarinnar og stofnað til ágætrar veizlu og boðið öllu stórmenni í nærliggjandi löndum og ríkjum; var þar vel drukk- io og gjafir mönnum gefnar; þeir fóru þaðan full- ríkir, sem þangað komu fáíækir. Nú fóru allir heim aítur, en drottning tók við ráðum þeim, sem henni bar. Dóttir hennar hét ísól eins og kóngsdóttir, en mönnum þótti hún ekki eins fríð eins og hin og aðgreindu þær með því, að beir kölluðu hana ísól blökku, en kóngsdóttur ísól björíu. Hún var í kastala einum og hafði þernur; en eigi eru hér nafngreindar nema tvær þeirra, Eyja og Meyja; þær gengu næst kóngsdóttur og fylgdu henni jafnan, þegar hún fór út að skemmta sér á lystigöngu um einn aldingarð. Einu sinni skömmu eíiir þurfti kóngur að íara að friða land sitt og fór með mörg skip, svo að fátt Kveðjuorð Framhald af 3. síðu. Fórnarlund og greiðasemi þeirra verður ógleymanleg öll- um þeim, sem þekktu til. Aúk ellefu barna, sem þau áttu sjálf tóku þau fósturbörn um lengri eða skemmri tima, meðal aun- ars eitt vikugamalt, ólu þsð upp til fullorðins ára og voru því jafnvel betri, en sínum eig- in börnum. Það má með sanni segja, að hjartagæzka og gjafmildi Rósu og Ivars ættu sér engin tak- mörk. Við þessi skilyrði ólst Kristín í Kirkjuhvammi upp. Og það er líka óhætt að segja, að hún hélt merkin,u á lofti í lík um anda. Kristín var gerðar- leg og fjölhæf kona og fengu þó hæfileikar hennar aldrei að njóta sín til fulls vegna ytri að- stæðna. Barnalærdómurinn var af skoraum skammti á unglings árum hennar og um aðra skóla- menntu.n var -ekki að ræða, nema skóla lífsins, en í þeim skóla var hún líka að læra til hins síðasta. Hún las mikið ea þó einkum vel og myndaði sér skíra og gl-c'gga skoðun um ein- stök atriði og í heild og var því rökföst í ræðum. Hún var ljóðelsk og söngvin og því næm á ljóð og lög og hafði söng- rödd mikla og fagra. Ef veikindi báru að á bæjun- um í kring var sent eftir Krist- ínu svo vel fórust henni úr hendi öll hjúkrunar- og líknar- störf. Sömuleiðis var, ef lá á að sauma vandaða flík éða spinna fínt band — þá var líka sent til Kristínar. Enginn sem til þekkti efaðist um undirtekt- ir þar né að vinnan yrði vönd- uð. En þetta og annað slíkt, sem of langt yrði upp að telja voru hennar aukastörf. Vinnu- dagurinn var því oft nokkuð langur. Ekki mátti slá slöku við heimilisönnunum sem liún tóik jc'fnum höndum þátt i, bæði inni og úti. Auk raksturs og rifjunar á sumrin sló hún líka og batt heyið þegar þvi var að skipta. Og á veturna var hún við gegningar þegar þess þurfti með. Skepnurnar máttu ekki líða skort. Hún var dýravinur jafnframt því að hún var mann- vinur. Fyrir fáum dögum rakst ég hér á kunnugan mann að vestan og spurði hvað hann teldi helzt að taka ætti fra.m í minningar- orðum um Kristínu. Hann svar- aði: Ég get ekki bent á eitt öðru fremur. Betri og samvizku samari manneskju get ég ekki hugsað mér. Þannig fórust þessum mannj orð og undir þau getum við tekið af heilum hug, sem þekktum mannkosti Kristínar og myndugleik. Foreldrar Kristínar dóu fjör gömul, ívar árið 1930 (f. 1844) og Rósa 1940 (f. 1851) og héldu systkinin, sem þá voru eftir heima áfram búskap í Kirkju- hvammi. Samtaka börðust þau áfram við bág kjör. Samhuga héldu þau uppi félagslífi og framfaramálum á Rauðasandi. Samróma sungu þau í Saur- bæjarkirkju. Samhent voru þau sífórnandi öðrum aðstoð og greiða. En nú er þrenningln rofin. Samvistin slitin. Kær- leikshöndin kólnuð. SystkinLn heima og hin sem í burtu búa syrgja og sakna. Fjölmennur hópur ættingja og vina harmar hina dánu. Öll þckkum við henni hjartanlega óeigingjarnt ævistarf, tryggðina, falsleysið og fórnarlundina sem hún fékk aldrei endurgoldna. Kristín er dáin, en minningin Jifir um dygðaríku mannkosta,- konuna. Far þú í friði Friður guðs þig blessi Hafðu þökk fyrir allt og allt. M. Jónsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.