Þjóðviljinn - 06.11.1951, Síða 4

Þjóðviljinn - 06.11.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 6. nóvember 1951 munu fyrst um sinn verða á þriðju dögum og hefjast kl. 20,30. þlÓÐVILJINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistafloklturinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) PréttEritstjóri: Jón Ejarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Aakriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Siúdentaráðskosningarnar Kosningarnar til stúdentaráðs háskólans vekja ævin- lega athygli og þykja nokkur vísbending um styrk flokk- anna í landinu og þær breytingar sem orðið hafa á fylgi þeirra. Að þessu sinni varð' vísbending þessara kosninga óvenjulega ótvíræð og athyglisverð. Alþýðublaðsmenn íengu 57 atkvæði og töpuðu 2, Framsóknarmenn fengu 61 atkvæði og unnu eitt, íhaldsmenn fengu 295 atkvæði og unnu 9 (höfðu tvo lista f fyrra) og róttækir fengu 132 atkvæði, unnu 26. Hefur fylgi rótttækra þannig auk- izt um fjórðung frá því á síðasta ári. AuÖvitað er flokkaskiptingin í háskólanum engin rétt mynd af þjóöfélaginu. Það er alkunna að verulegur hluti stúdentanna kemur úr auðmannastétt, sem veitt getur börnum sínum hina beztu fjárliagslegu aðstööu til mennta, og á meöan svo er nýtur hinn opinberi flokkur auðmannastéttarinnar auðvitað langmests fylgis. Engu að síður kemur hér á landi stæiri hópur stúdenta úr al- þýöustéttununi en í flestum ef ekki öllum öðrum kapít- alistískum löndum — enda verður skipulag mennta- málanna hér afturhaldinu æ meiri þyrnir í augum. Kosningarnar sýna nú eins og fyrr að meginþorri þeirra stúdenta úr alþýöustétt sem brýzt til mennta meö harö- íylgi og atorku fylgir sósíalistum að málum. Fjórði hver stúdent í háskólanum fylgir nú sósíalistum þrátt fyrir hin erfiöu fjárhagsskilyrði til meimtunar, og sá hóp- ur vex ört; það er staðreynd sem bendir fram á viö. Geðbilanarskrif Vaitýs Fyrir nokkrum dögum skýröi MorgunblaöTð frá því aö það væru til tvennslags kommúnistar: A-kommúnistar og B-kommúnistar. B-kommúnistar eru hinir flokks- bundnu, A-kommúnistar eni þeir fylgismenn sem af ýms um ástæðum hafa ekki gerzt ílokksmenn. Og Morgun- blaðið skýrði einnig frá því aö A-kommúnistarnir, þeir óflokksbundnu, væru hinir eiginlegu skaðræðismenn, þeir væni nefnilega yfirleitt njósnarar og landráömenn fyrír Hússa, en B-kommúnistar, þeir flokksbundnu, forðuðust .ilík verk. Er þessi skilgreining af mörgum ástæöum at- hyglisverð og skemmtileg. Eftir þessa skilgreiningu hóf Valtýr Stefánsson að draga menn í dilka í Reykjavíkurbréfi sínu 1 fyrrada_g og hefur þegar fundið tvo hættulegustu A-kommúnista. landráðamenn og njósnara landsins. Það eru Jón Magn- usson, fréttastjóri ríkisútvarpsins, og Bolli Thoroddsen, verkfræðingur Reykjavíkurbæjar. Báðir þessir þjóðkunnu menn hafa nú afhjúpað sig opinberlega, gengið , í þjón- ustu“ Tass og „gerzt starfsmenn“ VOKS. Hins vegar hafa þeir forðazt að gerast flokksbundnir vegna þess að þeir ..eiga svo miklum og áríðandi skyldustörfum að gegna fyrir Sovétríkin, að þeir mega með engu móti láta vitnast eða láta á því bera, að þeir séu kommúnistar. — Sé hægt að stimpla þá scm konunúnista, má búast við því, eftir því sem stjóm þeirra lítur á málið að þeir eigi erfiðara með að framkvæma illvirki sín ... En einkennilegt má það heita, ef íslenzkur almenningur skilur ekki betur en áður eðli og starf kommúnistaflokksins, þegar það er komið á daginn, að þeir sem mikilvirkastir em í flokkn- um, verða fyrir hvern mun að leyna floklisþjónustu sinni, svo þeir eigi auðveldara með að inna af höndum svonefnd „skyldustörf“ sín.“ Mörg gerast nú geöbilunarskrífin á íslandi, en fjól- ur þessar bera fööurnum órækt vitni sem mestum meist- ara á þessu svió'i að Stefáni Péturssyni ekki undanskild- um. Þaö er að sjálfsögðu óþarft að ræða þau ummæli sem að framan greinir, þau tala sínu skýra máli sjálf. Og þó leynist vitglóra í geðbiluninni. Ætlun Valtýs Stefánssonar er að reyna að bæta gloppurnar sem rif- izt hafa í járntjaldið, meö því að hóta öllum mönnum linnulausum og trylltum fúkyrðaáustri sem dirfast að sækja Sovétríkin heim. Það sýnir svo aftur trú Valtýs Stefánssonar á sínum eigin staöhæfingum um Sovétríkin. Cirkus ZOO. Mörgum þótti djarft teflt af SlBS þegar það réðist í það fyrirtæki að fá Cirkus Zoo hingað til lands. Ég heyrði marga spá því að samtök berklasjúklinga myndu koll- sigla sig á þessari ofdirfsku. Öllum var ljóst að kostnaður- inn hlaut að vera mikill og út- heimta gífurlega aðsókn- Og því er ekki að leyna að aðsóknin var fremur treg á fyrstu sýn- ingarnar, meðan konungur dýr- anna var enn ókominn. En síð- an hefur alveg skipt um. Og nú um helgina var cirkusinn sóttur af slíkum fjölda að a.nn- að eins hefur aldrei þekkst hér áður. Á sunnudaginn fóru fram þrjár sýningar og allir aðgöngu miðar seldust upp á skömir.nm tíma. 6500 manns sáu cirkus- inn þann dag og þar af mun a. m. k. Ys hluti hafa veriS utanbæjarfólk. Það er sem sagt kominn fullur skriður á aðsóknina og engar líkur til annars en þetta djarfa spor for- ráðamanna SÍBS ætli að henpn- ast með ágætum og þjóðin að sanna einu sinni enn að þessum þjóðnytjafélagsslcap sé óhætt að sigla fullum segium. Encia mun leitun á félagsskap sem nýtur eins almennrar velvildar og stuðnings allrar þjóðarirmar eins og SÍBS gerir og er það vissulega að verðleikum, siíkt starf sem það vinnur fyrir þjóðarheildina. Afbragðs skemmtun. En jafnvel þótt sleppt væri verðleikum félagsskaparins sern stendur að þessari óvenjulegu skemmtun og á að njóta á- góðans af henni til eflingar starfsemi sinni, er enginn vafi á því að hún hefði hlotið mikl- ar vinsældir og gífurlega að- sókn- Öllum ber saman um að þessi cirkus sé óvenjulega ’full- kominn og fjölbreyttur að allri gerð. Fimleikarnir eru með slíkum afbrigðum að annað eins hefur hér aldrei sést enda taldir með því allra bezta sem bocið er upp á erlendis og sum atriðin hlotið heimsfrægð. Ég trúi því t. d. ekki að nokkur sýningargestur gleymi leik dönsku hjónanna og barnanna þeirra eða stúlknanna tveggja sem sýndu listir sínar á slán- um uppi í rjáfri sýningartjalds- ins, og þá ber ekki að vanmeta bjarndýrin, filinn og ljónin, sem flestir cirkus-gestir sjá þarna í fyrsta skipti, enda leyndi það sér ekki á sýning- unni sem ég sótti að eftirvænt- ingin var mikil og einlæg, ekki sízt lijá börnunum og ungling- unum. Og ég er sannfærður um að enginn fullorðinn varð held- ur fyrir vonbrigðum af því sem fyrir augun bar. Bjartsýni sem lyftir Grettistökum- Það er áreiðanlega algjör óþarfi að hvetja fólk til að sækja Cirkus Zoo. Hróður þess- arar ógieymanlegu sýninga suð- ur á Reykjavíkurflugvelli berst frá manni til manns og enginn sem á þess nokkurn kost mun láta þessa skemintun fram lijá •sér fara. Og það verða ekki að- eins Reykvíkingar sem sækja þessar nýningar, eins og reynsl- an sýndi s. I. sunnudag- Þær verða sóttar einnig af fólki úr nágrenninu og jafnvel utan af landsbyggðinni haldist vegir opnir eins og allar horfur eru á. Enginn mun sjá eftir þeirr; stund éða þeim aurum sem til þess er varið. Sýningargestir njóta óvenjulegrar og ágætrar skemmtunar og leggja jafn- framt lið málefni Sem öllum er annt um og verðskuldar ótrauð an stuðning allrar þjóðarinnar. — Djarft tafl forráðamanna SlBS heppnast því áreiðanlega nú eins og áður og vel sé þeim fyrir þá bjartsýni og trú á stuðning almennings sem þetta fyrirtæki ber vott um. Það er slík dirfska og bjartsýni sem lyftir Grettistckum á hvaða vettvangi sem hennar gætir. líjalti kemur heim. Gagnfræðasikólanemandi skrif ar: „Kæri Bæjarpóstur: Vilt þú ekki vera svo góður og koma þeim tilmælum á framfæri við iþá sem sjá um dagskrá útvarps- ins að sagan hans Stefáns Jónssonar, Hjalti kemur heim, verði lesin á hentugri tíma fyr ir okkur skólakrakkana. Höfund ur hóf lestur sögunnar kl. 6 s.l. laugardag og ég reikna með að sá tími sé ætlaður sögunni framvegis. Minn befikur í skól- anum losnar aldrei fyrr en kl. 6, 6,30 eöa 7. Við höfum flest fylgzt með Iijalta litla frá byrjun og þykir slæmt að verða af framhaldinu. Gæti nú útvarp ið ekki fært lestur sögunnar til þannig að vio ættum kost á að fylgjast með henni? — Gagn- fræðaskólanemandi.“ — Ég tek undir ósk nemandang og trúi elcki öðru en forráðamenn út- varpsins vilji liliðra .svo til að sem allra flestir unglingar geti notið lesturs Stefáns á fram- lialdi hinnar vinsælu barnasögu. Ekkert efni útvarpsing er jafn vinsælt og eftirsótt af börnum og unglingum og þessi saga Stefáns og því skylt að haga lestri hennar þannig að sem flest barnanna geti notið. Alliancc Francaise Skemmtifundur var háldinn í Alliance Francaise í Sjálfstæðis- húsinu mánudaginn 29. október s. 1. Hófst fundurinn kl. hálf níu um kvöldið með fyrirlestri, er franski sendikénnarinn M. E. Sc- hydlowsky, flutti. Fjallaði erindi þetta um franska rithöfunda og‘ bækur sem komið hafa út í Frakk- landi á þessu ári og var hið fróð- legasta. Því næst var sýnd franska kvilcmyndin Bim og að lokum var stiginn dans til ki. I e. m. — Sam- koma þessi var fjölmenn mjög og fór hið bezta fram. Var einkum margt af ungu fólki og fer á- hugi æskunnar vaxandi fyrir fé- laginu, enda meira líf í því nú en nokkru sinni fyrr. Á þessum oina fundi bættust um tuttugu nýir meðlimir við félagatöluna, enda hefur hún aldrei verið jafn há og liún er nú. v 18,15 Framburðai'- kennsla í esperantó 18,30 Dönskuk.; II. fl. 19,00 Ensku- kennsla; I. fl. 19,25 Þingfréttir. Tón- leikar. 20,30 Erindi: Huldufólk og annað fólk (Martin Larsen; flutt af plötum). 20,45 O'ónleikar Sin- fóníuhljómsveitarinnar (teknir á. segulband í Þjóðleikhúsinu 30. okt.) Stjórnandi: Olav Kielland. a) „Hjalar-ljóð“, forleikur eftir Ei- vind Groven. b) „Frá Holbergs dögum", svíta op. 40 eftir Grieg. c) Sinfónía nr. 7 í A-dúr op. 92 eftir Beethoven. 22,10 Upplestur. 22,30 Tónleikar: Jane Froman og Kay Armen syngja (pl.) 23,00 Dag- skrárlok. Esperantistafélagið heldur l'und í Aðalstræti 12 í kvö'.d kl. 9. S. i. laugardag' voru gefin sam- an í hjónaband hjá borgardóm- ara ungfrú Þor- björg Ándrés- dóttir (Eyjólfssonar, alþm.) og' Axol Ólafsson íLárusSonar héraðs- læfcnis frá ve.stmannaeyjum). - Hjnnunum Krist- v\. ^ \ r runu Karlsdottur /if C" Asm. Bjarna- IA s.vni, skrifstofum., fæddist 16 marka dóttir í gær, 5. nóv. Kikisskip Hekla var á Isafirði i gærkv. á norðurleið. Esja fer frá Reykja- vík á morgun austur um land í hringferð. Herðubreið er á Aust- fjörðum á norðurleið. SkjaJdbreið er á Húnaflóa á suðurleið. Þyrill er i Holiandi. Ármann var í Vest- mannaeyjum í gær. Skipadeild SÍS Hvassafell lcstar saltfisk á Ak- ureyn. Arnarfell lestar saltfisk í Kefiávík. Jökulfell er í New York. Xoftleiðir li.f.: I dag verður fiogið til Akur- eyrar og Vestmannaeyja. Á morg- un er áætlað að fljúga til Akur- eyrar, Hóimavíkur, Isafjarðar og Vestmannaeyja. Elniskip Bi'úarfoss og Goðafoss eru í R- víki Dettifoss fór frá Rvík 3. þm. til Boulogne og Hamborgar. Gull- foss fór frá Rvík 3. þm. ti! Lcith og Kaupmannahafnar. Lagarfoss fór frá Rvík 31. f.m. til New York. Reykjafoss er í Hamborg. Selfpss er i Delfzyl í Hollandi; fer þaðan í dag til Antwerpen. Tröllafoss fór frá Rvík síðdegis i gær til Akraness og Hafnarfjarð- ar. — Biblíulestrar í kvöld kl. 20,30 hefur séra- Sig- urbjörn Einarsson próf. bibliu- lestur fyrir almenning í kristni- boðshúsinu Laufásvegi 13. Þeir Saumanámskeið Mæðrafélagsins hefst föstudaginn 9. nóv. Nám- skeiðið vei'ður í Stýrimannaskól- anum við Stýrim-annastíg. Uiiplýs- ingar í síma 80349. Iðjuíélögum skal bont á auglýs- ingu i blaðinu í dag varðandi at- Vinnuleysisskráninguna. Þegar landsfundi, Sjáifstæðisflokks- ins var slitið meö pomp og pragt í Holstein i fyrrakv. fengu allii' fulltrú- arnii"-gjöf eina í hendur. Flokks- stjórnin skeHkti þeim bókina „Guðinn sem brást“ og mun þetta niðrit um sósíalismann eiga að skoðast sem einskonar uppbót á glamurræður foringjanna þriggja, Ólafs Thórs, Bjarna Ben. og co- cacoiabjörns, sem sagt er að fuil- trúunum utan af landi hafi þótt með afbrigðum þunnar. Með þess- ari ráðstöfun hefur Sjálfstæðis- fiokkurinn komizt hjá að þurfa aö láta keyra allt upplagið af „Guð- inn sem brást“ út á öskuhauga eins og fyrirhugað var, því þrátt fyrir endurteknar auglýsingar um ágæti bókarinnar hefur almenn- ingur ekki litið við skruddunni, ekki einu sinni sanntrúaðir íhalds- menn. Og svo ei' sagt að íhaldið hafi i undirbúningi útgáfu ann- arrar svipaðrar bókar nú fyrir jólin! Þeir sem sækja næsta lands- fund geta þvi vænzt þess emnig að fá þá aðra smágjöf í töskuna áður en þeir halda heim. — Söngæfin*;' í kvöld í Edduhiis-, inu við Lindargötu. Tenór og bassi mæti kl. 8, sópran og alt ki. 8.30. Mætið öll stundvis’ega. Bólusetning gegu harnaveiki Pöntunum veitt móttaka í dag, 6. nóv. lcl. 10—12 f. h. í síma 2781,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.