Þjóðviljinn - 14.11.1951, Síða 4

Þjóðviljinn - 14.11.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. nóvember 1951 lllÓÐVIUINN . m Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Próttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 1S. — Síml 7500 (3 línur). Áakriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöiuverð 75 aur. elnt. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. VeriS að drepa íslenzkan iðnað Landsfundur Sjálfstæöisí'lokksins gerðist svo djarfur að sam’pykkja ályktun um iðnað'armál og lýsa yfir um- hyggju flokksins fyrir íslenzkum iðnaði og viðgangi hans. Á sama tíma og slík hræsni er viöhöfð og lesin yfir lans- lýðnum í útvarpi er ríkisstjórnin •— undir forustu Sjálf- stæðisflokksins — markvisst að vinna aö því að drepa — bókstaflega mælt — íslenzkan iðnrekstur á öllum sviðum þjóðlífsins. Mikilvægasta grein íslenzks iðnaðar er auðvitað fisk- iðnaðurinn, vinnsla úr sjávarafurðum. Sá iðnaður á að færa stórfelldar gjaldeyristekjur og breyta íslenzku vinnu- afli í erlendan gjaldeyri. Iðnaður þessi er allvel búinn tækni, frystihús, fiskiðjuver, þurrkhús og aörar verk- smiðjur eru víða um land með góða afkastamöguleika. En iðnaður þessi er ekki starfræktur lengur nema að sáralitlu leyti. Frystihúsin og þurrkhúsin standa auð og ónotuð, verkafólkið hefur ekkert að gera, en togararnir sigla með afla sinn fram hjá landinu til Danmerkur, og síðan eru Danir látnir um að salta hann og pakka og hirða verulegan hluta þess gjaldeyris sem íslendingar gætu aflað. Ástæðan til þessa furöulega glæpsamlega öfugstreymis er eins og allir vita lánsfjárbann ríkisstjórnarinnar og bankanna. Framleiðendur hafa ekki — jafnvel þó auð- ugir séu að eignum — lausafé handa á milli til að græöa á þvi að fullvinna aflann innanlands! Þetta er vissulega ráðsmennska sem tekur út yfir allan þjófabálk, og svo leyfir landsfundur Sjálfstæðisflokksins sér að tala um umhvggju sína fyrir iðnaöinum. Önnur mikilvæg grein iönaöarins er sú sem fram- leiöir ýmiskonar nevzluvörur handa landsmönnum sjálf- um. Einnig verulegur hluti þessa iðnaöar er vel búinn tækni og samkeppnisfær við samskonar starfrækslu er- lenda. En hvernig er ástandið nú í þessari mikilvægu at- vinnugrein, undir forustu Sjálfstæöisflokksins?: Um síðustu áramót var tala starfandi verkafólks í Reykjavík á vegum Iðju og Félags íslenzkra iðnrekenda um 1000 manns. Um næstu áramót munu aðeins veröa starfandi 5—600 manns við þennan iðnað. Á Akureyri hefur slíku iðnáðarverkafólki fækkaö um fjórðung á þessu ári og mun auk þess í vændum stór- felld fækkun ennbá í lok ársins. Einstakar iðngréinar, eins og skóiðjan í Reykjavík, eru að heita má horfnar. í henni voru starfandi 120 manns í byrjun ársins, en munu verða 10 í lok þess. í ullariðnaðinum mun verkafólki fækka um %—% á árinu. í prentsmiðjum eru þegar hafnar og yfirvofandi stór- felldar uppsagnir á starfsfólki, og þannig mætti lengi telja, eina starfsgreinina af annarri. ★ Þetta er engin tilviljun, heldur afleiðing markvissrar, gerhugsaðrar stefnu. Lánsfjárbannið bitnar mjög hart á létta iðnaðinum, og í þokkabót er enn haldiö uppi inn- flutningehöftum á nauösynlegu hráefni til þess að kverka- takið sé algert. Á sama tíma er svo heimilt aö flytja inn ótakmarkaö magn af fullunnum erlendum iönaöarvörum og verzlunum heimilað að selja þær með ótakmarkaðri á- lagningu , þótt hámarksálagning sé á hinni innlendu framleiðslu, en það veldur því að verzlanir kjósa fremur að verzla með hina erlendu vöni en innlendu. Og síðast en ekki sízt bitnar skipulagning fátæktarinnar á alþýðu- heimilunum mjög á hinni innlendu neyzluvörufram- leiðslu. Allt eru þetta afrek og sérstök stefnumál Sjálfstæðis- flokksins, enda hældi Ólafur Thors eér af því á lands- fundinum að nú réði íhaldið-öllu. Og svo halda þessir menn að. þeir geti leyft sér að halda uppi innantómu oröagjálfri um umhyggju sína fyrir þeim iðnaði sem þeir em sjálfir að muxka úr lífið! ‘j. Hallvard Magcröy, sendikennari flytur fyrirlestur' í I. kennslustofu háskólans fimmtudaginn 15. nóv. kl. 8.15 e.h. Efni: „Hovuddrag i Herman Wildenvey’s lyrikk". Öllum er heimill aðgangur. rrrrn rt rt itritrr Anægjulegt þing Allir sem sátu hið nýafstaðna þing Sósíalistaflokksins eru sammála um það, að það sé eitt hið ánægjulegast.a og merkasta þing, sem flokkurinn hefur háð alllt frá stofnun sinni 1938. Þetta þing var haldið við nýj- ar og óvenjulegar kringuum- stæður. Landið er hernumið af framandi stórveldi og borgar.a- flokkarnir allir hafa gerzt op- inber handbendi og málalið hins erlenda ofbeldisrikis. Samtimis er fyrir forgöngu hins banda- ríska auðvalds þrengt svo að íslenzku athafnalífi, atvinnu- framkvæmdum 0? framleiðslu að við landauðn liggur víða ura land. Örbirgð atvinnuleysis og bjargarskorts er að hefja irm- reið sína að nýju á þúsuudir íslenzkra alþýðuheimila, á sama tíma og þjóðin ræður yfir fieiri og afkastameiri framleiðslu- tækjum en nokkru sinni fyrr í sögu sinni. Atvinnutækin eru ekki nýtt nema að litlu leyti, ekki framleitt nema brot af því sem hægt væri að framlelða, vegna þess að hin dauða hönd lánsfjárkreppunnar. tilbúi uiar og fyrirskipaðrar að vestan, hvílir af öllum þunga á fram- leiðslu þjóðarinnar. ★ Leiðin út úr ógöngunum Þing Sósíalistaflokksins ræddi ýtarlega þau margháttuðu vandamál sem steðja að þjóð- inni um þessar mundir. Og þingið ræddi ekki síður á hvern hátt væri unnt að brjóta hlekki hinnar bandarísku kúgunar af athafnalífi landsmanna og skapa þjóðinni almenna velmeg- un og batnandi lífskjör í stað þeirrar niðurlægingar og eymd- ar, sem nú blasir við sé ekki breytt um stefnu og markmið í tíma. Leiðin sem flokksþingið bendir þjóðinni á, er þjóðfylk- ing allra framfarasinnaðr'a Is- lendinga, sem vilja berjast fyrir sjálfstæði íslands og gegn þeim ..— - .._ jj, ir af Sósíalistaflokknum og við lienni varað. Reynslan hefur sannað þjóðinni að flokkurinn sá rétt og sagði sannleikann um hvert það leiddi að sýna svik- ulum forsprökkum bandarísku flokkanna þann trúnað, sem hefur gert þeim fært að svikja sjálfstæði landsins og stefna efnahagslífi þess í öngþveiti og niðurlægingu. ★ . Fram til nýrra sígra Fulltrúarnir á áttunda flokks- þingi Sósíalistaflokksins halda nú hver til sinna heimkynna staðráðnir í því að hefja nýja og öfluga sókn á öllum vig- stöðvum í starfi og baráttu flokksins, verkalýðsstéttarinnar og þjóðarinnar í heild. Þeim er ljóst, ekki sizt eftir þetta flokks þing, að möguleikarnir eru miklir og verkefnin stórvaxin sem flokksins biða- En einhuga flokkur, eins og Sósíalistaflokk- urinn, getur lyft Grettistökum, enda hefur liann oft sýnt það þegar mest hefur á riðið að hann er hlutverki sinu vaxinn. Sú bjartsýni seiti einkenndi hið nýafstaðna þing mun móta allt starfið í flokksfélögunum ’á næstunni og verða þeim sú lyfti- stöng, sem með þarf til þess að herða sóknina að því marki sem flokksþingið setti sér : Að skapa nauðsynl'ega forsendu fyrir nýrri og öflugri sókn Is- lendinga til þjóðfrelsis og vel- megunar. _____ it Ríliisskip Hekla fer frá Reykjavík um há- degi i dag austur um land í hring- ferð. Esja er væntanleg til Reykja yyf , Kl. 18.00 Frönsku- 1^. kennsla; I. fl. 19.00 Þýzkukennsla; II. »X y-fl. 19.25 Þing-frétt- -\ \ ir. — Tónleikar. 20.30 .Útvarpssag- an: „Morgun lífsins" eftir Krist- mann Guðmundsson (höfundur les). — I. 21.00 Kórsöngur: Vínar- drengirnir syngja. 21.15. Upplest- ur: Ljóð úr ieikritinu „Draumur dalastúlkunnar” eftir Þorbjörgu Árnadóttur (höfundur les). 21.35 Vettvangur kvenna. — Erindi: Kynni mín af landi og þjóð (frú Gréta 'Ásgeirsson). 22.10 „Fram á elleftu stund”, saga eftir Agöthu Christie; VIII. (Sverrir Kristjáns- son sagnfi-æðingur). 22.30 Svavar Gests kynnir djassmúsik. 23.00 Dagskrárlok. Næturvörður er i Ingó'fsapóteki. — Simi 1330. ‘HTfc'JBtjr Fundur kl. 8,30 i kvöld “® á venjul. stað. Stundvísi. •<$— g] laugardag opin- beruðu trúlofun sina, ungfrú Hek ena Magnúsdóttir, Sauðárkróki og Agnar Sveinsson, tti ' Sauðárkróki. Forseti fslands hefur sæmt Pálma Hannesson rektor mennta- skólans í Reykjavík riddarakrossi fálkaorðunnar. Saga Isleiidinga í Vesturheimi Út er komið 4. bindið af Sögu Islendinga í Vesturheimi. Þjóð- ræknisfélag Islendinga vestan hafs gaf út 1.—3. bindi þessa ritverks á árunum 1940-—’45. Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur frá öndverðu ánnazt að- alútsölu þessara þriggja binda hér á landi. — Árið 1948 voru horfur á að útgáfa þessa sér- stæða sagnfræðiverks tcfðist eða félli niður, m. a. vegna erf- iðleika, sem voru á þvi, að hægt væri að greiða Þjóðræknisfélag- víkur í dag að vestan úr hring- ferð. Herðubreið var væntanleg til inu l erlendum gjaldeyri þau seigdrepandi einokunarfjötrum, Reykjavíkur í morgun að austan eintök sögunnar, sem seldust er ís'enzkt atvinnu- og fjár- og norðan. Skjaldbreið er í Reykja hér. — Útgáfunefnd Þjóðrækn- málalíf hefur verið lagt í fyr- vík. Þyrill er á-Vestfjörðum á norð isfélagsins æskti þess þá, að ir atbeina bandarísks auðvalds urleið. Ármarra fer frá Reykjavík Menntamálaráð héldi Afram út- og með fulltingi innlendra leppa síðdegis í dag tii Vestmannaeyja. gáfu gögunnar. Menntamálaráð þess og erindreka. Þinginu var ljóst áð því aðeins að takast megi að fylkja sívaxandi fiölda þjóðarinnar gegn fjötrunum og kúguninni en fyrir frelsi og framförum í landinu, getur Is- lendingum verið lífs auðið í bsss orðs eiginiega skilningi. Þess vegna fól þingið forustu flokksins að vinna að því af efldum krafti og auknu áræði að f.ylkjn saman öllu því ís- lenzku fólki, sem ann íslandi og frnmförum þess, hvar í flokki eða stétt sem það kann að standa. ★ Flokkur í sókn Áttunda þing Sósíalistaflokks ins bar það greinilega með sér að fulltrúarnir voru sér þess meðvitandi að flokkurinn hefur ekki aðeins unnið það þrekvirki að halda velli og standa af sér sameiginlegar árásir mar- sjallflokkabandalagsins, heldur er hann nú kominn í öfluga og markvissa sókn um allt land. Stefna flokksihs í vandamálum dagsins og höfuðþjóðmálum öll- um er í svo lífrænu samhandi við brýnustu hagsmuni a'þýð- unnar og þjóðarinnar, í heild að þar verður ekki í miili skil- ið. Öll sú öfugþtróun, sem hér á sér stað undir liugsjóna- lausri ieppstjórn bandarísks auðyalds, hefur; verið; sögð fyi’; Skipadeild SIS Hvassafell er í Hafnarfirði. Arn- arfell er í Hafnarfirði. Jökuifeli fór frá N. Y. 9. þm. áleiðis til R- víkur. EIMSKIP: Brúarfoss fór frá Akureyri síð- degis í gær 13.11. til Dalvíkur, Hríseyjar, Ólafsfjarðar og Austfj. Dettifoss er í Hamborg, fer þaðan til Rotterdam, Antverpen og Hull. Goðafoss er á Patreksfirði fer þaðan i dag 14.11. til Akraness og Reykjavíkur. Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn á hádegi í gær 13.11. til Leith og Reykjavíkur. Lagai'foss kom til N.Y. 8. þm. frá Reykjavík. Reykjafoss er i Ham- borg. Selfoss kom til Huii 12.11. fer þaðan til Reykjavíkur. Trölla- foss fór frá Reykjavík 9.11. til New York. Fiugfélag íslands: t dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Vestmannaeyja, Helli- sands, ísafjarðar og H'ólmavíkur. — Á morgun eru áætlaðar flug- ferðir tii Akureyrar, Vestmanna- eyja, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarð ar, Blönduóss og Sauðárkróks. Loftleiðir h.f.: 1 dag verður flogið/til Akureyr- ar, Hólmavíkur, tsafjarðar og Vestmannaeyja. — Á morgun er áætlað að fijúga til Akureyrar og Vestmannaeyjá. Næturlæknlr er í læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum. — Sjmi 5030. taldi rétt að verða við þessum óskum og voru til þess fyrst og fremst tvær ástæður: Marg- ir höfðu þegar keypt hin Jþrjú bindi sögunnar og áttu fiví að vissu leyti rétt á að fá tækifæri til að eignast þau bindi, er eft- ir voru- Menntamálaráð taidi sér enn fremur skylt, að greiða fyrir því eftir beztu getu, að landnámssaga íslendinga vest- an hafs yrði öll rituð og prent- uð, svo sem fyrirhugað hafði verið, og merkum og margvís- legum fróðleik þar með bjargað frá glötun. Menntamálaráð á- kvað því að gefa út þau tvö bindi sögunnar, sem eftir voru, en gert hafði verið ráð fyrir því, að hún yrði alls í fimm bindum. — Þorsteinn Þ. Þor- steinsson, rithöfundur samdi þrjú fvrstu bindi sögunnar. Var því fyrst leitað til hans um að semia framhaidsbindin, en hann óskaði ekki áð takast það á hendur. Menntamá'aráð réði þá dr. Tryggva J. O'eson, prófessor við Manitoba-háskóla, tii að liafa umsjón með að’ semja þau tvö bindi, sem eftir voru. Fjórða bindið er nú komið út. Það er 423 bls- að st.ærð í sama broti og fyrri bindin, — Það er í þremur höfuðbáttum, er nefnast: Argylenýiendan, lumdúnabyggðin og Winnipeg- íslenðiagfuv>>— .Mwgwr (ísteflfc.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.