Þjóðviljinn - 15.11.1951, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. nóvember 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3:
Haraldur Jóhannsson:
LÍNUR FRÁ LUNDÚNUM:
BREZKU K0SNIN6ARNAR III
Hinn nýi „sósía3ismi“
Verkamannaflokksins.
Þótt kosningaávarpi flokks-
ins væri lítt hampað, hélt
Verkamannaflokkurinn öðrúm
bæklingi mjög á loft, Réttlát'u
þjóðfélagi, eftir John Strachey,
stríðsmálaráðherra, er var rit-
aður til sóknar og vamar
Verkamannaflokknum 1951.
Val höfundarins orsakar þó
tvímælis. Straehey á einstæðan
feril að baki sér. Alþjóðlega
frægð gat hann sér fyrir sígild-
ar bækur sínar' um hlutverk
þau, sem sósíaldemokratar
gegna nú orðið í stjórnmálum
vesturlanda, en í þeirri merk-
ustu þeirra, Komandi barátta
um völdin, segir hann á einum
stað: „Sannleikurinn er sá, að
jafnvel þær ihreyfingar upp-
reistar verkalýðsins, er alþýðan
hefur hægt og bítandi og með
erfiðismunum skapað sér um
hálfrar aldar skeið, hafa nú
snúizt nær algerlega í lið með
auðvaldinu, Fjarri því að vera
verkalýðnum stoð og stytta í
líísbaráttu hans, eru þær nú
orönar langmesta tálmunin á
ieið hans til skjótunnins sig-
urs.“ (bls. 338).
Og eins og góðum sósíalista
sæmir, lætur Strachey orð og
verk haldast í liendur. Senni-
lega er það til að sanna kenn-
ingar sínar á sjálfum sér sem
tilraunadýri, c/ns og sagt hefur
verið um hann, að ihann gengur
nú erinda auðvaldsins.
Þjóðfélagslegt réttlæti kveð-
ur hann vera takmark Verka-
mannaflokksins. (Kann nokkur
að nefna þann flokk, sem ekki
hefur þótzt berjast fyrir þjóð
félagslegu réttlæti ekki síður
en friði?). Með þjóðfélagslegu
réttlæti á hann við, að upp-
sprettur auðs án vinnu verði
skertar, en þó ekki upprættar,
þar eð „brezka þjóðin kann að
vilja halda við um ófyrir-
sjáanlega framtíð nokkrum
kvíslum tekna án vinnu.“ Síðan
er vikið að því, að þjóðnýting-
ar sé ekki lengur þörf:
„Hægfara þróun í átt til
sósíalisma mun eiga sér stað,
ekki með því að gera litinn
hiuta hagkerfis landsins að
þjóðareign, heldur með því að
veit álum þjóðarreksturs inn
í hagkerfið í heild“. Átt er
við ríkisrekstur á afmörkuðum
sviðum, einsog t. d. samgöngu-
kerfi Lundúna, mjólkureinka
sölunni, og sennilega ríkisrekst-
ur fyrirtækja til þess að keppa
við einkafyrirtæki. Slikar stofn
anir eiga í sjálfu sér ekkert
skylt við sósíalisma. Eins og
Engels benti á, þegar svipaðar
skoðanir voru uppi á teningn-
um í Þýzkalandi, er Bismark
hóf íhlutun ríkisins um atvinnu
mál, mætti telja Napóleon og
Metternich meðal brautryðj-
enda sósíalismans, ef t. d. ríkis-
einkasala á tóbaki væri spor í
átt til hans.
Með þessu Imóti hyggst
Verkamannaflokkurinn koma á
jafnaðri skiptingu þjóðartekn-
anna. Máli sínu til stuðnings
vitnar Strachey í „Hvíta bók
um þjóöartekjur og gjöld 1946
—1950“. Samkvæmt henni hafa
breytingar á skiptingu þjóðar-
teknanna átt sér stað alþýð-
unni í vil síðan Verkamanna-
flokkurinn komst til valda.
En í þeim útreikningum er
ekki gert ráð fyrir óbeinum
sköttum- Ef þeir eru teknir
með i reikninginn, verður nið-
urstaðan hins vegar þessi sam
kvæmt útreikningum Labour
Research Department:
Skipting brezku þjóðartekn
f -MjO 1
íííi
Forsætisráðherra Irans biður Nahas Pasha, forsætisráðherra
Egyptalands, að fyígja dæmi sínu í sldptum við brezka ljónið.
(Teikning eftir Illingworth í ,,Punch“).
anna eftir skattgreiðslu, beint
og óbeint. (I hundraðstölum).
Laun og 1938 1946 1949 1950 af Churchill, hafi öllu öðm
máli 35 47 45 43 fremur komið í veg fyrir, að
Tekjur Ihaldsflokkurinn bæri rauu-
af auði verulegan sigur af hólmi í
og arður 43 32 33 35 kosningunum. Sá var hlutur
Öllum helztu blöðum landsins
og brezka útvarpinu kom sam-
an um, að ófriðarorð það, er fór
Eins og af þessu má sjá, átti
endurskipting þjóðarteknanna
sér stað á stríðsárunum.
Það er því sönnu nær áð f jár-
málastefna Verkamannaflokks-
ins hafi ekki komið í veg fyr-
ir, að skipting þjóðarteknanna
snerist aftur alþýðunni í óhag.
Hitt er hins vegar ekki vafa-
má!, að fljótlega hefði sótt í
sama horf og 1938, ef íhalds-
flokkurinn hefði farið með völd.
En jafnvel þó það, sem á
hefur unnizt frá 1935, er í
hættu. Strachey heldur áfram:
„Við munum, að ég er hræddur
um, komast áð raun um í árs-
lok, að áhrif (verðbólgunnar)
hafa snúið við, að nokkru leyti
að minnsta kosti, þeirri endur-
skiptingu þjóðarteknanna, er
við höfum fengið áorkað.“ Ekki
eru umbætur sósíaldemokrata
varanlegri en það.
Kosningabókin og
friðurinn
Um utanríkismál og endur-
vígbúnað er furðu hljótt í bæk-
lingi Stravheys. Ekki er heldur
minnzt á vígbúnaðinn, kjarn
orkusprengjuna, né stríðið
Kóreu. íhaldsflokkurinn er aft-
ur á móti ekki eins fátalaður
um þau mál- Olíudeilan og upp-
sögn Egypta á brezk-egypzka
samningnum frá 1936 urðu
meðal helztu kosningamála
hans.
Leikur það á tveim tungum,
hvort þessi mál hafa orðio
honum til framdráttar. Eden
og Salisbury lávarður tóku þnu
mjög óstinnt upp og kröfðust
þess, að Bretar tækju olíu-
bæinn Abadan herskildi. Það
mæltist yfirleitt illa fyrir uö
sýndi fram á |sannleiksgilcii
þess málflutnings kommúnista,
að friðnum væri hætta búin
af íhaldsflokknum. Vinstri ann-
ur Verkamannaflokksins tók
sama strenginn og síðan flokk-
uriun allur. Stefnuyfirlýsinga
flokksins var meira að segja
gefið heitið: „Fyrsta sky'.da
vor: friðun“ — þótt friðurværi
þar vart nefndur á nafii'
kommúnista í kosningabarátt-
unni.
Skömmu fyrir kosningarnar
barst samt hvalreki á strendur
Ihaldsflokksins. Manchester Gu-
ardian, hið gamla og forðum
mikla, frjálslynda stórblað,
komst yfir bréf, er fóru milli
Persakeisara og brezka utan-
ríkisráðuneytisins- Af þeim varð
ráðið, að brezka stjórnin rauf
samningaumleitanirnar án þess
að raunveruleg ástæða væri
fyrir hendi og birti upplogna
greinargerð um málið. Áður var
vitað, að brezka stjórnin reyndi
þráfaldlega að fara á bak við
persnesku stjórnina og semja
beint við keisarann. — Miðaði
Morrison þannig stefnu sína við
það að bola Mossadegh frá.
Þegar það tókst ekki var ósig-
ur vís. En sér grefur gröf þótt
grafi. — Manchester Guardian
réðst síðan heiftarlega á stjórn
ina og einkum Morrison, sem
raunar var þó úti á reginhafi,
er þetta gerðist. Hafa þær
árásir vafalaust haft talsverð
áhrif á frjálslynda kjósendur
sem voru í odda-áðstöðu í
kosningunum, eins og fyrr var
sagt.
Kosningadagurinn
1 samanburði við það sem
við eigum að venjast á íslandi,
fara brezkar kosningar rólega
fram. Þær fara fram á virk-
um degi og sinna allir vinnu
sinni að vanda, en bregða sér
frá stutta stund til þess að
kjósa. Fáir bílar sjást með
merlci flokkanna, og þéir sem
bera merki fiokkanna eru ekki
margir. I gluggum sjást þó
sumsstaðar myndir frambjóð-
enda og kjósið flokkana.
Mikið þykir velta á þvi,
hvernig viðrar kosningadaginn.
Sá bjart veður og fagurt má
vænta mikillar kjörsóknar, sem
almennt er talið vera Verka-
mannaflokknum i vil. I þetta
sinn er hann hinn ákjósanleg-
asti. Þokuslæöingnum, sem iá
yfir suðurhluta landsins árla
morguns létti fyrir hádegi og
Framhald á 7. síðu,
ísland í hernaðarbandalagi
við fasistaríki í Asíu!
Með 32 atkv. samþykktu bandarísku flokkarnir
aðild Grikklands og Tyrklands að Norður-
Atlanzhafssamningnum í j
Þingmenn bandarísku flolikanna 32 að tölu, afgreiddu í
gær endanlega frá Alþingi þingsályktunartillögu um að ísland
gangi í hernaðabandalag við tvö fasistaríki Grikkland og Tyrk--
land.
Samþykktin varðaði aðild þessara ríkja að Noröur-
Atlanzhaíssamningi (!) enda þótt annað þeirra sé að megin--
liluta í Asíu!
Einn þingmaður stjórnarflokkanna, Páll Zophóníasson,
greiddi ekki atkvæði.
Móti tillögunni greiddu einungis atkvæði þingmenn Sósíal--
istaflokksins.
Þrefalt hefti af LÍF og LIST
með nýrri sögu eftir Ástu Sigurðardóttur
Nýtt hefti af Lífi og list er
nýkomið út. Er þetta þrefalt
hefti fyrir mánuðina ágúst,
september og október en kemur
í einu lagi vegna dvalar ritstj.
erlendis.
Flytur það kvæði og teikning-
ar eftir Kjarval, grein um Lax-
nes og Nils Hellenes. Alpa-
ljóð, sögu, eftir Hemingway,
greinina Æskuljóð fulltíða
skálds eftir Leif Haralds, grein
um Austurvöll eftir Kjarval,
grein um sýningu Haröar Á-
gústssonar eftir ritstj., Rit um
sögu fauvismans, Síðgotungur
um list sem gíeymist, eftir
Drífu Thoroddsen. Að gera
ekki neitt, sögu eftir Priestley,
Gata í regninu, ný saga eftir
Ástu Sigurðardóttur, en jafn-
framt boðuð eftir hana ný bók.
Þá eru greinar um gamanleik-
inn Dóra, svo og kvikmyndir
og ritstj. skrifar Stiklað á stóru
frá París og víðar. Nokkur
kvæði eru í heftinu, ennfremur
þátturinn kaffihúsarabb. Á for-
síðu er konumynd eftir franska
málarann Manet.
Ný bók
Læknir af lífi og sál heitir
ný bók sem blaðinu hefur bor-
izt. Höfundur er bandarísk
kona, Mary Roberts Rinehart
að nafni; þýð. Andrés Krist-
jánsson, útgefandi Setberg-
Bókin er nær 500 bls. í stóru
broti. Efnisútdráttur fylgdi sög
unni til blaðsins. Er aðalper-
sónan læknir, eins og nafnið
gefur líka til kynna, en sögu-
þráðurinn spunninn af störfum
hans, erfiðleikum, ástum — og
lokasigri.
ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR
Kvöldvaka I0GT
er í kvöld
Góðtemplarareglan hefur uncl
anfarin kvöld efnt til fræðslu-
og skemmtikvölda í Góðtempl-
arahúsinu. Hófst fyrsta fræðslu
kvöldið s.l. mánudagskvöld. en
það síðasta verður í kvöld. I
kvöld flytur Njáll Þórarinsson,
ávarp, kvartett syngur, Þor-
steinn Þorsteinsson, kaupmað-
ur og Indriði Indriðason fullr-
trúi flytur stuttar ræður, Guð-
mundur G. Hagalín rithöfundur-
les upp nýja frumsamda sögu.
Þá er leikþáttur og Ari Gísla-
son kennari flytur lokaorð;
Hljómsveit leikur í upphaíi
fundarins og milli atriða. Öll-
um heimill ókeypis aðgangur.
s L.S.Ú. um söluskattinn:
Afmmtdir verði skattar vegna
fiskábyrgðarinnar
— eða leifar þéirra nofaðar til að lækka
i kaupgjaldsvísitöluna!!
Landsfundur L.I.U. samþykkti eftirfarandi varð-
andi söluskattinn:
„Aðalfund'ur L.I.Ú. telur óeðlilegt að innhejmta þá
skatta, sem á voru lagðir vegna fiskábyrgðarinnar, þar
sem liún er nú úr sögunni og skorar því á alþingi að
afnema þá svo fljótt sem verða má. Verði eitthvað af
þeim innheimt áfram, þá verði það fé notað til niður-
greiðslu á þeim nauðsynjum almennings, sem mest á-
hrif liafa á kaupgjaldsvísitöluna. Þá telur fundurinn
brýna nauðsyn á því, að alþingi gæti fyllsta sparnaðar
á rekstri þjóðarbiisins.“