Þjóðviljinn - 15.11.1951, Síða 4

Þjóðviljinn - 15.11.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 15. nóvember 1951 — ÍIIÓÐVILIINN Útgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fróttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig lö. — Simi 7500 (3 línur). Aakriítarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Samningar borgarstjérans Atvinnuleyísisskráningin sem fram fór um mánaða- mótin síðustu sýndi aö' a. m. k. 270 menn eru atvinnu- lausir í Reykjavík og aö þeir hafa 228 börn á framfæri sínu. Samtals náði hið skráöa atvinnuleysi til 618 ein- staklinga. Mikiö vantaöi þó á aö allir sem atvinnulausir eru mættu til skráningar, því réöi rótgróin andúð á Ráöningarstofu íhaldsins og vantrú á aö nokkuð fengizt að gert til úrbóta. Þetta ástand hrópar á aögerðir. Sulturinn og alls- leysið er óhjákvæmilegt hlutskipti þess verkamannaheim- ilis, sem býr viö atvinnuleysi í þeirri ægilegu dýrtíð sem afturhaldið hefur leitt yfir þjóðina. Verkalýðssamtökin hafa gert sínar kröfur og bent á auövelda og sjálfsagða leið til lausnar á vandanum. Verkamannafélagið Dagsbrún hefur krafizt þess að tog- ararnir leggi afla sinn upp hér og skorað á bæjarstjórn að hafa forgöngu um þetta og nýta þannig þá mögu- leika á aukinni atvinnu og framleiðslu, sem frystihúsin og verkunarstöðvamar í bænum búa yfir. ★ Þegar þessi krafa Dagsbrúnar var borin fram í bæj- arstjórn af Hannesi Stephensen svaraöi borgarstjóri íhaldsins því til að þetta væri mál sern hann og togara- eigendur væru aö vinna aö, og flutningur tillögunnar vm það í bæjarstjórn því óþarfur. Lét borgarstjórinn leikbrúöur sínar vísa framborinni tillögu frá á þeim forsendum. Y Síöan er liðinn hálfur mánuöur og enn bólar ekkert á lausn málsins. Ekkert hefur heyrzt um samninga borg- arstjórans og frystihúsanna. Enn ganga hundmö reyk- vískra verkamanna atvinnulauisir og heimili þeirra eru bjargarlaus mitt í ægilegustu dýrtíð, sem yfir íslenzka alþýöu hefur gengiö. En borgarstjórinn er rólegur og er vafalaust alltaf aö semja! ;v r? Það hefur áöur komið glöggt í Ijós, að þaö getm' tekiö borgarstjóra íhaldsins býsna langan tíma aö semja þsgar lífshagsmunir reykvískra alþýðuheimila eru annaris vegar. Það tók borgarstjórann ekki skemmri tíma en röska tvo mánuði að „semja“ einn gamlan togara á veiðar í atvinnuleysinu mikla í fyrra vetur! En meöan borgarstjóri íhaldsins afsakar aögeröa- leysi sitt og flokks síns með því að hann standi í samn- ingum um að togararnir leggi upp afla sinn í frystihúsin og atvinnulausum mönnum þannig skapaðir lífsmögu- leikar, sverfur skorturinn æ sárar og sárar að heimilum etvinnuleysingjanna. ÞaÖ er því krafa verkalýösins að athafnir komi tafarlaust í staö afsakana og blekkinga. ÞaÖ eru engin rök til fyrir því aö togaramir haldi áfram aö sigla meö afla sinn út óunninn meðan atvinnuskort- urinn herjar heimili verkamanna. Þaö er ekkert auöveld- ara en útrýma atvinnuleysi reykvískra verkamanna meö því aö láta ca. 5 togara leggja aflann hér á land til verk- unar. Og það er auðvelt fyrir bæinn að láta sína eigin togara leysa vandann og það ber honum að' gera án tafar og undanbragðalaust. ★ Verkamenn eru ráönir í þvf nú að láta ekki leiða skortinn og allsleysiö yfir heimili sín þegjandi og hljóöa- laust. Ganga tijl Björns Ólafssonar getur endurtekist í annami og stækkaðri mynd og þarf aö gera þaö geti ekki annað vakiö forráðamenn bæjarins af svefni. Kraf- an um atvinnu verður borin fram af fullri alvöru og sívaxandi þunga þar til undan veröur látið og hverjum manni fengið verk að vinna. Dúfnadrápið. i— J. Ásg. skrifar: „Ef gengið er meðfram tjörninni við Von- arstræti bregst það varla að maður sjái þar börn og ung- linga að gefa fuglunum brauð o. fl. bæði öndum og dúfum. Eru börnin mjög ánægjuleg og broshýr að sjá þegar fuglarnir fljúga til þeirra til þess að tína brauðmola. Ég varð því ekki lítið hissa, þegar ég heyrði að farið væri að drepa niður dúf- urnar, þessa skrautlegu og yndislegu fugla, þessa fugla sem eru orðnir eins konar hluti af þeim börnum og ung- lingum, sem umgangast þá, gefa þeim eða beinlínis ala þá upp sér til skemmtunar og sálu- bótar. Hvað taka þeir til bragðs? Einhver hollustu og þroska- vænlegustu uppeldisáhrif á börn eru þau að umgangast dýrin. Og sérstaklega er þess þörf í kaupstöðum, þar sem lítið eða ekkert er af húsdýr- um. Ég vildi beina þeirri spurn- ingu til þeirra sem ráða slíkum hlutum sem að láta drepa niður dúfurnar hér í Reykjavík, hvort þeir hafi gert sér það fyllilega Ijóst, hvaða ábyrgð þeir taka á sig með slíkum aðgerðum gagnvart æskulýðnum í bænum. Hvað taka þeir unglingar til bragðs, sem sviftir eru ánægj- unni af því að gefa dúfunum og umgangast þær? I flestum tilfellum munu þeir leita sér skemmtana á þeim vettvangi sem óhollari er og getur jafn- vel leitt þau út á glapstigu. Hór er beinlínis verið að vega að einum mikilvægasta menn- ingar- og uppeldisþætti í bæj- arlífi Reykjavíkur. spennum kostaði 90 aura í verzlun upp á Skólavörðustíg, en þar voru 12 spennur í bréf- inu. M. ö. o.: Hefði cg keypt spennurnar' í Bankastræti hefði ég fengið 11 fyrir kr. 2,75 en fékk 36 fyrir lægri upphæð af því ég keypti spennurnar í verzluninni á Skólavörðustígn- um. Af þessu má öllum vera ljóst að almenningi ber að við- hafa fyllstu aðgætni í innkaup- um sínum og gæta þess eftir föngum að láta ekki verzlan- irnar féfletta sig. Margar verzl- anir virðast hafa svo ríka til- hneyingu til að okra á fólkinu að nauðsynlegt er að vera á verði og gæta þess að sniðganga þær þeirra, sem uppvísar eru að því að stunda rán í stað heiðarlegrar vörudreifingar og viðskipta. — Maggh.“ ★ Nætui’vörður er í Ingó'fsapóteki. — Sími 1330. Næturlæknlr er í læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum. — Sími 5030. Illáa rltið, 7. hefti er komið út. Ritið flytur ýmsar skemmtisögur og skrítlur. Ný framhaldssaga hefst í þessu hefti, nefnist hún „Sigur að lokum", og er eftir Vicky Baum. Krabbameinsfélagi Reykjavíkur hafa borizt eftirfarandi gjafir til kaupa á geislalækningatækjum: Frú Valgerður og Frímann Tjörfa- son, Reynimel 48 minningargjöf um dóttir þeirra Bjarnheiði kr. 1000,00 Almennar Tryggingar h. h., kr. 2000,00., kennarar í Miðbæj- arskólanum kr. 735,00 og A.H. á- heit kr. 50.00. — Innilegar þakkir færi ég öllum gefendunum. f. h. Krabbameinsfélags Reykjavíkur Gísli Sigurbjörnsson, gjaldkeri. i I j Hjónunum Huldu Ólafsdóttur og Jón ^ asi Hallgrímssyni, Dreifðar lun allan bæinn. Foreldrar barna þeirra og unglinga, sem hér eiga sér- staklega hlut að máli og hafa haft mikla ánægju af því að umgangast fuglana, ættu að skrifa áskorun og birta i blöð- unum, til þeirra sem hafa aðal- lega staðið að og ráðið þessu dúfnadrápi, um að því sé taf- arlaust hætt og sýna fram á það um leið, hvað slíkar að- farir geti haft alvarlegar af- leiðingar í för með sér fyrir ihina uppvaxandi kynslóð þessa bæjar. Sumir myndu kannski segja að nóg sé af fuglum á tjörninni þó dúfurnar hverfi í bænum, en það er engin afsök- un vegna þess að fjöldinn allur af börnum sem eiga heima langt frá miðbænum, koma sjaldan eða aldrei að tjöm- inni, en aftur á móti eru dúf- urnar hér og hvar út um allan bæ og börnin eiga því kost á að umgangast þær daglega og gera það, en vitanlega tekur það nú enda ef meiningin er að drepa niður alla þessa fallegu fugla. — J. Ásg.“ Rán í stað heiðarlegrar vörudreifingar. Magga skrifar: „Það er ekki ofsögum af því sagt að verð- lagið er misjafnt í búðunum, um það gekk ég úr skugga í gær þegar ég þurfti að kaupa mér spennur í hárið. í verzlun niður í Bankastræti kostaði bréf með 4 spennum 1 kr. en nákvæmlega sama tegund af Skipadeiíd SIS Hvassafell er í Hafnarfirði. Arn- arfell fer væntanleg-a i kvöld fiú Hafnarfirði til Spánar. Jökulfell fór frá New York 9. þm. til Rvík- ur. Ríkisskip Hekla fór frá Reykjavík í gær austur um land í hringferð. Esja var væntanleg til Reykjavíkur snemma í morgun að vestan úr hringferð. Herðubreið fer frá R- vík í dag til Breiðafjarðar og Vestfjarða. Skjaldbreið er í R- vík; fer þaðan á laugardaginn til Húnaflóahafna. Þyrill var á Vest- fjörðum í gær á norðurleið. Ár- mann fór frá Reykjavík í gærkv. til Vestmannaeyja. Eimsklp Brúarfoss fór frá Ólafsfirði um hádegi í gær til Hríseyjar og Austfjarða. Dettifoss fer frá Ham- borg í dag til Rotterdam, Ant- werpen og Hull. Goðafoss fór frá Patreksfirði í gær til Akraness og Reykjavíkur. Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn 13. þm. til Leith og Rvíkur. Lagarfoss kom til New York 8. þm. frá Rvík. Reykja- foss er í Hamborg. Selfoss fór frá Hull í gærkvöld til Rvíkur. Trölla- foss fór frá Rvík 9. þm. til New York. Loftleiðir h.f.: 1 dag verður flogið til Akui'eyr- ar og Vestmannaeyja. — Á morg- un er áætlað að fljúga til Akur- eyrar, Hellisands, Sauðárkróks, Siglufjarðar og Vestmannaeyja. Flugfélag Islands: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Vestmanriáeyja, Reyð- arfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Biöndu óss og Sauðárkróks. — Á morgun er áætlað að fljúíga til Akureyrar, Vestmannaeyja, Kirkjubæjarklaust urs, Fagurhólsmýrar, Hornafjarð- ar og Siglufjarðar. /ff 18.30 Dönskuk.; II. fl. 19.00 Enskuk.; I. fl. 19.25 Þing- fréttir. Tónleikar. 19,40 Lesin dagski'. næstu viku. 20,20 Islenzkt mál (Björn Sigfússon há- skólabókavörður). 20.35 Tónleikar: „Mors et Vitae" (Dauði og líf), strengjakvartett eftir Jón Leifs (Björn Ólafsson, Josef Felzmann, Jón Sen og Einar Vigfússon leika), 20.55 Skólaþátturinn (Helgi Þur- láksson kennari.) 21.20 Einsöngur: Mario Lanza syngur (plötur). 21.40 Upplestur: Jón Norðfjörð leikari Ies kvæði. 22.10 Sinfónískir tón- leikar (plötur): Sinfónía nr. 3 (Eroica) eftir Beethoven (New Queen’s Hall hljómsveitin leikur; Sir Henry Wood stjórnar). 23.05 Dagskrárlok. [ V** Hólmgarði 27, fædd \. ist 15 marka dótt- ir þriðjudaginn 13. nóvember. — Hjónunum Þóru Sig- urbjörnsdóttur og Atla Ágústssyni, Suðurgötu 69. Hafnarfirði, fæddist 14 marka dóttir, föstudaginn 19. þ.m. — Hjónunum Brynju Borg Þórsdóttur og Júlíusi Helgasyni, Skúlaskeiði 14, fæddist 15 marka. sveinbarn, fimmtudaginn 8. þ.m. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Hólmfriður Pálsdóttir, skála við Kaplaskjólsveg og Páll Sigurðs- son, Nauteyri við Isafjarðardjúp. Náttúrulfekningafélag Reykja- Víkur heldur fund i Guðspekifé- lagshúsinu, Ingólfsstræti 22, fimrritudaginn 15. nóvember 1951 kl. 20.30. Fundarefni: Viggó Nat- hanaelsson sýnir fræðslukvikmynd ina meltinguna. Sextíu ára er í dag Sigríður Guðmundsdóttir frá Stapaseli Guðmundsdóttir frá Blapaseli Hún dveist nú á heimili dóttiu sinnar í Skipasundi 9. Nýtí veik eSfiisf Iók Leifs verður flutt í Ríkisútvarpinu í kvöld (fimmtudag), og er það strengjakvartett um tvísöngs- lagið við vísu 'Bólu-Hjálmars „Húmar að mitt liinnsta kvöld“. Verk þetta er ætlað til flutnings á norræna tónlistar- mótinu í Kaupmannahöfn að vori komanda. Björn Ólafsson fiðluleikari hefur undanfarið æft verkið með kvartett sinum mjög rækilega til þessa fyrsta. flutnings. Sendihesra í friandi Mánudaginn, 12. nóvember afhenti Pétur Benediktsson, sendiherra, forseta írska lýð- veldisins trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í írlandi með aðsetri í París. (Fréttatilkynning frá utan- ríkisráðuneytinu). Leiðréttine: frá 1 blöíum hefur veri'ð birt tillaga, sem samþykkt var á síðasta aðalfundi Landssamb. ísl. útvegsmanna, þar sem skor- að er á Alþingi að gera ráðstaf anir til kaupa á nýjum bátavél- um. í greinarg. fyrir þessari til lögu er sagt að flestir þessara. vélarvana báta hafi verið keyptir á vegum ríkisstjórnar- innar á árunum 1946—’47. Þar sem hér er ekki rétt með farið, vill Landssambandið taka það fram, að ekki var sami'ð um kaup á vélum í þessa báta á árunum 1946—’47, heldur um haustið 1944 af utanþings- stjórninni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.