Þjóðviljinn - 24.11.1951, Qupperneq 1
Frakkar gang
Frönsku fulltrúarnir gengu
í gær af fundi verndargæzlu-
nefndar þings SÞ í París, er
fulltrúar Arabaríkjanna hófu
umræður um stjórn Frakka í
Marokkó.
Egypzki fulltrúinn rei'ð á
vaðið og kraáðist þess, að
Frakkar yrðu við kröfum Mar-
okkóbúa um sjálfstæði. — Er
franski fulltrúinn mótmælti því
að nefndin ræddi málið, stóð
fulltrúi Iraks upp og sagði, að
það væri segin saga að ný-
lenduveldin reyndu me'ð öllum
ráðum að hindra það að skýrt
væri frá óstjórn þeirra og kúg-
un á nýlendum sínum. Bar
hann fram tillögu um að nefnd-
in lýsti það innan síns verka-
hrings að ræða stjórn Frakka
í Marokkó.
Frakkar urðu undir
Franski fulltrúinn lagði þá
til, að atkvæðagreiðslu um til-
lögu Iraks yrði fresta'ð. en það
var fellt með 24 atkvæðum
gegn 17. Þá reis franski full-
trúinn á fætur og gekk út úr
fundarsalnum ásamt ráðunaut-
um sínum. Formaður nefndar-
innar s'eit þá fundi.
Laugardag'ur 24. nóvember 1951 — 16. árgangur —■ 266. tölíublað
Miðdegissamkoma
á Akureyri á
morguu
Sósíalistafélag Akureyrar
heldur miðdegissamkomu að
Hótel Norðurlandi á morgun kl.
2 e. h. — Þar segir Þórir Dani-
elsson frá tukthúsreisu sinni,
Jónas Árnason flytur Heyrt og
séð og sýnd verður kvikmyndin
Æska, heimsins.
Fyrsti árangurinn af atvinnuleysisbaráttu Dagsbrúnar:
Tveir bæjartogaranna hefja veiðar
til vinnslu í frystihúsunum
Þessum sigri í atvinnuleysisbaráttunni þarf að fylgja eftir þar til hver
atvinnulaus verkamaður hefur fengið atvinnu við hagnýt störf
Það er nú fullvíst að kröíur síðasta Dagsbrúnar-
fundar, atvinnuleysisnefndar fulltrúaráðsins og
barátta sósíalista í bæjarstjórn ber nú þegar þann
árangur, að a. m. k. tveir bæjartogaranna, Jón
Baldvinsson og Ingólfur Arnarson hefja nú um
þessa helgi veiðar til vinnslu í frystihúsunum. Mun
Jón Baldvinsson fara á veiðar í þessu skyni í dag
og Ingólfur Arnarson á morgun. •
Verkamenn og annað atvinnulaust fólk í bænum
fagnar þessum fyrsta árangri í atvinnuleysisbar-
áttunni, en hitt ber um leið að leggja áherzlu á,
að brýna nauðsyn ber til að ekki færri en 3—4
togarar í viðbót leggi afla sinn á land til vinnslu
hér í Reykjavík nú þegar til þess að skapa nægi-
lega atvinnu.
ráðs og útgerðarráðs af íha'ds
meirihlutanum. — En kröfu ’
verkalýðssamtakanna og ails
almennings hafa nú loks knúið
íhaldið til undanhalds, og því
undanhaldi ber áð fylgja fast
eftir þar til allir atvinnulausir
menn hafa fengið verk að vinna
við hagnýtingu togaraaflans.
TVÖ FRYSTIHÚS VINNA
ÚR AFLANUM
Tvö frystihús sem eru utan
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hafa tjáð sig reiðubúin
til að taka á móti togarafiski
til vinnslu. Eru það Fiskiðju-
ver ríkisins og Kirkjusandur.
Munu Jón Baldvinsson og Ing-
ólfur Arnarson leggja afla sinn
eingöngu upp hjá þeim meðan
samkomulag er ekki komið á
milli frystihúsanna og bank-
anna.
ÞAÐ SEM Á STENDUR
Síðustu dagana hefur mikið
miðað í áttina til samkomulags
milli togaraeigenda almennt og
frystihúsanna um verðið fyr-
ir fiskinn. En á hinu hefur
Framha'd á 7. síðu.
I gær var eftirfarandi sam-
þykkt í málinu gerð einróma
á fundi bæjarráðs Reykjavík-
ur:
„I því skyni að auka atvinnu
í bænum telur bæjarráð nauð-
Flugvéi bandaríska flofans
flýgur yfir Vladivosfok
Sovétstjórnin hefur kært yfir flugi bandarískrar
flotaflugvélar yfir Vladivostok.
Segir í orðsendingunni, sem
var send 10. þ. m. en birt í
Washington í gær, að vélin
hafi flogið frá Kóreu innyfir
strandhéruð Siberíu og yfir
Vladivostok. aðal hafnarborg
Síberíu og heimahöfn Kyrra-
hafsflota Sovétríkjanna.
Var vélin skotin niður?
í orðsendingu Sovétríkjanna
segir, að orustuflugvélar hafi
farið á loft og skipað flug-
manni bandarísku vélarinnar að
setjast, en er því var ekki hlýtt
hófu þær skothrí'ð. Bandaríska
vélin hvarf til hafs.
Bandaríski flotinn tók fram
í tilefni af sovétorðsending-
unni, að einnar flugvélar hans,
sem var á flugi við Kóreu,
hafi verið saknað 6. þ. m. og
leit að henni hafi engan ár-
angur borið.
synlegt, að hæfilega margir af
togurum bæjarútgerðarinnar
jeggi afia sinn á larnl til
vinnslu í Reykjavík og beinir
því til framkvæmdastjóranna
að gera ráðstafanir til þess,
enda greiði frystihúsin það
verð fyrir fiskinn, sem um hef-
ur verið talað í sanmingaum-
leitunum síðustu daga“.
FORGANGA DAGSBRÚNAR
Það var Verkamannafélagið
Dagsbrún sem fyrst benti á
þessa sjálfsögðu leið til þess
að létta atvinnuleysisbölinu af
heimilum reykviskra verka-
manna og bar fram þá kröfu
að bærinn hefði forgöngu í
því að togararnir legðu afla
sinn hér u.pp til vinnslu í
£rystihúsunum. Einnig hefur
atvinnuleysisnefndin unnið að
málinu. I bæjarstjórn hafa sósí-
alistar flutt málið á tveimur
síðustu fundum en tillögum
beirra verið vísað til bæjar-
á méti
anaalaoinu
Búizt ér viö höröum deilum á A-bandalagsfundinum,
sem hefst í Róm í dag.
Síðan á síðasta fundi banda-
lagsráðsins í Ottawa í haust
hafa fjárhagsörðugleikar af
völdum hervæðingarinnar þyrmt
yfir A-bandalagsríkin í Vestur-
Evrópu, svo að sýnilegt er að
þau geta hvergi nærri staðið
við hervæðingarskuldbindingar
sínar nema til komi mjög aukin
aðstoð frá Bandaríkjunum.
Fréttaritarar segja, að á
fundinum í Róm muni skerast
í odda milli liernaðarsérfræð-
inga Eisenhowers og fjármála-
ráðherra bandalagsríkjanna,
sem sjá enga leið til að fram-
kvæma þá 'hervæðingu, sem
hershöfðingjarnir krefjast.
Fundinn í Róm sitja utan-
rikis- landvarna- og fjármála-
2. umræðu um landráðasamninginn lokið
Enginn ráðlierranna treysti sér til að véfengja rétt-
niæti hinnar þungu ádeilu Einars Olgeirsonar
Tráa þitigmenn bandarískn flokkanna því sjálfir að Bandaríkin mimi
aidrei fara í árásarstríð?
Ein meginröksemd manna sem lýst hafa fylgi við
hernámssamninginn er sú, að hann sé einungis varnar-
samningur. Stefán Jóhann Stefánsson orðaði það svo í
timboöi Albýðuflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknar að Pldrei gæti til þess komiö að Bandaríkin hefji
árásarstyrjöld.
Einar Olgeirsson lýsti yfir í umræöum um samning-
inn á Alþingi í gær að kæmist frumvarpið um hann til
3. umræðu yrði borin fram breytingartilla'ga sem gæfi
þingmönnum þríflokkanna kost á að sanna að þeir tryðu
þessum fullyrðingum. Breytingartillagan yröi um nýtt-
ákvæði: Hefji Bandaríkin ái’ásarstyrjöld skal samning-
ui' þessi faila tafarlaust úr gidi, íslendingar vera óbundn-
ir af honum og Bandaríkin flytji þegar herlið sitt á brott
af íslandi.
Hvorki Stefán Jóhann né neinn ráðherranna treysti
sér til að vefengja hin þungu rök Einars gegn hernáms-
samningnum. Þeir tóku þann kost að láta skömmustu-
lega þögn hylja smán sína og lauk 2. umræöu í gær,
en atkvæöagreiðslu var frestaö.
Að gefnu tilefni í framsögu-
ræðu Stefáns Jóhanns Stefáns-
sonar rakti Einar í ræðu sinni
í gær þróun alþjóðamála síð-
ustu áratugina, og brá upp
skýrri mynd af aðaldráttum
alþjóðaástandsins nú. Einkum
skýrði hann eðli Atlanzhafs-
bandalagsins, sýndi fram á að
það er bandalag spilltra auð-
stétta gegn nýlenduþjóðum
heims og hinni sósíalistísku
verkai ýörshreyf ingu.
Stefán Jóhann var svo hrein-
skilinn að lýsa yfir að Atlanz-
Framha’d á 7. siðu.
ráðherrar A-bandalagsríkjanna
og streymdu þeir til borgarinn-
ar í gær.
Norðmenn deila á Dani
Fréttaritari Unted Press í
Róm segir, að það auki á illind-
in innan A-bandalagsins, að
metingur sé milli ríkisstjórna
einstakra Atlanzhafsbandalags-
rikja vegna liervæSingarfram-
lagsins. —- Hefur hann það
eftir háttsettum embættismanni
bandaiagsins, að Norðmenn séu
mjög gramir Dönum og telji
þá láta sinn hlut eftir liggja.
Norðmenn benda á, að þeir
eru fámennari en Danir en eiga
samt að koma upp fjölmennari
her samkvæmt hervæðingará-
ætluninni. Þar á ofan hafa þeir
sent fjölmennara lið til Þýzka-
lands undir yfirstjórn Eisen-
howers en Danir og stærri
hluti af ríkistekjum Norömanna
en Dana fer til hervæðingar-
innar.
ÚrsEitadagur
i Pédaliium
Talið var í gær, að dagurinn
í dag myndi ve'rða sá ískyggi-
legasti til þessa,_á fjóðasyæð-
inu í Pódalnum á ítalíu. Flóð-
aldan frá "'síðiistu rigningum
á vatnasvæði Pó berst í dag
niður á strandsléttuna vi'ð Adr-
íahaf, þar sem flóðin eru verst
og kemur þá í ljós, hvort
sprengingar stífiugarða hafa
nægt til að vatnsmagnið renni
til hafs eða hvort fióðið breii'-
ist enn lit.
í gær létti upp þokunni. -'•-m
grúft hefur yfir f!óðasvæði"U
undanfarna daga og fóru bá
helikoptervélar á loft on vörn-
uðu mat og lyfjum niður til
fólks, sem enn er einangrað á
ýmsum stöðum.