Þjóðviljinn - 09.12.1951, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 9. desember 1951
þlGWIUINN
Utgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjorar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri. Jón Bjarnason.
E’.aðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Hitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöiuverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Athyglisvert samræjni
Á tveggja ára afmæli Atlanzhafsbandalagsins 4.
apríl s.l. hélt Bjarni Benediktsson ræöu í ríkisútvarpið.
í ræðu þessari boðaði hann bandarískt hernám lands-
ins, og rættist sá fyrirboði mánuði síðar. En ráðherr-
ann boðaði meira.
Hann skýrði sérstaklega frá því að Norðmenn ætl-
uðu að komá upp 270.000 manna her og að það sam-
svaraði því að Ísíendingar kæmu upp hjá sér 12.000
manna her. Einnig ætluðu Norðmenn að leggja til her-
rnála 6% af þjóðartekjunum, en framlag íslendinga- í
sama hlutfalli væri 90 milljónir króna.
Þjóðviljinn benti á það þegar aö þessi útreikningur
ráðherrans á því hvert framlag íslendinga ætti að vera
i hlutfalli við Norðmenn hlyti að vera gerður í ákveðn-
um tilgangi, Bjarni Benediktsson væri að boða íslenzkan
her og íslenzka herskatta. Var þeim skilningi ekki mót-
xnælt í Morgunblaðinu.
Síðan hafa ráðamenn Sjálfstæðisflokksins aftur og
aftur vikið að þessu sama, og á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins töluðu bæði Bjarni Benediktsson og Ólafur
Thors um nauðsyn hins innlenda hers. Það var þannig
augljóst mál að ákveðnar kröfur höfðu þegar verið born-
ar fram um þessi mál, og að ráðamenn Sjálfstæðisflokks-
ins höfðu tekið að sér að tryggja framkvæmdina.
Frétt hins trausta brezka borgarablaðs Manchester
Guardian um hernaöarframlag íslands ætti því ekki að
þurfa að koma svo mjög á óvart. Og það er mjög at-
hyglisvert að þær tölur sem blaöið segir að nefndar hafi
veriö á Rómarfundinum koma mjög vel heim við tölur
þær sem Bjarni nefndi í ræðu sinni í vor. Blaðið segir
að herforingjarnir heimti 10.000—18.000 manna her af
íslendingum, og Bjarni teldi hið „eðlilega“ framlag íslend
inga 12.000. Slíkt samræmi er áreiðanlega engin tilviljun.
Og þaö er áreiðanlega engin tilviljun heldur að Morgun-
blaðið hefur ekki minnzt einu orði á frásögn hins brezka
blaðs og ráðherrann sem talaði við páfann hefur ekki
borið við að andmæla henni.
Með hreinan skjöld
Við hátíðleg tækifæri setja stórir og smáir spámenn
bandarísku flckkanna á íslandi upp helgisvip og lýsa því
yfir að flokkar þeirra, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn
og AB-fokkurinn séu ekki einungis lýðræðisflokkar,
heldur lýðræðisflokkarnir, þeir og þeir einir hafi rétt á
því virðulega nafni. Og jafnoft er talaö um þingræði,
þríflokkarnir séu hinir einu og sönnu þingræðisflokkar.
Þessir virðulegu lýðræðis- og þingi-æðísflokkar eigi svo
að stríða við vondan einræðisflokk, Sósíalistaflokkinn.
í umræðunum um „feimnismál“ þessara lýðræðis-
og þingræðisflokka á Alþingi, frumvarpið um að þver-
brjóta grundvallarreglur lýðræðis og þingræðis og úti-
loka fulltrúa Sósíalistaflokksins í utanríkismálanefnd,
minnti Einar Olgeirsson á, að einmitt þessir þrír flokkar
væru uppvísir að því að þverbrjóta stjórna'rskrá íslands
«g ganga í berhögg við þingræðið á íslandi. Ekki einung-
is með hernámssamningnum í vor, eins og sósíalistar
teldu, heldur með samsærinu 1941 er þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, Framsóknar og Alþýðuflokksins fram-
lengdu sjálfir umboð sín sem alþingismenn, þvert ofan
í skýlaus ákvæði stjórnarskrárinnar, og réðu til lykta
hinum afdrifaríkustu málum án þess að hafa til þess
umboð frá þjóðinni. Samsærið um þetta valdarán varð
ekki að eins miklu tjóni og orðið hefði ef samsæris-
ílokkarnir hefðu ekki lent í hár saman, kjaftað frá og
sprungið á kosningafrestuninni.
Hvergi á ferli Sósíalistaflokksins er nokkurt dæmi
þess að hann hafi brotið í bág við stjórnarskrá landsins
eins og sannað er á þríflokkana, sem aldrei þreytast á
aö dásama ást sína á lýðræði og þingræði. Sósíalista-
flokkurinn, einn híúverandi þingfiokka, ber hreinan
skjöld, hefur alltaf í baráttu sinni fylgt leikreglum lýð-
ræðisins, byggt starf sitt á stjórnarskrá íslands.
Dálítiö óþægileg staðreynd fyrir ,,lýðræðishetjur“ í-
baldsins, Framsóknar og AB-flokksins. En staðreynd
engu að síður.
Ljóðabók eftir Ólaf
Thors.
Morgunblaðið 9. desember
1970: í dag kemur í bókaverzl
anir hér í Reykjavík merkileg
bók, Ljóðmæli Ólafs Thors.
Hafði höfundurinn gengið frá
meiri hluta kvæðanna áður en
hann lézt, fyrir röskum 17 ár-
um, en Jón Jónsson hefur að
öðru leyti annazt þessa útgáfu,
en Bókaforlagið gefur hana út.
Ólafur Thors, hinn mikli for-
ingi Sjálfstæðisflokksins, fékkst
mikið við kveðskap í tómstund-
um sínum. frá margvíslegum
störfum fyrir þjóð sína og fóst-
urjörð, og mun hann í framtíð-
inni verða talinn eitt bezta Ijóð-
skáld vort á 20. öld, auk þess
er hann tvímælalaust einn
glæsilegasti stjórnmálaforingi
okkar bæði fyrr og síðar. Sig-
urður Bjarnason, hinn áhuga-
sami listafrömuður vor Islend-
inga, mun skrifa ýtarlegan rit-
dóm nm Ljóðmælin hér í blað-
ið, innan skamms.
Fregn sem aldrei birtist.
Það er aðeins einn galli á
þessari fregn: hún mun aldrei
birtast. Ólafur Thors er ekki
einu sinni brot af hagyrðingi,
og Sigurður Bjarnason verður
heldur aldrei neinn frömuður
menningar né lista. Gn sú var
tíðin að íslenzkir stjórnmála-
menn ortu. Órækast dæmi um
það er Hannes Hafstein, fyrsti
íslenzki ráðherrann, en eftir
hann er einmitt nýkomin á
markað stór Ljóðabók, þrjátíu
árum eftir lát hans. Hann var
uppi á þeim tíma þegar foringj-
ar þjóðarinnar voru enn i sam-
bandi við söguna og landið og
þjóðina, þegar ekki var hægt
að vera leiðtogi á Islandi án
þess að gæta arfsins og and-
ans. Hannes Hafstein var einn
í þeim hópi. Nokkur kvæði
hans munu fylgja okkur alla
daga meðan við heitum menn
og þjóð.
Líkt — en einkum
ólíkt.
Hannes Hafstein og Ólafur
Thors eiga það sameiginlegt að
vera miklir fyrirferðar í sam-
tíð sinni. Að öðru leyti er þeim
ólíkt farið. Áhugamál Ólafs
Thors liggja einkum á sviði
saltfisks og dollara og kænsku-
bragða. Aðsópsmesti eiginleiki
hans er sprellimennskan. Á
svipáðan hátt er öðrum for-
ustumönnum okkar í borgara-
fylkingunni farið. Þegar yið bros
um að hinni uppdiktuðu frétta-
klausu um Ijóðmæli Ólafs Thors,
þá felst í þeirri kímni ábending
til okkar um það að láta ekki
stjómast um of af slíkum
manni né hans líkum. Stjórn-
málamenn á íslandi þurfa að
bera mikið skyn, já, hafa nána
þekkingu á iðnaði og landbún-
aði. En þeir þurfa líka að
vera sögumenn og áhugamenn
um listir og menntir. Og það
hefði mikla þýðingu ef þeir
gæfu út kvæðabækur. En Ólaf-
ur Thors heldur áfram að
sprella, velta fyrir sér dollur-
um — og bregðast. En Ljóða-
bók Hannesar Hafsteins stend-
ur. Enda var það hann sem
kom með símann inn í landið,
en Ólafur mat frelsið til fiska
og gerði það að útflutnings-
vöru.
unsárinu, birtist í bókmennta-
blaðinu Gandi, fyrir rúmum
mánuði, hefur það sofið svefni
hinna réttlátu. Ég var nú að
búast við að eins yrði með
Morgunblaðið, sem birti það
án leyfis tveimur vikum síðar,
en það er ,,velvakandi“ ennþá
eins og allir vita. Ég vildi nú
ráðleggja hinum velvakandi
Göngu-Hrólfi að setjast niður
og fá sér hænublund. Honum
hlyti að „ganga“ betur að
hugsa á eftir. Hannes minn á
horninu er upp á kant við ó-
rímuð Ijóð og segir að þjóðin
hafi dæmt þau til dauða, eins
og Alþýðublaðið sálaða. Nú
vildi ég biðja A.B. (Atómskáld-
ið Benjamín) að starta Kádil-
jáknum og aka þangað sem
Göngu-Hrólfur Morgunblaðsins
kúrir í króknum. En fyrir alla
muni: vektu hann ekki, Hannes
minn. Skrifaðu heldur upp það
sem hann hrýtur.
Miðgarði 6. desember 1951
Jónas E. Svaíar“.
★
Loftleiðlr h.f.:
1 dag verSur flogið til Vest,-
mannaeyja. Á morgun verSur
flogið til Akureyrar, Bilduda's,
Isafjarðar, Patreksfjarðar, Vest-
mannaeyja og Þingeyrar.
Sldpaútgerð ríkisins
Hekla er á Austfjörðum á norð-
urleið. Esja er í Álaborg. Herðu-
breið er á leið frá Austfjórðum
til Peykjavíkur. Skjaldbreið var
væntanleg tii Rvíkur í gærkv. l’rá
Breiðafirði og Vestfjörðum. Þyrill
er á Austfjörðum á suðurleið. Ar-
mann átti að fara frá Rvík í gær-
kvöldi til Vestmannaeyja.
Skipadeild SIS
Hvassafell fór frá Stettin í gær
áleiðis il Akureyrar með viðkcmu
í Khöfn. Arnarfell er vænrinlogt
til Aimeria í kvöld frá Valencia.
Jökulfell er væntanlegt til i'iew
York n. k. þriðjudagsmorgur, frá
Rvík.
11.00 Morguntón.
leikar (pl.) 13.00
Erindi um málara-
iist; síðari hluti
(Hörður Ágútsson
listmálari). 14.00
Messa í kapellu Háskólans (séra
Jón Thorarensen). 15.15 Fréttaút-
varp til Islendinga erlendis. 15.30
Miðdegisútvarp. — Útvarp frá síð-
degisskemmtun í Þjóðleikhúsinu:
a) Guðmunda Elíasdóttir syngur;
Fritz Weisshappel leikur undir. b)
ZEvar Kvaran leikari les smásögu
og ljóð eftir Per Lagerkvist. c)
Fritz Weissliappel, Jón Sen og
Einar Vigfússon leika. 18.30 Barna
tími (Þorsteinn Ö. Stephensen).
19.30 Tónleikar: Fritz Kreisler
leikur iög eftir sjálfan sig (pl.)
20.20 Tónlist með tilbrigðum. 20.35
Erindi: Uppruni og innflutningjir
íslenzku flórunnar; III. Aðfluttur
gróður frá landnámstíð (Steindór
Steindórsson menntaskólakennari)
21.05 Einleikur á píanó; Árni
Kristjánsson leikur sónötu í f-moll
op. 2 nr. 1 eftir Beethoven. 21.25
Upplestur: „Einum unni ég mann-
inum", sögukafli eftir Árna Jóns-
son (Andrés Björnsson). 21.45
Einsöngur: Helen Traubei syngur
lög eftir Wagner o. fl. (pl.) 22.05
Danslög: a) Ýmis danslög af plöt-
um. b) 23.00 Danshljómsved
Björns R. Einarssonar leikur. —
23.30 Dagskrárlok.
Með ósk um sælar
hrotur.
Útvarpið á morgun
18.15 Framburðarkennsla í ensku.
, 18.30 íslenzkukennsla; I. fl. 19.00
Jonas E. Svafar sknfar. Þýzkukennsla; II. fl. 19.25 Þing-
„Kæri Bæjarpóstur. Síðan fréttjr. Tóniejkar. 20.20 útvarps-
kvæði mitt, Það blæðir úr morghljómsveitin; Þórarinn Guðmunds-
son stjórnar. 20.45 Um daginn og
veginn (Gylfi Þ. Gíslason próf.)
21.05 Einsöngur: Benjamino Gigli
syngur (pl.) 21.20 Erindi: Höfuð-
borgin i dag og í gær (Thorolf
Smith blaðamaður). 21.45 Búnað-
arþáttur: Gisli Kristjánsson rit-
stjóri ræðir við Pétur Jónsson
bónda .í Reykjahlið við Mývatn.
22:10 „Fram á elleftu stund“, saga
eftir Agöthu Christie; XIX.
(Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur). 22.30 Danslög (pl.): a)
Artie Sha\y og hljómsv. hans
leika. b) Dixieland-djass. 23.00
Dagskrárlok.
MESSUR 1 DAG:
Dómkirkjan. Messa
á kl. 11 f. h. Sr.
Jón Auðuns. Messa
kl. 5 e. h. Sr. Ósk-
ar J. Þorláksson.
Fríkirkjan. Messa
kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl.
11 f. h. Séra Þorsteinn Björnsson.
Nesprestakall. Messað í kapellu
Háskóians kl. 2 e. h. Séra Jón
Thórarensen. Óháði fríkirkjusöfn-
uðurinn. Messað í Aðventkirkjunni
kl. 2 e. h. Séra Emil Björnsson.
Laugarneskirkja. Messa kl. 2 e. h.
Garðar Svavarsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.15 f. h. Séra Garð-
ar Svavarsson. — Kaþólska kirkj-
an. Hámessa kl. 10 og prédikun
og blessun kl. 6 s. d.
Kvenstúdentafélag Islands
heldur fund mánudagskvcldið,
10. des., kl. 8.30 að Skipasundi 21
(uppi). Anna Ólafsdóttir hefur
framsögu um réttarsöðu konunn-
ar í þjóðfélaginu.
Gullbrúðkaup áttu í gær hjónin
Kristín Friðriksdóttir og Hmrik
B. Þorláksson, fyrrum kennari,
Flateyri í Önundarfirði.
í gær voru gef-
in saman í
hjónaband
Helga Svava
Viggó ,dóttir og
Guðmundui’
Helgason, pípulagningamaður. —
Heimili þeirra verður að Lauga-
vegi 101. — 1 gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Kristín
Guðmundsdóttir, Grettisgötu 2.) og
Kormákur Sigurðsson, stud. theo!.,
Njálsgötu 77. Heimili ungui hjón-
arma verður að Miðcum 11. —
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki — Sími 1760.
Kynleg bók
Framhald af 5. síðu.
díánahéraði, einn fulltrúi þess
kynflokks sem kúgaði rauð-
skinnanna og brytjaði þá niður.
Nú tóku Indíánarnir sig til og
brenndu skýli hans til ösku að
honum fjarverandi, og höfðu
eigur hans á brott með sér.
Þeir voru fjórir saman, og Bill
komst á slóð þeirra í skógin-
um; og iétti ekki fyrr en hann
hafði skotið þrjá þeirra við
varðeldinn í myrkrinu. En sá
fjórði flýði. Og Baden-Powell
lýkur sögunni á þessari yndis-
legu ályktun: „Þannig tókst
„Bjóra-Bill“ að heimta allar
eigur sínar aftur“. Á öðrum
stað segir af Englendingi nokkr
um sem var á snípuveiðum í
Indlandi, því alltaf þarf þetta
pakk að standa í slaktaríi. Eitt
sinn gekk hann eftir flóðgarði
yfir hrísgrjónaakur. kafinn
vatni. Þá kom Indverji á móti
honum. Þeir þurftu að fara
gætilega á garðinum er þeir
mættust. En Englendingurinn
gerði sér lít.ið fyrir og hratt
þeim indverska út af garðinum
niður í vatnselginn. Það er sem
sé „nauðsynlegt að minna þú
(Indverja) á það öðru hverju,
að þeim ber að virða hina
ensku yíirboðara sína .......
eins og sögumaður orðað það
svo fagurlega. Auðvita'ð þarf
ekki að taka fram að hvergi
vottar fyrir neinni listameiinsku
í þessum sögum. Islenzkt 'æsku-
fólk mun íyrirlita þær.
B. B.