Þjóðviljinn - 12.12.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 12. desember 1952
>
plÓÐVILIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjorar: Magnús Kjartansson, SigurOur GuSmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri. Jón Bjarnason,
Rlaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Atburð'ir þeir sem gerzt hafa í Hafnarfirði í sambandi
við átökin um slökkviliðið hafa vakið athygli um land
allt. Það er ekki aðeins hinn furðulegi söguþráður sem
athyglina vekur, heldur fyrst og fremst sú lýsing sem
hann gefur á Alþýðuflokksbroddunum og starfsaðferö-
um þeiiTa.
Sagan hefst á því að Emil Jónsson þarf að koma einum
smáþjóni sínum, búsettum á Akranesi, í starf í Hafnar-
firöí. Hann gerir sér lítið fyrir og ræður manninn í
slökkviliðið, án nokkurs samráðs við slökkviliösstjóra og
þvert ofan í ákvæði gildandi laga. Hvað varðar hinn
mikla mann Emil Jónsson um lög og viðhorf annarra:
hánn hefur talað. En svo illa stóð á að í starfi slökkvi-
liðsstjóra var maður, en ekki leikbrúða. Hann neitaði
að láta skipa sér þannig fyrir verkum og að taka við
óhæfum manni í mikilvægt starf, kærði íramferði Emils
fyrir félagrmálaráðuneytinu og fékk ráðningu hans á
smáþjóninum dæmda ólöglega.
Og þar með var málið komið á nýtt stig. Nú þurfti
Emil Jónsson að sýna vald sitt og auglýsa fyrir öllum
Hafnfirðingum að hver sá sem leyfði sér að hafa sjálf-
stæða skoðun skyldi hundeltur og ofsóttur. Hófst nú hin
furðulegasta saga sem óður hefur verið rakin ýtarlega
hér í blaðinu, en henni lauk með því að slökkviliðsistjóri
vaf rekinn úr starfi af Emil Jónssyni, en smáþjóninum
auðvitað komiö inn á ný. Hver var þessi Haraldur Kristj-
ánsson, að hann skyldi leyfa sér að vilja hafa hæfa og
reynda menn í slökkviliði Hafnarfjarðar, þegar smáþjón-
ar voru í boði! Og Emil Jónsson leit yfir bæinn og sagði;
svo skal hverjum þeim fara sem dirfist að mótmæla mér.
En í mikilmennskuæði sínu og ofstæki var Emil Jóns-
son kominn úr þeim litlu tengslum sem hann hefur haft
við hafnfirzkan almenning, og hann fékk því það svar
sem hann hafði sízt búizt við. Að heita má allt slökkvi-
liðið hefur nú sagt af sér til að mótmæla ofbeldinu. Hfnn
valdsjúki maður hafði gengið feti of langt.
Nú er eftir að sjá hvert niðurlag þessarar sögu verður.
En það er vissulega ærin ástæða fyrir brunavarnaeftirlit
ríkisins að taka nú í taumana, því nú eru állar horfur á
að brunavarnir í Hafnarfirði verði í algerum ólestri eftir
áramótin með afleiðingum sem enginn sér fyrir, ef hin
annarlegu sjónarmið verða ekki látin víkja. Og hvað
skyldu hafnfirzkir verkamenn, sem ævinlega heyra um
peningaskort bæjarins þegar þeir eru atvinnulausir,
segja um það ef Emil Jónsson ætlar nú að henda á
annað hundrað þúsund krónum í nýtt slökkviliö til þess
eins að þjóna valdafýkn sinni.
Og ríkisstjórnin glúpnaði
Niðurhellingur bjórsins í Ölgerðinni Agli Skallagríms-
syni er nýtt, sérstætt dæmi um viðskipti ríkisstjórnar-
innar og hernámsliðsins. Hún gefur út sérstök bráða-
birgðalög í sumar um heimild til að brugga sterkan bjór
— þó aðeins handa hemámsliðinu, væntanlega vegna
þess að siögæðisþroski þess sé talinn svo sterkur að
jafnvel sterkur bjór fái þar engu um þokað. Við skulum
gera ráð fyrir að hvatir ríkisstjómarinnar í þessu máli
hafi verið hinar'ákjósanlegustu: sem sé að efla innlendan
iðnað, auka atvinnu í ölgerðinni, fá skatta í ríkissjóð af
drykkjuskap hinna erlendu — og síðast en ekki sízt að
binda endi á bjórsmygl hernámsliðsins, sem er a. m. k.
þrefalt brot á íslenzkum lögum. Og ölgeröin hóf fram-
leiðslu sína og bruggaði bjór á nokkrar tugþúsundir af
flöskum og hóf töppun á um 10.000 flöskum.
En þá kom til kasta hins; erlenda liðs. Og það þver-
neitaði, þegar á átti aö herða, aö borga nokkra skatta
í ríkissjóð af bjórdrykkju sinni. Það hafði vanizt á smygl
og þar með ódýran bjór og vildi halda sparneytninni á-
fram. Og þá þurfti auðvitað ekki meira til að ríkisstjórn-
in glúpnaði. Hernámsliðið heldur smyglí sínu áfrám en
10.000 flöskum af Agli sterka hefur verið hellt í ræsin.
Skyldu síðustu leifarnar af sjálfsvirðingu ríkisstjórnar-
innar ekki hafa horfið í ræsin með bjómum?
Menn vita hvað gert er við íslendinga sem heldur vilja
smygla en sætta sig við skattaáþjánina. En íslendingar
eru líka innborinn nýlendulýður en engin herraþjóð’.
Líf bókarinnar.
Jólin hafa ■ lengi verið nefnd
hátíð barnanna. En Islendingar
hafa lengi haft sitt lag á hlut-
unum, og þess vegna hafa þeir
líka gert jólin að hátíð bók-
anna. Enda er það sannast
sagna að til lítils er að ala upp
börn hafi maður ekki bækur
handa þeim. Á sama hátt er
bam fyrir framan bókaskáp
tákn hugsjónar vorrar um
framtíðina. Og nú em jólin
að koma — og bækurnar flæða
á markaðinn til að vera við-
búnar þegar kall jólabjöllunnar
kemur. Lítið t. d. í Þjóðviljann
á sunnudaginn var. Hann hefur
nú aldrei fengið orð á sig sem
sérstakt auglýsingablað, en
samt sem áður eru þar aug-
lýstar þennan eina dag milli
þrjátíu og fjörutíu nýjar eða
nýlegar bækur, og þar að auki
kaupir ein bókaverzlun heila
tvo dálka til að nefna nöfn
nokkurra þeirra bóka sem hún
hefur á boðstólum. Það er
dæmi um hið auðuga- og lifandi
líf bókarinnar á Islandi —
þrátt fyrir allan svartadauða
og mæðiveiki í mönnum og
skepnum.
hvorki við né okkar bók mun-
vm leggja árar í bát, heldur
róa sterklega gegn straumnum
eins og vera ber. Við munnm
bjarga bókinni okkar yfir
kreppuna, eins og hún bjarg-
aði okkur um aldir frá bana.
Þó skipulag þrenginganna sé
andvígt bókum er hjarta okk-
ar hlynnt þeim. Islendingurir.n
og bókin fylgja hvort öðru að
málum í lífinu og baráttu þess.
Þau eiga sömu framtíð, b-xði
í blíðu og stríðu. Bókin er hinn
sígildi málstaður Islendingsins.
Við verðum að halda vel á
málstað okkar.
★
Lausn gátunnar í gær: Skip.
Spakmæli:
Vinir eru algengir, tryggð sjald-
gæf.
Sókrates.
★
Um gæði fram-
leiðslunnar.
t
Hvernig eru þessar bækur ?
Þær eru auðvitað bæði marg-
vislegar og misjafnar. Bæjar-
pósturinn er afskaplega hlynnt-
ur góðum bókum, enda koma
þær honum fyrst í hug. Ungir
höfundar eiga iþví miður nokk-
uð erfitt nppdráttar um þessar
mundir. Þeir gömlu standa
einna styrkustum fótum. Þann-
ig er fyrsti ráðherrann okkar
nýkominn með stóra ljóðabók,
þrjátíu árum eftir andlát sitt.
Benedikt Gröndal sendir frá
sér Heljarslóðarorustu enn einu
sinni, og alltaf við sömu við-
tökurnar. Sigurður Breiðfjörð
góði er líka í þann veginn að
senda frá sér nýtt kvæðasafn,
og vér hlökkum mjög til að
komast í kynni við það. Svo
eigum vér kost á því að endur-
nýja ástir okkar á ungfrú
Sölku Völku á Öseyri, en henn-
ar líka höfum vér sjaldan
fyrirfundið. Og þoku tímans
hefur svifað frá Kirkjunni á
fjallinu, mesta guðshúsi á Is-
landi, og þar blasir hún við í
allri sinnj dýrð hátt yfir byggð-
um, og meira að segja ný-
skreytt af skapandi lista-
mennsku. Þetta eru allt verk
sem þegar hafa komið undir
sig fótum í íslenzkri bókara-
mennt — og munu standa héð-
an af.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Rotterdam
í gærkvöldi til Leith og Rvíkur.
Dettifoss fór frá Akureyri 10.
þm til Hjalteyrar. Hríseviar,
Dalvíkur. Ólafsfiarðar. Húsa-
víkur og Siglufiarðar. Goðafoss
fór frá Hull 10. þm. til Rvíkur.
Gullfoss er í Reykiavík. Lag-
arfoss fór frá Rvík. í gærkvöldi
til Vestmannaevia og vestur-
og norðurlands. Reykiafoss fór
frá Hamborg' 9. þm. til Gdynia,
Gautaborgar, Sarpsborg. Osló
og Reykiavíkur. Selfoss kom
til Rotterdam 9. þm. frá Dal-
vík. Tröllafoss fór frá Davis-
ville 8. þm. til Reykjavíkur.
Skipadeild SlS
Hvassafell fór frá Stettin 8.12.,
áleiðis til Akureyrar, með við-
komu í Kbh. Arnarfell fór frá Al-
mería 10. þm. áleiðis til Reykja-
víkur. Jökulfell átti að koma til
N.Y. s.l. nótt frá Reykjavík.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla var væntanleg til Akur-
eyrar í gærkv. á vesturleið. Esja
er í Álaborg. Herðubreið fór frá
Reykjavík kl. 21.00 í gærkvöld til
Bréiðafjarðar og Vestfj. Skjald-
breið fór frá Reykjavík kl 20.00
í gærkvöld til Húnaflóa- Skagafj.-
og Eyjafjarðarhafna.. Þyrill verður
væntanlega í Reykjavik í dag.
Loftlelðir h.f.:
í dag verður flogið til Akureyr-
ar, Hólmavikur, Isafjarðar og
Vestmannaeyja. — Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar og
V estmannaeyj a.
fslentlingurinn
og bókin
En sem betur fer eru bók-
menntir íslendinga ekki ein-
vörðungu gamlar. Þær eru líka
nýjar, ungar á hverju ári. Jó-
hannes úr Kötlum er kominn
með nýja skáldsögu upp á vas-
ann, niðurlag „siglingarinnar
miklu“ og heitir nú ekki ,leng-
ur Dauðsmannsey heldur Frels-
isálfan, enda er maður kominn
til Ameríku, þar sem svo mörg-
um íslendingasögum lýkur nú.
Ólaf Jóhann dreymir enn um
fjgllið sitt á Vorkaldri jörð,
og lætur sér hvergi bregða. Og
svona gætum við haldið áfram
lengi lengi, og kannski tökum
við áftur upp þráðinn. Það er
engin uppdráttarsýki í íslenzkri
bókaútgáfu. Það kreppir raun-
ar ofurlítið að henni nú um
sinn, eins og okkur öllum. En
18.00 Frönskuk.
18.30 íslénzkuk. I.
fl. 19.00 Þýzkuk. II.
fl. 19.25 Þingfrétt-
ir. — Tónleikar.
19.45 Auglýsíngar.
20.00 Fréttir. 20.15 Útvarp frá Al-
þingi; Almennar stjórnmálaum-
ræður; eldhúsdagsumræður (fyrra
kvöld). Ein umferð: 45 mín. til
handa hverjum flokki. Dagskrár-
lok um kl 23.30.
Bláa ritið, desem-
berheftið, ' flytur
þéssar , ,skemmti-
sögur“: Leyfist
kettinum að líta á
kónginn? Sigur að
lokum. Ferðalangur. Yfir úthafið.
Brottnámið. — IMannréttindaskráin
Ríkisstjórnin hefur látið þýða
og gefa út Mannréttindaskrá sam-
einuðu þjóðanna, er samþykkt var
á allsherjarþinginu 1948. Það er
sérprentun úr Andvara, 8 bls. að
stærð í þrjátíu greinum. —
Læknablaðið, 3. tbl. þessa árgangs
er komið út. Efni blaðsins er
þetta: Um svæfingar, eftir Elías
Eyvindsson; Minningarorð um
Richard Kristmundsson, lækni,
eftir J. R. Frá Læknafélagi Is-
lands; Úr erlendum læknaritum,
Erlend rit; Frá læknum. Aðalrit-
stjóri Læknablaðsins er Ólafur
Geirsson.
vj
Trúlofun sína hafa
opinberað ungfrú
Borghildur Á. Jóns-
dóttir, Hringbraut
111, og Þórarinn
Samúelsson, Aðal-
stræti 18. — Laugardaginn 8. þ.
m. opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Hannesína Tyrfingsd., Lang-
holtsveg 19, og Ólafur Ólafsson,
Hvolsvelli, Rang.
Ilúsmæðradeild MIR biður þess
getið, að vegna rafmagnsskömmt-
unar síðastl. sunnudag varð að
fresta bamasýningunni sem vera
átti í Stjörnubíói. Verður sýning-
in haldin næstkomandi sunnudag
á sama tíma og gilda aðgöngu-
miðarnir að henni. Jafnframt skal
þess getið, að þeir sem ekki geta
komið þá, geta fengið miða sína
endurgreidda á lesstofu MIR Þing
holtsstræti 27, föstudag og laugar-
dag kl. 4—7.
Listasafn Einars Jónssonar verð-
ur lokað yfir vetrarmánuðina.
Skrifstofa Vetrarhjálþarinnar
er í Hafnarstr. 20 (Hótel Heklu),
gengið inn frá Lækjartorgi. —
Opin kl. 10—12, og 1—5. Simi
80785.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband á
Akureyri ung-
frú Ólöf Sig-
tryggsdóttir og
Jóhann Guðmundsson, málari. —■
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af séra Benjamin Kristjáns-
syni ungfrú Sigríður Garðarsdótt-
ir, Uppsölum, og Jónas Þór Jó-
hannesson, Akureyri,
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Iðunni. — Sími 7911.
Næturlæknir er í Jæknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
Leiðrétting. Um daginn var sagt
hér i blaðinu frá nýstofnuðu ætt-
arfélagi, og þess getið jafnframt
að hér mundi vera um fyrsta
ættarfélag á Islandi að ræða. Nú
hefur borizt leiðrétting við þessa
fregn. 1 mörg ár hefur starfað
á Akureyri félag sem nefnist Upp-
salaættin, og hefur það m. a.
gengizt fyrir samkomum og ferða-
lögum félaga sinna.
Gjafir tll Vetrarhjálparinnar.
Starfsfólk Búnaðarbankans kr.
350,00. S.S. kr. 100,00. Sendibíla-
stöðin Ingólfsstræti og starfsfólk
kr. 135,00. Opal h.f. og starfsfóllc
350,00. Shell h.f. 500,00. Starfsfólk
hjá h.f. Eimskip 822,00. Starfs-
fólk hjá Brunabótafélagi Islands
100,00. Starfsmenn Alþingis 503 00.
Starfsfólk hjá H. Benediktssyni
& Co. 400,00. H. Benediktsson
& Co. 500,00. — Samtals kr,
3.960,60.
Með kæru þakklæti
Vetrarhjálpin.
Bikarglíma
Armanns
Bikarglíma Ármanns var
háð í íþróttáhúsi Jóns Þor-
steinssonar við Lindargötu s.
1. mánudagskvöld. Hlutskarp-
astur varð Rúnar Guðmunds-
son og hlaut hann 98 stig.
Annar varð Steinn Guðmunds-
son með 91 stig og Pétur Sig-
urðsson þriðji með 66,5 stig.
Keppendur voru allir úr Glímu
félaginu Ármann, eins og lög
mæla fyrir um.
I sama skiptið var háð
Drengjaglíma Ármanns og varð
þar hlutslcarpastur Kristmund-
ur Guðmundsson, sem einnig
vann skjöldinn í fyrra. Annar
varð Ölafur Óskarsson, þriðji
Baldur Kristinsson.