Þjóðviljinn - 23.01.1952, Page 8

Þjóðviljinn - 23.01.1952, Page 8
Óheiinilt að segja upp liúsnæði í vor! Bindingarákvæði húsaleigulaganna íramlengd í eitt ár Eins og kunnugt er samþykkti Alþingji fyrir tveimur árum að húsaleigulögin skyldu úr gildi felld í þremur áföngum, og átti sá síðasti að koma til framkvæmda 14. maí í vor: uppsögn leigjenda í húsum, þar sem húseigandi býr ekki sjálfur. I gær var hins vegar samþyk'kt endanlega á Alþingi að þessu ákvæði skyldi frestað um ár, til 14. maí 1953, og eru slíkar uppsagnir því ekki löglegar fyrr en þá. Ákvæðin um hámark húsa- leigu eru þessi: 7 kr. á mánuði á fermetra gólfflatar í húsum sem tekin voru til afnota fyrir 1. janúar 1942; 9 kr. á húsum sem tekin voru í notkun 1942-— ’46 og 11 kr. í húsum eftir þann tíma. Þessu ákvæði var bætt inn í frumvarp um hámark húsa- leigu í efrideild af fulltrúum sósíalista, Framsóknar og AB- manna, en íhaldið barðist af alefli á móti. Var síðan drátt- ur á því að málið kæmist til neðri deildar en það var loks tekið fyrir í gær. Reyndu þeir Jóhann Hafstein og Gunnar Thoroddsen að hefja málþóf, en' gáfust upp, og síðan voru ákvæðin samþykkt eins og efri deild gekk frá þeim. Afstaða Framsóknar í þessu máli er hin furðulegasta. Það var samkvæmt frumvarpi Fram sóknarflokksins að húsaleigu- lögin voru felld úr gildi. Það var hins vegar gert að afstöðn- ■um síðustu kosningum, en nú er Rannveig þegar farin kvíða þeim næstu! að I fyrrinótí Ieituðu þrír bátar aðstoðar Slysavarnafélagsins og fóru skip þeim til aðstoðar og drógu þá til hafnar. Voru þeir allir í Miðnessjó. Bátar þessir voru Svanur frá Keflavík, Víkingur, 37 lestir, frá Keflavík og Bjarnarey, 105 lestir, frá Hafnarfirði. Sæbjörg dró Svaninn tíl hafnar, Hermóður Víking og Ægir Bjarnarey. Að þvi er fréttaritari Þjóð- viljans í Keflavík tjáði blaðinu í gær er afli bátanna yfirleitt . lítill, eoa frá 4—8 skippund. Upplýst um hóttelag nokk- urra ungra smáþfáfa Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreglunni hefur hún nú um og eftir áramótin upplýst allmarga þjófnaði hér í bæn- um, bæði innbrotsþjófnaði og venjulega þjófnaði,'*sem einkum hafa verið framdir af unglingum. Miðvikudagur 23. janúar 1952 — 17. árgangur — 18. tölublað MANNSKÆÐIR BARDAG- ARFRAKKAOG Franskir kratar lyppast niður og styðja oíbeldisverk landstjórans í Túnis Manntjón varö enn í Túnis í gær, er franska nýlendu- stjórnin lét skjóta á Túnisbúa, Scm krefjast fullveldis lands síns. 1 einu málinu voru að verki þrír piltar, 17—20 ára, sem eigi hafa áður verið dæmdir fyrir neitt lagabrot. Höfðu þeir alls framið 8 venjulega þjófnaði og 12 innbrotsþjófn- aði, þ.á.m. í Tívolí á aðfara- nótt aðfangadags, þar sem þeir stálu m.a. 43 flöskum af á- fengi, Isbúðina í Bankastræti, Kronbakaríið í Tjarnargötu, Síld og Fisk í Bergstaðastræti Kaffivagninn við höfnina og bifreiðar. Víðast stálu þeir pen ingum, áfengi, vindlingum og sælgæti. Svik í ðtvinnujeysisbaráHunni Framhald af 1. síðu. son, einn af fulltrúum íhalds- ins í stjórn Fulltrúaráðsins, þá „skýringu", að fundurinn væri óþarfur að svo stöddu, vegna þess, að 'kröfum atvinnumála- nefndar hefði verið svo vel tek- ið undanfarið af ríkisstjórn og Alþingi og þessi mál því þar með vel á vegi stödd, að nefnd in ætti að bíða átekta. Þegar svona var komið mál- um, lýsti formaður nefndarinn- ar yfir því, að hann áliti, að halda bæri þá fundinn í dag, og að hann teldi stjórn full- trúaráðsins ekkert vald hafa til að breyta ákvörðun nefndar innar, og legði því til að fund- urinn yrði eigi að síður hald- inn. Þegar á hólminn kom, fékkst þó ekki meirihluti nefndar- manna til að ákveða að halda fundinn. Þegar þannig var sýnt, að "þessi síðasta tilraun til að halda fundinn, var eyðilögð, lýsti Hannes Stephensen því yfir, að .hann lcgð.i mikla á- herzlu á bað, að samstarf héld- ist í nefndinni, og að Dagsbrún hefði miðað framkomu sína við sameiginlegar aðgerðir í at- vinnuleysismálunum. En þó að félagið ‘legði mikla. áherzlu á slíka samvinnu, þá yrði það ek'ki þolað af hálfu verkalýðs- ins.að stjórn Fulltrúaráðsins ■svikist aiftan að samtökunum á þýðingarmiklum augnablikum í atvinnuleysisbaráttunni, og gæti þá svo farið, að hin ein- stöku félög yrðu að taka til sihna ráða. I sama streng tók formaður Iðju, Björn Bjarna- son. Með framkomu sinni í þessu um málum hefur stjórn Full- trúaráðsins sannað það ræki- lega, hverra erindi hún reknr í verkalýðshreyfingunni. En einmitt þau öfl, sem svikin frömdu nú, eru hin sömu sem bjóta fram sprengilistaha í Dagsbrún. Þessir menn feilreikna sig herfilega, ef þeir halda að svona framkoma megni að stöðva atvinnuleysisbaráttu verkalýðsins og Dagsbrúnar- menn munu gefa þeim verðugt svar í kosningunum um næstu helgi með því að fylkja sér einhuga um stjórn félagsins A-listann. 1 haust hafði hinn yngsti þessara pilta orðið uppvís að 12 þjófnaðarbrotum,þ.á.m. inn- brotum í Síld og Fisk í Berg- staðastræti, Gúmmíbarðann við Skúlagötu, bifreiðar og garð- skúra, en víðasthvar var litlu stolið. — Rannsóknþ essa máls er ekki að fullu lokið. í öðru máli hafa fjórir menn orðið uppvísir að fimm innbrots þjófnuðum og fimm almennum þjófnuðum nú um jólin og var dæmt í máli þeirra 21. þ.m. Hlaut einn þeirra, Grétar Gísla son, Frakkastíg 13, 1 árs fang- elsi, Jón Magnús Benediktsson Hringbraut 47, 4 mánaða fang- elsi og hinn þriðji, Elí Bærings Einarsson, Barmahlíð 31, 6 mánaða fangelsi. Hinn fjórði, Framhald á 7. síðu- í borginni Sousse hafði mannfjöldi safnazt saman til að láta í ljós stuðning við krcf- una um fullveldi og mótmæla handtöku og útlegð tólf for- ingja sjálfstæðisbaráttu Túnis- búa. Franskt lið réðist á fólkið sem snerist til varnar. Þegar viðureigninni lauk voru 10 menn dauðir og 25 særðir. Af hinum föllnu voru níu Túnis- búar en einn franski ofurstinn sem stjórnað hafði atlögunni. Einnig skýrðu frönsku yfirvöld in frá því í gær, að sex menn liefðu beðið bana í viðureign í fyrradag í annarri borg í Túnis. Frönsk yfirdrottnun „hernaðarleg nauðsyn“. Þegar Edgar Faure kynnti nýmyndaða stjórn sína fyrir franska þinginu í gær snerist ræða hans að mestu um ástand ið í Túnis. Lýsti hann yfir að stjórn sín ætlaði alls ekki að láta Túnis af hendi við Túnis- búa, hún myndi beita bæði hörku og lægni gegn þeim. Róttíætti Faure yfirráð Frakka í Túnis með iþví að þau væru hernaðarlega nauðsynleg. Þegar gengið var til at- kvæða. greiddu borgaraflokk- arnir og sósíaldemókratar stjórninni atkvæði og fékk hún 170 atkvæða meirihluta. Sósí- aldemókratar höfðu lýst yfir að þeir myndu ekki styðja stjórnina ef hún breytti ekki um stefnu gagnvart Túnisbúum en lyppuðust niður þegar á átti að herða og greiddu atkvæði með nýlendukúguninni. Leitinni að Sigurgeir Guðjónssyni haldið áfram í dag Leitað var að Sigurgeir Guðjónssyni í gær, en leitin bar ekki árangur. Verður leitinni haldið áfram í dag og lagt af síað frá skátaheimilinu í Hafnarfirði klukkan 8. 6ðins£undnEÍnn í gæzkvöldi: Ftmdhraiti slitið þegar utanríkisráðheira og borgarstjórinn höíðu lekið ztiáli sízrall Enn einu sinni liefur pað gerzt að utanríltisráðherra Ihaldsins og borgarstjórl þess liafa á óviðurkvæmilegan hátt blandað sér í innri mál reykvískra verkamanna — og niætti Bjarni Ben. þó minnast þess er liann fór í eigin persónu að skipta sér af atkvæðagrelðslu verkamanna sumarið 1947 — og fékk 1400 atkvæöi á móti sér. Verkamenn hér á Iandi liafa aldrei talið það viðeigandi að ráðherrar og aðrir slíkir væru að sletta sér fram I innri fc- lagsmál þeirra. Alveg sérstaklega líta þeir það iliu auga að ráðherra og borgarstjóri íhaldsins, einniitt sömu mennirnir og hafa engu öðru að svara kröfum atvinnuleysingjanna um vinnu heídur en neil, skuli nú koma pg viija ráða því hverja verltamenn kjósa í stjórn í Dagsbrún. Á fundinum hjá Bjarna Ben. og borgarstjóranum í gær- ltvöldi mættu ekki nema á annað liundrað manns og fundurinn liófst ekki fyrr en kl. var farin að ganga 10. I»á flutti utan- ríkisráðherrann sléttmált níð um kommúnista, Kússa, Sigurð Guðnason og aðra Dagsbrúnarmenn. Sveini 'Sveinss.yni var skotið inn á milli ráðherrans og borgarstjórans meö nokkur stóryrði um að „sjálfstæðlsverkamcnn ættu að vinna á komm- únistum í Dagsbrún!“ Borgarstjórinn dró upp fagra mynd af öllu því sem Banda- ríkjamenn og íhuldið ætluðu að Iáta vinna í vor og sumar — „EN VITANLEGA BARA 1 VOB OG SUMAR“. I*á flutti þessi siétthoida hálaunamaður róg og níð um Dags- brúnarstjórnina, m.a. að „Dagsbrúnarstjórnin hefði svikizt um að koma í veg fyrir að utanbæjarmenn ynnu hér. — þetía eigið þið, verkamenn, að láta berast út”! sagði borgarstjórinn að lokum. Um leið og borgarstjórinn liafði lokið máli sínu spratt Sveinbjörn Hannesson hvítiiði á fætur og sleit fundi. Enginn verkaniaður fékk að taka til máls á fundinum'.! I gær leitaði 23ja manna hópur frá B.S.R., en Sigurgeir var lengi bílstjóri þar. Leituðu þeir svæðið frá Eldborg, þar sem leitinni var hætt í fyrra,- dag, og til Krýsuvíkur og kringum Bæjarfell og Arnar- fell. Leitinni stjórnaði Svein- björn Tímóteusson. Á morgun kl. 8 fer hópur leitarmanna af stað frá skáta- heimilinu í Hafnarfirði, eru það aðallega skátar úr Hafnarfirði og stjórnar Jón Guðjónsson rafvirki, deildarforingi hafn- firzkra, skáta, leitinni. Esperantistar. Aðalfundur Auroro verður í Aðalstræti 12 annað kvöld. Alþingi hefur Framhald af 1. siðu. þeirra til þessa mikla rétt- lætismáls. Gylfi Þ. Gíslason lýsti yfir þvi í sinni ræðu að hann myndi fylgja frumvarpinu óbreyttu til þriðju umræ'ðju, til þess að leggja áhérzlu á íiina stórvægi- legu nauðsyn málsins, þótt hann væri hlynntari annarri lausn en þeirri sem í frumvarp- inu felst. Sigurður Guðnason, ræddi viðbrögð nefndarinnar og Al- þingis í ræðu eins og áður var rakið. Hann lýsti einnig á- standinu eins og það er nú: Þefr verkamenn éru nú fjöi- margir sem ekki hafa haft vinnu í einn til tvo mánuði. Og þegar þeir eru svo heppnir að fá vinnu dag og dag þá fá þeir ekki peninga í umslaginu sinu við útborgun, heldur skattakvittun frá tollstjóra eða útsvarskvittun frá bænum. Á þessum kvittunum er verka- mönnunum ætlað að fæða börn- in. — Alþingi , þýfur tekið á þessu máli af fullkomnu al- vöruleysi. Það horfir á það í algeru aðgerðarlevsi að menu- irnir sem hafa byggt upp bæ- inn, atvinnutækin, göturnar, húsin, fái nú ekki að vinna, fái ekki að nota starfsorku sína, vegna þess að fámennri valda- kliku þólmast að hafa það svo. Páll Þorsteinsson hafði það hraklega hlutverk að verja stjórnarflokkana, og hann vitn- aði í skýrslur og greinargerðir. Sigurður Guðnason svaraði honum eftirminnilega: Það er neyðarástancl og atvinnuleys- ingjarnir Jmrfa ekki skýrslur á skýrslur ofan; þeir þurfa brauð. Eitt síðasta afrek ne'ðri deild- ar var svo að vísa málinu frá til ríkisstjórnarinnar — og var það verðugur endir á ein- hverju fyrirlitlegasta þing- haldi í sögu þjóðarinnar. Sijárn Bjarma öll endurkosin Aðalfundur verkalýðs- og sjómannafélagsins Bjarmi á Stokkseyri var haldinn s. 1. fimmtudag. Stjórnin var öll endurkosin, en haiia sldpa: Formaðui: Björgvin Sigurðs- son, varaformaður: Helgi Sig- urðsson, ritarj :> Gunnar Guð- mundsson, gjaldkeri: Frímann Sigurðsson, Gísli Gíslason með- stjórnandi. Árgjald fyrir árið 1952 var ákveðið 106,00 kr._ fyrir karl- menn og kr. 69,00 fyrir konur. Tekjuafgangur ársins 1951 var kr. 11971,87. Stý#fárs.jóð- ir félagsins námu um Á'.L ára- mót kr. 47963,48. Fgiagið hélt um s.l. helgi fjölmenna afmæl- isskemmtun, en það er stofnað 12. febrúar 1904. Hefur nýlega hafzt upp á fundargerðabók fyrstu 10 áranna, en stofndag- ur félagsin hafði áður verið talinn 5. marz 1905, en það reyndist ekki rétt þegar fund- argerðabókin kom í leitimar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.