Þjóðviljinn - 06.02.1952, Qupperneq 7
Miðvikudagur 6. febrúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Prjónastoían Iðunn,
Leifsgötu 22, liefur margs-
konar prjónavörur úr 1. fl.
garni. Prjónum eftir pöntun-
um. Seljum á lægsta verði.
Myndir og málverk
til tækifærisgjafa.
Verzlun G. Sigurðssonar,
Skólavörðustig 28.
Píanó til sölu
Upplýsingar í síma 2226.
Húsgögn:
Dívanar, stofuskápar, klæða-
skápar (sundurteknir), borð-
| stofuborð og stólar.
Ásbrú, Grettisgötu 54.
Minningarspjöld
Krabbameinsfélagsins fást í
vei’zl. Remedía, Austurstræti
b og í skrifstofu Elliheimil-
isins.
Ensk íataeíni
fyrirliggjandi. Sauma úr til-
lögðum efnum, einnig kven-
draktir. Geri við hreinlegan
fatnað. Gunnar Sæmundsson,
klæðskeri, Þórsgötu 26 a,
sími 7748.
Stofuskápar,
klæðaskápar, kommóður á-
vallt fyrirliggjandi.
Híisgagnaverzlunin
Þórsgötu 1.
Iðja h.f.,
Lækjarg. 10.
Úrval af smekklegum brúð-
argjöfum.
Skermagerðin Iðja,
Lækjargötu 10.
Búllugardínur
ávallt fyrirliggjandi. Einnigí
dívanar, armstólar o. fl. —
Laugaveg 69. — Sími 7173
Hatiö þið athugað
aö smáauglýsing
getur veriö noklc-
uö stór, — og að
nokkuð stór smá-
auglýsing getur
verið ódýr. Aug-
lýsiö í smáauglýs-
ingadálkum Þóð-
vilians. Sími 7500.
Munið kaffisöluna
í Hafnarstræti 16.
Iðja h.f.
Ódýrar ryksugur, verð kr.
928.00. Ljósakúlur í loft og
á veggi.
Skermagerðin Iðja h.f.,
Lækjargötú 10.
Svefnsófar,
nýjar gerðir.
Borðstofustólar
og borðstofuborð
úr eik og birki.
Sófaborð, arm-
stólar o. fl. Mjög lágt verð.
Allskonar húsgögn og inn-
réttingar eftir pöntun. Axel
Eyjólfsson, Skipholti 7, sími
80117.
Daglega ný egg,
soðin og hrá. Kaffisalan
Hafnarstræti 16.
»11—»***####<*
Barnarúm
Sem nýtt barnarúm til!
sölu. Tækifærisverð. Til sýn-;
is að Laugaveg 68 (steinliús-
ið), 2. hæð, frá kl. 2 e.h.
Minningarspjöld
Samband ísl. berklasjúklinga
fást á eftirt. stöðum: Skrif-
Sigriðar Helgadóttur, Lækj-
argötu 2, Hirti Hjartarsyni,
Bræðraborgarstíg 1, Máli og
menningu, Laugaveg 19, Haf
liðabúð, Njálsgötu 1, Bóka-
búð Sigvalda Þorsteinssonar,
Efstasundi 28, Bókabúð Þor
valdar Bjárnasönar, Hafnar-
firði, Verzl. Halldóru Ólafs-
dóttur, Grettisgötu 26,
Blómabúðinni Lofn, Skóla-
vörðustíg 5 og hjá trúnað-
armönnum sambandsins um
land allt.
Útvarpsviðgerðir
Radíóvinnustofan,
Veltusundi 1.
Nýja sendibílastöðin,
[Aðalstræti 16 — Sími 1395
Sendibílastöðin Þói
SÍMI 81148.
Í:
AMPER H.F.,
raftækjavinnustofa,
Þingholtsstr. 21, símj 81556
Sendibílastöðin h.f.
Ineólfsstræti 11. Simi 5113.
Ljósmyndastofa
Laugaveg 12.
Lögfræðingar:
Áki Jakobsson og Kristján
Eiríksson, Laugaveg 27, 1.
hæð. Sími 1453.
Innrömmum
málverk, ljósmyndir o. fl.
Ásbrú, Grettisgötu 54.
mkjMhui-wmfik/œ
/jA L/iugmg 68
Ragnar Ölafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi: Lög-
;; fræðistörf, endurskoðun og; |
fasteignasala. Vonarstræti
12. — Sími 5999.
Saumavélaviðgerðir
Skrifstofuvéla-
viðgerðir.
S Y L G I A
Laufásveg 19. Simi 2656
Útbreiðið
Þjóðviljann
Sigfús Sigurhjartarson fimmtugur
Framhald af 5. síöu.
áttu sem háð er innan bæjar-
stjórnar. Og þær þakkir munu
þúsuhdir Reykvíkinga vilja
taka undir af einlægum og heil-
um huga.
Guðmundur Vigfússon.
★
Það er íslenzk íþrótt að
fornu og nýju að ræða um
menn og lýsa þeipi. Hinar ágætu
mannlýsingar íslendingasagna
hefðu líklega ekki náð sinni
fullkomnun ef það hefði ekki
verið tíðkað hér fyrrum eins
og nú í tíma og ótíma að tala
um menn öllu fremur en mál-
efni, telja fram kosti manna
og galla, gáfur og lýti, afrek
og yfirsjónir. En þegar því
framtali er lokið, er viðkom-
andi allajafna ,,gerður upp“,
líkt og bókhaldarar eða skatta-
nefndir séu að verki, og færður
í flokk góðra manna og
merkra eða hiniia, sem ekki
„eiga fyrir skuldum“.
Þessi ríka tilhneiging til þess
að meta og flokka menn e'ftir
meintu innræti og eiginleikum
hefur gert allmikið vart við
sig í íslenzku stjórnmálalífi og
sett, talsverðan svip á íslenzk
blöð. Hér byrja lofsamlegar
mannlýsingar að birtast um
Húsnæól éskast
fyrir hreinlegan smáiðnað.
Sími 2615.
I Til
liggur leiðin |
ELAOSUl
Þróttarar!
KVÖLDVAKA 3. flokks
|! verður haldin 6. febrúar (í;;
; kvöld) í skálanum kl. 9. —!;
i! Skemmtiatriði: 1. Ávarp 2.;!
;! Framhaldssagan. 3. Stutti;
'; ferðasaga. 4. Söngur (söng-1;
jkona syngur vinsæl lög). 5. ;|
;:Þátturinn Gaman og alvara|;
; (aldrei eins skemmtilegur og;j
!!nú). 6. Söngur. 7. Kvik-;
: myndasýning (grínmyndir),!;
; 8. DANS. — Nú má enginnj!
!sitja heima. — 3. flokkur.;;
Aoalfundur j:
jGlímuráðs Reykjavíkur verð
!;ur haldinn í Félagsheimili;!
j! verzlunarmanna, V onar-!;
;;stræti 4, sunnudaginn 10. jl
!; febrúar, og hefst hann kl. J;
jj 14.00. Fundarefni: Venjuleg!;
I j aðalfundarstörf. — Allirj!
!;glímumenn velkomnir. J;
Stjórnm. !;
menn þegar þeir eiga fertugs-
afmæli. Áhugasamir flokks-
menn vilja lesa lof um sína
samherja og forustumenn á
afmælum þeirra og sem oftast
endranær. Og til eru menn
sem virðast halda, að ekki
sé mikið um gáfur og mann-
kosti utan síns flokks.
Ég kann ekkert til þeirrar
íþróttar, að lýsa mönnum
skarplega til lofs eða lasts og
er liún ekki geðfelld. Því veld-
ur vafalaust að ég hefi enga
sálfræðilega skarpskyggni til
að bera. Þykist engan mann
hafa þekkt til hlítar og held
að það sé ekki hægt. Þess
vegna hefi ég sársjaldan skrif-
að lof um samherja mína eða
vini, hvorki á afmælum þeirra
né að þeim látnum og ekki
tamt að skamma andstæðinga
persónulega að neinu gagni. Ég
minnist þess, að eitt af því
sem mér var réttilega fundið
til foráttu, meðan ég réði yfir
blaði, var Joað, hve lítið lof ég
léti bera á forustumenn. flokks-
ins. (Skammirnar um andstæð-
ingana þótti ekki vanta eins
átakanlega!) Þettá var þó ekki
fyrir þá sök, að ég kynni ekki
að meta ýmsa góða kosti for-
ustumanna Alþýðuflokksins. —
Það kann ég enn, þótt nú beri
meira á miili.
Það er heldur ekki vegna
þess að mér sé nú tamara eða
geðfelldara en áður að bera
lof á samherja í stjórnmálum
að ég bið Þjóðviljann fyrir
nokkur orð um Sigfús Sigur-
hjartarson fimmtugan. Heldur
veldur það mestu um það, að
ég get aldr'ei þessu vant feng-
ið mig til að skrifa afmælis-
grein í blað, að Sigfús er nú
staddur í fjarlægu landi og
berst þar við sjúkdóm sem ég
er ekki í neinum vafa um að
er hið helzta sem hann hefur
haft upp úr nær tuttugu ára
stjórnmálastarfi, En það ber
einnig til þessa, að mér er
kunnugra um það en mörgum
samherjum Sigfúsar í dag,
hvernig hann leiddist út á þann
orustuvöll, þar sem menn eru
drepnir, ekki með ærlegum
vopnum, og heldur ekki, eins
og sumir halda, með skömmum
og svívirðingum andstæðing-
anna, heldur með símahring-
ingum, heimsóknum, nefnda-
fargani og fundaþvargi, sem
eyðdleggja magann, hjartað eða
heilann og taugakerfið í ís-
lenzkum stjórnmálamönnum
löngu fyrir tímann.
Mér er kunnugra um það en
mörgum öðrum að það var
ekki í von um frama eða hagn-
að, að Sigfús Sigurhjartarson
dróst út í stjórnmálabarátt-
una. Samherjum hans þarf
ekki að segja það, því að þeir
þekkja einlægni hans, fórnfýsi
og óeigingirni. Ég er ekki alveg
saklaus af að hafa stuðlað að
þvi, að Sigfús Sigurhjartarson
tók að leggja stund á blaða-
mennsku við lítil eða engin
laun í stáð þess að una í
sæmilegri stöðu við batnandi
hag og að hann steypti sér út
í stjórnmálabaráttu með óþökk,
aðkast og illt umtal að launum.
eftir að hann hafði gegnt æðstu
stöðu í samtökum templara
við góðan orðstír og almennt
lof manna af öllum flokkum.
Þá þegar þurfti enginn að
hlusta á Sigfús Sigurhjartar-
son halda' nema eina ræðu um
þau mál, sem hann hafði breiin-
andi áhuga á, til þess að sann-
færast um að hann er með af-
brigðum mælskur maður, sem
stundum nær þeim tökum á á-
heyrendum sínum, sem hinunr.
miklu mælskumönnum einum
tekst. Hann var þá velmetinn
kennari við einn af æðri skól-
um bæjarins og í sívaxandi
áliti.
Það sem er einkenni hins
fædda kennai’a er og höfuð-
kostur Sigfúsar í ræðu og riti,
en þaö er hæfileiki til að skýra
flókin mál á einfaldan og al-
þýðlegan hátt fyrir áheyrend-
um og lésendum. Eitt fyrsta.
verk Sigfúsar eftir að hann
hóf starf í Alþýðuflokknum og
fyrir hann, var að koma upp
námskeiði fyrir atvinnulausa
unglinga, sem þá var nóg af,
en sú starfsemi var áður en
varði orðin að svo stórum
skóla, að honum dugði ekki
minna húsnæði en heil hæð í
stórhýsi í miðbænum. Sigfús
valdi úr kennurum í skóíum
bæjarins og réði til hins nýja
skóla, leigði dýrt húsnæði,
keypti skólahúsgögn fyrir þús-
undir króna, skipulagði skól-
ann og rak hann. Enginn pen-
ingur var til í sjóði þegar þessi
skóli var stofnsettur og enginn.
styrkur. Bara víxill í banka csg
áhugi Sigfúsar. Enda fékk
hann aldrei eyris virðd fyrir
sitt starf. Allt þetta gerði hann
í hjáverkum með sínu kenn-
arastarfi og var þó um leið
stjórnmálaritst jóri Alþýðublaðs-
ins. Ég get þessa hér til dæmis
um það, hvílíkur starfsmaður
Sigfús Sigurhjartarson er, og
af því að þessu, sem var eitt
fyrsta átak hans í flokksstarf-
semi, hefur ekki verið haldið á
lofti. Honum hefði verið innan
handar að gera þennan skóla
að álitlegu einkafyrirtæki sínu,
en þegar hann fór úr Alþýðu-
flokknum við kaldar kveðjur
sumra forustumanna hans, gaf
hann flokknum skólann og er
óþarft að rekja þá sögu lengra
í þessu sambandi.
Annað starf, sem Sigfús vann
fyrir Alþýðuflokkinn á fyrstu
starfsárum sínum í honuih, og
ekki hefur verið haldið á lofti
né þakkað sem skyldi, var að
undirbúa fyrstu lögin um al-
þýðutryggingar. Mæddi v.innan
við það mest á honum, þótt
hann hefði þar samstarf og
samráð við aðra góða menn,
svo sem Harald Gúðmundsson
sem þá var ráðherra flokksins
og hafði fullan hug á að koma .
því máli fram. Sigfús hefur
síðan fylgt fast fram trygg-
ingamálum og félagsmálum öll-
um og hefur átt meiri hlut að
framgangi þeirra en flestir þeir
sem mest vilja státa af áhuga
sínum á þeim málum og af-
rekum í þeim.
Aðrir, sem eru kunnugri en
ég, munu minnast starfs Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar í öðr-
um greinum, t. d. fyrir Kaup-
félag Reykjavíkur og nágrenn-
is, en þar, sem víðar er hann'
gengur að verki, mun hann
eiga margar vinnustundir og
margt átak, sem honum hafa
ekki Verið reiknuð laun fyrir.
Slíkir menn sem hann taka
ekki þau laun, sem kvitta fyr-
ir erfiði og andvökur, í reiðu
fé, ekki með kosningum til for-
ustu eða frama, heldur ekki í
klappi flokksfélaga fyrir góðri
ræðu, eða lofi samherja á af-
mælisdögum. En handtak lú-
ins verkamanns getur launað
það allt og margborgað.
Ég vil óska vini mínum,
Sigfúsi, þess síðast orða, að
hann fái fljótan og góðan bata
þess meins, sem hefur þjáð'
hann um hríð. Þó er sú ósk
víst ekki honum til handa
fyrst og fremst, því að ég veit
að hann heldur áfram að slíta
sér út með sömu störfum og
áður fyrir sama fólkið og sömu
áhugamálin og áðun
En þá er það góð ósk því
fólki til handa.
F. R. Valdimarsson.