Þjóðviljinn - 08.02.1952, Side 8
Bandarísk flugstöð við
Tliuíe til árása á Evrópu
Við Thule, nyrzta byggt ból í Grænlandi, hafa Banda-
ríkjamenn reist mikla flugstöð.
DióÐyiumM
Föstudagur 8. febrúar 1952 — 17. árgangur — 31. tölublað
BÆJARSTJÖRNARFUNDURINN
Yfirstjórn bandaríska flug-
hersins hefur lagt mikið kapp
á að hraða flugvallargerðinni
við Thule. Nú hefur Christian
Science Monitor, eitt hinna á-
byggilegri borgarablaða í
Bandaríkjunum, skýrt frá því
að flugstöðin megi. nú heita
fullgerð.
Fyrir B-36 vélar.
Flugbrautirnar í Thule eru
þriggja kílómetra langar og
svo sterkbyggðar, að flugvélar
af gerðinni B-36, þyngstu
kjarnorkuflugvélar Bandaríkja-
manna, geta lent þar.
Flugstöðinni í Thule fylgja
flugvélaskýli og viðgerðarverk-
stæði fyrir þrýstil-oftsknúðar
orustuflugvélar.
Christian Science Monitor
skýrir frá því, að Bandaríska
flughersstjórnin hafi fengið á-
h'uga á að koma upp flugstöð
í Thule síðan það kom á dag-
inn, að árásarferðir frá Banda-
ríkjunum til skotmarka í
Evrópu og til baka aftur við-
komulaust eru ekki framkvæm-
anlegar.
Ætlunin er að sprengjuflug-
vélar af þyngstu gerðum lendi
14 bifreiðaárekstrar
I fyrradag urðu 14 bifreiða-
árekstrar hér í bænum. Engin
slys urðu á mönnum, en flest-
ar bifreiðarnar munu hafa
skemmzt eitthvað. Nú er
nokkru betri færð á götum bæj
arins en um skeið um daginn,
og kennir lögreglan þessa á-
rekstra því að bílstjórar hafi
stigið fastar á benzíngjafann
en færðin gaf þó tilefni til.
1 Kakinada-kjördæmi felldi
frambjóðandi kommúnista fram
bjóðanda Kongressflokksins,
varamatvælaráðherrann Thiru-
mala Rao, með 26.000 atkvæða
Hvað olli slysinu?
Rannsókn á orsökum hins
hörmulega banaslyss, er varð
á Reykjavikurflugvelli í fyrra-
dag, er enn ekki lokið. En í
gær upplýstist þdð að þeir
Walter heitinn og félagi hans
liöfðu komið sér saman um
að bæta loftið í tankinum hjá
sér með því að nota súrefni úr
súrefnisflösku er var á gas-
suðutæki skammt frá bílnum,
sem þeir voru að gera við.
Verður venjulega mjög þungt
og súrefnissnautt loft í tönkum
sem þessum, þegar slíkar við-
gerðir fara fram á þeim, og er
venjan að hafa við höndina
loftdælu er b!æs inn fersku
lofti. 1 gær höfðu sérfræðingar
enn ekki verið látnir ganga
fyllilega úr skugga um það
hvort þessi notkun súrefnis-
flöskunnar á gassuðutækinu
kunni að hafa verið orsök
slyssins, en er Þjóðviljinn
hafði tal af rannsóknarlögregl-
unni í gærkvöldi voru sterkar
likur taldar benda til þess.
Rannsókninni verður haldið
áfram í dag.
í Thule og taki þar eldsneyti
áður en þær leggja upp í árás-
arferð til Evrópu og aftur að
árás lokinni og taki þá elds-
neyti til flugs til heimastöðva
í Bandaríkjun'um. Orustuflug-
vélarnar eiga hinsvegar að
hafa fasta bækistöð í Thule.
Gjafir til Krabbameins-
félagsins
Krabbameinsfélagi Reykja-
víkur hafa nýlega borizt tvær
veglegar gjafir, til minningar
um Svein Björnsson, forseta
íslands. Er önnur frá Bruna-
bótafélagi Islands, 5000.00 kr.
í peningum. Hin er frá Sjóvá-
tryggingafélagi íslands, einnig
5000.00 krónur í peningum
sem gangi til greiðslu á geisla-
lækningatækjunum sem Krabba
meinsfélagið gaf Landspítalan-
um nýlega.
Umræður um hervæöingu
gær á þinginu í Bonn.
Adenauer forsætisráðherra
flutti framsöguræðuna, en varð
hvað eftir annað að þagna,
vegna þess að ekki heyrðist
mannsins mál fyrir háreysti
inni í þingsalnum og útifyrir
þinghúsinu. Frá áheyrendapöll-
um þingsins voru kölluð framí
fyrir Adenauer mótmæli gegn
hervæðingunni og utanhúss
höfðu safnazt saman þúsundir
manna, flest æskufólk, sem lét
meirihluta. I Andhra-kjördæmi
sigraði frambjóðandi kommún-
ista einnig, með 10.000 atkv.
meirihluta. I Gudivada-sýslu
varð hið sama uppi á teningn-
um, nema kommúnistinn hafði
nær 58.000 atkvæði fram yfir
frambjóðanda Kongressflokks-
ins.
I Travankore-Kosjin er ólík-
legt að Kongressflokkurinn fái
myndað nægilega sterka stjórn,
sökum kosningasigra kommún-
ista og óháðra. -Þar fengu
kommúnistar og fylgismenn
þeirra 37 þingmenn, en Kon-
gressflokkurinn 46, af 108
þingsaitum. Kommúnistaflokk-
urinn er að vísu bannaður í
fylkinu Hyderabad en við
kosningarnar varð hann þó
næststærsti flokkurinn þar.
Á blaðamannafundi í Madras
lýsti ritari Kommúnistaflokks-
ins því yfir, að ef flokkurinn
kæmist til valda, myndi hann
fyrst og fremst vinna að lausn
jarðeignamálanna. Eins og í
Kína mundi flokkurinn öðlast
hylli bændanna með því að
fylgja þeirri stefnu að afhenda
þeim jörðina sem ræktaði hana.
Einnig lét ritarinn svo um-
mælt að í fylkjunum Madras,
Travankore, Kosjin, Bengal og
kannski í Hyderabad mundi
ef til vill hægt að mynda
samsteypustjórn kommúnista
og annarra flokka, án þátttöku
Kongressflokksins.
Stjórn Faure
stendur tæpt
I nótt átti franska þingið að
greiða atkvæði um tillögur
stjórnarinnar í efnahagsmál-
um, en Faure forsætisráðherra
hafði lýst yfir, að hann myndi
segja af sér ef þær yrðu felld-
ar.
Sigurhorfur stjórnarinnar
rýrnuðu mjög í gærkvöld, er
íhaldsmenn ákváðu að greiða
atkvæði gegn henni eftir að
þeir höfðu hlýtt á framsögu-
ræðu Faure. —
Forsætisráðherrann sagði, að
fjármálum Frakklands væru
nú svo illa komið, að frankinn
myndi missa verðgildi sitt ef
ekki væri gripið til róttækra
ráðstafana.
Bandarískt risaflugvirki hlað-
ið sprengjum fórst í gær ná-
lægt Tokyo í Japan. Öll áhöfn-
in, ellefu menn, beið bana og
sömuleiðis fjórir óbreyttir jap-
anskir borgarar en 10 særðust
hættulega. Sextán hús Japana
brunnu til ösku.
Vestur-Þýzkalands hófust í
Adenauei
óspart í Ijós andúð sína á her-
væðingarbrölti stjómarinnar.
Adenauer kvað nauðsyn bera
til að hervæða- Vestur-Þýzka-
land ef það ætti ekki að verða
Sovétríkjunum að bráð. Hann
sagði, að vonir stæðu til að
V.-Þýzkaland yrði með tíman-
um tekið í A-bandalagið, vest-
urþýzka stjórnin gæti illa sætt
sig Við að leggja fram lið í
fyrirhugaðan V.-Evrópuher en
fá svo enga hlutdeild í yfir-
stjórn þess hers. Um Saarmál-
ið sagði Ádenauer, að hann
væri sannfærður um að það
mætti leysa á þann veg, að
bæði Þjóðverjar og Frakkar
gætu vel við unað.
Barefli og brunaslöngur.
Meðan Adenauer flutti ræðu
sína kom til átaka útifyrir
þinghúsinu. Lögregla kom á
vettvang og réðist á mannsöfn-
uðinn, sem þar hafði hópazt
saman, með kjdfubarsmíð og
vatnsflaumi úr brunaslöngum.
Erich Ollenhauer, varafor-
maður sósíaldemókrata, tók til
máls á eftir Adenauer. Mót-
mælti hann þátttöku Vestur-
Þýzkalands í Vestur-Evrópu-
hernum. Ekki kvað hann þó
flokk sinn vera á móti .her-
væðingu í sjálfu sér, en hann
áliti, að þátttaka Vestur-
Þýzkalands í V.-Evrópuhernum
yrði ekki á jafnréttisgrundvelli
og Vesturveldin hefðu ekki
fengizt til að veita Vestur-
Þýzkalandi fullveldi. Ollenhau-
er réðst- á Adenauer fyrir að
halda ekki einarðlegar á mál-
stað Þjóðverja í Saardeilunni.
Framhald af 1. síðu.
Ábyrgðin hvílir á ráða-
mönnum bæjarins.
Eftir yfirlýsingar fjármála-
ráðherra um glæsilegan fjár-
hag ríkisins ætti ekki að standa
á að þetta fé fáist, — og það
verður að fást strax. Eg full-
yrði að algert neyðarástand
ríki á fjölmörgum heimilum.
Ábyrgðin hvílir á ráðamönnum
bæjarstjórnarinnar.
Um þetta mál er alger
eining.
Magnús Ástmarsson sagði
m a. um tillögurnar: Pólitískur
ágreiningur hefur oft bagað
verkalýðssamtökin, en um þetta
mál er alger eining.
718 atvinruleysingjar
sönnun fyrir litíu at-
vinnuleysil!
Borgarstjóri ræddi langa
hríð um atvinnuleysiskráning-
una og að hún hefði leitt í
ljós að ekkert væri að treysta
fullyrðingum forráðamanna
verkalýðssamtakanna né
,,kommúnistum“ í bæjarstjóm.
Þeir hefðu fullyrt að atvinnu-
leysingjarnir væru 1500 eða
öllu heldur 2500. Nú hefði
reynslan leitt í ljós að þrátt
fyrir þessar fullyrðingar hefðu
ekki mætt til skráningar nema
718 atvinnuleysingjar!
„Fyrir ríkisstjórn og bæj-
arstjórn er ákaflega örð-
ugt að byggja á öðru en
þeirri lögboðnu atvinnu-
leysiskráningu,“ sagði
hann.
Á bæjarstjórnarfundinum í
gær vakti Guðmundur Vigfús-
son máls á sálfræðingsráðningu
íhaldsins og sagði m. a.:
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
beindi ég þeirri spurningu til
borgarstjóra sagði hann, hvort
það væri rétt að maður að
nafni Ólafur Gunnarsson,
kenndur við Vík í Lóni hefði
verið ráðinn starfsmaður bæj-
arins, og þá helzt sem sálfræði-
legur ráðunautur.
Borgarstjórinn var þá ekki
viðbúinn að svara spurning-
unni, en lofaði að kynna sér
málið. Mér þætti vænt um ef
ætlun um þær framkvæmdir
hjá bæjarsjóði og bæjarfyr-
irtækjum, sem grípa mætti
til í því skyni að auka at-
vinnu á þeim árstímum þeg-
ar atvinna almennt dregst
saman eða af öðrum ástæð-
um.“
Slíkt er ráð íhaldsins til úr-
bóta á atvinnuleysi 718 skráðra
atvinnuleysingja — og raun-
verulega um ferfalt fleiri. Slík-
ar áætlanir hefði vitanlega átt
að gera fyrir löngu, en >að
bjóða þúsundum manna slíkt
svar við kröfunni um vinnu til
að seðja hungrið í dag er meira
ábyrgðarleysi og mannfyrir-
litning en Ihaldið hefur þorað
að láta uppi þar til í gær.
Engir peningar til.
Borgarstjóri kvað enga pen-
inga vera til svo hægt væri að
bæta úr þörfum atvinnuleys-
ingjanna. Guðmundur Vigfús-
son minnti hann á að þegar
íhaldið ætlaði að lækka ltaup í
atvinnubótavinnunni 9. nóv.
1932 þá átti það að gerast af
því engir peningar væru til.
Morguninn 9. nóv. voru engir
peningar sagðir til, en um
kvöldið 9. nóv. voru þeir allt
í einu til. Hvers vegna? Vegna
þess að verkalýðurinn hafði
knúið Ihaldið til að láta þá af
höndum.
Borgarstjóri kallaði þá: Er
bæjarfulltrúinn með hótanir!
Ef svo færi að slíkir atburð-
ir endurtækju sig þá er það á
ábyrgð Ihaldsins eins, svaraði
Guðmundur.
borgarstjórinn gæti gefið ein-
hverjar upplýsingar um þenna
orðróm nú.
Sé það rétt að Ólafur þessi
sé orðinn starfsmaður bæjarins
væri æskilegt að fá upplýsing-
ar um starfssvið hans og laun
og jafnframt hvaða aðili hef-
ur teldð ákvörðun um ráðningu
lians.
Og nú gerðist hið óvænta:
borgarstjórinn vissi allt í einu
eitthvað um Ólaf Gunnarsson
frá Vík í Lóni. „Síðari hluta
sumars var hann (þ.e. Ólafur)
fenginn, samkvæmt tillögum
Framhald á 7. síðu.
Líkur fyrir fylkisstjórnum kommán-
ista í Indlandi
í skeyti frá Madras í Indlandi greinir frá því að komm-
únistaflokkarinn hafi í síðustu viku enn unnið athyglis-
verða kosningasigra. í Andhrafylki felldu þeir m. a.
nokkra ráðherra.
Þýzkri hervœðingu mótmœlt,
útök við þinghúsið í Bonn
Nettó gjaldeyrishagnaður
1,9 millj.
Að því búnu þuldi hann um
tap Bæjarútgerðarinnar við að
leggja aflann á land hér, sem
mun vera 700 þús. til 1 millj.
kr.
Fyrir aflann hér hefur Bæj-
arútgerðin fengið 1,45 millj.
kr. og greiddar hafa verið í
vinnulauu 1,56 millj. kr. og
nettógjaldeyrishagnaður af
því að leggja aflann upp hér
til vinnslu í stað þess að selja
hann óunninn er tæpar tvær
millj. eða 1,9 millj. kr.
Atvinnuleysingjarnir eiga
að éta plön og kynda
áætlunum næstu ára.
Þegar borgarstjórinn hafði
heyrt tillögur Einars og Magn-
úsar skrifaði hann tvær tillög-
ur er hann lagði fram. Var
önnur um að bæjarstjórn tæki
upp samninga við ríkisstjórn
um „hæfilegan hluta“ af millj.
fjórum og:
„Bæjarstjórn ályktar að
fela bæjarráði að semja á-
Rödd verkamanns frá
1932.
Verkamenn hafa ekki á und-
anförnum árum gert tíðreist á
bæjarstjórnarfundi til að
hlusta á málflutning þar, svo
var raunar ekki heldur í gær.
En þegar rætt var um kaup-
lækkunartilraun Ihaldsins 1932
kallaði gamall skeggjaður
verkamaður á áheyrendabekkj-
unum að kaupið hefði átt að
lækka um 36 aura. Á annan
áratug hafa raddir frá áheyr-
endabekkjunum ekki raskað ró
bæjarstjórnarinnar og varð
Ihaldinu undarlega bylt við
rödd verkamannsins frá 1932.
Urbætur kistulagðar.
Tillögum þeirra Einars og
Magnúsar var visað til bæjar-
ráðs með 8 atkv. Ihaldsins
gegn 7 atkv. Till. borgarstjóra
um „hæfilegan hlut“ var hins-
vegar samþyikkt og sömuleiðis
tillaga hans um að seðja
svanga atvinnuleysingja með
því að fela bæjarráði að gera
áætlanir fyrir næstu vetur!!
Sálfræðingur íhaídsins viðurkenndur
Á að leiðbema atvinnuleysingjum um stöðuval!!