Þjóðviljinn - 12.02.1952, Qupperneq 1
líonungurmn
kvaddur
Líki Bretakonungs var í gær
Ikomið fyrir í Westminster Hall,
en "þar gefst þegnunum tæki-
færi til að kveðja konung í
dag og á morgun, og voru
fþegar komnar biðraðir i gær.
Fær erlendur auðhringur einkaleyfi til að virkja
Þjórsá og koma upp aluminíumverksmiðju?
Samitingar nm nýíl? stórlelú afsal ísleitzkra lantlsrelíiiida. — Áætlað at$
fyrirhugaðar framkvæmdir kosti 3300 milljónir kréna
A síðasta ári eignuðust íslendingar aítur vatns-
léttindi þau í Þjórsá sem Títanfélagið brezk-norska
komist yfir á heimsstyrjaldarárunum fyrri, og þjóð-
inni var það mikið fagnaðarefni að hafa endurheimt
mesta vatnsfall sitt og orku þess. En nú hefur kom-
ið í Ijós að ekki voru kvaðir þessar fyrr leystar af
yfirráðum íslendinga yfir Þjórsá en nýir og stór-
um voldugri aðilar skárust í leikinn.
Þjóðviljinn hefur góðar heimildir fyrir því að
undanfarið hafa farið fram umræður milli erlendra
aðila og íslenzkra stjórnarvalda þess efnis að er-
lendur auðhringur fengi einkaleyfi til að virkja
Þjórsá og hagnýta raforkuna til aluminíumfram-
leiðslu. Mun bæði brezkur og bandarískur alum-
iníumhringur hafa hug á að sölsa undir sig þessa
sióríelldu möguleika, en eins og kunnugt er hafa
brezkir sérfræðingar undanfarin ár rannsakað mjög
ýtarlega virkjunarmöguleika í Þjórsá, án þess að
nokkuð hafi verið látið uppi um tilgang rann-
sóknanna eða niðurstöður. Brezki hringurinn er
hins vegar í mjög nánu sambandi við bandaríska
aluminíumhringinn ALCOA — Aluminium Company
cf America — sem fyrir stríð réði yfir 70% af
aluminíumframleiðslu alls heimsins.
Lauslega hefur verið áætlað að þessar stórfram-
kvæmdir muni kosta um 200 milljónir dollara —
ca. 3300 milljónir króna — og hinir erlendu aðilar
■vilja sjálfir fá sérleyfi til að eiga og reka hina nýju
stóriðju. Mun Eysteinn Jónsson vera á förum til út-
landa í sambandi við þetta mál, og í fyrradag hóf
blað forsætisráðherrans, Tíminn, ákafan áróður
íyrir því að erlendir auðhringar fengju að athafna
sig hér á íslandi og hagnýta auðlindir íslandinga.
Niðurstöður atvinnule ysisskránrngaiinnar: |
Atvínnuleysið nær til 1577
manna í 39 starfsgreinum
Ráðningarstofan hafði í gær unnið að mestu úr
ðtvinnuleysisskráningunni, en eins og áður hefur
verið sagt voru skráðir 669 karlmenn sem eru í 30
starfsstéttum og hafa á framfæri sínu 848 börn og
konur. 49 konur úr 8 starfsstéttum mættu til skrán-
ingar með 11 börn á framfæri sínu.
Samkvæmt skráningu þessari nær atvinnuleysiÖ
því til 1577 manna
Forustugrein Tímans í fyrrad.
í'jallar um stóriðju á íslandi
og er almennt orðuð, en er .þó
miðuð við þessar ákveðnu á-
ætlanir. Þar er m. a. komizt
svo að orði:
„Eitt stærsta verkefni þjóð-
arinnar, ef efnaleg afkoma
ihennar á að vera örugglega
tryggð til frambúðar, er því
það að koma fótum undir nýja
undirstöðuatvinnuvegi, við hlið-
ina á sjávarútvegi og landbún-
aði. Möguleikar til þess eru
.hér miklir fyrir hendi, þar sem
er uppbygging stóriðnaðar, er
býggist á hagnýtingu hinnar
miklu vatnsorku, sem landið
íhefur að bjóða.
Uppbygging slíkra atvinnu-
greina kostar mikið fé. Fyrst
þar að reisa orkuverin og síðan
verksmiðjur, sem hagnýta sér
orkuna. Þetta fé höfum við
ekki. Þetta verður því ekki
gert, nema okkur takist að fá
erlent fé til framkvæmdanna.
Erlent fé til slíkra fram-
Ikvæmda er hugsanlegt að fá
með tvennum hætti. 1 fyrsta
lagi með því að fá lánsfé. í
öðru lagi með því að veita er-
iendum aðilum sérleyfi til fram-
(kvæmdanna. Fyrri leiðina mætti
nefna skuldaleiðina., en síðari
leiðina sérleyfisleiðina.
Það virðist yfirleitt hafa ver-
ið álitið, að skuldaleiðin væri
betri en sérleyfisleiðin. Hún
samrýmdist betur sjálfstæði
þjóðarinnar. Völdin yfir fyrir-
tækjunum væru þá í höndum
innlendra manna o. s. frv. Þetta
hafði nokkuð til síns máls áður
fyrr. Nú er þetta breytt, því
að sérleyfunum eru nú jafnan
látin fylgja skilyrði, sem
tryggja innlenda hagsmuni.
Fleiri og fleiri lönd, sem hafa
þurft erlent lánsfé til stór-
framkvæmda, hafa því farið inn
á sérleyfisleiðina í vaxandi mælj
hin síðari ár.
Reynslan hefur nefnilega leitt
það í ljós, að skuldaleiðin get-
ur verið sjálfstæðinu öllu á-
ihættumeiri og skaðlegri en sér-
leyfisleiðin. Lánveitandinn þarf
ekki annað að gera en að inn-
heimta skuld sína og þarf ekki
neitt undir hlutaðeigandi þjóð
að sækja. Allt öðru máli gegnir
um sérleyfishafann, sem hefur
margt undir hlutaðeigandi
, stjórnarvöld að sækja og hefur
hag að því að sambúðin gangi
sem bezt.
Þá tekst og oft betur upp-
bygging þeirra stórfyrirtækja,
aem sérleyfishafar hafa með
höndum, því að þeir ráða yfir
þekkingu og reynslu, sem ann-
ars er síður völ á.“
Þetta stórmál verður nánar
rætt og rakið í næstu blöðum.
jon Raínsson
kominn heim
jl
Jón Rafnsson kom heim í
gærmorgun með Gullfossi, en
hann hefur dvalið í Sovétríkj-
unum til lækninga síðan í júlí
í sumar. Dvaldi Jón m. a. um
tima á hressingarheimili suður
á iKrím. Er Jón liinn hressasti
og lætur mjög vel af dvölinni
þar eystra.
Bjarní
tíl Lissabon
Yfirherstjórar Atlanzhafs-
bandalagsins komu saman á
fund i Lissabon í gær til að
undirbúa fund Atlanzhafsbanda
lagsráðsins sem á að hefjást
þar í næstu viku. Á fundinum
mættu yfirherstjórar Grikk-
lands og Tyrklands en á ráðs-
fundinum á m. a. að ganga frá
upptöku þessara lýðræðiselsk-
andi Atlanzhafslanda í banda-
lagið. Jafnframt á ráðið að
fjalla um sameiginlegan her
bandalagsins. — Fulltrúi ís-
lands, Bjarni Benediktsson,
leggur væntanlega af stað til
Lissabon einhvern næstu daga.
29 lórust
29 manns fórust í fyrradag
er skymasterflugvél rakst á
hús við flugvöllinn í Elisabeth
í New Jersey í Bandarikjunum.
Farþegar og áhöfn voru alls 60
talsins. Þetta er þriðja stór-
slysið sem verður við flug-
völ] þennan á þremur mánuð-
um.
Verkamenn voru 427, þar af
ókvæntir 263 með 32 börn á
framfæri, 164 kvæntir með 230
börn á framfæri. Vörubílstjór-
ar 13, þ. a. 4 ókvæntir með
3 börn og 9 kvæntir með 13
börn. Fólksbifreiðastjórar 13,
þ. a. 4 ógiftir en 9 kvæntir
með 20 börn. Sjómenn 38, þ. a.
26 einhleypir með 13 börn og
12 kvæntir með 21 barn. Mur-
arasveinar 45, þ. a. 9 einhl.
með 3 börn, 36 kvæntir með
70 börn. Múraranemar 3, allir
ókvæntir, með 5 börn. Tré-
smíðasveinar 58, þ. a. 18 ókv.
með 3 börn, 40 kvæntir með
60 börn.Trésmiðaneml 1, ókv.
Prentarar ,8, þ. a. 5 ókvæntir,
3 kvæntir með 3 börn. Málar-
ar 12, þ. a. 2 ókvæntir, 10
kvæntir me'ð 10 börn. Rafvirkj-
ar 3, þ. a. 1 ókvæntur barn-
laus, 2 kvæntir með 4 börn.
'Rafvirkjanemi 1, kvæntur barn-
laus. Bókbindarar 5, þ. a. 3
ókvæntir og barnlausir, 2
kvæntir með 3 börn. Húsgagna-
smiðir 6, þ. a. 3 ókvæntir með
1 barn, 3 kvæntir með 2 börn.
Veggfóðrarar 2, kvæntir með
3 börn. Skósmiðir 3, þ. a. 1
ókvæntur, barnlaus, 2 kvæntir
með 1 barn. Iðnverkamenn 5,
þ. a. 2 ókvæntir, barnlausir, 3
kvæntir með 6 börn. Prent-
myndasmiðir 6, þ. a. 2 ókv.,
barnlausir, 4 kvæntir með 5
börn. Matsveinar 3, þ. a. 2 ókv.
með 3 börn, 1 kvæntur með 1
barn. Garðyrkjumenn 4, þ. a.
2 ókvæntir barnlausir, 2 kvænt-
ir með 2 börn. Skrifstofumenn
3, kvæntir með 4 börn. Klæð-
skeri 1 ókvæntur, barnlaus.
Rakari 1, ókvæntur barnlaus.
Búfræðingur 1, ókv., barnlaus.
Innheimtumaður 1, ókv,, barn-
laus. Verzlunarmaður 1 kvænt-
ur með 1 barn. Barnakennari 1,
kvæntur með með 1 barn. Neta
gerðarmenn 2, annar ókv. barn-
laus, hinn kvæntur með 2 börn.
Bakari 1, ókv. og barnlaus. Af-
greiðslumaður 1, kvæntur með
6 börn.
Konurnar 49 skiptust þannig:
Verkakonur 20, þ. a. 19 ó-
giftar með 7 böm á framfæri,
1 gift en barnlaus. Verzlunar-
stúlkur 12, allar ógiftar, með
1 barn. Saumakonur 9, allar ó-
giftar, með 1 barn. Netagerðar-
konur 3, allar ógiftar og barn-
lausar. Verzlunarstúlkur 2, báð-
ar ógiftar, 1 barn. Framreiðslu-
stúlka 1, ógift og bamlaus.
Skrifstofustúlka 1, ógift með
1 barn. Skipsþerna 1, ógift og
barnlaus.
Ali Maher til
Lundúna
Forsætisráðherra Egypta-
lands, Ali Maher Pasha, er
lagður af stað til Lundúna til
að vera viðstaddur útför Breta-
konungs, — en aðalerindið er
þó að hefja samninga við
brezku stjórnina um áframhald-
andi yfirráð Breta á Súessvæð-
inu og í Egyptalandi og aðild
Egyptalands að hernaðarbanda-
lagi ríkjanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Ali Maher hefur undanfarið
gengið mjög rösklega fram £
því að berja niður frelsisbar-
áttu landa sinna og tilkynntu
Bretar í gær að aflétt hefði
nú verið öllum hömlum á um-
ferð um Súessvæðið.
19 fórusf
19 manns fórust í gær þegar
snjóskriða féll á skíðaskála f
austurrisku ölpunum, en 30
manns tókst að grafa út úr
skriðunni lifandi.
Félagsfundur á fimmtu-
dagskvöld
Sósíalistafélag Reykjavíkur
helcfur félagsfund að RöðH n.
k. fimmtudag 14. febr. kl. 8,30
síðdegis.
Auk félagsmála verður rætt
um atvinnuástandið í bænum
og atvinnuleysisbaráttuna.
Nauðsynlegt er að sem allra
flestir flokksmenn sækl fund-
inn.