Þjóðviljinn - 19.02.1952, Síða 7
Þriðjudagur 19. febrúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (7
i-lto
V
Stofuskápar,
klæðaskápar, kommóður
ávalt fyrirliggjandi.
« HásgagnaverzJunin
Þórsgöíu 1.
Ensk fataefni
fyrirliggjandi. Sauma úp til-
lögðum efnum, einnig kven-
dragtir. Geri við hreinlegan
fatnað. Gunnar Sæmundsson,
klæðskerj Þórsgötu 26 a.
Sími 7748.
Minningarspjöld
Krabbameinsfélagsins fást i
verzl. Remedia, Austurstræti
6 og í skrifstofu Eliiheimil-
Jsins.
Myndir og málverk
til tækifærisgjafa.
Verzlun G. Sigurðssonar,
Skólavörðustíg 28. !;
íðja h.f.,
Lækjarg. 10.
Úrval af smekklegum brúð-
argjöfum.
Skermagerðin Iðja,
Lækjargötu 10.
Munið kaffisöluna
í Hafnarstræti 16
Minningarspjöld
dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík: skrif-
stofu Sjómannadagsráðs,
Grcfinni 1, sími 80788
(gengið inn frá Tryggva-
götu), skrifstöfu Sjómanna-
;; félags Reykjavíkur, Alþýðu-
húsinu, Hverfisgötu 8—10.
Tóbaksverzluninni Boston.
Laugaveg 8, bókaverzluninni
Fróða, Leifsgötu 4, verzlun-
inni Laugateigur, Laugateig
41, og Nesbúðinni, Nesveg
39, Veiðarfæraverzl. Verð-
andi, Mjólkurfélagshúsinu. I
Hafnarfirði hjá V. Long.
Kaupum
gamlar bækur og tímarit.
Ennfremur notuð frímerki.
Seijum bækur, tóbaksvörur,
gosdrykki og ýmsar smá-
vörur. — Vörubazarinri
Traðarkotssundi 3 (beint á
móti Þjóðleiklrúsinu) Sími
4663.___________________
Iðja h.f.
ödýrar ryksugur, verð kr.
928.00. Ljósakúlur í loft og
á veggi.
Skermagerðin Iðja h.f.,
Lækjargötu 10.
Svefnsófar,
nýjar gerðir.
Borðstofustólar
og borðstofuborð
úr eik og birki.
Sófaborð, arm-
stólar o. fl. Mjög lágt verð.
Allskonar húsgögn og inn-
réttingar eftir pöntiin. Axel
Eyjóifsson, Skipholti 7, sími
80117.
Daglega ný egg,
,soðin og hrá. Kaffisalan
? Fíafnarstræti 16.
Amper h.f.,
raftækjavinnustofa, Þing-
holtsstræti 21. — Sími 81556.
Samstarf bænda og verkamanna
Útvarpsviðgerðir
Radíóvinnustofan,
Veltusundj 1.
1 /LZlSTUmJöÐF/LRÖ
w
Blásturshljóðfæri
tekin til viðgerðar. Sent íl;
póstkröfu um land ailt. -
BergstaðaStTæíi 39B.
Nýja sertdíbílastöðin,
Aðalstræti 16 — Sími 1395
Sendibílastöðin Þér
SlMI 81148.
f
Sendihílastöðin h.f.
Ingólfsstræti 11. Sími 5113.
Innrömmum
málverk, ljésmyndir o. fl.
Asbrú, Grettisgötu 54.
. Saumavélaviðgerðir
Skrifstofuvéla-
viðgerðir.
SYLGIfl
Laufásveg 19. Sími 2656
Ljósmyndastofa
Laugaveg 12.
Lögfræðingar:
Aki Jakobsson cg Kristján
Eiríksson, Laugaveg 27, 1.
hæð. Simi 1453.
mtyíúa-mwfiMi
L/WGAVEG 68
Ragnar ölafsson
haastaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi: Lög-
fræðistörf, endurskoðun og
fasteignasala. Vonarstræti
12. — Sj'mi 5999.
! Skotfélag Reykjavíkur
i heldur aðalfund sinn mánu-
? daginn 25. þ.m. kl. 20.30 í
iV.R. -— Venjuleg aðalfund-
jarstörf og lagabreytingar.
Stjóiúiin
Víkingar!
Knattspyrnuæfing fyrir
! meistara, 1. fl. og 2. fl. í
’ kvöld kl. 19.50 í Austur-
í bæjarskólanum, það vantaði
[ tvo síðast, mætum allir
Jnúna. 5>jáííariim
BMFIMB
Borðdregill
(eða veggteppi) hefur fund-
! Í£t. við Sogaveg. — Sími
: 5444.
M###############*#############«i
Gerizt áskrif
ertdur að
Þjóðviljanum
Framhald af 5. síðu.
árunum þeim. Skyldi sjálfur
ritstjórinn vera búinn ■að
gleyma því, þegar fyrrverandi
formaður flckksins skrifaði
hverja greinina af annarri um
það að nú væru tímarnir þann-
ig að bændurnir yrðu að láta
sér nægja þær tekjur er aðeins
hrykkju til að „halda við.
starfsorkunni og greiða vexti
og áfborganir af skuldum"?
Eða skyldi hann hafa gleymt
því, þegar einn af þingmönn-
•um flokksins skrifaði grein i
blaðið til að lofa sérstaklega
þann dugnað í sparnaði, að
bændum i heilli sveit hefði tek-
izt að færa þarfir sínar svo
niður að þeim nægðu 400 kr.
á ári í meðalúttekt á heimili?
Hvað skyldi hafa verið mikið
afgangs til lífsþæginda á heim-
ilunum þeim ? Nei, boðskapur
Framsóknar til bændanna á
þeim árum var sparnaður og
aftur sparnaður og ekkert ann-
að.
Framsókn vill greiða rnest
þeinn sena mest hafa fyrir.
Þá telur greinarhöfundur, að
sósíalistar hafi sýnt sérlega
illan hug til landbúnaðarins
með tillögnjnni um þa]ð, að
bændur, sem hefðu meira en
meðalbú fengju ekki verðupp-
bætur úr ríkissjóði á það fram-
leiðsiumagn er væri fram yfir
það að þeir hefðu náð meðal-
tekjum. Vitanlega hefSu tekjur
þeirra orðið hærri en meðal-
tekjur þrátt fyrir það. Rekst-
urskostnaður er yfirleitt minni
á stærra búinu. Hér er ein-
mitt komið að því máli, Sem
er eitt erfiðasta viðfangsefni
í sambandi við allar okkar op-
inberu launa- og styrkjagreiðsl-
ur. Það verður ekki afgreitt á
jafn einfaldan hátt og greinar-
höfundur vill gera.
Kjarni þessa máls er sá áð
séu engin takmörk fyrir þvf
hve upþhæðir slíkra greiðsina
geti verið háar til einstaklinga,
fá þeir æfinlega mest, sem
mest fjármagnið höfðu fvrir.
Meðan Framsóknarfiokkurinn
þóttist vilja reka einhverja
vinstri umbótapólitík þá var
hann að reyna að taka þetta til
greina.
Þannig var t. d .komið á-
kvæðið um 800 kr. hámarkið í
árlegan jarðræktarstyrk á
hvert býli, sem sett var í
jarðræktarlögin 1936. Hvers
vegna var Framsókn þá að
skipta bændastéttinni í sauði
og hafra, eins og Tíminn talar
nú um að sósíalistar hafi vilj-
að gera ? Þetta hvorttveggja
er nákvæmlega sama eðlis. En
síðan hefur Framsókn algjör-
lega snúið við á þessari braut.
■ Gott dæmi um afleiðingarnar
af bví kom fram á s. 1. sumri.
Þá flutti útvarpið m. a. þá
fregn, að togaraeigandi í Rvík,
sem að vj'su rekur bú austur á
Rangárvöllum, hefði 45 þús. kr.
í jarðræktarstyrk á sand-
græðsiu á iandi sínu þar. Vill
nú ekki Tímaritstjórinn afla
sér upplýsinga um það hve
margra miðlungsbændur þarf
í t. d. Snæfellsnessýslu, Húna-
vatnssýslu, Strandasýsiu og
Austur-SkáftafeHssýslu til þess
að ná þessari upphæð til sam-
ans og birta þær í næsta blaði
sínu? Tíminn getur svo sejn
talað djarft um það, að Fram-
sókn er sannarlega hætt þeirri
fjarstæðu að skilja bændurna
i sauði og hafra,
Þar sem kommúnistar hafa
verið þurrkaðir út úr þjóð-
þlngunum eiga bændur mjög
uiklir högg að sækja
mé5' sirin rétt.
Þá er síðasti kafli greinar-
innar um samstarf vinnandi
stétta og viðurkennir höfund-
ur að gott samstarf þurfi að
vera milli bænda, fiskimanna
ög vei'kamanna. Telur ha.m
enn fremur að slíkt samstarf
sé fyrir hendi í öðrum lyðræð-;
isríkjum, þar sem kommún-l
istar eru áhrifalausir og bezt
þar sem þeir hafi verið þurrk-
aðir út úr þjóðþingunum méð
írjálsum kosningum. Nefnir
hann m. a. bæði Noreg og
Bretland í því sambandi. Hitt
gleymir hann að minnast á,
að i Noregi, t. d., voru þeir|
þurrkaðir úr þjóðþinginu með
því fyrirmyndarlýðræði að
Bændaflokkurinn sem hafði 87
þús. kjósendur fékk 12 þing-
menn kosna, en Kommúnista-
flokkurinn sem þafði 100 þús.
kjósendur fékk engan þing-
mann kosinn.
Vill hann máske fallast á áð
skapa kosningareglur fyrir okk-
ur hér, sem sneru þessu dæmi
við hvað snerti Framsókn og
Sósíalistaflokkinn ? Lýðræðinu
væri svo sem ekki lakar þjón-
að,
En hvernig er það svo með
réttindi bændanna í þessum
löndum þar sem kommúnistar
hafa veiúð þurrkaðir út úr
þjóðþingunum.
Eftir sögn Tímans þannig, að
bændurnir eiga mjög undir
högg að sækja, og hafa hvergi
nærri fengið viðurkenndan rétt
til sömu kjara og aðrar vinnu-
stéttir, þrátt fyrir hið ágæta
samstarf sem þar er. íslenzkir
hændur þurfa sannarlega að
vera áhugasamir um að þurrka
íslenzka sósíalista út úr þjóð-
binginu, svo hægt sé að skapa
grundvöll að samstarfi, sem
Jeitt geti til jafn farsælla á-
hrifa á hag þeirra hér, eins
og stéttarbi’æður þeirra á Norð-
urlöndum hafa reynsluna af.
★
Staðreyndirnar, sem fyrir
iiggja í þessu máli eru þá þess-
ar:
Þegar Framsókn réði mestu
hér á íslandi þá boðaði hún
bændum þá kenningu að þeirn
væri nóg aðeins að halda við
starfsorkunni og borga skuldir.
Þegar þjóðin komst í efni á
stríðsárunum, þá barðist Fram-
sókn á móti því að bændurnir
fengju nokkuð af þéini gróða.
Þegar Sósialistaflokkurinn
efldist og náði miklum áhrif-
«m bæði á þingi og í verka-
lýðshreyfingunni var bændum
tryggður réttur til tekna til
jafns við aðrar vinnandi stétt-
ir.
í löndum jteim sem kommún-
istaflokkarnir eru veikir og á-
hrit'alitlir hafa bændur engan
slíkan rétt íengið og engar lík-
ur ti! að þeir fái hann meðan
svo er ástatt. A. S.
I N Ð L A N Ð
Framhald af 1. síðu.
verður þó ekki um samstæðan
vinstrimeirihluta að ræða, því
að stórjarðeigendur, * sem eru
enn afturhaldssamari en Þjóð
t'ngsflokkurinn. hafa fengið
þar nokkurt fylgi.
Kunnugt er um 353 þingsæti
af 496 á indverska þjóðþinginu.
Hefur Þjóðþingsflokkurinn feng
ið 252 en kommúnistar og
bandamenn þéirra 28.
FEeyja 20 áza
Framhald af 8. síðu.
ið. — Auk ræðuhalda var upp-
lestur, og söngur, Sigi’íður
Jónsdóttir las upp og Söngfé-
lag verkalýðssamtakanna söng,
en Freyja hefur frá byrjun
veitt söngfélaginu fjárstuðning.
Að lolcum var dansað. Samsæt-
ið var fjölsótt og fór prýðilega
fram.
Hálft annað hundrað félags-
kvenna.
Þvottakvennafélagið Freyja
var stofnað 7. febrúar 1932 og
voru stofnendur 30. Nú eru fé-
lagskonur 151. Freyja hefur
átt mikinn þátt í að hækká
kaup þvottakvenna á undan-
förnum árum og bæta kjör
þeirra á annan hátt. Hefur það
ekki sízt verið verk Þuríðar
Friðriksdóttur.sem veitt hefur
fé’aginu forustu frá stofnun
eins og áður segir.
Kristileg vika
Framhald af 8. síðu.
hvert kvöldið, venjulega einn
prestur og einn leikmaður. Þá
var og mikill og almennur söng
ur, en einnig önnuðust kóreir
og einsöngvarar sönginn.
Þessir menn töluðu á sam-
komunni: Sr. Bjarni Jónsson
vígslubiskup, stud. theol. Páll
Pálsson, sr. Sigurjón Þ. Árna-
son, stud. theol. Peter Hotzel-
mann, sr. Friðrik Friðriksson,
stud theol. Guðmundur Ó. Ól-
afsson, sr. Þorsteinn Björnsson
frikirkjuprestur, Sigursteinn
Hersveinsson útvarpsvirki, pró-
fessor Magnús Jónsson, cand.
theol. Jónas Gíslason, sr. Gúð-
brandur Björnsson, Þórður
Möller læknir, sr. Magnús Run-
ólfsson og cand. theol. Gunnar
Sigurjónsson.
Svona samkomuvikur hafa
verið haldnar í Hallgrímskirkju
á síðustu árum og hefur þátt-
taka a'mennings farið jafnt og
þétt vaxandi, þannig að alla
síðustu viku var mikil og jafn-
góð aðsókn. Samkomuvikunni
lauk svo sunnudaginn 17. þ. m.
irieð fjölmennri altarisgöngu
hjá Sigurj. Þ. Árnasyni sókn-
arpresti.
Landhelgismálið
Framhald af 5. síðu.
arnar eyðilagðar. Nú er svo
komið að flestir eru farnir að
skilja þennan sannleika. Þess
vegna er líka landhelgismálið
brennandi spurning í dag, sem
krefst tafarlaust svars í raun-
hæfum aðgerðum frá hendi
valdhafanna. Um þetta mál er
algjör eining meðal alþýðu
manna, við sjávarsíðuna, því
allir munu geta. rcnnt grun í
lívað verða muni. ef efnahags-
grundvelli vélbátaflotans verð-
ur algjörlega siglt í strand.
Eii það strand er óumflýjan-
legt ef ekki verða gerðár taf-
arlaust raunhæfar aðgerðir í
landhelgismálinu, og uppeldis-
stöðvarnár friðaðar fyrir rán-
yrkju.
Framtíð vélbátaútvegsins,
hraðfrystihúsanna" og þar með
atvinnumöguleikar þúsunda
manna og kvenna, velta á því,
að ekki verði nú lengur flotið
sofandi að feigðarósi í land-
helgismálinu.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúö viö
andlát og jaroarför okkar hjartkæra eiginmanns
föður, sonar og bróður,
WALTERS TIIEODÓRS ÁGÚSTSSONAR.
Anua Albeitsdóttir og böm
Elísabet U. Jónsdóttir,
Ágúst Kr. Guönvundsson
cg systfcini.
iUi Ú'