Þjóðviljinn - 28.02.1952, Qupperneq 8
Innbrotsþjóxur tekur upp Ixandarískar
gangsteraðferðir!
Ógnar lögregiuþiónum með byssu — náðisf ekki —
5 innbroi í fyrrinótt — ekkert þeirra upplýst
Alvarlegasta innbi’otið var
fi’amið í verzlun Hans Peter-
sens, Bankastræti 4.
Lögregluþjónum, er voru á
gangi í Austurstræti rétt fyrir
'kl. 3 í fyrrinótt, var gert að-
vart um að brotizt hefði verið
inn í verzlun Hans Petersens.
Fóru lögregluþjónarnir þegar
á vettvang. Hafði þá verið
brotin rúða í hurð verzlunar-
innar, en er lögregluþjónai’nir
litu inn fyrir var beint að
þieim byssuhlaupi innan úr búð-
inni. Drógu þeir sig þá í hlé,
og íor annar niður á lögreglu-
stöð að sækja liðstyrk, en hinn
var á verði í námunda við
foúðina. Leið nú ekki á löngu
áður en maður kom á rjúkandi
ferð út um opið á hurðinni,
hélt hann á byssu í hendinni
og fór geyst. Veitti lögreglu-
þjónninn honum eftirför, en
missti af honum von bráðar út
í myrkrið. Hefur hann enn
ekki komið í leitir lögreglunn-
ar.
Við rannsókn kom í ljós að
stolið hafði verið nýjum riffli
úr búðinni, ásamt 200—300 kr.
úr peningakassa er stóð á borði
í búðinni.
Hin innbrotin voru þessi: í
Veiðafæragerð íslands, Einholti
6, en þar var engu stolið; í
Síld og fisk á Bergstaðasti’æti,
29 heils kvölds
leikrit
Övenju mildð hefur verið um
Ieikstarfsemi í hyggðarlögum
landsins í vetur. Það sem af
cr vetrimim liafa verið sýnd
29 heils kvöhls leikrit, þar af
cru 14 innlend eða staðfærð,
en 15 erlend.
I æfingu eða undii*búningi
eru nú 26 leikrit, sem skrif-
stofu okkar er kunnugt um.
Af þeim eru 11 imilend eða
staðfærð en 15 erlend.
Auk þessara leikrita kemur
svo xnikill fjöldi smærri leik-
Framhald á 7. síðu.
Vararæðismaóur Dana í
Neskaupstað
Samkvæmt upplýsingum frá
danska sendii’áðinu hefur Karl
Karlsson kaupmaður í Nes-
kaupstað veiið skipaður og
veitt viðurkenning sem vara-
ræðismaður þar á staðnum.
Sömuleiðis hefur Tómas Guf-
jónsson útgei’ðai’maður í Vest-
mannaeyjum, verið skipaður og
viðurkenxidur sem vararæðis-
maður þar.
Sósíalistafélag Reykjavik-
ur heklur árshátíð sína
fostudiufinn 7. marz n. k.
í leikhúskjallaranum við
Hverfisg-iitu. Til skemmti-
atriða verður vandað svo
sem kostur er á, Jónas
Árnason flytur ra>ðu, Ketill
Jensson tenór syng'ur ein-
söng með undirlelk Fiitz
Weissliappel, Sverrlr Krist-
jánsson les upp úr Pelle
Erobreren eftir Nexö. Auk
þess nýjar gamanvísur og
dans.
I»ar sem búast má við
niikllli aðsókn en húsrými
er takmarkað ætiu flokks-
menn að tilkynna. þátttöku
sína í árshátíðlnni sem
ailra fyrst. Tekið er á mótl
pöntunum í skrifstofu Sósí-
allstafélagsins að Pórsgötu
1. — Sfmi 7500.
og var stolið þar 30—40 krón-
um í smámynt; í nýlenduvöru-
verzlun í Stórholti 16, og var
þaf einnig stolið lítilræði af
skiptimynt; og loks var biotizt
inn hjá Jóhanni Ólafssyni og
Co, Hverfisgötu 18. Var farið
bæði inn í verzlunina og skrif-
stofuna, skrifborð brotið upp
en engu stolið þar; en í búð-
inni var enn stolið nokkrum
lcrónum í skiptimynt.
Öll þessi mál eru í rannsókn.
Brotizt inn í Kron
í Iíópavogi
I fyrrinótt var brotizt inn í
verzlun KRON við Reykjanes-,
braut í Kópavogi. Þjófurinn
braut rúðu í hurð verzlunarinn-
ar, fór þar inn og stal 12—15
kartonum-af sígarettum, vhxdl-
um og sælgæti fyrir 100—200
kr., 400—500 krónum í skipti-
mynt. Málið er í rannsókn lijá
sýslumanninum í Gullbringu-
og Kjósarsýslu,
Aðalhvatamenn að stofnun
félagsins vox’u þeir Bjarni Böðv-
arsson, Páll ísólfsson og Theo-
dór Árnason. Höfðu þeir oft
rætt nauðsyn félagsstofnunar
Glímunámskeið
íyir bysje«iáur
Eíiis og mörg undanfarin ár
gehgst Glímufél. Ármaiin fyrir
námskeiðj í ísleiizkri glímu fyrir
unglinga á aldrinum 12—17
ára. Námskeiðið mun standa
yfir næst'u 2 mánuði.
Kennsla mun fara fram á
mánudögum og fimmtudögum
frá kl. 8—9 í íþróttahúsi Jóns
Þox’steinssonar við Lindargötu.
Aðalkennarj námskeiðsins
verður Þorgi]s Guðmundsson
frá Reykholti, glímukennari fé-
lagsins, en auk hans munu
béztu glímumenn Ármanns
hjálpa ti.1 við kennsluna.
Námskeiðið hefst í Ikvöld kl. 8
e. h. Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu félags-
ins íþróttahúsinu, sími 3356.
Esga að atlinga sparaaS
við fæðingar nýrra
borgara
Reykjavíkurbær á samkvæmt
samningi að greiða % af rekstr-
arhalla fæðingardeildar Land-
spítalans. iBorgarstjói’i skýrði
frá þvi á síðasta bæjarstjóraar-
fundi að hallinn hefði á s.l. ári
í'ai’ið framúr áætlun, hefði oi’ðið
um 1,3 rnillj., og ætti Reykja-
víkurbær að borga 892 þús. kr.,
og hefði bæjarráð því samþykkt
að sparnaðarnefnd ba.jarins at-
hugi rekstur fæðingadeildarinn-
ar.
Undarleg ráð-
stöfun
á athafnasvæði haín-
aiinnair
Á síð'asta bæjarstjórnar-
fundi var, samkvæmt ósk
Jóns Axels, frestað ákvörð-
un um umsókn um rekstur
Sendibílastöðvar við Faxa-
götu.
Með staðsetningu bílstöðv-
ar þarna væri verið að
þrengja kosti upp- og út-
skipunar, því skammt frá
eru 2 vogir liafnarinnar þar
sem vigtuð eru mestöll kol,
allt salt og alhir fiskur sem
skipað er upp við austur-
höfnina.
Bæði hafnarstjóri og um-
ferðarnefnd liaiá mælt með
umsókninni um bílstöðina,
og er sú afstaða slíkra aðila
lítt skiljanleg. — Umsælsj-
andinn er Sigurður O. Hjálm-
týsson.
Bílstöðin er þegar tekin
til starfa þarna, án leyfis,
en borgarstjóri svaraði því
að það væri virðingarvert
hjá þessum aðila að sækja
um leyfi, því hvomg hiima
sendibílastöðvanna hefðu
sín í milli og kornu saman
nökki'u fyiir stofnfundinn og
var Bjarni Böðvarssyni falið að
semja drög að lögum hins fyrir-
hugaoa félags. Fyrstu stjórn
félagsins skipuðu Bjarni Böðv-
arsson formaður, Theodór Áma
son ritari og Páll ísólfsson
gjaldkeri.
TÍMAKAUP hljóðfæraleikdra
var 5 kr. á klst. þegar félagið
var stofnað og náðu þeir 25 kr.
kaupi á kvöldi, því yfirleitt
stóðu dansleikir í 5 klst. Á
kaffihúsunum spiluðu þá ein-
göngu útlendingar, nema á
Hótel Heklu, þar var innlend
liljómsveit frá 1928. Á dans-
leilkum út í bæ spiluðu Islend-
ingar til kl. 12 á miðnætti, en
i.rðu þá að víkja fyrir útlend-
ingunum, er þá höfðu lokið
vinnu sinni á hótelunum. Þótti
þetta hart aðgöngu sem vonlegt
var.
AUK ÞESS sem félaginu
tókst að hækka kaupið smátt og
smátt og bæta þannig kjör með-
limanna, fékk það því til vegar
ikomið, að íslenzkir liljóðfæra-
leiikarar voru teknir inn í hljóm-
sveitirnar og varð bróunin sú
að þeim fór sífellt fjölgandi. Nú
síðustu árin er svo komið að
hljómsveitirnar eru að mest.u
skipaðar íslendingum. Kaup-
ið er nú 53,83 á klst. að með-
talinni vísitölu og orlofsfé.
ÁRIÐ 1950 var ,sú skipulags-
bi'eyting gerð á félaginu að því
var skipt í tvær deildir: A»deild
og B-deild. t A.-deild eru þeir
sem leika sígilda. inúsikk en í
B-deiJd þeir sera Jeilta dans-
Framliald á 6. síöu.
sótt um leyfi!
Félag íslenzkra hljóSfæra-
leikara 20 ára I dag
Miimisí afmælis síns m<sð samsæfii í leikhúskfalla?-
amsm n. k. mánudag
I dag á Félag íslenzkra liljóðfæraleikara 20 ára starfsafmæli,
en félagið var stofnað 28.febrúar 1932 og voru stofnendur 18.
Nú em í félaginu um 70 meðlimir og starfar það í tveimur deild-
um. Fyrsti formaður félagsins var Bjarni Böðvarsson og gegndi
hann því starfi í 17 ár. Núverandi foi-maður er Svavar Gests.
Félagið minnist afmælisins með samsæti í leikhúskjallaranum
við Hverfisgötu n.k. mánudagskvöld.
IUÓÐVIilfNN
Fimmtudagur 28. febrúar 1952 — 17. árgangur — 48. tölublað
BANASLYS í GRJÓTNÁM!
í gær varð það slys í grjótnámi Reykjavílcurbæjar að Helgi
Guðmundsson, verkamaður, Óðinsgötu 21, beið baiia í trekt
sem hann var að vinna í.
Vildi slysið til með þessum
liætti:
Svo hagar til í grjótnámi
bæjarins að er grjótið hefur
verið malað fellur það eftir
rennu niður í svonefnda trekt.'
Aka vörubílamir, er mölina
flytja, inn undir trektina, og er
þá opnað lok neðan á trektinni
sem síðan er lokað þegar bíll-
inn er fullfermdur.
Umbúnaður við eina trektina
var þannig að er tók að hækka
í henni úr rennunni þurfti að
jafna mölinni um liana, svo hún
Nú er að sjá hvort Vil-
hjálmur hleypst á brott
. A burða rve rk sm i ðj a n var enn
á dagskrá á síðasta bæjar-
stjórnarfundi. Hún hefur nú
sem kunnugt er endanlega verið
staðsett utan bæjarins, en inn-
an bæjarlandsins: inni í Gufu-
nesi. Hefur bæjarstjórn Jagt sig
fram um að greiða fyrir upp-
setningu liennar þar, og ska!
það sízt lastað. Meðal annars
ætlaði bærinn að sjá verksmiðj-
unni fyrir vatni, og var ætlunin
að bora eftir því í Gufuneslandi
eða taka það úr Korpulfsstaða-
ánni. Nú hefur Vilhjálmi Þór
dottið í hug að framlivæma
vatnstökuna á eigin spýtur —
og vill þá vera undanþeginn
vatnsskatti. Hafði bæjarráð
samþykkt að svo sikyldi verða
sem Vilhjálmur óskaði. En svo
fékk Jón Axel eftirþanka á síð-
asta bæjarstjómarfundi og
lagði til að eftir ákvæðið um
að ábui’ðarverksmiðjan skyldi
Framh»l-| á 7. oíðu.
Meiietaskólaim á
ekki að byggja í
Skerjafirði
Þeir Sigurður Sigurðsson,
Jón Aífel, Sigfús Sigurhjartar-
son og Þórður Björnsson fluttu
á bæjarstjórnarfundi í fyrra-
dag tillögu um að bæjarstjórn-
in skoraði á menntamáiaráðu-.
neytið að athuga vel stað fyrir
menntaskóla, áður en lianu
verði byggður í Skildinganes-
hólum, — eins og nú stendur
til.
'Sigui'ður Sigurðsson færði
rök fyrii- hve Skildinganesliól-
ar væru óheppilegur staður.
Jón Axe.l skammáði ga.mla
nemendur skólans fyrir að taka
í mál að hann yrði fluttur burt
þaðan sem hann væri.
Sigfús Sigurhjartarson kvað
sér vera það Ijóst að mennta-
skólarnir í Reykjavík yrðu
tveir áður langt liði og mvndi
bví lengi vetða kennt í gamla
skólanum þótt nýr yrði reistur,
en nýjan skóla. bæri að byggja
í austurbænum.
Wjf ~ Málfunda-
F/f ry hópur tekur til
Þf jj' starfa i kvöld kl,
9 að Þórsgötu 1. —-
Umræðuefni: Eigum
viff að gera tilka.ll til Grænlands?
— Þeir félagar, sem ætla aff taka
]iátt i honum, hafi s&mband viff
skrifstofuna I dag, sími 7511. —•
■Leiðbeinandi verffur Teitur Þor-
leifsson. Stjórnin
gæti fyllzt. Fór Helgi upp .í
trektina að jafna möiinni. Var
hann einn síns liðs og engir
menn á næstu grösum. Er síð-
an ekkert um hann vitað, fyrr
en næsti bíll ekur undir trekt-
ina og hún er opnuð. Rennur
mölin úr opinu niður á bílpall-
inn, og sér þá bílstjórinn allt
í einu hvar mannsfætur standa
niður úr opinu.
Voru nú allar vélar stöðvað-
ar svo fljótt sem við varð kom-
ið. Var opið svo þröngt að
Helgi sat fastur í því, en hins
vegar hélt mölin áfram áð ryðj-
ast niður meðfram honum. —
Náðist Helgi heitinn fljótlega
upp úr trektinni, en var þeg-
ar örendur. Er þess getið til
að hann kunni að hafa fengið
aðsvif við vinnu sina.
Líkskoðun fer fram í dag.
Helgi Guðmundsson var
fæddur árið 1884.
Fræðslufundur
Sósíalistafélag Reykja-
vikur heldur 4. íræðslu-
kvöld sitt annað ikvöld
kl. 8.30 að
Þórsg. 1.
Dagskrá
þess vérð-
ur sem hér
segir: Ein-
ar Olgeirs-
son alþm.
flytur er-
indi, er
hann nefnir: Lánsf jár-
bannið og einokunin —
orsök átvinnuleysisins,
þar sem hann mun bregða
upp mynd af orsök þeirr-
ar kreppu sem nú er dun-
in yfir íslenzkt atvinnulíf
og eðli hennar, sem nauð-
synlegt er fyrir hvern og
einn Islending að gera sér
Ijósa. Að erindinu loknu
svarar Einar þeim fyrir-
spurnum er hlustendur
vilja bera fram. Þvi næst
verður upplestur og kvik-
myndasýning. Öllum fé-
lögum og gestum þcirra
er heimili aðgangur og er
hann ókeypis.
Aðalftmdiir
VerkakveimaféL
«
Aðalfundur Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar var hald-
inn í fyrrakvöJd. Stjórn félags-
ins var öll endurlcjörin en hana
skipa: formaður Jóhanna Eg-
ilsdóttir, varaformaður Jóna
Guðjónsdóttir, ritari Guðbjörg
Þorsteinsdóttir, fjármálaritari
Guðbjörg Brynjólfsdóttir, gjald
keri Guðrún Þorgeirsdóttir. f
varastjórn voru kosnar Pdl-
ína Þorfinnsdóttir og Kristín
Andrésdóttir. Endurskoðendur
Helga Pálsdóttir og Kristín Öl-
afsdóttir, til vara Guðrún Ing-
varsdóttir.
I Verkakvennafélaginu Fram-
sókn eru nú skráðir 1120 fé-
lagsmenn.