Þjóðviljinn - 28.03.1952, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.03.1952, Blaðsíða 1
Föstudagiir 28. marz 1952 — 17. árgangur — 72. tölubl'að IHIll HÚSMÆÐEAUEILÐ ★ Fundur í kvöld, föstudag 28. marz, kl. 8.30 í Þingholtsstr. 27. Fundarcfni: 1. Félagsmál. — 2. Endurminningar Lyudmilu Zh- uk. 3. Kvikmyndasýning. Stjórnin. Allsherj arverkfall gegn ofbeldi Frakka í Túnis Þrátt fyrir stranga ritskoöun frönsku nýlendustjórnar- innax í Túnis berast fréttir af mótmælaaögeröum Túnis- búa gegn ofbeldisverkum Frakka. 1 öllum helztu borgunum hafa Túnisbúar gert verkfall til að mótmæla handtöku fjögurra ráðherra og setn- ingu herlaga. Allar búðir eru lokaðar í borgarhverfum Túnisbúa. Franski herinn hélt í gær áfram handtökum manna, sem starfað hafa í sjálfstæðishreyf- ingu Túnisbúa. Sprengja sprakk í fyrrinótt útifyrir skrifstof- um nýlendustjórnar Frakka í Túnisborg. Beyinn, þjóðhöfðingi Túnis, neitáði í gær að tala við franska landstjórann, sem ætlaði að endurnýja kröfu sína um skip- un leppa Frakka í nýtt ráðu- neyti. Tveir af ráðherrum Beyans, sem voru staddir í París, komu til Brussel í gær á leið til Hóta að seiida frelsunarsveitir til Trieste Vegna æsinganna á ítaliu út af framtíð Triesteborgar, hafa verið mynduð samtölc, sem hafa það markmið að hefja beinar aðgerðir til að sameina borg- ina Italíu. Ritari samtaka þess- ara tilkynnti í Róm í gær, að ætlunin væri að senda frelsun- arsveitir til Trieste til að gera hernámsliði Breta og Banda- ríkjamanna ekki vært þar. — Kvað liann þegar tekið áð þjálfa fy'rstu sveitirnar. MacArthur geng- inn af göflunum Mikið virðist skorta á að bandaríski hershöfðinginn Mac- Arthur sé heill á geðsmunum. Hann ávarpaði nýlega löggjaf- arsamkomu Missisippiríkis og komst þá meðal aiinars svo að orði: „Hér heimafyrir ber stefna ríkisstjórnar- innar okkur í áttina til kommúnistísks ríkis eins skelfilega ör- ugglega eins og ef valdhaf- arnir í Kreml héldu um stjórnvölinn . . . Ríkisstjórn in fram'kvæm- ir fyrirætlanir Marx og Lenins með stærðfræðilegri nákvæmni .... Það verður æ Ijósara, að stefnan í skattamálum Banda- ríkjanna er löguð eftir hinum kommúnistísku kenningum Karls Marx um að dreifing þeirrar velmegunar, sem fyrir hendi er, muni gera lífskjör allra jöfn“. Þessi brjálæðingur, sem heldur að Truman forseti sé lærisveinn Marx og Lenins, er nefndur í fullri alvörn sem hugsanlegt forsetaefni republik ítnaflokksins í forsetakosning- unum í haust. Kairó, þar sem þeir ætla að leita liðsinuis Arababandaiags- ins. írakstjórn sendi frönsku stjórninni orðsendingu í' gær, þar sem krafizt er að hihir handteknu ráðherrar í Túnis séu látnir lausir og Iýst yfir, að aðfarir Frakka séu beinn fjandskapur við allar Araba- þjóðir. Frönslcu stjómiimi tókst í gær að hindra að þingið ræði atburðina í Túnis þegar í stað og verða umræðumar í næstu viku. Öll morgunblöðin í París nema eitt afturhaldsblað for- dæmdu í gær framkomu ríkis- stjórnarinnar í Túnismálinu. Eldfjall rls úr hafi I síðustu vilcu komu flug- menn auga á eldfjall, sem ris- ið er úr hafi norður af Luzon, liinni stærstu Filippseyja. Fjalls tindurinn stendur um 80 metra uppúr sjónum og gosstrókurinn úr gígnum rís yfir þúsund metra í loft upp. Kringum eld- fjallið kraumar sjórinn og vell- ur. Ibúar nærliggjandi eyja hafa verið varaðir við að flóð- alda geti skollið á land upp, ef snöggar breytingar verði á gosinu. 1 þingkosiilngiim, sem fram fóru á Indlandi í vetur urðu koinmún- istar næs.tstærsti flokkurlnn. I síðustu viku skýrðl Acheson ut- anríkisráðherra Bandaríkjaþinxi frá að stjórniu áliti kosningaúr- slitin hafa skipað „mjög hættu- legt ástand“. Myndin er af kosn- ingafundi í Nýju Delili, höfuð- borg Indlands. Brefar reyna að sveEfa Mal- akkabúa til hlýðni við sig Brezka nýlendustjórnin á Malakka er að gefast upp á aö halda þvi fram, aö hún hafi landsbúa meö sér í barátt- unni gegn skæruliðum sjálfstæöishreyfingarinnar. MacArthur Templer herlandstjóri flaug í gær til frumskógarþorpsins Tanjong Malin og tilkynnti þorpsbúum, að vegna þess að þeir neita að hjálpa Bretum að hafa hendur í hári þeirra, sem fyrir nokkrum dögum urðu 12 b”ezkum hermönnum að bana nálægt þorpinu, yrði þeim um óákveðinn tíma bannað að yfirgefa þorpið og bannað að fara út úr húsum sínum nema tvo klukkutíma á sólarhring. Brezkur hervörður verður auk- inn í þorpinu og þorpsbúar settir á hungur.skammt. Templ- er kvað þessar refsiaðgerðir verða ’hertar og látnar ná til fleiri þorpa ef skæruhernaður- inn gegn Bretum héldi áfram á þessum slóðum. Iiingað til hafa brezku hern- aðaryfirvöldin á Malakkasltaga mest beitt þeim refsiaðgerðum, sem kunnar eru frá hernámi nazista í Evrópu, að jafna þorp við jörðu og varpa íbúunum í fangabúðir. Samkvæmt tilkynn- ingm Breta sjálfra hafla hí- býli 10.000 Malakkabúa verið brenrid á þann hátt og þeir fluttir í fangabúðir í öðrum íandshlutum. TsTú eru liðin fjögur ár sið- an skæruhernaðurinn gegn Bretum á Malakkaskaga hófst. Lið Breta á skaganum er komið upp í 200.000 manns en það er jafn fjærri því og í upphafi að sigra 5000 skæruliða, sem njóta stuðnings fólksins. Brezhri k©sm vihið ai þingi Tuttugu og þriggja klukku- tíma fundi í brezka þinginu um atvinnuleysið og sölutregðuna í vefnaðariðnaðinum lauk með því í gærmorgun, að Verka- mannaflokksþingmanninum frú Braddock var vikið af þingi í fimm daga. Stóð liún á fætur og iheimtaði að fá orðið og neit- aði að setjast þegar forsetinn skipaði henni að gera það. Frú Braddoek kom við sögu fyrir nokkrum vikum, er hún bað árangurslaust um leyfi for- seta til að kasta hænueggi í hausinn á íhaldsþingmanni, sem hélt því fram að það væri postu- línsegg, sem hún var að sýna þingheimi til dæmis um, hvílík örverpi húsmæður væra neydd-! ar til að taka upp í eggja-j skammt sinn. .1 Hvenœr gefur Björn skýrslu um vesturför sína? Gjaldeyrisástandið ömurlegra en nohkru sinni Nú er senn hálfur mánuður síðan Björn Ólafsson við- skiptamálaráðherra kom heim úr Bandaríkjaför sinni, en þangað fór hann með fríðu förunejii, Benjamíni Eiríkssyni fátækraíulltrúa Banilaríkjanna á Islandi og Þórhalli Ás- geirssyni sem verið hefur sérstakur fulltrúi marsjallkerfis- ins hér á landi. Það er á aJIra vitorði að erindi Björns vestnr var að betla áframhaldandi fégjafir eftir að marsjalLkerfið er liðið undir lok. Venjan hefur verið sú að ráðherrarnir liafa gefið þjóðinni málamyndarskýrslur í útvarpi eftir slíkar utanfarir, en nú bregður svo við að Björn hefur ekki sagt nokkurt orð. Hvað kemur til að Björn þegir; voru undirtektir Baiidaríkjamaiina ef til vill slíkar að jaínvel Bjöm Ölafsson sjái sér ckki fært að geta þeirra ásamt samningsbundnum Iofsjrrðum um hina vestrænu herraþjóð ? Þögn Björns er þeim mun furðulegri scm það er á allra vitorði að gjaldeyrisaðstaða Iandsins er mjög erfið; baník- arnir ráða svo til ekki yfir neinum evrópugjaldeyri og munu þó hafa hagnýtt yfirdráttannöguleika greiðslubandalagsins til hins ýtrasta. Væri vissulega ærin ástæða til að viðskipta- málaráðherrann ræddi þetta ástaiul við þjóðina og þær að- gerðir sem hún fyrirhugar til að lejrsa vandann. Póstspreitgja æíluó Adenau- er særii* Ijulda niamts Böggull, sem skrifað var utaná til Adenauers forsætis- raöherra sprakk í gær í lögreglustöö í Munchen í Vestur- Þýzkalandi. Tveir drengir komu með böggulinn á aðalpósthúsið í Miinchen og sögðu þeir, að ó- kunnugur maður hefði beðið þá fyrir hann. Sereste fiha- ma settur al Brezka stjórnin tilkynnti á þingi í gær, að hún hefði ákveð- ið að setja Seretse Khama, höfðingja Bamangvatoætt- flokksins í Bechuanalandi í Afríku, af fyrir fullt og allt. I hitteðfyrra gerði brezka Verka- mannaflokksstjórnin Khama út- lægan í fimm ár. Sök hans er sú, að hann er giftur hvítri konu en Bechuanaland liggur að Suður-Afríku, þar sem margra ára fangelsi liggur við hjónabandi fólks af mismun- andi kjrnþáttum. —• Ofsækir brezka stjórnin Khama og konu hans til að þóknast kynþátta- kúgunarstjóm Malaris í Suður- Afríku. Bílsprengja banar svertingjahjóniim Homer Wright, svertingi í New Haven í Connecticut í Ba.ndaríkjunum, sté í síðustu viku upp í vörubíl sinn ásamt kcnu sinni Opheliu. Þegar hann ætlaði að setja bílinn í gang varð sprcnging, sem varð hjón- unum að bana. Rannsókn leiddi í ljós, að dynamiti hafði verið komið þannig fyrir, að það sprakk þegar ýtt var á startar- ann. Þremur vikum áður hafði Wright baft hendur í hári hvíts þjófs. Póstmönnunum fannst bögg- ullinn grunsamlegur og fóru með hann á lögreglustöðina. Gert var boð eftir sprengiefna- sérfræðingi, en þegar hann var að opna böggulinn varð mikil sprenging, sem særði sérfræð- inginn lífshættulega og marga lögregluþjóna minna. Kjallara- herbergið, þar sem þeir voru að verki, gereyðilagðist. Þegar sprengingin varð var búið að opna böggulinn og kom úr ilionum bók, sem hefur verið holuð innan óg sprengju komið þar fyrir, sem sprakk þegar bókin var opnuð. Tngir Breta á ráð- stefnu s Moskva Þingmenn, kaupsýslu- menn, Boyd Orr lávarður Fréttaritari New Yorlk Times í London skýrir frá því 20. þ. m., að tuttugu til þrjátíu Bretar kunni að fara á alþjóða efna- hagsráðstefnuna, sem haldin verður í Moskva í næsta mán- uði. Markmið ráðstefnunnar er að ræða leiðir til aukinna milli- ríkjaviðskipta. Verkamannaf lokksþingmaður- inn Henry Usborne, sem einnig er formaður í stjórn vélsmíða- fjh'irtækis, hefur skýrt frá því að hann hafi þegið boð um að sæ'kja ráðstefnuna. Sama máli gegnir um Boyd Orr lávarð, fyriverandi formann landbún- aðarstofnunar SÞ. Aðrir brezkir fulltrúar verða þingmenn, liag- fræðingar, kaupsýslumenn og forystumenn verkalýðsfélaga.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.