Þjóðviljinn - 28.03.1952, Qupperneq 3
Föstudagur 28. marz 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Barnaf jölskyldan í óhæfa bragganum
og vottorðasmölun „skrifstofu borgarstjéra"
„Skrifstofa borgarstjóra" — ábyrgðarmaður hr. Gunn-
ar Thoroddsen borgarstjóri, hefur um nær hálfsmánaðar-
skeið staðið í ströngu við að safna vottorðum. Vottorðum,
sem að því er bezt verður iséð eiga að sanna að allt sé í
Jagi með að barnafjölskylda (nú 5 manns, áður 6 manns)
búi í 14 fermetra braggahúsnæði í Laugameskampi, sem
borgarlæknir úrskurðaði á sL hausti „ALGERLEGA Ó-
HÆFT TIL ÍBÚÐAR FYRIR BARNAFÓLK“.
Þann 6. þ.m. skýrði Þjóðvilj-
inn frá því að á s.l. hausti
hefði kona flutt með nýfætt
ibarn sitt í húsnæði í Laugar-
nescamp, sem borgarlæknir gaf
eftirfarandi vottorð um í lok
nóv. sl. haust:
„Reykjavík 27. nóv. 1951.
Eftir beiðni skoðaði ég í
dag húsnæði að Laugarnes-
camp 16, en þar býr Guð-
veigur Þorláksson ásamt
konu sipni og bðmum. Kon-
an, Sigurlaug Steinunn Sig-
urðardóttir, liggur á Fæðing
ardeild Landsspítalans og
hefur nýlega alið þar bara,
en önnur börn þeirra, sem
á heimilinu eru, eru á öðru
ári og 3ja ára. Auk þess
er á heimilinu einn uppkom-
inn sonur þeirra, en tveim
stálpuðum börnum hefur ver
ið komlð fyrir utan bæjar
vegna húsnæðisþrengsla.
Húsnæðið er 2 herbergi,
annað rúmlega 10 ferm., en
hitt rúmlega 4 ferm. Úpp-
hitun er í stærra herberginu
frá litlum miðstöðvarofni,
sem tengdur er við kola-
eldavél í eldhúsi. Yeggir
bera allir meira eða minna
vott um raka. Gluggaum-
búnaður er lélegur. Gólfdúk-
ur er mjög Iélegur á stærra
herberginu, en algerlega ó-
nýtur á því minna, og sést
þar, að gólf eru fúin.
Eldhús er rúmlega 8 ferm.,
sæmilega hlýtt, ér kynt er
á eldavélinni; en gluggi ó-
þéttur og raki í skápum og
gólfdúkur lélegur. Geymslu-
kompa, rök og óinnrétt,
fylgir húsnæði þessu.
Húsnæði þetta verður að
telja algjöriega óhæft til í-
búðar fyrir barnafólk, og
ekki kemur til mála, að
sængurkona með vikugamalt
barn geti flutt í það.
Ásmundur Brekkan.
Aðstoðarlæknir“.
Þá skýrði Þjóðviljinn enn-
fremur frá því hvernig vetrar-
kuldinn hefði verkað á þetta
húsnæði, sem í vetur hefur
ýmist verið hélað eða flotið út
i slaga og' birti eftirfarandi
vottorð:
„Sigurlaug Sigurðardóttir
Laugarnescamp 16 býr í
húsnæði, sem verður að telja
algjöriega óhæft til íbúðar.
28.2. — 1952.
Gunnar Benjamínsson‘‘.
Þetta kom ónotalega Við
„Skrifstofu borgarstjóra“
„Skrifstofa borgarstjóra“ —
ábyrgðarmaður hr. Gunnar
Thoroddsen — hafði margt að
athuga við þessar upplýsingar
M.a. það að húsbóndinn í fyrr-
nefndu húsnæði hefði áður átt
hús og „skrifstofu borgar-
stjóra“ væri „ókunnugt u«“
hvers vegna maðurinn hefði
farið að selja það hús og
flytja í bragga, ennfremur að
hann hefði ekki talað við „við-
komandi áðila“ um húsnæðis-
vandræði sín.
Þjóðviljinn hafði þá tal-af í-
búa fyrrnefnds bragga í Laug
arneseampi 16, Guðveigi Þor-
lákssyni, þar sem Guðveigur
upplýsti að hús sitt hefði verið
auglýst í Lögbirtingarblaðinu
tir uppboðs til greiðslu á út-
svarsskuld, samkvæmt kröfu
bæjargjaldkera Ihaldsins, og
ennfremur skýrði hann frá að
hann hefði rætt við Ólaf
Sveinbjömsson skrifstofustjóra
og Ragnar Þórarinsson um
húsnæðisvandræði sín, og til-
greindi hvenær Ólafur Svein-
björnsson hefði heitið Viðgétð
á bragganum. — Viðtal þetta
við Guðveig Þorláksson var
birt 14. þessa mánaöar.
Nú vantaði aðeins eitt til
þess að allt væri
fullkomnað!
Þessar upplýsingar Guðveigs
virðast hafa valdið „Skrifstofu
borgarstjóra“ (ábyrgðarmaður
hr. Gunnar Thorddodsen)
miklu annríki, því eftir 11 daga
þögn sendir „Skrifstofa borgar-
•stjóra" (ábyrgðarmaður herra
Gunnar Thoroddsen) loks frá
sér svar. Og hvílíkt svar! Eitt
afrit úr afsals og veðmálsbók-
um Reykjavíkur, fimm vott-
orð og skrá yfir tekjur Guð-
veigs Þorlákssonar í fimm ár!
Hið eina sem virtist á skorta
til að „Skrifstofa borgarstjóra'
(ábyrgðarmaður Gunnar Thor-
oddsen) gæti litið yflr þetta 11
daga verk sitt og sagt: sjá það
er harla gott! var vottorð um
að ummæli borgarlæknis og
Gunnars Benjamínssoiiar lækn-
is í vottorðum þeirra um hús-
næði Guð\*eigs Þorlákssonar.
vær'u ómerk orð sem öllum bæri
að forðast að Ieggja trúnáð á!
„Skrifstofa borgarstjóra“
hefur orðið.
,, Skrifstofa borgarstjórá ‘ (á-
byrgðarmaður Gunnar Thor-
cddsen) verður að virða Þjóð-
viljanum það til vorkunnar
þótt hann eyði ekki rúmi und-
ir öll þessi vottorð, svo sem út-
svarsupphæðavottorð Kristins
Kristjánssonar og afrit úr af-
salsbókum, en láti nægja nið-
urstöður „Skrifstofu borgar-
stjóra“ (ábyrgðarmaður Gunn-
ar Thoroddsen) af 11 daga vott-
orðasöfnun. Þær eru svohljóð-
andi:
„Af ofanskráðu er ljóst:
1. Að húsið var ekki selt að
kröfu bæjargjald’kerans , í
Reykjavík, heldur var hin lága
útsvarsupphæð miðuð við sölu-
verð hússins greidd tveimur
mánuðum áður en það var selt,
til þess að sala gæti farið fram.
2. Að viðkomandi hefur aldrei
farið fram á viðgerð á núver-
andi húsnæði, heldur beðið bæ-
inn um nýtt fyrir eigi alls
löngif. - -»
3. Að hjónunum var boðið
rúm fyrir barnið á vöggustofu,
áður en það fæddist.
4. Að bamið var ekki veikt í
lungum, heldur hafði það hita-
laust kvef.
5. Að tekjur þær, sem fjöl-
skyldan hefur haft samanlagt
eru það háar, að hr. Guðveigur
Þorláksson ætti ekki að þurfa
að kvarta yfir samskiptum sín-
um við Reykjavíkurbæ.“
Útsvarsskuldin greidd með
húsverðinu.
1 fyrradag hafði Þjóðviljinn
enn tal af Guðveigi Þoriáks-
syni.
hans lá á Fæðing-ardeild Lands-1
spítalans, bauð ég honum þettal
enn á ný, en það fór á sömu leið.
Kvað hann sér myndi ganga bet-
ur að fá húsnæði, ef hann hefði
barnið. Þar sem mér fannst fram-
för barnsins ekki eðíileg, flutti
ég það í sgmráði við ‘fore.ldrana á
vöggustofúna á Hliðárénda 2.
marz s. 1.
Reykjavík 20. marz 1952.
Guðrún Bjarnadóttir.
— Hváð segir þú um þetta?
— I stuttu máli það, að um-
rædd hjúkrunarkona talaði
aldrei um þetta við mig áður
en barnið fæddist. Ég hitti hana
aldrei meðan konan lá á Fæð-
ingardeildinni. Hitt er rétt, að
ég talaði um það við aðra, og
þeirra á meðal mun vera Ólaf-
ur Sveinbjörnsson skrifstofu-
stjóri, að'ég hvorki gæti né vildi
Rákust viðgerðarmennirnir j tekið barnið heim í braggann
þarna inn fyrnr tilviljun?! j 0g ég vísa þar en til vottorðs
— Ólafur Sveinbjörnsson | borgarlæknis.
skrifstofustjóri segir m.a.: „Uml Hjúkrunarkona frá Líkn
viðgerð á núverandi húsnæði kom hálfsmánaðarlega til okk
— Skrifstofa borgarstjóra
játar að hús þitt hafi á sínum
tíma verið auglýst til sölu upp
í útsvarsskuld, en að skuldina,
1270,00 kr., hafir þú .greitt
tveim mánuðum áður en sala
fór fram. Greiddir þú þá ekki
útsvarið með húsinu?
— Jú, það var nú einmitt
það. Húsverðið notaði ég til að
greiða útsvarsskuldina og aðr-
ar skuldir er á húsinu hvíldu
Kaupandinn greiddi mér nokk-
urn hluta húsverðsins fyrirfram
og þá greiddi ég útsvarskuldina.
hefur hann ekki beðið né neinn
fyrir hans hönd“, en að þú haf-
ir beðið um annað húsnæði?
— Gott er nú það, að þeir
viðurkenna að ég hafi 'beðið um
annað húsnæði, en það gerði
ég strax í fyrrahaust, og fékk
þau svör að það væri ekki hægt,
en það væri hægt að gera við
braggann. — Konan mín talaði
við Ólaf Sveinbjörnsson
snemma í febrúar um að raf-
magnið væri bilað, 20. febrúar
talaði ég við hann og hét hann
þá að senda viðgerðarmenn eft-
ir tvo daga. Seinna talaði konan
við hann. Viðgerðarmennirnir
komu 13. marz.
Kveðst ekki hafa við hana
talað.
— „Skrifstofa borgarstjóra"
(ábyrgðarmaður Gunnar Thor-
oddsen) birtir eftirfarandi vott-
orð:
Ég undirrituð, hjúkrunarkona
Barnaverndarnefndar, bauð hr.
Guðveigi Þorlákssyni, Laugarnes-
carap 16, að koma barni því, sem
kona hans átti í vændum, fyrir
á vöggustofunni á Hlíðarenda, en
hann hafnaði því. Þegar hann
kom að máli við mig, meðan kona
ar eftir aö barnið og konan voru
fliitt í braggann og hún talaði
við vottorðsgefanda „skrifstofu
borgarstjóra“, sem þá talaði
við konuna mína stuttu áður en
barnið fór á vöggustofuha 2.
marz.
Fór þangað 2—3 dögum
síðar.
— Kristbjörn Tryggvason
segir barnið hafa verið kvefað
en hitalaust er það kom í
vöggustofuna og „hafa verið
hitalaust“ síðan.
— Um það hef ég það eitt
að segja að ég er ánægður yfir
að barnið skuli nú vera heil-
brigt, eftir að það kom í gott
húsnæði, og jafnframt endur-
taka það sem ég sagði í fyrra
viðtali, að þegar það var mælt
eftir að ég hafði sótt lækni til
þess var það með 38,7 stiga
hita — en það var ekki flutt í
vöggustofuna fyrr en 2 eða
þrem dögum síðar.
Kann litlar þakikir fyrir
slíkt.
— „Skrifstofa borgarstjóra“
segir að í 5 ár hafir þú árlega
haft frá 29,2 til 38,3 þús. kr.
tekjur á ári.
— Því er fljótsvarað hvernig
þær tekjur eru reiknaðar. Fjög-
ur af börnunum voru tekin af
mér og komið fyrir hingað og
þangað. Það sem greitt hefur
verið með þeim er þarna að
sjálfsögðu fært mér til tekna.
Annars kom einn drengurinn
heim af opinberu barnaheimili
með útgrafna hlustina og hefur
að miklu leyti misst heyrnina á
því eyranu auk þess sem hann
hefur kvalir í höfðinu siðan, og
kann ég engar þakkir fyrir
slíkt.
Lengra er viðtalið við Guð-
veig Þorláksson ekki að sinni,
en af skrifunum um málið ligg-
ur ljóst fyrir eftirfarandi:
1. 27. nóv. s.1. úrskurðaði borg-
ariæknir húsnæði Guðveigs í
Laugarneskampi 16 „AL-
GERLEGA ÓHÆFT TIL 1-
BÚÐAR FYRIR BARNA-
FÓLK“ og Gunnar Renja-
mínsson Iæknir gaf samskon-
ar vottorð 28. febr. sl.
2. Þrátt fyrir þetta var nýfætt
bam flutt í braggann á sl.
Iiausti og látið dvelja þar til
2. marz s.l.
3. í vetur hefur 6 manna fjöl-
skytda verið látin hafast við
í 14 fermetra hreysi, siern
er „ALGERLEGA ÓHÆFT
TIL IbUÐAR FYRIR
BARNAFÓLK“.
4. Það er riðurkennt með vott-
, orði Ólafs Sveinbjörnssonar
skrifstofustjóra að „Hr.
Guðveigur Þorláksson hefur
nokkrum sinnum leitað eftir
aðstoð bæjarins til að kom-
ast í annað húsnæði“.
5. Staðreynd að þrátt fyrir það
og vottorð borgariæknis er
fjölskyldan (að undanskildu
yngsta barninu) enn í þessu
húsnæði.
6. „Skrifstofa borgarstjóra“
(ábyrgðaraiaður Gunnar
Thoroddsen) hefur í 11 daga
verið að smala vottorðum,
sem eru óskiljanleg með öllu,
ef tilgangurinn með þeim á
að vera eiuhver annar en sá
Framhald á 7. síðu.
ÍÞRÓTTIR
RJTSTJÓRl: FRt'MANN HELGASON
EIGA KNATTSPYRNUMENN AÐ HUGSA UM AÐ
FARA Á ÓLYMPÍULEIKI?
Meðal íþróttamanna eru nú
uppi allmiklar umræður um það
hvort knattspyrnumenn eigi að
fara á olympíuleikana í sumar
eða ekki. Þessar umræður
munu einnig eiga sér stað og
það með nokkru kappi hjá þeim
sem f jærri íþróttum standa, sem
virkir þátttakendur. Meira að
segja þótti okkar ágætu mennta
mönnum það efni í spumingu á
síðasta sp.urningatíma Stúd-
entafélagsins, hvort ísl. knatt-
spyrnumenn ættu að fara á ol-
ympíuleika. Tilgang fyrirspyrj-
anda gat ég ekki örugglega
greint, en svar Baldurs bar
gáfumanninum vitni. Það bar í
sér þá skoðun að það gæti verið
skref í átt til aukins þroska,
og þó mun Baldur Bjarnason
ekki talinn meðal leiðtoga í-
þróttamanna eða harðskeyttur
íþróttakepjHindi.
Það breytir ekki miklu þó
hann teldi að það gæti tekið
nokkra tugi ára að ná æskileg-
um þroska. Það einkennilega er
í öllum þessum umræéum, að
sú skoðun er almenn að knatt-
spyrnumenn eigi ekki að láta
sér detta í hug að fara á olym-
píuleikina. Ég verð að játa að
ég er undrandi á þessari skoð-
un. Mér finnst hún vera lág-
kúruleg, og ekki ■ í þeim anda
sem ungum mönnum er nauðsyn
legur, þ.e. að setja markið hátt.
Það er frumskilyrði til að ná
ákveðnu takmarki, að láta sér
detta í hug að þetta takmark
sé til, að hugsanlegt sé að tak-
ast megi að ná því, að sé tak-
markið gott þá megi ungi mað-
urinn vænta þess að hann fái
örfun á sinni erfuðu leið að
þessu marki. Ekkert af þessu
virðist sem knattspyrnumenn
megi láta sér detta í hug eða
verða aðnjótandi. Mér virðist
þetta öfugt við allan eðlilegan
ganga mála. Við eigum að
hvetja þá til að taka mál sín
alVarlega, setja markið hátt,
vinna að þeim með djörfung og
dugnaði. Veita þeim alla þá örf-
un sem verða má svo að þeir
nái sem beztum árangri, að
þeim megi takast að ná því
Framhald á 7. síðu.
Úrslit í Handknattleiksmótimi
á sunnudag.
Á sunnudaginn kl. 8 fara
fram úrslit landsmóts hand-
knattleiksmanna og lenda þessi
félög í úrslitum: H. flokkur
kvenna, FH og Þróttur, meist-
arafl. kvenna, Árm., Fram. III
fl. karla Fram og Valur sem
unnu hvor sinn riðil. í H. fl.
karla Árm.-Víkingur sem einn-
ig unnu hvor sinn riðil. í I. fl.
karla eigast svo við Ármann
og Valur.
Má gera ráð fyrir að margir
þessara leikja verði jafnir og
skemmtilegir.
Tvö síðustu keppniskvöld
fóru leikar þannig:
II. fl. kvenna Ármann Fram
2:1. M. fl. kvenna Valur KR
2:2. III. fl. karla KR — FH
5:6. III. fl. karla Fram — Ár-
mann 9:4. III. fl. karla Valur
— ÍR 11:4. II. fl. karla ÍR FH
6:3. n. fl. Víkingur Valur 7:5.
II. fl. karla KR Þróttur 9:1.
H. fl. karla Fram Þróttur 5:2.
H. fl. karla Þróttur SBR 5:4,
H, fl. karia Ármann Fi am 10:3„