Þjóðviljinn - 29.03.1952, Side 1
Laugardagiir 29. marz 1952 — 17. árgangur — 73. tölublað
Stjórnir Bretlands, Banda-
ríkjanna og ítalíu. hafa orðið
ásáttar um að halda ráðstefnu
í London í næstu viku um
stjórn Tricsteborgar.
iBlöð í Júgóslavíu eru mjög
þungorð í garð ítála og Vest-
urveldanna fyrir framkomu
þeirra við slavneska íbúa Tri-
este og nágrennis.
Þannig telur sovétteíknarinn Jeíimoff að Eisenhower hafi farið
að því að skira Grikkland og Tyrkiand Atlanzhafsríki, þegar
þaú vom tekin í A-bandalagið.
FangeSsastir og herSög við
kosningar í Egyptalandi
Þingkosningar rnunu fara fram 1 Egyptalandi viö her-
lög, sem leggja dauöarefsingu viö gagnrýni á ríkjandi
stjórn.
Stjórn Hilaly Phasha var bú-
in að heita, því að aflétta her-
Þegnar Seret-
se móÉitiæAsi
Þegar embættismaður Bret-
landsstjórnar skýrði öldungum
Bamangvatoættflokksins í Afr-
íku frá því í gær, að Salis-
bury samveldismálaráðherra
hefði ákveðið að svipta Seretse
Khama höfðingjavaldi yfir ætt-
flokknum fyrir fullt og allt og
gera hann útlægan frá þjóð
sinni, gerðist kurr mikill meðal
öldunganna enda þótt brezka
stjórnin haldi því fram að hún
svipti Seretse völdum vegna ó-
vinsælda hans með ættflokkn-
um. Höfnuðu öldungarnir beiðni
Breta um að þeir kjósi nýjan
höfðingja en samþykktu í þess
stað að senda nefnd til London
að reyna að fá brezku stjórn-
ina ofan af ætlan sinni. Salis-
bury lávarður lýsti yfir í gær,
að hann myndi undir engum
kringumstæðum ræða við slíka
nefnd.
Flést brezku blöðin fordæma
í gær framkomu stjórnarinnar
við Seretse. Ihaidsblaðið „Ilaily
Exprcss" tekur dýpst í árinni.
Segir það að stjórnin hafi unn-
ið illvirki og Salisbury íávarð-
n r verðs að segja af sér. Mörg
biöð benda á, að enginn Afríku
tnaður cfist um að Seretse sé
ofsótíur vegna þess að hann er
giftur hvítri konu.
—--------------------\
heldur félagsfund nk. mánti-
dag, 31. þm. I Aðalstræti 12
(uppi).
Fundarefni:
Félagsmál.
Atvinnumál (Hannes Step-
heiisen).
Kaffi. Stjórnln.
lögum áður en kosningamar
færu fram en í gær varð ljóst
að hún er staðráðin í að svíkja
það loýorð.
Stjórnin þykist hafa komizt
á snoðir um samsæri um áð
smygla ókjörum af vopnum og
sprengiefnum inn í landið og
heldur því fram að þar hafi
verið um uppreisnarundirbún-
ing að ræða. Notar hún þetta
„samsæri" fyrir átyllu til að
láta herlögin vera í gildi á-
fram.
Ein afleiðing þess að herlög
verða áfram í gildi er sú, að
foringjiun stjómarandstöðu-
fiokkanna, sem handteknir hafa
verið og fluttir í útlegð, verð-
ur ekki leyft að taka þátt í
kosningabaráttunni. Plefði her-
lögunum verið aflétt hefði orð-
ið að sleppa þeim, því að þeir
hafa eltki verið bornir neinum
sökum heldur handteknir í
krafti þess alræðisvalds, sem
herlögin veita forsætisráðherr-
anum.
Á þingi því, sem Farúk kon-
ungur rauf, voru Wafdistar, aft-
al stjómarandstöðuflokkurinn,
í miklum meirihluta, og er eng-
inn vafi talinn ó að í frjálsum
kosningum myndu þeir bera
sigur af hólmi.
Kaopkröfur böð-
aðar í Bretlandi
Hægrikratarnir í stjóm Al-
þýðusambands Bretlands til-
kynntu ríkisstjórn íhaldsmanna
nýlega, að árásir hennar í fjár-
lögunum á kjör hinna lægst
launuðu hefðu það í för með
sér, að ekki kæini til mála að
haldið yrði aftur af kröfum
verkalýðsfélaganna um kaup-
hækkanir. Sambandsstjórnin
kveðst álíta, að fjárlögin muni
hafa í för með sér stóraukið
atvinnuleysi í Bretlandi og það
geti haft hinar alvariegustu
afleiðingar að stjórnin hverfi
frá stefnu undanfarinna ára
um atvinnu fyrir alla.
„Vííisvélin1
var klnkka
Bretar vissu að setið var
um líí Adenauers
Um alít Vestur-Þýzkaland er
leitað að náunga þeim, sem í
gær reyndi að senda Adenauer
forsætisráðherra sprengju í
pósti.
Sprengjusérfræðingurinn, sem
var að opna böggulinn þegar
hann sprakk, lézt í gær. t
gær kom böggull í pósti til
kanslarahallarinnar í Bonn og
þótti sá æði grunsamlegur, því
að inni i honum heyrðist tif
eins og í klukku en klukku-
verk eru nppáhalds tæki vítis-
vélasmiða. Sprengjusérfræðing-
ur var kallaður á vettvang og
böggullinn opnaður með mikilli
varúð en út úr honum kom
dýrindis klukka.
Lögreglan hallast að því, að
sá sem reyndi að senda Aden-
auer sprengjuna sé nazisti, því
aft sendandanafnið á bögglin-
um var dr. Berghof, en það
er nafnið á fjallasetri Hitlers.
Skýrt hefur verið frá því, að
leyniþjónusta Breta í Vestur-
Þýzkalandi hafi varað við því
fyrir nokkrum viltum, að ein-
hverjum ráðherrunum myndi
sýnt banatilræði.
MannskœS
átök I Teheran
Blóðugir bardagar voru háð-
ir í gær á götum Teheran,
höfuðborgar Iran. Hópganga
var farin til að mótmæla sýkla-
hernaði Bandaríkjanna í Kóréu
en lögreglusveitir réðust á
gönguna. Lai;st í bardaga og
lierma fréttir að tíu menn hafi
beðið bana en yfir 100 særzt.
Yfirvöldin ihalda því fram að
göngumenn ihafi verið vopnaðir.
Ný st jómarkreppa í upp
sl
Oll sólarmerki bsntu til þess í gær, að tekiö væri að
halla undan fæti fyrir stjórn Pinay í Frakklandi.
Pinay hefur lýst yfir að
stjóm sín standi og falli með
þeim tillögum, sem hann hefur
gert um að koma saman lialla-
lausum fjárlögum, en í gær
umturnaði fjárhagsnefnd
franska þingsins tillögunum.
Fulltrúar kommúnista, sósíal
demokrata og gaullista í nefnd-
inni lögðust á eitt að félla all-
Svar Vesturveld-
anna ófullnægj-
Frá því var skýrt í London
í gær, að Vishinski utanrílcis-
ráðherra hefði lýst því yfir,
er sendiherrar Vesturveldanna
í Moskva afhentu honum svör
stjórna. sinna við orðsendingu
sovétstjórnarinnar um friðar-
samning við Þýzkaland, að við
fljótlega athugun virtust sér
svörin allsendis ófullnægjandi.
Vishinski kvað Sovétstjórn-
ina álíta, að nefndin, sem þing
SÞ kaus til að athuga mögu-
leika á kosningum d Þýzka-
landi, væri í alla staði ólög-
leg, vegna þess að í stofn-
skrá SÞ er skýrt tekið fram,
að samtökin eigi ekki að koma
nærri friðarsamningum eftir
heimsstyrjöldina síðari. Hins-
vegar sagði hann sovétstjórn-
ina álíta að stjórnir Austur- og
Vestur-Þýzkalands ættu að
semja sín í milli um kosningar
um allt landið og ef utanað-
komandi aðstoðar væru börf
ættu hernámsveldin að inna
hana af hendi. Vishinski lýsti
yfir, að um austurlandamæri
Þýzkalands yrði alls ekki sam-
ið, þau væru endanlega ákveðin.
Ofbeldi Frakka í Túnis
kært fyrir öryggisráðinu
Ofbeldi frönsku nýlendustjórnarinnar í Túríis hefur
verið kært fyrir Öryggisráði SÞ.
Tveir ráðherrar úr Túnis-
stjórn, sem komust undan frá
París til Egyptalands, þegar
þeir ráðherrar, sem heima sátu,
voru fangelsaðir, skýrðu frá
Samvinna við Franco
feeíur liila hemaSar-
þýðingu
Fechteler aðmíráll, yfirmaður
Bandaríkjaflota, gerði í gær lít-
ið úr þýðingu flotastöðva á
Spáni fyrir Miðjarðarhafsflota
Bandaríkjanna. — Kvað hann
Bandaríkjamenn enga þörf hafa
fyrir fastar flotastöðvar á
Spáni þótt þægilegt væri ef
herskip hefðu leyfi til að leita
þar hafnar.' Mörg hundruð
milljón dollara aðstoð við fas-
istastjórn Francos á Spánj
hefur verið réttlætt í Bandá-
ríkjimum með hernaðarlégum
röltum.
því í gær, að *jieir hefðu beðið
öryggisráðið að senda hið bráð-
asta rannsóknarnefnd til Túnis
til að kynna sér aðfarii-. Frakka
þar, Jafnframt hafa þeir skor-
að á SÞ að beita sér fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu í Túnis
svo að landsbúum gefist kostur
á að láta í ljós vilja sinn u.m
sambandsslit við Frakkland.
Beyinn í Túnis iét loks í gær
undan luöfum franska land-
stjórans og skipaði nýja stjórn.
Segjast Frakkar muni semja
við liana um aukin réttindi
Túriisbúa í þeirra eigin landi.
Yfirforingi franska hersins í
Túnis skýldaði í gær alla karla
frá 18 til 00 ára aldurs til að
gefa sig fram til þjónustu í
öryggissveitum, sem eiga aí
standá vÖrð við jámhrautarlín-
ur og mannvirki. Jafnfilp.mt
gerði hann höl'ðingja Túnisbúa
ábyrga fyrir tjóni, sem verða
kann af skemmdaverkum í hér-
aði hvers og eins.
ar helztu tillögur Pinay um
niðurskurð á útgjöldum ríkis-
ins. Af tillögum um 110 millj-
a.rða franka sparnað voru til-
lögur um einungis 33 milljarða
samþykktar.
Sama máli gegnir um afdrif
tillögu Pináys um að gefa skatt
svikurum upp sakir fyrir fram-
in skattsvik gegn því áð þeir
tefji rétt fram eftirleiðis. Þá
tillögu, felldu fulltrúar komm-
únista og sósíaldemokrata í
fjárhagsnefndinni. Fulltrúar
gaullista og kaþólskra sátu hjá
enda þótt hinir síðarnefndu
eigi að heita stuðningsmenn
stjórnarinnar.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins í París sagði í gærkvöldi,
að ekki væri alveg vist að at-
kvæði féllu á þingfundi á sama
hátt og í fjárhagsnefndinni, en
engum blöðum væri um það að
fletta að stjórn Pinay myndi
eiga langtum erfiðara uppdrátt-
ar á þingi en álitið hefur verið.
Sprengjuárás í
Damaskus
Sprenging. varð í gær úti-
fyrir upplýsingaskrifstofu
bandaríska sendiráðsins í
Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
Eyðilagðist framhlið hússins
gjörsamlega og rúður brotnuðu
í húsum í kring. Loftskeyta-
maður, sem var að starfi á
skrifstofunni, beið bana. Til-
ræðismennirnir komust undan
í bíl.■
Eifiuraöðrum stoiið
Þjófur í Denver í Bandaríkj-
unum mun hafa rekið upp stór
augu, þiegar hann opnaði striga-
poka, sem hann stal úr járn-
brautarvagni þar, því að í pok-
anum voru fjórar eiturslöngur,
ein þeirra sex feta löng og
baneitruð konungskobra. Pok-
inn fannst á götu í miðborginni
með einni af meinlausari slöng-
unum í en hinar eru ófundnar
enn og er mikill uggur í mönn-
um í Denver yfir nærveiu þess-
ara aðskotadýra.
Skúrinn var >
tekinn á sexföldu )
fasteignamats- /
verði! •
Fjármálai'áðuneytið hefur (
sent Fjóðvlljanum eftirfar- (
andi athugasémd við frá- (
sögnlna uni kókakólaskúr- (
inn sem Eysteiim fékk í (
staðinn fyrir stóreignaskatt: ,(
„Að gefnu tilel’ni skai það (
tekiö fram, að gjaldendur (
stóreignaskatts hafa til þess )
skýlausa heimild, samkv. /
lögum, að afhenda ríkis- /
sjóði skattlagðar fasteignir /
sínar til greiðslu á stór- j
eignaskattl, enda hafi tilboð ' >
um það borizt ráðuneytinu .
fyrir tilskilinn tíma. Er \
skylt að taka fasteignir til \
greiðslu á skattinum með ■
sama verði og þær eru '
metnar til skattlagnincrar- '
innar, en það er sexfait (
fasteúrnaniut í Beykjavik. (
— Fjármálaráðúneytið“. (