Þjóðviljinn - 10.05.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.05.1952, Blaðsíða 8
Verzlunarj öftiuðuriim er óhaafstæður um 102,8 mi Á sama tíma í lyrra vaz haim óhagstæðus um 29,8 miíljónis kEÓna Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni var verzlunarjöfn- uðurinn fjóra fyrstu mánuði þessa árs óhagstæður um 102,8 millj. kr. og er það nær f jórum sinnum verri útkoma en á sama tíma í fyrra, þá var vcrzlunarjöfnuðurinn óhagstæður um 29.8 millj. Á tímabilinu janúar-apríl ó' 'þessu ári var flutt út fyrir J.83 millj. 619 þús. kr. en inn fyrir 286 millj. 413 þús. kr. og vöru- skiptajöínuðurinn óhagstæður um 102 millj. 794 þús. kr. Á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 29 millj. 805 þús. kr. I aprílmánuði var flutt út fyrir 31 millj. 824 þús. kr., en inn fyrir 79 millj. 135 þús. kr. og vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæ'ður um 47 millj. 311 þús. Á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 35 millj. 41 þús. kr. m: Æ.F.R. — Skíða- ferð i dag frá I>órs götu 1. Lagt verð- ur af stað kl. 2.30. Sími 7510. Meiri bókmennta- fræðslu Félag íslenzkra rithöfunda hefur skorað á fræðslumála- stjórnina aö fyrirskipa á næsta skólaári aukna kennslu í bók- menntum landsins. Ennfremur skorað á Ríkisútvarpið að auka 'bókmenntafræðslu og sömuleið- is á stjórnir allra félaga að ætla ísl. bókmenntum meira rúm á skemmtunum og fund- um. Loks skorar það á bóksala að velja starfsfólk eftir bók- menntalegri þekkingu þess. Hernaðarfram- lag íellt í Bonn Efri deild vesturþýzka þings- ins í Bonn felldi í gær tillögu ríkisstjórnarinnar um að leggja á sérstakan skatt til að standa straum af fyrirhugaðri hervæð- Ingu Vestur-Þýzkalands. Þetta var fyrsta atkvæðagreiðslan í efri deildinni síðan ríkisstjórnin missti meirihluta þar vegna aukakosninga í hinu nýja suð- vesturfylki Vestur-Þýzkalands. Atkvæðagreiðslan í gær er álitin bending um þá erfiðleika, sem vesturþýzka stjórnin mun eiga við að stríða þegar hún reynir að fá þingið til að stað- festa samning þann um stofn- un Vestur-Evrópuhers með þýzkri þátttöku, sem undirskrif- aður var til bráðabirgða í París í gær. Undirritunin fór fram enda þótt ekki hafi enn náðst samkomulag um ýmis atriði, sem sérstakur ráðherrafundur verður að fjalla um. Búizt er við sízt minni andstöðu gegn samningnum á franska þinginu en því vésturþýzka. Síðustu sýningar hjá L.R. Stjórn Leikfélags Reykjavík- ur vill vekja athygli á því, að starfstímabili félagsins á þessum vetri lýkur í mánuðin- um, svo að . næstu sýningar félagsins á leikritinu „Djúpt liggja rætur“ eru hinar síð- ustu á starfstímabilinu. — Af þessum sökum hafði félagið ákveðið síðustu sýningu á sjón- leiknum Pi-pa-ki í gærkvöldi, en vegna' svo mikillar aðsókn- ar, að margir. urðu frá að hverfa, mun félagið -hafa auka- sýningu á leikritinu á föstu- daginn kemur. — Sjónleikurinn Djúpt liggja rætur verður sýnd- ur annað kvöld og á miðviku- dagskvöld. þJÓÐVILIINN Laugardagur 10. maí 1952 — 17. árgangur — 103. tölublað Listvinasaloriim hefur starfað í 1 ár Heíur kvikmyndasýningu á mergun fyrir félagsm. I dag er starfsemi Listvinasalarins eins árs gömul. Á þessu fyrsta starfsári hefur meira verk verið unnið en margur hefði ætlað, eða haldnar samtals 16 sýningar og kynningarkvöld. í tilefni afmælisins verður kynráng á verkum tveggja er- lendra málara á morgun og hefst hún kl. 1,30. Er hún fyrir styrktarfélaga og listmálara. Tvær kvikmyndir verða sýnd-' ar, önnur um franska málarann Maurice Utrello. Ævisaga hans leikin af þekktum frönskum leikara og myndum Utrellos fléttað inní. Hin kvikmjmdin er um ameríska málarann Frank- lin Watkins. Undirleikur við myndina er músik eftir Beet- hoven, leikin af Paganinikvart- ettinum. Starfsemi Listvinasalarins var á sl. ári sem hér segir: 1. Kynningarkvöld: Þórberg- ur Þórðarson las upp endur- minningar, frú Ólöf Norðdal las upp kvæði eftir Sigurð Nordal og Lanzky Ottó flutti píanó- verk. 2. Sýning á myndum eftir börn. Framhaid á 7. síðu. Samið orn gagnkvæm réttindi í sjfikrasamlögum Norðurlandanna Haraldur Guðmundsson for- stjóri Tryggingarstofnunar rík- Þátftaka Islendin^a i ÓlympíuIeikÉ^M -r Meiri breidd, minni liæíí cn iZnt Þegar í haust var hafizt handa um undirbúning að þáttíöku Islendinga í Olympíuleikjunum í Helsingfors í sumar. Munum við ef til viil senda stærri sveit þangað en á fyrri ólympíuleiki, cn hins vegar hafa steðjað að ýms óhöpp sem vaJda því að ósýnt er um að við vinnum sambærileg einstaklingsafrek og stundum áour. Formaður Frjálsíþróttasam- bands Islands, Garðar Gíslason, og varaformaður þess, Jóhann Bemhard, kvöddu fréttamenn á fund sinn í gær og skýrðu þeim frá ýmsu varðandi undir- búning að þátttöku Islendinga í Ólympíuleikjunum í sumar. 17. júni-mótið og annáð mót, hald- ið nokkrum dögum síðar, verða úrtökumót undir leikina. Eftir úrslitum í því móti verður í höfuðdráttum ákveðið hverjir Tveir bæjartogarar að veiðum í Hvítahafinu Tveir af togurum Bæjarút- ger'ðar Reykjavikur eru farnir á veiðar í Hvítahafinu, en það eru Jón Baldvinsson og Skúli Magnússon. Auk þeirra eru á saltfiskveiðum Ingólfur Arnar- son, Skúli Magnússon, Þorst. Ingólfsson, Pétur Halldórsson og Þorkell máni. Hinsvegar eru Hallveig Fróðadóttir og Jón Þorláksson á ísfiskveiðum fyrir innlendan markað. Skákmeistarinn Prinz Fjöltefti — Ejnvígi við Baldur MöUer Hollenzki skáksnillingurinn Prinz er nú kominn hingað til bæjarins. Hann liefur dvalizt á Akureyri að 'unda.nförnu, eins og getið hefur vérið um. ----------------------------- 1 gærkvöldi átti Prinz að tefla við 10 skákmenn úr meist- araflokki að Þórskaffi. — Á morgun teflir hann opið fjöl- tefli í Mjólkurstöðinni. — Ö,ll- um er heimil þátttaka, en menn þurfa að leggja sér til töfl. Þá er og ráðgert að Prinz heyi einvígi við Baldur Möller. Tefla þeir tvær skákir, þ'á fyrri á mánudagskvöld, en ekki er af- ráðið hvenær þeir tefla seinni skákina. Prinz mun einnig tefla í Hafnarfirði og sennilega fieiri fjöltef i hér. Prinz er maður um fertugt. Han.n hefur teflt síðan hann '•a- barn aí aldri eg teki'ð þátt í mörgum mótum fyrir Hol- vnds hönd, en hann hefur að- eins tvisvar keppt um meist- áratign Ho"andg, 1931 og 1949. I síðara skiptlð vann hann tit- ilim. Prinz er blaoamaður að at- vinnu; ritar einkum um músík Framhald á 7. síóu. sendir verða, en hámarksfjöldi í hverri keppnisgrein frá hverju landi er 3 menn. F.R.I. 'hefu ákveðið eftirfarandi afrek sem Iágmark til þátttöku í Ólympíu- leikjunum: 100 m hlaup .... 10.8 sek. 200 m hlaup .... 21.8 sek. 400 m hlaup .... 49.0 sek. 800 m hlaup .... 1.54.0 mín 1500 m hlaup .... 3.57.0 mín 5000 m hlaup .... 15.15.0 min 10.000 m hlaup . . 32.00.0 mín 3000 m grindahl. 9.40.0 mín 100 m grindahl. . . 15.00 sek. 400 m grindahl. . . 55.00 sek. 4x100 m bo'ðljj. . . 42.00 sek. 4x400 m boðhl. .. 3.18.0 mín Hástökk 1.90 m Langstökk 7.20 m Þrístökk 14.60 m Stangarstökk .... 4.00 m Kúluvarp 15.00 m Kringlukast 47.0 m Spjótkast 65.0 m Tugþraut 6500 st. (samkv. finnsku stigatöflunni). Konur: 100 m. hlaup .... . 12.6 sek. Framhald á 7. síðu. isins og Gunnar Möller, form. tryggingarráðs og forstjóri Sjúkrasamlags Rvíkur taka sér far í dag til Kaupmannahafnar til að sitja fund með fulltrú- um dönsku, norsku og sænsku sjúkrasamlaganna. Framhald á 7. siðu. Landnemainnheimtan í dag er skiladagur í inn- heimtuherferð Landnemans. — Eftir fyrsta skiladag var búið að innheimta 69% af þeirri upp- hæð, sem ákveðið var að inn- heimta í þessari herferð. í dag þurfa allir félagar sem inn- heimtublokkir hafa að koma í skrifstofu Æ.F.R. og gera skil. — Landnemanum hafa borizt að gjöf bækur, sem útgáfustjórn blaðsins liefur áltveðið að veita þelm er beztum árangri nær í innheimtunni. — Munið skilia- daginn í dag. — Förum fram úr settu marki. 18 þús. kr. til Arnasafns Framlögum sem þjóðminja- verði og stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur berast til Árna- safns fjölgar stöðugt. Samkv. bráðabirgðauppgjöri í þessari viku höfðu borizt 18 þús. 110 kr. Auk þessa er kunnugt um fjölda framlaga utan af landi og verður skýrt frá þeim þeg- ar þau berast. Nýjar sýndarað- gerðir í verðlags- inálunum? Samkvæmt ósk viöskipta- málaráðherra settu handhafar valds forseta Is’ands hinn 6. þm. bráðabirgðalög um viðauka við lög nr. 35, 1950, um verð- lag, verðlagseftirlit og verð- lagsdóm. I bráðabirgðalögum er kveð- i'ð svo á, að verðgæzlustjóri skuli fylgjast með verðlagi í landinu og hafa sömu heimild Framhald á 7. síðu. 30 ára: K a r 1 a k 6 r ísafjarðar Isafirði. Frá fréttar. Þjóðviljans. Karlakór Isafjarðar varð ný- lega 30 ára. I kvöld heldur hann afmælissöngskemmtun og verður þá sungið m.a. nýtt lag eftir Jónas Tómasson. Fyrsti söngstjóri kórsins var Jónas Tómasson, var það í’ 18 ár. Þá var Högni Gunnarsson í 8 ár, en núverandi söngstjóri er Ragnar H. Ragnar skólastj. Tónlistarskólans á Isafirði. Hraunsteypan — ný holsteinagerS Sfeypir holsteina úr hraungjalli Hraunsteypan h.f. nefnist fyrirtæki í Háfnarfirði sem hafið hefur framleiðslu á holsteinum úr hraungjalli. Byggingarefni þetta á að sameina styrkleika og einangrunarhæfni. Tjén af eldsvoða á ísafirði Isafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. 1 gær brann efri hæð hússins Grund á fsafirði, en þar bjó verkamaAur með konu sinni og þrem börnum. Fólkið bjargaðist út um glugga. Búslóð þeSs brann. Eldurinn kom upp um kl. 10 í hornherbergj á efri hæð- inni, er óvíst um upptök en talin stafa frá rafmagni. Slökkviii'ðið kom þegar á vettvang og stóð þá eldur út um gluggann. Pétur Einars- son, er þarna bjó með konu sinni og þreroui- börnum 2ja, 3ja og 5 ára, var ekki heima, en konan og börnin sluppu með nauminum fáklædd út um glugga á hæðinni. Búslóðin brann öll. Var hún lágt vá- tryggð. Efri hæðin b-ann að mestu öll. Á neðri hæðinni var búslóð bjargaö út, en skemmdir urðu af vatni. Húsið var lágt vátryggt. Framleiðsla holsteina þessara. er fyrir skömmu hafin og eru bæði hrærivél og steypuvélin smíðaðar í Vélsmiðju Hafnar- fjarðar að mestu, eftir hug- myndum Jóhannesar Teitsson- ar húsasmiðs, sem er aðalhvata- maður að framleiðslu þessari, en hann hefur notað banda- rískar vélar til fyrirmyndar. Byggingarefnið er sótt í hraun- ið suður við Vatnsskarð. Hægt er að framleiða 280—300 steina á dag, mcðað við 8 stunda vinnu á dag og 4 starfsmenn. Þykkt steinanna (veggþykkt) er 26 cm en hliðarflötur um 20x50 cm og þarf 10 steina í fermetra í vegg. Um verð framleiðslunn- Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.