Þjóðviljinn - 30.05.1952, Blaðsíða 8
Langar biðraðir í Reykjavík í gær
Matvörubáðiinaí v©m að selja síðusSu leiSai diikakjöts isá í haust
Við eigum að vera kjötlaus hér á landi í sumar. í gær
var verið að selja afganginn af dilkalíjötinu frá í fyrra-
haust, og er þá ekkii annað kjöt í landinu en nokkrir kýr-
hryggir og meramakkar.
IIIÓÐVIUINN
Föstudagur 30 maí 1952 — 17. árgangur — 119. tölublað
UNICEF, barnahjálparsjóður SÞ, hefur látið af mörkuni mat-
væli lyf og aðra lijálp til nauðstaddra barna í 60 löndum. Hér
sést makedónsk stúlka ríða ofan á milli bagga á asna, sem flytur
vörur frá UNICEF til þorpsins Skari í grísku Makedóníu.
Dönsku leikararair fara á morgun
í kvöld klukkan 18 hafa dönsku leikgestirnir síðustu
sýninguna á Skipbrotinu sæla í Þjóðleikhúsinu. Á morg-
un hverfa þeir aftur heim.
Matvöruverzlanir í Reykjavík
tilkynntu í blöðum og útvarpi
í gær og fyrradag að það sem
eftir væri af dilkakjöti yrði
selt í búðunum í gærdag. Dilka
kjöt hefur verið ófáanlegt í
bænum um langt skeið, og
hrossa- og beljukjöt einnig af
mjög skornum skammti. Er nú
fiskur víðasthvar orðinn há-
degismatur sex daga vikunnar,
og er nú þegar upprunninn sá
tími að fólk verfii að borða
hann einnig á sunnudögum.
Það var því búizt við því
að allmikill handagangur yrði
í öskjunni í gær þegar sala
hæfist á dilkakjötinu, enda
varð- sú raunin á. Salan hófst
kíukkan tvö, en þegar upp úr
hádeginu fór fólk að safnast
saman við búðardyrnar, og
mynduðust þar á skömmum
tíma biðraðir sem ekki eiga
sinn líka um mörg ár, eða síð-
an á valdatímabili Emils
skömmtunarstórvesírs í Hafnar
firði.
í KRON á Skólavörðustíg
fylltist búðin á svipstundu út
úr dyrum, og var gífurleg ös í
verzluninni þar ti] kjötið var
uppselt, laust fyrir kl. 4. Frá
matvöruverzlun SláturféJags-
ins í Hafnarstræti 5 er sömu
sögu að segja — nema þar var
enn meiri ös. Var biðröð langt
út á götu, og voru lögreglu-
Féll af bílpalli —
meiddist illa
Um hádegið í gær vildi það
slys til að aldraður verkamað-
ur, Eiríkur Eiríkssson, Ránar-
götu 51, féll af palli vörubíls
og slasaðist allmiltið.
Bíllihn sem Eiríkur var á
ók norður Bræðraborgarstíg,
og stóð Eiríkur á palli bílsins,
og hélt annarri hendinni í
grind sem stendur upp með
stýrishúsinu. Er bíllinn kom að
gatnamótum Bræðraborgar-
stígs og Sólvallagötu hemlaði
annar bíll er var á undan,
mjög snögglega, og varð þá
hinn að gera það líka. Eiríkur
gætti þessa ekki, og féll hann
fram yfir vinstra afturhorn
stýrishússins og niður i göt-
una. Kom hann niður á bakið,
með höfuðið í rennuna en herð-
arnar á gangstéttarbrúnina.
Missti hann meðvitund við fall-
ið, en fékk hana þó fljótlega
aftur. Kom sjúkrabíll á vett-
vang og ók Eiríki í Landspítal-
ann. Var hann brákaður á baki
eða jafnvel brotinn, og hafði
hlotið áverka á höfði.
Eiríkur er 73 ára áð aldri.
Bandaríska fangabuðastjórn-
in sendi i g?er brezka hersveit
til að brjóta niður skálana í
þeirri fangagirðingunni, þar
sem liðsforingjar úr herjum
Kínverja og Kórea hafast við.
Gladwyn Jebb, fulltrúi Breta
í. afvopnunarnefnd SÞ, hefur
fyrir hönd Vesturveldanna bor-
ið fram tillögu um að Sovétríkj-
unum, Bandaríkjunum og Kína
skuli leyft að hafa eina til hálfa
aðra, milljón manna undir vopn-
um og Bretlandi og Frakklandi
700.000 til 800.000 þúsund.
þjónar settir til að gæta þar
aga og regiu. Kona, sem bar
að matvörubúð KRON á Vest-
urgötu, taldi þar 50 konur i
búðinni. 1 kjötbúðinni á Skóla-
vörðustíg 22 var fólkinu hleypt
inn í smáhópum, en lokað á
milli. Þyrptist hver hópurinn
af öðrum að dyrunum, svo
mann hefði aldrei órað fyrir
því að svo margar húsmæður
byggju í þessu hverfi.
Þessi skammtur sem búðirn-
ar fengu í gær af dilkakjötinu
mun vera sá síðasti sem þær
fá, á vorinu. Eftir er í landinu
aðeins reitingur af beljukjöti
og hrossskrokkum, sem verð-
ur pírt í verzianirnar srnátt
og smátt. En vestur í Ameríku
lifa kjölturakkar auðmanu-
anna í vellystingum praktug-
lega á íslenzku lambakjöti,
sem alþýðufólki á íslandi er
meinað að leggja sér til munns.
Svo vísdómslega er íslenzkum
verzlunarmálum háttað. Upp
er runnin sú langþráða stund
valdhafa vorra þegar betra er
að vera hundur í Ameríku en
maður á Islandi.
Hingað til Bolungavíkur
kom með kórnum Jónas Tóm-
asson tónskáld, fyrrv. söngstj.
kórsins og söng kórinn tvö lög
undir stjórn hans við ágætar
undirtektir áheyrenda. Kórinn
fékk hinar beztu undirtektir
og varð að syngja auka’ög und-
ir stjórn söngstjóra síns, Ragn-
ars H. Ragnars.
Kórinn sýndi þá rausn við
komu sína hingáð, að hann gaf
alian ágóðann af söng- og dans
skemmtun í n'r.nc-sjóð Fó’.ags-
heimilisins. 1 tilefni þessarar
gjafar ávarpaði Bened. Bjarna-
son formaður félagsheimilisstj.
kórinn og bað viðstadcfa að
rísa úr sætum og hrópp, fer-
falt húrra. fyrir kórnum. For-
maður kórsins, Gísli Kristjáns-
son, íþróttakennari, sem er
gamall Bolvíkingur, ávarpaði
samkomuna og þakkaði hinar
ágætu móttökur sem kórinn
fékk í Bolungavík og óskaðí
Bolvíkingum til hamingju. me’ð
hið glæsilega Félagsheimi’i, er
Táragassprengjur voru látnar
dynja á föngunum meðan ver-
ið var að jafna skálana við
jörðu. Bandaríkjamenn segja
að markmiðið með þessum að-
gerðum sé að skipta föngunum
niður í færri og smærri farvga-
girðingar.
Eftir að skáiabroti Bretanna
var lokið var einn striðsfangi
skotinn til bana og annar særð
ur. Fangabúðastjórnin til-
kynnti að um slysaskot hefði
verið að ræða, einn hermann-
anna hefði „óvart“ skotið úr
handvélbyssu á fangana.
VerzSunum hefur
fjölgal
Um síðastliðin áramc*t voru
samt. 1046 verzlanir í Reykja-
vík.
Smásöluverzlanir voru 840,
en heildverzlanir og umboðs-
verzlanir 206. Af sérverzlun-
um voru matvöruverzlanir flest-
ar, eða 181, vefnaðarvöruverzl-
ir 167, brauða- og mjólkurbúð-
ir 93, fiskbúðir 59, skartgiipa-
verzlanir 56, bóka- og ritfanga-
verzlanir 56, og svo framvegis.
Við áramótin 1950—‘51 voru
hér í bænum 1018 verzlunar-
fyrirtæki, og hefur þeim því
fjölgað um 28 á árinu.
Ný tónsmíð
eftir Hallgrím Helgason
Komin er út ný tónsmíð eftir
Hallgrím Helgason, Rómanza
fyrir fiðlu og píanó.
Hallgrímur tileinkar tónsmíð
þessa Hallgrími heitnum Níels-
syni á Grímsstöðum. Lagið er
prentað í Vínarborg, en útgef-
andi er Gígjan í Reykjavík.
sýndi dugnað og atorku þeirra.
Að því loknu hrópaði kórinn
ferfallt húrra fyrir Bohir.ga-
vík. Einsöngvari var Gísli
Kristjánsson en undirleik ann-
aðist Elísabet , Kristjánsdóttir.
Að söngnum loknum var stig-
inn dans og fór samkoman í
heild ágætlega fram.
Bolungávík 22.5. 1952 *
K. Þ.
Gistihúsaekla í
Stokkhólmi
Sendiráðið \ Stokkhólmi bið-
ur þess getið, að nú þegar sé
búið að panta upp öil hótel-
herbergi í Stokkhólmi fram á
haust. Ráð’eggja Svíar því
þeim, sem hugsa að fara til
Finnlands að leggja ferðir sín-
ar svo, að þei:- þurfi ekki að
vera í Stokkhólmi nætursakir.
Jafnvel þótt einstak'ingar muni
gera sitt ítrasta með að leigja
út einstölc herbergi, eru fvrir-
sjáanleg mikil vandræði með
að fá gistingu í bænum í sum-
ar.
(Frétt frá utanrikisráðuneyl-
inu).
Fyrirlestrar Rieh.
Recks
Dr. Richard Beck, ræðismað-
ur, var einn af ræðumönnum
á ársfundi fræðafélagsins The
Society for the Advancement
of Scandinavian Studv, sem
haldinn var í Luther College,
Decorah. Iowa, föstudaginn 2.
og laugardaginn 3. maí s.l.
Dr. Beck, sem er fyrrverandi
forseti félagsins, flutti á árs-
fundinum síðdegis á föstudag-
inn erindi um Kristmann Gu'ð-
mundsson rithöfund í tilefri af
Framhald á 6. siðu.
Dönsku leikararnir frá Kon-
unglega leikhúsinu komu hing-
að fimmtudaginn í síðustu
viku, og hafa nú þegar sýnt
leik sinn í sex skipti við mikla
aðsókn og frábærar viðtökur.
Má heita að uppselt hafi verið
á allar sýningarnar, þrátt fyrir
hið háa verð á miðunum.
Þjóðviljinn náði í gær tali af
Guðlaugi Rósinkrans þjóðleik-
hússtjóra, og sagði hann að
Dönunum likaði afarvel að
leika hér. Húsi'ð og áhorfend-
ur legðust á eitt um að gera
leiksýningar hér ánægjulegar.
Þeir hefðu látið í ljós mikla
ánægju nreð dvöl sína hér, og
þeir ættu varla orð yfir þær
viðtökur sem þeir hefðu feng-
ið.
Kosið hjá borgaiíógeta
15. júní n.k. fer fram auka-
kosning á ísafirði, og get.a Is-
firðingar sem staddir eru hér
í bænum greitt atkvæði nú þeg-
ar. Fer kosningin fram í skrif-
stofi; borgarfógeta í Tjarnar-
götu 4, á venjulegum skrif-
stofutíma kl. 10—12 f.h. og
í gær var leikurunum boðið
austur að Gullfossi og Geysi,
en áður höfðu þeir farið til
Þingvalla og komið við í Hvera
gerði. Ennfremur hafa þeir
skoðað ýms söfn í bænum. Eft-
ir sýninguna í kvöld heldur
Þjóðleikhúsið þeim skilnaðar-
hóf. Á morgun halda þeir heim«
lei’ðis með flugvél.
Lúðrabtástur í
Eyjum
Lúðrasveit Reykjavíkur fer
til Vestmannaeyja nú um
helgina, og heldur hljómleika
i Sjálfstæðishúsinu í Eyjum kl.
5 e.h. á hvítasunnudag. Lúðra-
sveitin hefur oft farið slíkar
ferðir áður. Eru slík ferðalög
einn liður í þeirri starfsemi
heirnar að koma tónlistinni út
á meðal fólksins. Stjórnandi
hljómsveitarinnar í þessari
hvítasunnuferð verður Paul
Pampichler, og hefur sveitin
að undanförnu æft sig af mikl-
um dugnaði undir hljómieik-
kl. 1.30—4 e.h.
ana.
Veitinga- og skemmtistöium
verði lokað fyrir hernum
„Fundur haldinn í Menningar og friðarsamtökum ís-
lenzkra kvenna þriðjudaginn 20. maí 1952 lýsir djúpri
hryggð 5rfir hinni ófyrirgefanlegu undanlátssemi lög-
reglustjórans i Reykjavík við hernámsyfirvöldin með
því að leyfa hernámsliðinu aftur aðgang að veitinga-
húsum bæjarins, sem lokuð hafa verið því í nokk-
um tíma.
Jafnframt skorar fundurinn eándregið á ríkisstjórn-
ina að hlutast til um það, að allir veitínga- og skemmtí-
staðir verði iokaðir hemámsliðinu vegna hinna aug-
ljósu siðferðis og mennmgarlegu hættu, sem af þvi
stafar.“
Fangar skotnir á Koje
í gær kom enn einu sinni til blóSsúthellinga í stríös-
fangabúSum Bandaríkjamanna á kóresku eynni Koje.
Fréftabréf úr Bolungavík
í gær kom Karlakór Isaf jarðar í heimsókn til Bolungavíkur og
hélt söngskemmtun í Félagsheimilinu, hinu nýja samkomuhúsi
Bolvíkinga. Kórinn hefur farið víða um Vestfirði og haldið
söngskemmtanir í tilefni af 30 ára afmæli sínu og hefur hvar-
vetna fengið ágætar viðtökur. Frá stofnun hefur kórnum ver-
ið stjórnar af 3 söngstjórum, þeim Jónasi Tómassyni, Högna
Gunnarssyni og Ragnari H. Ragnars núverandi söngstjóra.