Þjóðviljinn - 04.06.1952, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.06.1952, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 4. júní 1952 — 17. árgangur — 121. tölublað KR, Valur — Brentford JAFNTEFLI 1 gær keppti lið úr KR og Val við Brentford, og lauk honum með jafntefli, 2:2. Islenzka liðið setti bæði mörk- m á fyrstu 8 mínútum leiksins, en Bretarnir jöfnuðu seint í seinni hálfleik. 48 Saiður-Kóreu þlngmenn fara huldu höfðif 12 sif ja i fangelsi Rhee hófar oð reka Kóreu- nefnd SÞ úr landi Syngman Rhee, forseti Suður-Kóreu, hefur gengið svo langt í einræöisbrölti sínu aó algert öngþveiti rfkir í stjómmálalifi landsins. Stjórnir Vesturveldanna eru í öngum sínum yfir þeirri innsýn, sem atburðir þessir veita í liverskonar stjórnarfar þaö er, sem haldiö er uppi í Suöur-Kóreu með hervaldi þeirra. Lítil liætta á stríði, inikil á byltingu? segir Eisenhower Eisenliower hershöfðingi kippti 1 gær fótunum undan þeirri áróðursfullyrðingu, aö A-bandalagið og hervæöing Vesturveldanna yfirleitt stafi af hættu á árásarstyrjöld af hálfu Sovétríkjanna. Blaðafulltrúi Trumans Banda- ríkjaforseta sagði í gær, að for- setinn hefói þungar áhj'ggjur vegna ástandsins í stjórnmálum Suður-Kóreu. Clark, yfirhers- höfðingi Bandaríkjanna í Kóreu, og Van Fleet, yfirforingi land- hersins í Kóreu, fóru til Fusan íum hvítasunnuna og ræddu við Rhee. Muccio, sendiherra Banda ríkjanna hjá Suður-Kóreustjórh, er á leið til Fusan með skilaboð til Rhee frá iBandaríkjastjórn. Ófctast að falla Eins og kunnugt er höfðu þingkosningar farið fram í Suður-Kóreu skömmu áður en Kóreustyrjöldin hófst. Andstæð- ingar Syngman Rhee fengu mikinn meirihluta á þingi þrátt fyrir bolabrögð yfirvaldanna í 'kosningunum. Sýnt var að Rhee myndi falla er þingið kysi nýjan forseta. Þá hratt Rhee styrjöld- inni af stað og vann það við að forsetakosningu var frestað um óákveðinn tíma. Loks fékkst. það fram að þingið skyldi kjósa forseta í þessum mánuði eins og stjómarskráin mælir fyrir. Þá greip Rhee til þess ráðs til að bjarga völdum sínum að úr- skurða ákvæði stjórnarskrár- innar úr gildi fallið og að for- seta skyldi kjósa með almenn- um kosningum, sem hefðu orðið hreinn skrípaleikur vegna um- rótsins, sem styrjöldin hefur valdið í Suður-Kóreu. Þingið óstarfhæft Andstæðingar Rhee á þingi á- kváðu að hafa brölt hans að Umsát mm útvíirpsstöð cngu en Ikjósa forseta á tilsett- um tíma. Þá lét hann leynilög- reglu sína, sem alræmd er fyrir grimmd og pyndingar, taka tólf þingmenn fasta og sakaði þá Syngman Rhee. um þátttöku í alþjóðlegu komm- únistasamsæri um að steypa sér af stóli. Við þetta hurfu 48 aðr- ir stjórnarandstæðingar af þingi og fara síðan huldu höfði. Loks hafa stuðningsmenn Rhee geng- ið af þingi og er það þá ekki lengur ályktunarfært um for- setaval. Falla fyrir óverjandi ríkisstjórn Kóreunefnd SÞ ofbuðu að- farir Rhee og vítti hann fyrir handtöku stjórnarandstöðuþing- mannanna. Rhee svaraði með því að hóta nefndinni iþví að hún yrði reíkin úr landi ef hún ekki héldi sér saman. Blöð í fylgiríkjum Bandaríkj- anna, sem hingað til hafa stutt Kóreuæfintýri Trumans, fá ekki orða bundizt .yfir síðustu at- burðum í Fusan. Brezka borg- arablaðið Manchester Guardian segir að það sé óþolandi hneyksli að hermenn falli í nafni SÞ við að verja ríkis- stjórn, sem sé frá siðferðilegu sjónarmiði óverjandi. Kvöld- blaðið Evéning News í London segir að framferði Rhee og mannvígin í fangabúðum Banda ríkjamanna sýni að rannsaka þurfi, hvað sé að gerast að baki víglínunnar í Kóreu. Stjórn CGT, Alþýðusambands Frakklands, hefur boðað inni- setuverkfall í verksmiðjum í Paríg og nágrenni, verkfall járnbrautarstarfsmanna um allt Frakkland og verkfall stáliðn- áðarmanna í Norðaustur-Frakk- landi. Verkföllin eru gerð til að árétta kröfu um hækkað kaup og til að mótmæla of- sóknum ríkisstjórnarinnar gegn Kommimistaflokki Frakklands. Franska ríkisstjómin hélt þrjá fundi i gær til að ræða verkföllin. Vitað var í gær- kvöldi að boðið hafði verið út 30.000 manna lögreglu og. herliði í París. Franska lögreglan gerði hús- rannsókn í skrifstofum Komm- únistaflokks Frakklands í París og víðar laugardaginn fvrir Hershöfðinginn sagðj blaða- mönnum í Washington, að hverfandi litlar líkur væru til að Sovétríkin hæfu styrjöld að yfirlögðu ráði. Hinsvegar kvað hann auðvaldsríkjunum stafa mikla hættu. af „innanlands- undirróðri og mútum“ komm- únista. Bandaríkjamenn yrðu að senda hergögn og herlið til annarra landa til að hindra að fleiri ríki bættust í- hóp fylgi- ríkja Sovétríkjanna. Verða að hahla í auðlindirnar Eisenhower sparaði sér líka allt tal um að Bandaríkin væru að verja frelsið og lýðræðið í heiminum. Hann sagði umbúða- laust að Bandaríkjamenn yrðu hvítasunnu. Lagði hún haid á mikið af skjölum. Skrifstofa miðstjórnar flokksins hefur vegna þessara -aðgerða veríð flutt í skrifstofu þingflokks kommúnista í franska þinghús- inu. Bandaríkja- menn skjóta fanga Einn stríðsfangi var skotinn til bana og fimm særðir af skotum í fangabúðum Banda- ríkjanna á Kojeey við Kóreu í gær. Fangabúðastjórnin segir að einn fangi hafi fallið og einn særzt er bandarískur vörður skaut á fanga úr vél- byssu „af slysni“. Fjórir særð- ust þegar bandarískir verðir skutu úr haglabyssum inn í búðirnar. Höfðu fangarnir neit- að að taka niður af gadda- vírsgirðinguimi umhverfis búð- imar föt, sem þeir höfðu hengt þar til þerris. að tryggja það að þeir yrðu ekkj sviptir aðgangi að auð- lindum og vinum í öðrum heims- álfum en Ameríku og til þess væri A-bandalagið og hervæð- ingin öruggasta leiðin. Blaðamannafundur Eisenhow- ers var sá síðasti, sem hann heldur í einkennisbúningi, í gær- kvöld fékk liann lausn úr hern- um, hafði fataskipti og hélt heim til Abilene í Kansas, þar sem hann á að halda stjórn- málaræðu í dag. Rúmenskum ráð- herrum vikið frá Tilkynnt hefur verið í Búk- arest að Vasile Luca fjármála- ráðherra og Teohari Gheorg- hescu innanríkisráðherra, sem báðir voru þar að auki vara- fiorsætisráðherrai', liafi verið vikið frá störfum. Ana Pauk- er, utanríkisráðherra og vara- forsætisráðherra, er gagnrýnd í Scanteia, aða’málgagni Verka- mannaflokks Rúmeníu, fyrir að hafa.ásamt þeim fylgt andbvlt- ingarsinnaðri stefnu og rofið fíokksaga. Öfl fjandsamleg ai- þýðulýðveldinu hafi safnazt í kringum Luca, sem hafi reynt að grafa undan fjárhag þjóð- nýttra fyrirtækja, brugðið fæti fyrir peningaskiptin í vetur og reynt að sá ótta nieðal verka- manna. Gheorghescu og Pauk- er eru sökuð um að hafa stutt Luca, sem hefur verið svipt- ur öllum störfum í Verka- mannaflokknum. Mál hans er enn í rannsókn. Gheorghescu hefur' verið fengið nýtt starf og Pauker heldur ráðherraem- bættunum og sæti,í skipu'ags- nefnd Verkamannaflokksins en hefur misst sæti sitt í stjórn- málanefndinni. Petru Groza hefur látiðaf forsætisráðherraembætti Rúm- eníu fyrir aldurs sakir en Ge- orghiju Dej, aðalritari Verka- mannaflokksins, tekið við. — Groza hefur vcrið lcjörinn for- seti þingsins. Stóíiðnaður Bandaríkjanna iamaður of verkfalli Yfir 600.000 stálionaðarmenn í Bandaríkjunmn hafa lagt niöur vinnu og er taliö aö skortur verði brátt á stáli. Verkföll í Frakklandi Víðtæk verkföll hafa verið boöuð í Frakklandi 1 dag. Hefur ríkisstjórnin boöið út her og lögregluliöi. Brezkt herlið reisti í gær gaddavírsgirðingu umhverfis útvarpshús austurþýzka út- varpsins á brezka hernámshlut- anum í Berlín, bannaði mönnum inngöngu en kvað öllum heim- ilt að fara. Enginn 300 starfs- mannanna notaði sér boðið og einn sagði í símtali við frétta- ritara Reuters að þeir myndu geta hafzt við í húsinu og starfað eins og ekkert hefði í skorizt vikum saman. Umsátin um útvarpshúsið er hefndarráðstöfun Breta fyrir brottrekstur nokkurra fjöl- skyldna, sem eru undir lög- sögu brezka hernámsh’utans. úr húsum rétt innan við marka- línu sovéthernámshlutans. Yf- irmaður sovétlíðsins í Berlín geklc í gær á fund brezka yf- irforingjans þar. — Mótmælti h\ror aitnars aðgerðum. Til óeirða kom í fyrradag í Serowe, höfuðstað Bamang- watoættflokksins í Bechuana- landi í brezku Suíu^-Afríku. — Gerðu menn aðsúg að brezka landstjóranum er hann neit- aðd ráði ættflokksins um leyfi til að ha’da fund um útlegðar- úrskurð brezku stjói’narinnar yfir höfðingja ættflokksins, Se- retse Khama. Biðu þrír brezkir lögregluþjónar bana í viður- eigninni. Bretar fengu vopnað- an liðsauka loftleiðis frá Suð- ur-Rhodesíu. Bretar gerðu Seretse Khama útlægan frá Bechuanalandi er hann giftist hvítri konu. Verkfallið skall á annan hvítasunnudag og í gær var stálframleiðslan algerlega stöðvuð. Verkamenn lögðu niður vinnu strax og Hæstiréttur Banda- ríkjanna kvað upp þann úr- skurð með atkvæði sex dóm- ara gegn atkvæði þriggja að Truman forseti hefðd enga heimild haft til að láta ríkið taka rekstur stálsmiðjanna í sínar hendur til að forða verk- falli. Tveggja milljóna tonna stál- framleiðsla tapast hverja viku sem verkfallið stendur. Talið er að stálbirgðir í Bandaríkj- nnum séu ekki nema í hæsta lagi til tveggja vikna. Leitazt er við að koma á samningavlð- ræðum milli fulltrúa stáliðnað- armannasambandsins og verk- smiðjueigenda. ..... Hundrnð mauna í áranprslausri atvinnHleit við Eiöfnina „Atvinnuleysið endist lengur en frostið“ sagði hafnar- verkamaður við fréttamann Þjóðviljans í gær, en í vetur þegar verkalýðssamtökin kröfðu vaklhafana um vinnu var svar þeirra æ\in!ega að atvinnuleysið væri veðrinu að kenna. Verkamenn vissu betur. Atvinnuleysið minnkaði um tíma með vorinu erj hefur undanfarið aukizt mjög mikið og I gærmorgun röltu hundruð manna um hafnarbakk- ann hina vonlausu hungurgöngu í leit að vinnu — í glampandi sólskini, fegursta júníveðri. Ætli valdhafarnir að sofa enn og láta sem atvinnu- leysið sé ekki til eru verkalýðssamtökin neydd fil að ýta það fast við þeim að þeir vakni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.