Þjóðviljinn - 27.06.1952, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 27.06.1952, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. júní 1952 Yfirlýsing Framhald af 4. síðu. um þykir mér rétt að biðja Þjóðviljann fyrir svohljóðandi yfirlýsingu: Það er rétt að ég var fund arstjóri allan fundartímann, en mér var ekki sýnd eða afhent nein slík tillaga, hvorki af sr. Leó Júlíussyni, séra Emil Björnssyni eða nokkrum öðr- um fundarmanna. Engin slík tillaga lá því fyrir fundinum. Ot af máli þessu hefur séra Leó Julíusson sent mér svo- liljóðandi skeytí 3 „Hér með lýsi ég þvi yfir að á prestafélagsfundinum 21. júní s. 1. hvorki sýndi ég né afhenti fundarstjóra prófasti Hálfdáni Helgasyni nokkra tillögu vegna úmmæla ameríska herprestsins á synodus". Ég reyndi í morgun að ná tali af sr. Emil Björnssyni, en hann var þá farinn upp í Borg arfjörð, eftir því sem símstöð- inni á Brúarlandi var skýrt frá. Er vandalaust fyrir mig að fá samskonar yfirlýsingu frá hönum, ef þörf gerist, með því að við töluðumst aldrei við eða náðum saman til samstarfs þenna stutta tíma, sem hann sat fundinn. Með þökk fyrir birtinguna. Mosfelli 26. júni 1952 Hálfdán Helgason. Við framanskráða yfirlýsingu séra Hálfdáns Helgasonar pröfasts á Mosfelli hefur Þjóð- viljinn engu öðru að bæta en því, að hvergi í umræddri Þjóð viljagrein er það sagt að séra Hálfdán hafi sem fundarstjóri neitað að bera upp tillögu séra Leós Júlíussonar. Islðiidsglíman 1952 Framhald af 3. siðu. heldur enginn maður frá elsta glímufélagi landsins, Ármanni. Þó er vitað að flokkur glímu- manna úr Ármanni hefur æft glímu undanfarið með það fyr- ir augum að fara til Finnlands um sama leyti og Ólympíuleik- arnir standa yfir. Hvar voru glímumenn KR? og hvar voru hinir ’nörgu glímumenn UMFR sem ekki komu til þessarar glímu ? Hvar voru hinir ýmsu góðu utanbæjarglímumenn sem hér Ixafa komið fram ? ? Þannig spyrja menn hver ann- an sem eittíhvað fylgjast með glimunni. Mönnum er sýnilega ekki ljóst hvort hér er um að ræða beina óvirðing við glím- una eða íþróttasamtökin á há- tíð þeirra eða hvort um sé að ræða alvarlega hnignun glím- unhar. Sjálfsagt munu ýmsir afsaka þetta með veikindum og að fjórir af 8 sem skráðir ■voru hafi ekki getað mætt af .þeim sökum. en meinið liggur 'dýpra, og læknást' j:æpast nema glímumenn komi sér saman um að laga það. Fábreitt glíma Um sjálfa. glímuna er lítið að segja. — Piltarnir glímdu hvorki betur né verr en við eigum að venjast á glímumót- um hér, en eins og fyrr segir var glíman slitrótt og vantaði eðlilega allan heildarsvip. Þetta er í fyrsta sinn sem Ármann J. Lárusson vinnur Grettisbeltið. Var það skemmtilegt fyrir Ár- mann á þessu afmælismóti að sigra, og men nú langt síðan fæddur og uppalinn Reykvík- ingur hefur hlotið þennan heið- urátitil. — Fékk Ármann J. Lárusson, UMFR 3 vinninga; Rúnar Guðmundsson, Ármann 2 vinninga; Kristmundur Guð- mundsson, Áimann 1 og Gunn- sar Ólafsson, UMFR 0. 194 DÁGUR áttumikla vatnsflæmi þennan sólbjarta dag. En gæti ekki verið einhver einmana veiðimaður, leiðsögumaður eða fiskimaðxn' á ferli í skógunum og meðfram bökkunum? Voru ekki líkur til þess? Og ef svo væri? Og einhver sæi til þeirra! Hvílíkt ólán! Eyðilegging! Dauði! En ekkert hljóð heyrðist og hvergi sást reykur. Ekkert sást nema •— nema — þessi hávöxnu, skuggalegu, grænu grenitré — spjótlaga og þögul — og á stöku stað fú- inn stofn —- öskugrár í miskunnarlausu sólskininu og rétti ógnandi úr þurrum, risavöxnum handleggjunum. Dauði! Og hið hvella, málmkeimda garg skógarfuglanna inni á milli trjánna. Og draugaleg högg einmana spætu, rauðbryst- ingur á hraðri ferð og flögrandi svartþröstur. ,,Óh, the sun shines bright in my old Kentucky home“. Það var Róberta sem söng fjörlega og hélt annarri hend- inni niðri í vatninu. Og nokkru seinna •— „I’ll be there Sunday if you will“, — vinsælt dægurlag. Og loks eftir klukkutíma róður, og þau höfðu brotið heil- ann, sungið, stanzað og virt fyrir sér landslagið, horft á smávík sem vatnaliljur virtust vaxa í, og Róberta var farin að segja að þau yrðu að gæta sín að vera ekki of lengi úti á vatninu — komu þau í víkina fyrir sunnan sjálfa eyjuna. Hún var mjög falleg en umkringd hinum kirkjugarðslegu grenitrjám, líktist litlu sjálfstæðu vatni sem lítill skurður tengdi við stóra vatnið, en var þó sjálft á að gizka tvöhundruð fer- álnir á stærð og næstum hringlaga. Þetta vatn eða tjörn var að austan, norðan, sunnan og vestan, að undanskildu sundin.u sem skildi eyjuna frá meginlandinu. að norðan, umkringd trjám. Og þarna voru elftingar óg vatnaliljur hér og þar. Og þessi tjörn virtist eins og skópuð handa þcim, sem var þreyttur á lífinu óg raunum þess -— hér var öruggt og rólegt hæli handa þeim sem þráði að komast burt frá striti og deilum þessa heims. Og þegar þau reru inn í víkina virtist hið kyrra og skugga- lega vatn ná einhverjum undarlegum tökum á Clyde — ger- breyta hugarástandi hans. Það var eins og eittlivað heillaði hann og seiddi hann inn í þessa vík — og þegar hann var búinn að róa meðfram bökkunum, fannst honum hann vera á reki — á einhverju óendanlegu flæmi þar sem ekkert var — engar áætlanir — ekkert ráðabrugg — engin vandamál sem biðu úrlausnar — ekki neitt. En hvað þetta var heillandi fagur staður. Það var eins og umhverfið hæddist að honum — þetta kynlega umhverfi — þessi skuggalegi pollur umkringd- ur mjúkum, dásamlegum furutrjám á allar hliðar. Og vatnið sjálft var eins og svört risaperla, sem einhver tröllaukin hönd *0#cf0*0»0*0*0*0»-?*0*0*0*0»0f0»0*ri«0*0«0»0*0*0«c>#0#0»0»0«0»0»0#0*0f0*0*0*0#0«0*0*0#0*0é0*0*0»0*0| 2^0f0*0*0«0*0*0»0»04»0«0*0«0f0*0«0«0*c*0«0*0*0*0*0*0*0*0*0«0«0*0*0«0*0*0«0«0*0«0*0*0*04»0«0«»0*0*0«l !*• s? 8* & i I Frá happdrætti dvalarheimiiis I aldraðra sjómanna: Dregið hefur verið í happdrætti dvalarheimilis aldraðar sjómanna, og komu vinningar upp á eft- irfarandi númer: *. *. Kaupendur Þjóðviljans á Digraneshálsi, sem óska eftir að fá blaðið borið heim til sín frá næstu mánaðarmótum, eru beðnir að tala við af- greiösluna nú þegar. ÞJÖÐVILJINN, síini 7500 E2SSSSSSSSSSSSSSSSS£SSSSSi.’?£?<.’SS?SSSSSSSSSSgSSSSSSSSSgSSSSSSSSS£SSSgS£SSSSSSSgSSS2SSS2SSgSS2SSSS 73595 Sendiferðabifréið • 25766 Þvottavél, 32605- Saumavél > 43485 Ryksuga í; 3015 og 25373 Farseðlar til ?• Akureyrar og til baka með ?í flugvæl. §J 67403 og 18444 Farseðlar •S tli Isafjarðar og til baka í? með flugvél. 3758 Ritsafn Einars H. i? Kvaran, 6 bindi. jj» 74245, 12 manna matarstell. rs 41720 Peningar kr. 500,00. ■ 10996 ísskápur 39384 HriÉrivól. 5773 Eldavél. 52468 Farseðill með • ms. Gullfoss til Kaupm.hafnar og til baka. 35203 og 12596 Farseðlar með flugvél til Vestmanna- eyja og til baka. 5; 1524 íslendingasögurnar. ;• 7579 Ferðasögur Svein |§ bjamar Egilssonar. ;§ 27216 Peningar kr. 100,00. ss Vinninga sé vitjað hið fyrsta til skrifstofu okkar, Grófin 1. — Gengiö inn frá Tryggvagötu, síma 6710. Opið kl. 11—12 og 16- ............ -17. Bifreiðastjórafélagið Hreyfill Tilky nning Frá og með 26. júní 1952 er ökutaxti leigu- bifreioa, oem aka frá fólksflutningabifreiðunum: Borgarbílastöðinni h.f., Bifreiöastööinni Bifröst, Bifreiðastöð Hreyfils,. Bifreiðastöð Reykjavíkur og Bifreiöastöö Steindórs þannig: í innanbæjarakstri fyrir 5 farþega bifreiö er gjaldið 57 aurar á mínútu hverja á rúmhelgum dög'um, frá því bifreiðin kemur á þ'ann staö, sem um hefur veriö boðið og þar til leigjandinn hefur lokið' notkun hennar, auk fastagjalds að upp- hæö kr. 7,50 á ferð. Aö nóttu og á helgidögum er gjaldiö 64 aurar fyrir hverja mínútu, auk fastagjaldsí sem er kr. 8,00. Um SkerjafjörÖ og Seltjarnarnes og á öllu svæðinu innan Elliðaár og Fossvogslækjar á gjaldmælir bifreiðarinnar að vera stilltur á taxta 1 á rúmhelgum dögum, en taxta 2 á helgidögum og almennum frídögum. í utanbæjarakstri er gjaldið kr. 1,27 fyrir hysrn ekinn kílómeter (hl.km.) að degi og kr. 1,73 að nóttu og á helgidögum. (hl.km. er leiöin fram og til baka) Utan Elliðaár og Fossvogslækjar á gjaldmælir bifreiðarinnar’ að vera stilltur á taxta 1 á rúm- helgum dögum, ef fa.rþeginn er með báðar leiðir, en taxta 3, ef farþeginn er með aðra leiðina. Að nóttu og helgidögum á gjaldmælirinn að vera stilltur á taxta 2, ef farþeginn er meö báðar leiðir, en taxta 4, ef farþeginn er með aöra leiðina. Dagvinna telst frá kl. 7—18 alla virka daga, nema laugardaga, þá til kl 12. Helgídagavinna frá kl. 18—5, sunnudaga og aðra helgidaga og frá kl 12 á laugardögum. Fyrir ferðir, sem taka fleiri en einn dag, er gjaldið kr. 385,00 pr. dag, miöaö við hámarks- akstur 200 km, og vinnutími bifreiðastjórans fari ekki yfir 10 klst. á dag, að frádreginni iy2 klst. til matar. Fyrir 7 manna bifreiðar er gjaldið 25% hærra í hverju tilfelli. Vegna síhækkandi ökugjalda, svo og erfið- leiká á því aö breyta gjaldmælum í leigubifreið- um, hefur reynst óhjákvæmilegt aö hafa töflu, sem sýnir viðbótargjald viö sýnda tölu gjaldmæl- isins hverju sinni, og ber bifreiðarstjóra aö hafa þá töflu í bifreið sinni. Ofangreindur ökutaxti gildir einnig fyrir leigu- bifreiðir í Hafnarfirði og Keflavík. Reykjavík, 26. júní 1952. Bifreiðastj órafélagio Hreyfill. S j ómannadagsr áð. •o*o*o*c*o«o«o*o«o*o«oso«o«o«Dacx Maðurinn minn, ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON, trésmíðameistari, er andaðist- 21. þ.m., verður jaröaöur að Borg, laugardaginn 28. júní. Athöfnin hefst að heimili okkar, Borgarnesi kl. 2 e.h. Blóm og kranzar afbeðið. Jóhanna Bogadóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.