Þjóðviljinn - 06.08.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 06.08.1952, Blaðsíða 8
á 26 jtás. mál5 en 257 Á miðnætti laugardagskvöldið 2. ágúst var síldaraflmn norðanlands alls orðinn 28.142 tunnur í salt, 26.382 mál í bræðslu, 5.435 tunnur í beitufrystingu og 3.702 mál af ufsa. Er þetta aðeins lítill hluti af því, sem aílazt haíði á sama tíma í fyrra, en þá var aflinn 65.000 tunnur í salt, og nær 255 þús. mál í bræðslu. Vikuna 27. júlí til 2. ágúst var enn að heita mátti aflalaust á síldarmiðunum fyrir Norður- og Austurlandi. Einnig var veður lengst af óhagstætt. AIIs nam aflinn í vikunni 2435 tn. í salt, 6879 mál í bræðslu, 709 tn. til beitufryst- Skogrækarkvik- mynd ©g skipulagning skrúð- garða Jón H. Björnsson, kennari við Garðyrkjuskóla ríkisins í Hveragerði, hefur í hyggju að takast ferð á hendur um land allt og sýna skógræktarkvik- mynd þá, sem þeir tóku í Al- aska í fyrra sumar hann og Árni bróðir hans. Áformið er að fara fyrst norður og austur um land, en fara síðan um aðra hluta lands- ins. Ágóðanum af sýningu kvikmyndarinnar verður varið til þess að taka að sér skipu- ungra manna, sem nú dveljast við fræsöfnun í Alaska. Auk þess er tilgangurinn að vekja almennt áhuga fyrir skógrækt- inni. — Jafnframt hefur Jón hugsað sér að nota ferð þessa til þess að tka að sér skipu- lagningu skrúðgarða á þeim stöðum, sem hann kemur á, en hann hefur um margra ára skeið stundað nám í þeim efnum erlendis. Getur hann þá haft tækifæri til þess að líta á garða hjá fólki og haft persónulegt viðtal, en unnið að uppdráttum í vetur, svo að þeir yrðu til- búnir fyrir næst vor. Sem aukamynd með skóg- ræktarmyndinni sýnir Jón lit- mynd af 17. júní hátíðahöldun- um í Reykjavík 1952. ingar og 1277 mál af ufsa. Við Suðvesturland voru stund aðar veiðar með reknetjum af nokkrum bátum og var sú síld, sem veiddist öll fryst til beitu. Var á laugardagskvöld búið að frysta alls um 4.300 tunnur. Af skipum þeim, sem stunda síldveiðar með hringnót eða Framhald á 7. síðu. Náttiiriigripasafn á Akurevri Á s'unnudaginn var opnað á Akureyri náttúrugripasafn, og ver&ur það opið almenningi tvo tíma hvern dag. Á safninu eru yfir 80 teg- undir eggja, og nokkru færri fuglar, og er það uppistaða safnsins. Jakob Karlsson, Lundi við Akureyri, gaf bænum safn en Kristján Geirmundsson hef- ur stoppað fuglshamina, og mun hann verða safnvörður. Er fyrir hugað að auka safnið smátt og smátt og koma upp fleiri deild- um. ÞJÓDVILIINN Miðvikudagur 6. ágúst 1952 — 17 árgangur — 173. tölublað Isleifur IiögrLason framkvæmdastjóri Kaprnar Ólafsson formaður KRON 15 ára í dag Reykvíkingar hafa hagnazt svo millj- ónum skiptir á viðskiptum sínum við KR0N KRON er 15 ára í dag, stofnað 6. ágúst 1937 með sam- einingu Pöntunarfélags verkamanna og Kaupfélags Reykjavikur. , Á þessum tíma hefur KRON sem upphaflega var fé- lítið fyrirtæki þróazt í fjölmenn og sterk neytendasamtök reykvískrar ialþýðu. Hafa félagsmenn KRON hagnazt um íniilljónir króna sem annars hefðu runnið í vasa braskara. Hér verður ekki farið út í að Asparfræ loftleiðis frá Alaska Þess heí'ur áður verið getið, að ibræðurnir Jón og Ámi Björns- synir, garðyrkjumeim, fóru í fyrra til Alaska til fræsöfnunar. l»aðan komu þeir með rúm 100 kg. af fræi, 10 þúsund aspar- græðliinga og 10 þúsund plöntur. Páíl Arason fer um næsfu helgi að fjallahakí Á la'ugardaginn kemur efnir Páll Arason til 9 daga sumar- leyfisferðar um Fjallabaksleið- ina. Verður farið um Landmanna- laugar, Kýlinga, Jökuldali, Eld- gjá, Búlandshlíð og austur Síðu að Núpsstað. Er þetta hin feg- ursta leið. Dugnað Páls í slíkum ferðum þarf ekki að (kynna. — Sameiginlegt fæoi verður fyrir þátttakendurna í ferð þessari, en það hefur reynzt ódýrara og hagkvæmara. Páll efnir einnig til helgar- ferðar um næstu helgi og verð- ur lagt af stað á laugardaginn. Verður farið í Landmannalaug- ar og heim aftur á sunnudag- inn. Fræ asparinnar þroskast á vorin, og hefur fræið lítið geymsluþol. Þess vegna hefur það ráð verið tekið að flytja græðlinga af öspinni alla leið frá Alaska til íslands. Slíkir flutningar eru dýrir og hafa gefizt misjafnlega, Þess vegna ákváðu þeir Jón Björnsson og Óli V. Hansson, sem einnig er kennari við Garðyrkjuskólann og er einn þeirra þriggja, sem nú eru við fræsöfnun í Alaska, að gera tilraun til þess að flytja fræið loftleiðis og sá því strax. Öli hefur þegar sent Jóni nokk- uð af fræi, sem hann sáði 13 daga gömlu, og hefur sumt af því spírað allt að 100%. Þessi tilraun sýnir, að auðvelt ætti að reynast að konia af stað mikilli lasparrækt hér á landi á tiltölulega skömm'um tíma og má þetta teljast merkur við- burður í skógræktarmálum hér á Iahdi. Ísíendingar og Ameríkanar herjast: Þrír liggja í sárum eftir næturorustu í Reykjavík Tveir Eeykvíkingar stungnir hnífum, — Einn Bandaríkjamaður liggur á spítala Á sunnudagsnóttina kom til áta.ka milli nokkurra ís- lendinga og þriggja bandarískra blökkumanna utan við skemmtistaðinn Tívolí í Reykjavík, og uróu afleiðing- arnar sem að ofan gTeinir. Urðu þessir atburðir um þrjú leytið um nóttina, en dansleik- ur hafði verið í Tívólí um kvöld ið og lauk honum kl. 2. Hófust þessir atburðir á missætti milli eins blökkumannsins og 2. stýrimanns á herflutningaskip- inu Mormacoak, en það lá hér í höfninni. Var stýrimaður, sem er hvitur á litinn, allmjög drukkinn, og er ekki ósenni- legt aá hann muni hafa bekkzt til við blökkumanninn. Lá við handalögmáli milli þeirra umsjónarmaður samkomuhúss- ins kom á vettvang og hugðist ganga á milli deiluaðila. Enn er ekki upplýst hvernig hann fór fram, til dæmis hvort hann hugðist veita þeim hvíta lið- sinni, en ekki er það ólíklegt eftir viðbrögðum blökkumanns- ins. Brá hann nú hnífi á loft, en í sama bili bar að Magnús Siggeir Eiríksson, Balbókampi 10, og varð hann fyrir hnífn- um, og hlaut hann mikinn skurð bæði á höfði, handlegg og hendi. Komu nú hinir blökkumennirnir til sögunnar og einnig fleiri Islendingar, og Framhald á 6. síðu. Óvenjuleg ferð urn öræfi íslands Um næstu heigi efnir Orlof og Guðmundur Jónasson til óvenju- legrar ferðar þvert yfir landið, verður farið um hálendið um þær fJóðir sem sjaldan gefast slík tækifæri til að sjá. \ Laugardaginn 9. ágúst verð- ur lagt upp í 14 daga ferð um hálendi íslands. Ekið verður til Fiskivatna og þaðan norður í Ódáðahraun og í Herðubreiðar lindir og víðar um óbyggðirnar. Síðan norður í Mývatnssveit og vestur og suður um land heim. Gengið verður á mörg fögur og tignarleg fjöll, t. d. Hágöngur og Herðubreið, Gæsahnúka og Dyngjufjöll. Öruggir fjallabilar verða notaðir í förina. rekja sögu félagsins, en þess aðeins getið að þegar félagið var stofnað var félagsmanna- talan um 3 þús. en við síðustu áramót voru þeir helmingi fleiri. Sjóðir félagsins voru í upp hafi litlir, þó áttu bæði Pönt unarfélagið og Kaupfélagið nokkra sjóði þegar sameiningin varð, en um síðustu áramót voru sameignarsjóðir fólags- manna í KRON um 2 millj. og stofnsjóður rúmlega 2,1 millj. króna. Lækkuu álagningar Fyrsta verkefni félagsins var að lækka álagningu á vörum og varð mikið ágengt í því efni og enn er vöruverð hjá KRON Framhald á 7. síðu. Ný deild í KR0N Pöntunarfélagsverzlunin á Grímsstaðaholtinu sameinaðist KRON 1. þ. m. en það var ein af deildum Pöntunarfélags verkamanna, og sú er hélt á- fram sem sjálfstætt pöntunar- féilag þegar Pöntunarfélag verkamanna, og Kaupfélag Reýkjavíkur sameinuðust 1937. $ama síldarleysið Siglufirði í gær. Enn er sama síldarleysið að frétta héðan. Frétzt hefur að 4 bátar hafi fengið einhverja slatta út af Digranesflaki í nótt og í dag. Um helgina kom Dagný með 40 tonn af ufsa og Rafn GK 72 með 35 tonn. Ufsinn var flatt- ur og saltaður. Voru greiddir 55 aurar fyrir kg. Þórsmörk: Farið verður í Þórsmörk kl. 14.00 á laugardag og 'komið Framhald á 6. síðu. Öspektir á Hreðavatni Um verzlunarmannahelgina varð víða mikill drykkjuskapur og ólæti, en þó óvíða eins og á Hreðavatni. Þar var haldinn dansleikur á laugardaginn, og varð mikið fjölmenni á hinum fagra stað. En iþað varð lítið gagn að fegurðinni, því í dans- s'kála Vigfúsar Guðmundsson- ar voru flestar rúður brotnar af ölóðum mönnum, og a. m. k. ein stór rúða í Bifröst. Morg- unin eftir var engu líkara en loftárás hefði verið gerð á stað- inn um nóttina, og er tjón hús- eigenda tilfinnanlegt, svo ekki sé farið út í siðferðissálma. Hér sjást sigurvegararnir í maraþonhlaupinu, Zatopek milli Sví- ans Gustaf Janson, sein varð þriðji og Argentínumaimsins Corno, sem varð annar.1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.