Þjóðviljinn - 14.08.1952, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.08.1952, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 14. ágúst 1952 — ÞJÖÐVTLJINN — (5 AfmœliskveS’iur fil 'Einars Olgeirssonar Dálæti á borgaralegum menntamönnum hefur aldrei verið mér nein byrði í lífinu. Þó sé ég engin landamæri þar sem þeir mætast, menntamað- urinn, sem allt sitt líf hefur barizt í fylkingarbrjósti verka- lýðsstéttarinnar, og verka- maðurinn, er sérhvern dag hefur verið að lesa og læra í daglpgri önn stéttabaráttunn- ar. Af sjónarhól þeirra sér vítt yfir og þar mun. gott að vera, og þar hefux Einar Olgeirsson verið síðan hann var ungling- ur, enda er hann hamingju- samur maður. Félagar okkar úr Jafnaðar- . mannafélaginu gamla á Akur- eyri hafa sumir artazt undar- lega, jafnvel verið boðið upp á ókeypis reisu um guðs eigið land. Hitt er svo annað mál, hvqrt þeir hafa haft hina sönnu lifshamingju með í fari sínu. Einar mun sízt öfunda þá þótt hann haii eklci einu sinni feng- ,ið kross, hvorki með né án stjörnu, enda á hann betri fé- lagsskap skilinn. Kæri Einar, ég veit ekki hve mörg heillaskeyti þú færð, en hitt veit ég að þú færð f-leiri heitar og fölskvalausar árn- aðaróskir á þessu afmæli þínu en nokkur annar fimmtugur íslendingur og það bæði frá kunnugum og ónafngreindum fjölda, — alþýðunni, sem hef- ur fóstrað þig. Persónulega þakka ég þér svo ótal margt og árna þér og flokknum okkar allra heilla. Aðalbjöra Pétursson. ★ Á þriðja tug þessarar aldar var vor í lífi íslenzkrar verka- lýðshreyfingar, hún var far- in að brjótast úr varnarstöð- unni og komin í sókn, sem hefði á skömmum tíma getað gert hana að öflugustu stjórn- málasamtökum landsins. En þá syrti að, því sumir helztu for- irigjar verkalýðsins tóku að af- neita krafti sósíalismans og vérzla við höfuðandstæðingana um feitustu embætti landsins, þó augljóst væri, að af því hlyti að leiða lömun verka- lýðssamtakanna og jafnvel uþplausn þeirra og algert von- leysi alþýðunnar. Nokkrir -■ ungir menn risu þá upp og ” hófu öflugt viðnám gegn þess- ar óheillaþróun. Fremstur í þeirra hópi var Einar Olgeirs- sori, þó sjálfur væri hann þá kominn í mjög góða stöðu hjá ■ einu fyrirtæki ríkisins. Síðan héfur hann verið ímynd alls þess bezta ög djarfasta, sem ’’ framsæknustu öfl þjóðarinnar eiga i fórum sínum, og ókrýnd- ur oddviti allra þeirra, sem vilja leýsa íslenzka alþýðut undan oki afturhalds og kúg- unar og fá henni óskorað vald til þess að skapa sér mann- sæmandi lífskjör í landi sinu. c Það var mikil gæfa fyrir al- ’■ þyðuna að eignasi siíkan fjs ítfriÆif riism munori I v .’ V ...• -------- mann. Dagurinn í dag er því ekki einungis merkilegur á- fangi á ævi Einars sjálfs, held- ur mikiU hamingjudagur í bar- áttusögu verkalýðsins. Ég óska því íslenzkri alþýðu til hamingju með daginn og Einari sjálfum langra og góðra lífdaga og að honum megi auðnast að uppskera þau einu laun, sem hann metur nokkurs fyrir baráttu sína og fórnfýsi: valdatöku verkalýðsins á ís- landi. A. Jónsson. ★ Ég vil færa Einari Olgeirs- syni mínar beztu heillaóskir í tilefni fimmtugsafmælis hans og ég óska honum, Sósíalista- flokknum og alþýðunni í land- inu, sem notið hefur svo mik- ils góðs af starfi Einars, þess, að hann eigi enn langa lífdaga til þess að geta starfað áfram af Sinni miklu atorku að fram- förum islenzku þjóðinni til handa á sviði menningar- og efnahagsmála og síðast en ekki sízt að því að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar. Fyrstu kynni mín af Einari Olgeirssyni voru þegar undir- búningur var hafinn að stofn- un Kommúnistaflokks ís- lands. Baráttuþrek hans, bjart- sýni og vígfimi í hinni póli- tísku baráttu vakti athygli aHra félaga hans og hvatti þá til starfa og dáða. Saga komm- únistaflokksins mátt-i heita ó- slitin sigurganga frá stofnun hans og þar til hann var lagð- ur niður. Einar Olgeirsson var svo umsvifamikiU í íslenzkum stjórnmálum, að þrátt fyrir allar tilraunir andstæðinga flolcksins til þess að halda hon- um utan áhrifa í þjóðfélaginu, brauzt hann inn á Alþingi í hinum mikla kosningasigri 1937, þegar Einar Olgeirsson var kosinn á þing. Eftir stofnun Sameiningar- flokks alþýðu — Sósíalista- flokksins, hefur sá flokkur notið hinna miklu og heilla- drjúgu starfskrafta Einars Ol- geirssonar-. Sigrar- Sameining- arflokks alþýðu frá því að hann var stofnaður og leitt hafa til þess, að flokkurinn nýtur nú fylgis fimmta hluta þjóðarinnar og hefur 9 menn á þingi, eru ekki hvað sízt því að þakka, að flokkurinn hef- ur notið forustu þriggja mik- ilhæfra manna, þeirra Einars Olgeirssonar, Sigfúsar heitins Sigurhjartarsonar og Bryn- jólfs Bjarnasonar, sem báru gæfu til að starfa- saman með þeim árangri, að þeim tókst að. lyfta flokknum til vegs og á- hrifa í þjóðlífi íslendinga al- þýðunni til blessunar. Áki Jakobsson. - ★ Einar Olgeirsson er fimm- tugur. í dag. margra jafnaldra minna úr sveitunum, er ekki voru fædd- ir er Einar Olgeirsson hóf störf sín og baráttu í heimi stjórnmálanna, er ég í tilefni afmælis hans flyt honum heillaóskir mínar og þakkir. Þakkir fyrir hans óeigingjarna starf í þágu fósturjarðarinnar, frelsis og lýðræðis. Þakkir fyrir störf hans í þágu sósíal- ismans, sem hann hefur sannað oss að er ekki einungis fögur hugsjón heldur áþreifanlegur veruleiki. Sérstaklega ber að þakka honum og flokknum hans, flokki allrar alþýðu, Sameiningarflokki alþýðu — Sósíalistaflokknum, störfin og þau áhrif, sem hann hefur haft á lífskjör almennings og ekki sízt þau áhrif sem alþýðuæsk- an hefur orðið aðnjótandi og skapað hafa henni bjartari framtíð; og létt hefur henni gönguna fram á leið, til lífsins. En oss ber meira en að þakka. Tökum þátt í baráttunni. í tilefni þessa dags fylkjum við oss fastar saman og herðum baráttuna, fyrir frelsi lands og þjóðar, undan hernámi og hverskyns kúgun. Treystum vor heit við ættjörðina, vinn- um ötullega fyrir framgangi sósíalismans, útbreiðum „Þjóð- viljann“ og „Rétt“. Þannig munum við bezt þakka Einari Olgeirssyni starf hans á liðn- um árum. Ég vona og óska þess að ísland megi njóta hans og starfsorku hans sem lengst. Ásmundur Jónsson. ★ Það var veturinn 1939—40 þegar formyrkvunarský finna- galdursins hvíldu sem þyngst yfir íslenzk.u þjóðlífi, að nokkr ir nemendur í fyrstu bekkjum menntaskólans, sem ekki höfðu látið blindast af moldyiðrinu, ákváðu að reyna í sameiningu að verða einhvers ljósari um eðli þess þjóðfélags, sem þeir lifðu í. Þeir komu sér saman um að hittast einu sinni í viku og ræða málin sín á miHi. Þeim varð fljótt ljóst, að nauðsyn bar til, að þeir fengju leiðbein- anda, sem var fróðari en þeir, gat skorið úr vafaatriðum og vísað á hvar mætti afla frek- ari kunnustu í bókum. Þeir ákváðu að leita til Einars Ol- geirssonar. Þeir vissu vel, að hann var hlaðinn störfum, mikilvirkur stjórnmálamaður og ritstjóri dagblaðs. Þeir fóru nærri um það, að hann mundi ekki hafa mikinn tíma aflögu, en með dirfsku, sem er æskumönnum eiginleg, leituðu þeir samt til hans, Hann varð strax við bón þeirra, kvöld eftir kvöld sat hann á fundum með þeim þann langa og dimma vetur, ræddi við þá, veitti þeim svör, örvaði þá og- hvatti með gam- ansemi sinni og alvöru. Allir munu þeir minnast .þessara þeir veganesti sem mun end- ast þeim allt lífið. Einn úr hópnum vill nota tækifærið til að þakka Einari Olgeirssyni þessar stundir. Ásmundur Sigurjónsson. ★ Einar. Það var búið að berja okkur einu sinni. En við söfnuðumst saman á ný. Um stund vorum við lostin djúpri þögn, höfð- umst ekki að, skildum tæp- lega hvað hafði gerzt. Við vor- um hingað komin til að þiðja fulltrúa okkar á þingi að við mættum láta í ljós áHt okkar á örlagamáli þeirrar þjóðar sem við sjálf vorum. Óskir okkar voru að engu hafðar, málið var leitt til lykta, það átti að berja þennan lýð burtu. Ég veit ekki hvað gerðist'í dul og hljóði hjartna okkar. En skyndilega kvað nafn þitt við af þúsund vörum í ljósi þessa svarta dags. Við hrópuðum á þig, báðum þig að ganga fr.am, þráðum að heyra þig mæla nokkur orð. Austurvöllur óm- aði af nafni þínu. Og þó veit ég hvað gerðist í brjósti okkar. Málinu var lokið, engu yrði breytt, þeir höfðu lögleitt svikin. Þá köll- uðum við á þig af því við viss- um fyrir löngu að þú berð ísland í hjartanu, það ís- land sem ekki verður svik- ið ; og er við nefndum nafn þitt vorum við í sorg- inni að minna okkur á að þetta ísland var þó ennþá til, að baráttunni yrði haldið á- fram, að frelsishugsjónin skyldi aldrei að eilífu drepin í dróma. Við nefndum þig en meintum ísland. Þeir beittu að lokum gasi gegn okkur. Austurvöllur stóð auður eftir. En í æðri skiln- ingi vorum við sigurvegarar dagsins — þú og við. Bjarni Benediktsson. ★ Félagi Einar, ég er einn í hópi hinna mörgu er í dag senda þér hugheilar þakkir fyr ir þá ómetanlegu forystu, er þú hefur veitt alþýðu þessa lands í baráttu hennar fyrir bættum lífskjörum og betra þjóðfélagi. Það er von mín, sem þús- unda annarra alþýðumanna í þessu landi, að Sósíalista- flokknum og verkalýðnum megi auðnast að njóta enn um langt skeið, hinnar glöggu for- ystu þinnar. Björn Bjarnason. ★ Kæri félagi Einar Olgeirsson! Hamingjuósk mín í dag er til íslenzku þjóðarinar. Heill hennar og heHl þín verður ekki aðskiHn. Við þökkum fyrir þá gæfu að hafa notið leiðsagnar þinnar í nærfellt 30 ár ög megi íslenzka þjóðin lengi njóta syni, þurfum við ekki að óttast úrslitin i einvíginu miUi ís- lenzks anda og amerísks doU- aravalds. Brynjólfur Bjaraason. ★ Fyrstu kynni mín af Einari Olgeirssyni voru í þeim fá- lagsskap, er prýða mætti hvern ungling, sem sé Unglingareglu Goodtemplara, og áfram halda kynni mín af honum, er hann gerðist málsvari hinna fátæku og smáu og svo er enn. Hér er hinn mikli foringi, sem aldrei verður orðfall þóít á móti blási, heldur harðnar sókn hans við hverja þraut. Ég veit að i dag munu margir um land allt senda hinum vinsæla og dugmikla foringja sínum hlýj- ar kveðjur og árnaðaróskir á þessum merka degi hans. Ég vona, Einar, að þér muni veitast kraftur til að sjá hug- sjónir þínar rætast, bæði ísland frjálst og óhernumið og sigur sósíalismans. Carolina Siemsen. ★ Enda þótt Einar Olgeirsson sé aðeins fimmtugur að aldri í dag, á hann stórbrotnara æfi- starf að baki en flestir ef ekki allir íslendingar fyrr og síðar. Ef til vill finnst einhverjum í fljótu bragði, að hér sé of mælt, en svo er þó ekki. Fyrir hartnær þrjátíu árum tókust tveir ungir íslendingar í hendur og bundust þeim fast- mælum að hrinda af stað flokki íslenzkra marxista, flokki íslenzkra sósialista sem forystuliði í frelsisbaráttu ís- lenzkrar alþýðu. Þessir ungu íslendingar voru þeir Einar Oigeirsson, afmaelis- barn' áagsins, og Brynjólfur Bjarnason. Með þessari sögulegu á- kvörðun og öllu því tröllaukna starfi, er henni hefur fylgt, hófust aldahvörf í sögu ís- lenzku þjóðarinnar: sókn henn ar til sósíalismans. í þessari sókn hefur nafn Einars Olgeirssonar risið hæst og að verðleikum. Og fáir eða engir skilja betur en einmitt hann, að þessari sókn getur aðeins lokið á einn veg, hvað sem öldugangi baráttunnar líður. Við íslendingar erum vanir því að hugsa í „þúsund árum“ að tengja fortíð þjóðar okkar við málefni liðandi stundar. En engan annan en Einar Olgeirsson hef ég vitað tengja fprtíð • þjóða.rinnar traustar við framtíðina, horfa skýrar fram á við með auðlegð is- lenzkrar sögu að- baksviði, Engum öðrum íslendingi hef ég kynnst, sem skilur bet- ur og þekkir hin miklu auð- æf i íslands og möguleikana til þess að virkja þau í þágu aUr- ar alþýðu. Ég veit að.ég;tala.fyrir munn stunda nreð þakklætj, þá fengu hexmar. Mgðap á sHka.(. i(Fr^mha'd 6. ^ ^ JGTiír ib j'uíkB hnmd msgi ,nftí3infidiiíSt)J8 .riaoafniosiC • -uH r\ rvi!ar\as.'.v-r \Ac., j.-.óa- ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.