Þjóðviljinn - 24.08.1952, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 24.08.1952, Qupperneq 4
4) _ £>JÓÐVILtJINN — Sunnudagur 24. ágúst 1952 þlÓÓVIUINN Oteafandi bameining-arflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurina. Bitstjórar: M&gnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (é.l>.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Olafsso*., Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 1S — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 18 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. I* Kmsrstaðar 4 landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakiö. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. i -----------------—-------------------------------** Öngþveiti Það fer varla hjá því, að grein þeirra Elíasar Þorsteinssonar og Finnboga Guðmundssonar um sölumöguleika útflutnings- framleiðslunnar í Morgunblaðinu á miðvikudaginn var veki menn til alvarlegrar ihugunar um hvar þjóðin er á vegi stödd 1 atvinnu-og viðskiptamálum fyrir tilverknað rikisstjórnarinnar og stefnu hennar. Að yísu verður ekki sagt að um þessi mal hafi ekki verið rætt og ritað fyrr og staðreyndimar dregnar fram. Það hefur margsinnis verið gert af Þjóðviljanum og Sósíalista- flokknum. En nú er svo komið að fulltrúar útflutningsfram- leiðslunnar geta sjálfir ekki lengur orða bundizt, enda ástandið crðið á þann veg að ekki er annað fyrirsjáanlegt en alger stöðv- un atvinnutækjanna sé framundan verði e'kki snúið við á óheilla- braut ©tjórnarstefnunnar. Frystihús landsins eru yfirfull af freðfiski og erlendis liggja miklar birgðir óseldar. Afleiðingin er sú að fiskiskip landsmanna geta ekki losnað við aflann til hagnýtingar innanlands þótt þörfin hafi s'jaldan verið jafn brýn fyrir þá atvinnu sem fryst- ingin skapar. Af sömu ástæðum eru miklir og vaxandi erfið- leikar á að hagnýta Faxasíldina. Og fiskveiðar í salt eru einnig áhættusamar þar sem miklar birgðir liggja í landinu af salt- fiski sem engin vissa er um verð eða sölu á. Það er nauðsynlegt að þjóðin geri sér það Ijóst að þetta á- stand í afurðasölumálum hennar er sjálfsskaparvíti. Afleiðing- arnar af stefnu ríkisstjórnarinnar í dýrtíðar- og kaupgjalds- málunum eru þær að kaupgetan í landinu hefur verið eyðilögð svo gjörsamlega, að fólkið getur ekki lengur keypt þær erlendar yörur sem við þurfum að taka í skiptum fyrir okkar fram- leiðslu eigi hún að ganga út erlendis. Atvinnuleysið sem ríkis- stjórnin hefur skipulagt yfir vinnandi stéttir landsins og síendur- teknar árásir hennar á launakjörin, undir hinum ólíkustu form- iim, eru orsakir þess að alþýða landsins hefur ekki lengur efni á að veita sér þá vöru sem við þurfum að flytja inn í skiptum fyrir útflutningsframleiðsluna. Þessi er hin raunverulega orsö'k þess að fiskafurðirnar hrúgast upp óseldar í landinu, alger stöðvun vofir yfir framleiðslutækj- unum og ægilegra atvinnuleysi bíður verkalýðsins á næsta leiti en nokkru sinni fyrr. Og meðan útlitið er þannig horfir ríkis- stjórnin á voðann sljóum augum, án þess að gera nokkrar til- raunir til úrbóta. Hitt er meira að segja miklu líklegra að enn verði haldið áfram á braut kjaraskerðinganna, — nema því aðeins að verkalýðurinn og allur almenningur í landinu rísi upp og hristi af sér það ok ófrelsis og kúgunar sem afturhaldsklík- urnar með ríkisstjórn sína að verkfæri hafa á hana lagt. Og það er þetta sem verður að gerast eigi að afstýra algeru öngþveiti og hruni. Reynslan hefur sýnt að núverandi ríkisstjórn og flokksklikur hennar eru verkfæri ófyrirleitinna einokunarafla sem í engu skeyta um hag alþýðu eða þjóðarheildarinnar. Frammistaða hennar í markaðs- og afurðasölumálum er vissu- lega eitt augljósasta dæmið. Bezti markaðurinn sem aflað hefur verið fyrir íslenzka útflutningsframleiðslu, freðfiskmarkaðurinn í Ráðstjórnarríkjunum, var eyðilagður á sinum tíma, eingöngu vegna ofstækis Bjarna Benediktssonar og þrælslundaðrar hlýðn- isafstöðu hans við erlent vald. í stað þess að vinna að því að tryggja þennan nýja og hagstæða markað, til hagsmuna fyrir útflutningsframleiðsluna og þjóðarheildina, sneri utanríkisráð- berra Islands sér að öðru verkefni sem hann taldi þýðingarmeira. Hann hóf skipulögð rógskrif um stjórnendur Ráðstjórnarrikj- anna í málgagn sitt Morgunblaðið og stundaði þau af slíkri elju missurum saman að engu var líkara en að afkoma og hagsmunir þjóðarinnar væru undir því komið að sú framleiðsla yrði sem mest. að vöxtum. Bjarna Ben. varð að ósk sinní. Honum tó'kst að koma í veg fyrir áframhaldandi sölu á íslenzkum freðfiski til Ráðstjórpar- ríkjanna. En hver eru afrek þessa ráðherra í afurðasölumálun- um síðan ? Og hvernig eru horfurnar nú ? Þessum spurningum þarf ekki að svara. Ástandið nú skýrir þær til fullnustu. En hversu lengi á þjóðin að búa við slíka „forustu" í afurðasölu- málum sínum, og hvað þarf hún að verða dýrkeypt til þess «ð framleiðendurnir, verkalýðurinn og þjóðin öll rísí gegn henni og geri þær ráðstafanir sem duga til þess að breytt verði um ^tef nu ? Sunnudagur 24. ágúst 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (5 . Hjónunum Heklu y / Árnad. og Geir J ~ GuSmundss., Laug- \ arásvegi 43, fædd- 1 W V ist 14 marka son- ** ur 13. þ. m. „Ekið yíir Dragháls" — Jólasveinar UM SÍÐUSTU helgi brá ég mér upp að Draghálsi sem ekki er í sjálfu sér nein tíðindi. Með- an við borðuðum kvöldmatinn var hlustað á útvarpið, til- kynningar og fréttir. Eins og venja er um þetta leyti árs, rigndi þar yfir mann skemmti- ferðááætlunum sem margar enduðu á þessu gamalkunna viðlagi: Ekið yfir Dragháls aðra leiðina. — Kunnið þið ekki illa við þessar sífeldu hótanir um yfirkeyrslu ? spurði ég. Jú, bölvanlega, sagði heimafólkið. Og þótt þeir hafi hingað til látið sitja við orðin tóm, þá er aldrei að vita hvenær til alvörunnar kemur. Það er ekki víst að skemmtiferðafólkið láti enda- laust snuða sig um þetta, sem venjulega er eina auglýsta skemmtiatriði ferðarinnar. — Ósköp værirðu nú væn ef þú vildir nefna það við ferða- skrifstofukallana fyrir sunn- an að hætta þessum liótunum við okkur friðsamt sveitafólk- ið- Mætti kannski benda þeim á að hægt væri að auglýsa eitthvað annað í staðinn, sem ekki væri öllu minna sport fyrir þá sem vilja lyfta sér upp um helgar, t. d.: Ekið yfir Botnssúlur í heimleiðinni, eða; Ekið yfir S'korradalsvatn báð- ar leiðir! — Eg sagði sem satt var að ég hefði stundum reynt að nöldra í þeim útaf þessu, en fengið litla áheyrn. VILT ÞÚ NÚ ekki Bæjarpóst- ur góður, sem ert svo léttur uppá löppina, taka af mér ómakið. Viltu ekki þeyta lúð- urinn fyrir utan ferðaskrif- stofurnar í fyrramálið og segja þeim það að það sé að- eins bærinn sem heitir Drag- háls, en vegurinn sem þeir aka milli Skorradals og Svína- dals, liggur um Draga, eða fullu nafni Geldingadraga, og svo gamalt er þetta ör- nefni að þeir geta fengið stað- festingu á því í Harðarsögu. Vegur þessi liggur fullan km. frá bænum Draghálsi. — Bezt væri að þú gætir lúnkað þá til þess með góðu að hætta þessu ansvítans nafnabrengli- Annars er ekki að vita hvar þettg endar. Ef þetta gerir um sig, er ekki að vita nema Svíndælingar fari bráðum að enda sínar ferðaáætlanir til Reykjavíkur á þessum yfir lætislausu orðum: Að lokum verður gengið yfir Þjóðleik- húsið. Halldóra B. Björnsson. I REYKJAVÍK er talsvert stór hópur manna, sem vill telja sig forframaðan. Þeir eiga margiv híl og hafa ráð á. að gefa konunni pels árlega. Þeir bjóða hver öðrum I fín boð og reyna yfirleitt að líkjast þessu sem þeir álíta fínast af öllu, útlendingum- Oft fara þeir utan til þess að fríska uppá fínheitin og forframast enn meir. Samt eiga þeír oft erfitt með, er öryggi smábæj- arins þrýtur, að vera verald- arvanir með útlendum þjóð- um. og. undrun þeirra oft lík viðbrögðum Eiriks á Brúnum þótt þeir haf-i glatað öllu því upprunalega scm prýddi, þann karl. Þéir gapa ennþá yfir furðuverkunum ,,útlandinu“. Sumir þeirra hafa kannske komið alla leið til Parísar og séð þar gosbrunna á Place de la Concorde og litlu karlarnir sem la;igar til að verða stór- ir segja við sjálfa sig: Svona þurfum við líka að eiga. Og það fyrsta, sem þessum „par- vennues" dettur í hug, er að setja gosbrunn út í stöðuvatn á Islandi og heimsborgara- skapurinn hrynur eins og spilaborg. Þeir setja sig aldrei úr færi við að gera sig hlægi- lega í augum þeirra sem þá langar til að lílcjast, útlend- ingum. Það er líka einkenn- andi fyrir þá áð þeir fela lista manni eða arkitekt að gera einhvem hlut. Svo þegar verk ið er tilbúið kemur í ljós að þeir þykjast geta gert það sjálfir og vilja öllu ráða um útlit þess- Þeir halda næst- um að sá sem hefur peninga eða völd geti orðið Einstein livenær sem er í skjóli þeirra. Reykviska á orð yfir svona fugla: Jólasveinar. Sunnudagur 24. ágúst (Barthól- ómeusmessa). 237. dagur ársins — Tungl í hásuðri kl. 15.08 — Há- flæði kl. 7.15 — Lágfjara kl. 13.27. Skipadeild S.l.S. Hvassafell er væntanlegt til Akureyrar í dag, frá Stettin. Arn- arfell fór frá Rvík í gær, áleiðis til Italíu. Jökulfell kom til N.Y. í gær, frá Rvík. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á leiðinni frá Glasgow til Rvikur. Esja er á Austfjörð- um á norðurleið. Herðubreið er á leið frá Austfjörðum til Rvíkur. Skjaldbreið er í Rvík. Þyrill verð- ur væntanlega á Akureyri í dag. Skaftfellingur fer frá Rvík á þriðjudaginn til Vestmannaeyja. Frá barnaheLniilinu Vorboðanum. Börnin scin dvalið liafa í Rauð- liólum koma í bæinn á morgun kl. 10.30 árdegis að Austurbæjar- skóianum. Vandameim taki þar á móti þeim. Næturvarzia í Ingólfsapóteki. Sími 1330. Helgidagslæknir er Esra Pét- ursson. Simi 81277. Morgunblaöið seg- ir í gær að ýmsir hafi stundum hald- ið að AB-liðið „ætti *?' jafnvel liugsjónir í pokahorninu." — Hvað sem AB líður þá virðist það nokkuð undarlegt að Mbi. skull einmltt staðsetja liugsjónir í pokahorni. Og þó er það kannski ekkert undarlegt. „Verður gróðafíkn- in ítölskum kvik- . myndum að bráð?“ J spyr bróðir minn hjá Mogganum. Ja, það skuhun við vona að verði, kæri bróðir. Hinu skulum við biðja guð að forða að til dæmis kvikmyndirnar verði gróðafíkninni að bráð! Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 11.00 Messa í Laugarnes kirkju (séra Jó- hann Hlíðar). 14.00 Messa í Fossvogs- kirkju (séra Lárus Halldórsson prestur í Flatey). 15.15 Miðdegis- tónleikar. a) Valsar op 39 éftir Brahms. b) Fetes galantes eftir Debussy. c) Slavnesk rapsódía op 45 eftir Dvorák. 16.15 Fréttaút- varp til Islendinga erlendis. 16.30 Útvarpað prédikun, er séra Páll Þorleifsson á Skinnastað flutti í Laugarneskirkju s.l. sunnudag. 18.30 Barnatími a) Róbert Arn- finnsson leikari les sögu og leik- ur á harmoniku. b) Frásöguþættir c) Tómstundaþáttur barnatimans (Jón Pálsson). 19.30 Tónleikar: Pabló Casals leikur á celló. 20.20 Tónleikar úr sjónleiknum ,Álfhóll‘ eftir Kuhlau. 20.40 Erindi: Friðar- höllin í Haag (Ragnar Jóhannes- son skólastjóri). 21.05 Horfnir snillingar: Claude Debussy, Maur- ice Ravel, Manuel de Falla, Arth- ur Nikisch, Ferruccio Busoni leika. á pianó. 21.30 Upplestur: Smásaga eftir Kristján Bender (höfundur les). 22.05 Danslög. 23.30 Dagskrár lok. — Útvarpið á morgun: 19.30 Tónleikar: Lög úr kvikmyndum. 20.20 Útvarpshljómsveitin; Þórar- inn Guðmundsson stjórnar: a) Syrpa af alþýðulögum. b) Valse papillonne eftir Friml. c) Ein Stimmungsbild eftir Franz von Blom. 20.45 Um daginn og veg- inn (Sigurður Benediktsson blaða- maður). 21.05 Einsöngur: Guðný Jensdóttir frá Hafnarfirði syngur; Fritz Weishappel leikur undir: a) Passing by eftir PurCell. b) Panis angelicus eftir César Frank. c) Ljúfar, ljósar nætur eftir Jón Framhald á 7. síðu. LAUSN Á NR. 25: 1- c2—c4 Tannskemmdir 47% minni þar sem flúór er sett i neyzluvatn Heilbrigöismálaráðherra New York fylkis telur full- sannaö aö flúór í neyzluvatni dragi mjög úr tann- skemmdum. Síðan 1944 hefur farið fram samanburður á tannskemmdum barnaskólanemenda í borgunum Newburgh og Kingston í New York fylki. Frá því ári hef- ur einn hluti af flúór á móti milljón hlutum af vatni verið látinn í neyzluvatnið í New- burgh. I neyzluvatninu í Kingston, sem er 45 km frá Newburgh, er ekkert flúór í vatninu. Að sögn Herman E. Hille- hoe heilbrigðismálaráðherra, eru tannskemmdir meðal skóla- barna í Newburgh orönar 47% fátíðari en í Kingston. Með-al barna, sem neytt hafa vatns með flúór í frá fæðingu, er munurinn enn meiri eða tveir þriðju. Hillehoe segir að ekki hafi komið í Ijós hin minnstu skað- leg áhrif af að drekka vatn, sem flúór er í. Sem stendur er flúór bætt í neyzluvatn 13 bæjarfélaga í New Yorlc með yfir 300.000 íbúa og í ráði er að taka upp flúórblöndun vatns í 14 öðrum borgum með sam- tals nærri 1-300.000 íbúa. Þar sem mikið er um flúór í jarðveginum blandar náttúr- an því sjálf í vatnið. Fyrsta bendingin um áhrif flúór á tannskemmdir var rannsókn, sem leiddi í Ijós að í þeim hlutum Bandaríkjanna, þar sem flúór úr jarðveginum er í neyzluvatni, eru tannskemmdir fátíðari en þar sem vatnið er laust við flúór. Eldflaugarami- sóknir á geim- geislum frá Grænlandi Þrír vísindamenn frá Iowa- háskóla í Bandaríkjunum eru um þessar mundir að leggja af stað til Grænlands til að fram- ikvæma rannsóknir á geimgeisl- um sem næst segulskauti jarð- arinnar. Fara þeir til Thule í Framhald á 6. síðu. STEINALD ARMAHURINN: ■— Varið ylikur, símskeyti! (Regards, París). Tóbakssalar í verkfalli 47.000 tóbakssalar á Italíu hafa hótað að loka verzlun- um sínum, þartil stjórnarvöld- in liafa unnið bug á svarta- markaði á sígarettum. Þeir segja,, að ríkiseinkasalan fram- leiði svo lélegt tóbak að eng- inn vilji kaupa það, hins veg- ar sé alls staðar hægt að fá bandarískar sígarettur á svartamarkaði ódýrari en í búðunum. Ostasali hreppti bitann Undanfama mánuði hefur verið háð hörð barátta röilli danskra auðkýfinga um yfir- ráðin yfir stærstu og þekkt- ustu bókaútgáfu landsins Gyld- endal. Nú hefur ostasali náð ráðum yfir meira en. helmingi hlutabréfanna. Meðal þeirra sem keppt höfðu um bitann var kvennær- fatasali, pappírssali og eigandi stærstu gúmkjaftasmiðju Dan- merkur. Svínaræktarfræðingar við há- skólann í Cambridge í Bret- landi hafa látið smíða flytjan- legt gegnumlýsingartæki, sem ætlað er til að gegnumlýsa. svín. Tækið er vel meðfærilegt fyr- ir einn mann og hægt að setja það í samband hvar sem venjuleg raflögn er .fyrir hendi. Brezkir svínaræktarráðu- nautar eru önnum kafnir við að gegnumlýsa gelti og gyltur til að telja í þeim rifin, Svo er mál með vexti, að því lang- vaxnari sem svín eru því meira er á þeim af þeirri fleskteg- und, sem Bretum þýkir bezt, sambreyskingi af fitu og vöðva. Þegar byrjað var að kynbæta brezk svín með það fyrir aug- um að teygja þau á langveg- inn hafði meðal svín 13 rif. Nú er meðaltala rifja í brezk- um svínum komin upp í sautján og með því að velja dýr til undaneldis með hjálp gegnum- lýsingartækjanna er vonazt til að þau eigi enn eftir að lengj- ast drjúgum. Fæla burt sjald- gæfa fugla BREZKIR fuglafræðingar munu fæla burtu alla sjald- gæfa fugla á eyjunni Monte- bello vestur af Ástralíu- ströndum áður en fyrsta kjarnorkusprengja Breta verður reynd þar, einhvern næstu daga. ’ w * ia - Vinsæl drengjanöfn Síðustu vikurnar hefur nafn- ið Múhameð Naguib verið það sem flestir foreldrar hafa val- ið nýfæddum sonum sínum í Kaíró. Sumir foreldrar kalla ■drengina Batal Múhameð Nag- uib, sem sagt er að þýði Hetj- an Múhameð Naguib. Elzti son- ur Naguibs hershöfðingja heit- ir annars Farúk. — Úr því aðgangurinn er ekld ódýrari en þetta, flnnst mér aS það niiniista, sem þelr gætu gert væri að kaupa heilar myndastyfctur- (Vie Nuove, Róm). Embættismaður aí Gyðíngaættum fremiir sjálfsmorð í þýzku fangelsi Taldi sig ofsóttan fyrir uppruna sinn Philipp Auerbacli, f>rrv. forstöðumaður skaðabótastofnuna r Bæjaralancls, var nýlega dæmdur í 2*4 árs fangeEi og 2700 marka sekt fyrir „tilraun til fjárkúgunar, sjóðþurrð. skjalafölsun, óréttmæta notkun háskólatitils og mútuþægni". E5"”— Sú frétt hefur nú bor- ist frá Miinchen, að Auer- bach hafi framið sjálfsmorð í fangelsinu á Iaugardaginn í fyrrí viku. Auerbach, sem var Gyðing- ur að ætt, hélt fram sakleysi sínu af öllum ákærunum nema einni: hann hefði freistazt til að kalla sig dr., en þann titil liafði hann fengið í fangabúð- um nazista. Hann hélt því frám, að hann væri ofsóttur vegna uppruna síns, en í dóm- stólnum sem dæmdi hann var meirihluti dómaranna fyrrv. meðlimir í nazistaflokknum. Þegar fréttin barst um lát Auerbachs voru kaupmenn af Gyðingaættum hvattir til að loka verzlunum sínum meðan á jarðarför hans stæði. Litlu síðar gekk Hodsja Nasreddín út úr húsinu, duibúinn sem kona. Biddu min hér, Níjas, og vertu rólegur_ Hann leiddi asnann út úr stiunni, söðlaði hann og hvarf á braut og kom ekki aftur fyrst um sinn. Áður en Arslanbekk leiddi Gullsjönu inn i hallargarðinn köllaði hann til gömlu kon- urnar í kvennabúrinu og skipaði þeim að snyrta Gullsjönu svo emírinn hrifist því mcir af liinni undursamlegu fegurð hennar. Konurnar hófust þegar handa og þær kunnu sannarlega til verks sins. Þær þóu grátið andlit Gullsjönu úr volgu vatni, kiæddu hana léttum silkifötum, svertu augnabrúnin hennar, lituöu nogUir hennar og kinnar, og- báru rósaolíu í hárið. Þvínæst kölluðu þær á kvennabúrsstjór ann, illræmctan kvennabósa frá fornu fari, er vegna reynslu sinnar var lcvaddur til þessa starfs hjá emírnum eftir að hirð- læknirinn hafði gelt hann. Hann hafði yfir- umsjón mcð hinum 160 konum emirsins. Ekki þó Hrogn kelsson íslenzkum hlustendum mun hafa komið undarlega fyrir hlustir leikritið eftir A. A. Milne, sem Stefán Jónsson staðfærði fyrir útvarpið og flvitt var fyrir \úku, þar sem fjállað var tun þann vanda, sem tveir þingmenn komust í er hvorum tæmdist þriggja millj- óna arfur með því skil\mði að þeir tæ'kju sér nafnið Hrogn- kelsson. Fregn frá Kóreu sýnir hins vegar, að slíkt og þvílíkt við- gengst meðal engilsaxneskra þjóða.. Fréttaritari Associated Press með kanadisku hersveit- inni í Kóreu hefur haft tal af Edward Murray Dalziel Mc- Naughton ofursta, en fræn’a hans heima í Kingston i Ont- ariofylki er nýlátin og arf- leiddi ofurstann að 250.000 dollurum (rúmvtm fjórum millj- ónum króna) með því skilyrði að’hann tæki upp nafn hennar og nefndist þaðan í frá Leslie. McNaughton, scm er 32 ára gamall og einhleypm', kvað sér ekki véra geðfellt að skipta úm 'nafh en hann æflaði að hugsa málið í ár. Hlun fuUkomni herberg-tsþjómu (Searle i Les Lettres Fraxicaise-). Tónlistarborgin nétmælir skrií- drekaskrölti Borgarstjórinn og borgarar í austurrísku tónlistarborgin ni Salzburg eru ævareiðir yfir þeirri fyrirætlun bandarísku setuliðsstjórnarinnar að gera æfingavöll fvrir skriðdreka rétt fyrir utan borgina. Hemáms- yfirvöldin hafa tekið land þar eignarnámi og herforinginn, sem í hlut á, hefur látið rnct- mæli Stanislaus Pachej- borgar- stjóra sem vind um eyrun þjóta. Salzburg er fæðingarbær Mozarts og þar hafa verið haldnar síðan 1920 tónlistahá- tíðir, sem náð hafa heimsfrægð. Fegurð Salzburg er mjög rómuð og s'egja borgarbúar aö það væru helgispjöll af Bandaríkja- mönmtm að lýta umhverfi henn- ar -með flagi eftir sðriðdreka- belti og yfirgnæfa með rn.órð- tóladran.um tónlistina, seöi þar Cp flutt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.