Þjóðviljinn - 28.08.1952, Page 1
'Æ. F. It
Fimmtudagur 28. ágúst 1952 — 17. árgangur — 192. tölublað
Féíagsfundur verður í kvöld
kí. 9 að Þinghoitsstræti 17. Þar
verða kosnir i'ulltrúar á 11.
þing ÆF og Þörsteinn Valdi-
marsson flytur frásögn frá
Danmörku.
Eiturbyrlararnic að verkí í Vesímannaeyjum:
SfyEka f fylgd með ameriskum her-
manni kastar klæðum á almannafæri
og viðhefur hneykslanlega tilburði
Ætlar dómsmálaráSherrann enn aS hundsa
kröfuna um gagngerSa rannsókn ! bœki-
sföSvum hernámsliSsins á Keflavikurvelli?
Stj órnarblaðið Tíirnnn skýrir frá því í gær samkvæmt
frásögn yfirlögregluþjónsins í Vestmannaeyjum Stefáns
Árnasonar, að þar hafi sl. sunnud. gerzt sá atburður, að
íslenzk stúlka í fylgd með amerískum hermanni hafi á
almannáfæri „skyndifega kastað klæðum að verulegu
leyti og tekið að hafa í frammi við hermanninn hina
hneykslanlegustu tilburði í viðurvist fólks.“ Virðist auð-
sætt af lýsingu Tímans að stúlkan hafi verið lítið eða
ekki undir áhrifum áfengis heldur hafi hér verið um
afleiðingar eiturbyríunar að ræða. Það er athyglisvert
að lýsingunni á tiltektum stúlkunnar í Vestmannaeyj-
um ber alveg saman við lýsinguna á þeim áhrifum sem
neyzla ,,frygðarlyfsins“ hafði á ameríkanann á Hótel
Borg, er hann ætlaði borðdömu sinni en neytti síðan
sjálfur óafvitandi.
Eftir þennan atburð til viðbótar því sem áður er kunn-
ugt og á almenningsvitorði, verður vandséð hvernig
Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra ætlar að skjóta
sér undan því að láta framkvæma tafarlaust rannsókn
á Keflavíkurflugvelli, í höfuðstöðvum þeirrar eiturlyfja-
notkunar og margháttaðrar siðspillingar sem siglt hef-
ur í kjölfar hins ameríska hemáms.
Bandaríska herstjórnin
viðurkenndir ný hryðju-
verk á stríðsföngum
MöMar heunar hafa mw§rt 49
sœrt 64 í þessum mánuði
Nam II, formaður samninganefndar Kóreumanna í
Panmunjom, ákærði Bandaríkjamenn á fundinum í gær
fyrir að halda áfram að fremja hryðjuverk á varnarlaus-
um stríðsföngum. Harrison, formaður bandarísku nefnd-
arinnar, svaraði ekki ákærunni á fundinum, en seinna
um daginn var gefin út skýrsla um málið af bandarísku
herstjórninni í Kóreu.
Frásögn Tímans af atburðin-
um í Eyjum fer orðrétt hér á
eftir:
„Stefán Árnason, yfirlög-
regluþjónn í Vestmannaeyjum,
skýrði blaðinu í gær frá atviki,
er gerðist á sunnudaginn, og
mjög er umtalað í Eyjum.
Efnt hafði verið til knatt-
spyrnuleiks á gamla íþróttavell
inum við Hástein. Voru þennan
dag nokkrir hermenn í Vest-
mannaeyjum. Yfirlögreglu-
þjónninn skýrði blaðinu svo
frá, að einn hermannanna hefði
verið rétt ofan við knatt-
spyrnuvöllinn og í fylgd með
honum stúl'ka, er með honum
hafði komið frá Reykjavík.
Samkvæmt frásögn sjónar-
vottar segir yfirlögregluþjónn-
inn, að stúlkan hafi skyndilega
kastað klæðum að verulegu
leyti og tekið að hafa í frammi
við hermanninn hina hneyksl-
anlegústu tilburði í viðurvist
fólks. Hlupu þá til tveir her-
menn, er verið höfðu í slagtogi
með þeim þriðja, og báru stúl'k-
una brott. Sokkar hennar urðu
eftir, og hirti sjónarvottur þá
til sannindamerkis.
Sjónárvotturinn taldi sig, að
sögn yfirlögregluþjónsins, ekki
geta um það dæmt, hvort stúlk-
_an hefði verið til muna drukkin
eða aðrar eiturverkanir kynnu
að hafa átt þátt í hinu furðu-
lega framferði hennar, er vak-
ið hefur almenna hneykslun í
Vestmannaeyjum."
Við þessa frásögn er á þessu
stigi litlu að bæta öðru en því,
að ekki gerir það hlut þeirra
er á atburðinn horfðu sérstak-
lega stórmannlegan að koma
ekki sjúkri stúlkunni til hjálp-
ar og bjarga henni úr klóm
hinna amerísku niðinga, er
sýnilega hefur tekizt að koma
eiturlyfjum sínum ofan í hana
og svifta hana þannig viti og
velsæmistilfinningu.
Nú spyr almennmgur:
Hvað gerir dómsmáíaráð-
kerra? Lítur har.n á
það sem hlutverk sitt að
sjá um að íslenzk Iög nái
yíir þá amerísku glæpa-
menn sem hér eru að
verki? Það er skýlaus
kraía almennings að her-
mennirnir sem voru í
fylgd með stuikunni í
Efestmannaeyjum verði
leiddir fyrir leg og rétt
sg látnir standa reikn-
ingsskap gjörða sinna.
Mlt annað væri svívirð-
ing og móðgun við sið-
gæðiskennd og réttarvit-
imd þjéðarinnar.
Síðustu fiéttir:
YFIRHEYRSLUR
HAFNAR
Seint í gærkvöld barst
Þjóðviljanum sú frétt úr
Eyjum að dómsmálaráðherra
Iiefði falið bæjarfógetanum
þar rannsókn málsins. Voru
sjónarvottar yfirheyrðir í
gær og Iagði einn þeirra
sokka stúlk'unnar fram í
réttinum. Fréttamanni blaðs-
ins var ekki kunnugt um
hvort amerlsku hermennirn-
ir og stúlkan sem með þeim
var dveldust enn í Eyjum.
Jóhann Hafstein
bankastjóri í Út-
vegsbankanum
Á fundi bankaráðs Útvegs-
bankans h.f. er haldinn var í
gær var Jóhann Hafstein alþm.
ráðinn bankastjóri Útvegs-
bankans frá 1. sept. n.k. að
telja.
Það er hið auða sæti Ásgeirs
Ásgeirssonar sem ráðstafað er
með ráðningu Jóhanns Haf-
stein. Fyrir i bankastjórn Út-
vegsbankans eru, sem kunnugt
er, þeir Helgi Guðmundsson og
Valtýr Blöndal.
Dulles, sem um langt skeið
hefur verið ráðgjafi Trumans
um utanríkismál og átt mikinn
þátt í að mynda og móta ut-
anríkisstefnu Bandarí'kjanna er
einn af leiðtogum repúblikana
og talinn líklegur til að gegna
embætti utanríkisráðherra, ef
repúblikanar sigra í forseta-
kosningunum í haust.
Hvetur til skemmdar-
verka.
I ræðu sinni sagði hann enn-
fremur, að Bandaríkin undir
stjórn Trumans hefðu ekki get-
að stemmt stigu fyrir út-
breiðslu kommúnismans, hins
vegar hefði áhrifavald þeirra
erlendis minn'kað. Hann sagðist
hafa trú á að takast mætti að
Sendiherrar Breta og Banda-
ríkjamamia áttu Ianga viðræðu
við Mossadegh í gær og var
rætt um orðsendingu írönsku
stjórnarinnar til Bretastjórnar
I þeirri skýrslu segir, að 4
fangar hafi fallið og 64 særzt
í viðureign við fangaverði í
þessum mánuði. Fangarnir hafi
jafnan átt upptök að óeirðun-
um og þeir sem féllu fyrir
bandarískum kúlum hafi verið
skotnir á flótta.
iBoatner hershöfðingi, sem
hefur yfirstjórn fangabúðanna
á Kojeeyju, þar sem oftast hef-
ur komið til árekstra sagði í
gær, að föngunum hefðu verið
„gefnar fyrirskipanir að koma
af stað óeirðum, þar sem vitað
væri að með því móti væri sam
einuðu þjóðunum komið í
klípu“.
Bandaríkjamenn í klípu.
Það fer heldur ekki hjá því
að uppljóstrun Nam Ils um
hryðjuverkin hafi komið illa
grafa undan valdi kommúnista
í þeim löndum sem þeir réðu
nú, ef iBandaríkjastjórn veitti
skemmdarverkamönnum og
undirróðursmönnum öflugan
stuðning.
ðnjoar i tjoil a
Norðnrlandi
Norðanátt er nú ví'ðast um
landið og mjög kalt miðað við
árstíma. Veður hefur verið
þurrt hér sunnanlands, en
fyrir nor'ðan hefur snjóað í
fjöll og niður í miðjar hlíðar.
Munaði litlu í gær að Siglu-
fjarðarskarð yrði ófært, en það
mun vera hæsti bílvegur á
landinu. Lentu bí]ar þar í erf-
iðleikum í gær, en komust þó
leiðar sinnar a'ð lokum. Gerði
krapahríð og síðan rigningu
fyrir norðan upp úr hádegi í
gær.
við Bandaríkjamenn. Sú spurn-
ing hlýtur að vakna, af hvaða
ástæðu Bandaríkjamenn hafa
beðið í margar vikur með
að skýra frá atburðum sem
gerast á yfirráðasvæði þeirra
i Kóreu. Bandarísku herstjórn-
inni hefur augsýnilega verið
ljóst að málstaður hennar var
ekki góður í þessu efni, því að
hún flýtti sér í gær að gefa.
„skýringu“ á því, hvernig
stæði á því, að tafizt hefði að
skýra frá þessum siðustu
hryðjuverkum. „S'kýringin" er
sú, að farið hafi fram ýmsar
breytingar undanfarið á skipu-
lagi og stjórn fangabúðanna á
Kojeeyju, og hafi þess vegna
ekki verið skýrt frá þessum
atburði fyrr en nú.
Reynt að afsaka.
Harrison reyndi eftir fund-
inn að afsaka hryðjuverkin.
Hann sagði að ekki væri tak-
andi mark á kröfum „kommún-
ista“ um að Bandaríkjameim
færu eftir gildandi alþjóðasam-
þykktum um meðferð stríðs-
fanga, þar sem þeir brytu sjálf
ir í bága við þær með því að
neita sínum striðsföngum að
taka við matarpökkum.
3andarískn her-
llði hvarvetna
fagnaðíé
Stevenson forsetaefni demo-
krata hélt í gær ræðu á fundi
uppgjafarhermanna úr Banda-
ríkjaher.
Ræða hans átti að vera svar
við ræðu Eisenhowers sem
hann hélt í sama félagsskap á
mánudaginn, en það kom í Ijós
sem reyndar var vitað, að þá
greinir ekki á um neitt sem
skiptir máli. Stevenson sagði,
að aldrei í veraldarsögunni
hefði neitt stórveldi haft jafn-
mikið traust annarra ríkja og
Bandaríkin nú. Það væri ekki
nóg að allir viðurkenndu for-
ustuhlutverk Bandaríkjanna,
bandarískum hermönnum væri
jafnvel fagnað allsstaðar þar
sem þeir settust að.
Bandarískar sprengjuflugvél-
ar frá Okinava gerðu i gær
loftárás á Pyongyang. Sprengj-
unum var varpað af hánda-
hófi, þar sem þyk'k ský lágu
yfir borginni.
Stríðsæsíngamar setja svip sinn á
kosningahríðina í Bandaríkjunnm
BuIIes hvehir fil skemmdarverka eg undirróðurs
í löndum sósíalismans
John Foster Dulles réö'st í gær á stjórn Ti’umans og
utanríkisstefnu hennar í ræðu sem hann hélt í Buffalo.
New York. Hann sagð'i, að nú yrði Bandaríkjastjórn aö
hverfa frá þeirri stefnu aö láta sér nægja aö halda
kommúnismanum í skefjum. Þaö yröi aö lijálpa þjóöun-
um að brjótast undan oki kommúnismans.