Þjóðviljinn - 18.10.1952, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.10.1952, Blaðsíða 1
Laiigardagur 18. október 1952 — 17. árgangur — 235. tölublað iKiiið í dag l>cim peuingum .sem J>ið þeg- ar hafið tekið á móti fyrir seída happdrættismiða. f'eir sem ekkl hafa emi teikið happdrættisblokkir til sölu geta vitjað þeirra í skrif- stofuna Þórsgötu 1. Herðum söluna. Happ- drættið er í fullum gangi. r Hvað sagði Oiafur Thors við Breta síðastliðið vor? Orðsendingin til Breta sýnir að ftill þörf er á því að Is lendingar hafi vakandi auga með aðgerðem ríkisstjórnarinnar í landhelgismálenum Ríkisstjórnin sendi í gær blöðunum orðsendingu þá er hún lét afhenda í London 11. þ.m., um landhelgismálið og bannið á löndun íslenzks togarafisks í Bretlandi. Þar er ítrekað sjónarmið stjórnarinnar um réttmæti stækkunar fiskveiðilandhelginnar og því lýst yfir að telja verði það óvinsamlega framkomu gagnvart íslend- ingum er brezkir togaraeigendur hafi byrjað kúgunarat- hafnir í' því skyni að neyða íslenzk stjórnarvöld tii að breyta ákvörðun sinni. í orðsendingu íslendinga er vitnað í viðtal við Ólaf Thors atvinnumálaráðherra sem hann átti við Breta. Þar er sagt að viötal „Ólafs Thors atvinnumálaráðherra, við stjórnarvöldin í London hafi verið annað en kemur fram í brezku orðsendingunni.“ Skilningur Breta á því samtali hefur hinsvegar aldrei komið ótvírætt fram, og íslendingum er spurn: Hvað sagði Ólafur Thors við Breta vorið 1952? Orðsendingin er í heild óþarflega auðmjúk og sýnir enn að ekki er vanþörf á að ríkisstjórnin hafi sterkt aðhald í þessu velferðarmáli þjóðarinnar. Iléliækari arntiir Alþýðii- í sambands V.-I»ýzkalands sigraéi á saiiifiamls|iiiigl Viö stjórnarkosningu í Alþýðusambandi Vestur-Þýzka- lands í gær fékk róttækari armur sambandsins yfirhönd- ina. „Herra utanríkisráðherra. Undaníarið hafa farið orðsend- ingar milli islenzku og brezku stjórnarinnar varðandi ákvörðun fiskiveiðatakmarka við strendur Isiands. Brezka stjórnin gerði sið- ast grein fyrir skoðunum sinum í orðsendingu, dags. 18. júni 1952. I orðsendingu þessari eru að vísu mikilvæg atriði, sem brezka stjórnin lítur öðrurn augum á en íslenzka stjórnin. Af Islands hálfu er þannig tal- ið, að efni og eðli samtala Ólafs Thors, atvinnumálaráðherra, við stjórnarvöldin i London hafi verið annað en kemur fram í brezku orðsendingunni, og að brezk stjórn arvöld geti ekki með réttu kvart- að undan, að þeim hafi ekki verið gert aðvart um, hvað í vændum var. Þá líta Islendingar einnig öðr- um augum en Bretar á heimildina til að drága línuna fyrir mynni Faxaflóa, svo sem gert hefur ver- ið. Loks er íslenzka stjórnin aiveg ósanrmála brezku stjórninni um, að þriggja míina landhelgin sé ákveðin af alþjóðalögum, þannig að ekki verði breytt með einhliða ákvörðun. % Islendinga búa í bæjum 1 árslok 1950 bjuggu næst- um þrír af hverjum fjórum Is- lendingum í bæjum með yfir 300 íbúa en rúmlega einn af hverjum fjórum í sveitum og þorpum með minna en 300 í- ibúa. Tuttugu árum áður, 1931, bjó næstum helmingur þjóðar- innar í sveitum. 1 Reykjavík bjuggu árið 1950 38,8% lands- búa (26% árið 1931), í öðrum kaupstöðum 22,3% (16% árið 1931), í kauptúnum með yfir 300 íbúa 11,4% (11,8% árið 1931). Alls í bæjum 72,5% (53,8% árið 1931). 1 sveitunum bjuggu 27,5% árið 1950 (46,2% árið 1931). Tölur þessar eru úr mannf jöldaskýrslum Hagstof irnnar 1941—1950. Islenzka stjórnin sá þó ekki á- stæðu til að gera athugasemdir um þessi atriði í sérstakri orð- sendingu, þar sem hún hafði þeg- ar áður lýst skoðunum sínum á þeim, og eru þær enn óbreyttar, enda kom í sjálfu sér ekkert nýtt fram um þessi efni í síðustu orðsendingu brezku gtjórnarinnar, heldur endurtók hún einungis fyrri skoðanir sínar. Að svo vöxnu máli mátti búast við þvi, að frekari orðaskipti, sem jafnóðum væri birt, mundu einungis auka á ó- ánægju á báða bóga. Niðurstaða brezku orðsendingar- innar gaf og ekki efni til sér- staks svars, en hún var þessi: „....Enda þótt brezka rikis- stjórnin lýsi ánægju sinni yfir því, að íslenzka ríkisstjórnin ætli einungis að nota hin nýju tak- mörk í sambandi við fiskveiðar og sjái, að þær takmarkanir, sem nú eru í gildi, gera ekki upp á milli fiskiskipa hinna ýmsu þjóða, telur hún nauðsynlegt eftir atvikum að gera fyrirvara um að hún áskilur sér rétt til skaðabóta frá íslenzku ríkisstjórninni að því er snertir hverskonar afskipti af brezkum fiskiskipum á svæðum, sem brezka ríkisstjórnin telur vera á úthaf- inu.“ Islenzka stjórnin og brezka stjórnin eru að vísu á öndverðum meið um það, hvort brezka. stjórn- in geti átt nokkra skaðabótakröfu af þessu tiiefni. En íslenzka stjórnin getur að sjálfsögðu ekk- ert haft við það að athuga, að brezka stjórnin geri fyrirvara slíkan sem þennan. Það er í sam- ræmi við alviðurkennda reglu. Ennþá síður gat íslenzka stjórnin haft við það að athuga þó að brezka stjórnin gerði slíkan fyrir- vara, þar sem með slíkri fyrir- varagerð virtist koma fram viður- kenning á þvi, að ef úr deilu yrði bæri að ráða henni til lykta á lögformlegan hátt, svo sem tíðk- ast milli þeirra einstaklinga og þjóða, sem hafa lög og reglur í heiðri, og vonaði íslenzka stjórnin þó að Bretar munau að athuguðu máli fallast á skoðanir Islendinga í þessum efnum, svo ekki kæmi til slíkrar deilu. En því meiri eru vonbrigði ís- lenzku stjórnarinnar sem það nú virðist staðreynd, að brezkir út- gerðarmenn ætli að taka lögin í sínar eigin hendur og beita úti- lokun við Islendinga til að knýja fram vilja sinn. Er þar auðsjáan- lega ætlunin, að hinn sterki beiti hinn veika.afli svo að hann verði undan að láta. Nú er það að visu svo, að við- skipti Islendinga og Breta eru tölulega miklu hagstæðari Bret- um en Islendingum. Síðustu ár Elsa Gress hafði lokið mag- istersprófi í bókmenntum þegar henni bauðst styrkur til fram- Albert Einstein Einstein móbnæl- ir skoðanakúgnn Þrjátíu og fjórir af kunnustu vísindamönnum Bandaríkjanna með Albert Einstein í broddi fylkingar hafa borið fram öflug mótmæli gegn þeirri stefnu Bandaríkjastjórnar að neita róttækum útlendingum utn leyfi til að koma til Bandaríkjanna og meina róttækum Bandaríkja- mönnum að fara úr landi með því að neita þeim um vegabréf. Mótmælin eru birt í málgagni bandarískra kjarnorkusérfræð- inga. Þar er skýrt fhá því að 26 kunnum, erlendum vísinda- mönnum, sem höfðu verið boðn- ar kennarastöðum við banda- ríska háskóla, hafi verið neitað um landvistarleyfi vegna stjórn málaskoðana þeirra. Auk Ein- steins skrifa fjórir aðrir Nó- belsverðlaunaþegar undir mót- mælin. Hægrikratinn Christian Fette, sem verið hefur formaður sam- bandsins undanfarin tvö ár, féll við forsetakjörið í gær en kosn- ingu hlaut Walter Freitag, sem verið hefur formaður sambands málmiðnaðarmanna. Harðari barátta gegn her- væðingunni. Fréttaritarar í V-Þýzkalandi segja að kosning Freitag muni þýða það, að Alþýðusambands- haldsnáms við Columbiaháskól- ann í Bandaríkjunum. Þegar sá styrkur var útrunninn bauðst henni styrkur frá Rockefeller- sjóðnum og var hann veittur til hausts 1953 en nú er hún komin heim til Kaupmanna- hafnar brottre'kin úr Bandaríkj- unum. Skrifaði í Politiken og Information. Éins og vant er neitaði bandaríska utanríkisráðuneytið algerlegt að gefa nokkrar upp- lýsdngar um hvers vegna Elsu Gress var vísað úr landi. I við- tölum við dönsk blöð segist hún ekki efast um að ástæðan sóu greinar frá Bandaríkjunum, sem hún skrifaði fyrir dönsku borgarablöðin Politiken og Infonnation. Starfsmaður sá við bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn, sem útvegaði henni fyrri námsstyrkinn, skrif aði henni eftir að greinarnar birtust og varaði hana við að skrifa um dekkri hliðarnar á bandarísku þjóðlífi. íran og Bretland Ríkisstjórn Irans hefur beðið Svía að gæta hagsmuna Irans í London eftir að stjórnmála- sambandsslit Irans og Bret- lands koma til framkvæmda. Brezka stjórnin hefur beðið Svisslendinga að gæta hags- stjórnin muni taka upp harðari stefnu í kaupgjaldsmálum en fyrri stjórn fylgdi og ekki s'kirr ast við að leggja í vinnudeilur til að fá kröfum verkamanna framgengt. Einnig muni and- staða sambandsstjórnarinnar gegn samningi þeim um her- væðingu V-Þýzkalands, sem Ad- enauer forsætisráðherra hefur gert við Vesturveldin, harðna til muna. Fette lagði allt kapp á aði hafa gott samstarf við vestur- þýzka stóratvinnurekendur og hann var fylgjandi hervæðingar samningnum. Bæði hann og Freitag eru sósíaldemókratar. Vishinskj talar í dag á þingi SÞ Vishinski, utanríkisráðberra Sovétríkjanna, hefur beðið um orðið á þingi SÞ í dag. I gær samþykkti þingið með 46 atkv. gegn 6 að taka á dag- skrá kæru Asíuríkjanna yfir kynþáttákúgun í Suður-Afríku. Hvít þrœla- ' sala í Vestur- Þýzkalandi Rannsóknarlögreglan í V.- Þýzkalandi hefur gefið út að- vörun til ungra stúlkna um að vara sig á hvítri þrælasölu. Lögreglan kveðst hafa komizt á snoðir um að fögur og trayst vekjandi kona milli tvitugs og þrítugs hafi ferðast um og ráð- ið að minnsta kosti tug tvítugra stúlkna til starfa í næturklúbb í Súdan í Afriku. Við rannsókn hefur komið í ljós að klúbbur- inn er ekki til en samningarn, ir, sem stúlkurnar hafa verið fengnar til að skrifa undir eru svo lævíslegir að þær væru al- veg á valdi ,,vinnuveitendanna“. Meðal annars skuldbinda þær sig til að starfa „í öðrum hús- um“ og að hafast við meðal gestanna „klæddar kokteilkjól- um“ eftir sýningarnar. Kekkonen, forsætisráðherra Finnlands, lagði í gær lausnar- beiðni stjómar sinnar fyrir muna Breta í Teheran. Paasikivi forseta. Féfag róttækra stúdenta: Kernámsliðið haldi sig innan girðingar Keflavíkurfiugvallar „Fundur lialdinn í Félagi róttækra stúdenta 16. okt. 1952 bendir á hina auknu hættu í samskiptum við bandaríska hernámsliðið sem er fólgin í því háttaríagi þess að klæðast borgarleguni fötum í bæjarrápi sínu. Fundurinn mótmælir harðlega þessari lynaskufullu til- raun bandaríska hernámsstjórans til að smygla her- mönnum inná íslenzk heimili og krefst þess að þeim verði haklið innan girðingar á Keflavíkurflugvelli.“ Framhald á 8. síðu. Dönskum bókmenntaf rœðingi vísoð úr landi í USA Bandaríkjastjórn hefur vísað dönskum bókmennta- fræðingi úr landi fyrir það aö hún skrifaði ekki nógu íallega um Bandaríkin í dönsk blöð!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.