Þjóðviljinn - 18.10.1952, Blaðsíða 8
Ætluðu að myrða Ollenhauer og borg-
arstjórana í Hamborg og Bremen
Uppljóstranirnar um að bandaríska leyniþjónustan í aftökulistinn yfir sósíalidemó-
Vestur-Þýzkalandi hafi á sínum vegum hermdarverka-
sveitir fyrrverandi nazistaliSsforingja, sem meðal annars
undirbjuggju morð á forystumönnum kommúnista og
sósíaldemókrata, eru enn helztu umræðuefni vestur-
þýzkra blaða.
Birt hafa verið nöfn ýmissa sósíaldemókrataflokksins, for-
þeirra manna, sem voru á list-
unum yfir þá, sem gera átti
„óskaðlega“. Meðal þeirra eru
Erich Ollenhauer formaður
sætisráðherrann í Neðra-Sax-
landi, tveir' ráðherrar í Hessen
og borgarstjórar flokksins í
Hamborg og Bremen. Alls var
Orðsending ti! Bretastjórnar
Framhald af 1. síðu.
(1947 — júlí 1952) hafa Bretar
keypt *af Islendingum fyrir kr.
602.669.000, en Islendingar af þeim
fyrir kr. 959.490.000 á sama tíma.
Engu að síður munar það auð-
vitað brezku þjóðina sáralitlu þó
að hún yrði án útflutnings til ls-
lands, þar sem útflutningur hinn-
ar litlu íslenzku þjóðar til Bret-
lands er aftur á móti verulegur
hluti af öllum útflutningi hennar.
Það getur þvi vel lamað fjárhags-
líf lslendinga, ef þeir verða - án
sölumöguleika á vörum sínum
Englandi.
Skiljanlegt væri, að slíkum
harðræðum væri beitt, ef Islend
ingar hefðu sannanlega brotið lög
á Breíum og vildu ekki hlíta lög-
legri aðferð um lausn deilunnar.
Þvi er hinsvegar eindregið mót-
mælt. Islendingar hafa ekki ann-
að gert en að beita alþjóðalögum,
svo sem þeir skilja þau, til að
veriida hagsmuni sína.
Það verður því að teljast óvin
samlegur verknaður, ef, utan laga
og réttar, á að beita svo harka-
legum ráðum sem útilokun frá
mörkuðum, til að reyna að neyða
Islendinga frá þvi að fylgja fram
þvi, sem þeir telja rétt sinn. Er
áreiðanlegt, að þótt það bitni
hart á mörgum, munu aliir Is-
lendingar sameinast um að standa
þá atlögu af sér.
íslendingar skilja að vísu, að í
Bretlandi sé ekki almennur áhugi
eða þekking á örlögum svo fá-
mennrar þjóðar sem Islendinga.
Reynslan sýnir þó, að Island get-
ur verið mikilsvert fyrir Bretland,
enda hefur það nú gerzt aðili á-
eamt Bretlandi, og m.a. fyrir þess
fortölur, að samtökum er styrkja
eiga sameiginlegar varnir og
tryggja, að ísland verði ekki sið-
ar, sökum varnarleysis, samskon-
ar hætta fyrir Breta og þeir töldu
það vera vorið 1940. Óþarft er að
rekja önnur samskipti Bretlands
og Islands um alþjóðleg mál, en
íslenzka stjórnin hefur ætíð talið
þau svo vinsamleg, er fremst
mætti vera, og er það raunar einn
meginþáttur í utanríkisstefnu Is-
lands að halda við og efla vináttu
milli þessara landa.
Það mundi verða þungt áfall
fyrir trú íslenzku þjóðarinnar
góðri sambúð lýðræðisþjóðanna og
betri heim með vaxandi samstarfi
hinna frjálsu þjóða — og þá, sem
vilja byggja utanrikisstefnu Is-
lands á þessari trú—ef Bretar, sem
i hugum Islendinga hafa ætíð
staðið sem öndvegisþjóð lýðræðis
og frelsis, gripu til viðskiptakúg-
unar gegn Islendingum, þegar þeir
eiga að verja undirstöðu afkomu
sinnar.
Islendingar eiga því mjög erfitt
með að skilja, að raunin verði sú,
að Bretar bregðist svo við í hinu
mesta hagsmunamáli þeirra, sem
er verndun fiskimiðanna. Þáu
atriði, sem um er deilt, skipta
Breta smávægilegu í hlutfalli við
íslendinga, og þó að þau kunni
að valda Bretum tjóni í bili, hlýt-
ur friðun fiskimiða við lsland að
verða þeim til góðs í framtíðinni.
Bannið á togaraveiðum á hinum
umdeildu miðum bitnar ekki síður
á Islendingum en Bretum og öðr-
um útlendingum. Eins er með
bannið á dragnótaveiðum, e
kemur mjög hart niður á sjó-
mönnum í ýmsum byggðarlönd-
um Islands, þar sem lítið er um
aðra bjargræðisvegi. Engu áð síð-
ur eru menn sannfærðir um, að
þessar fórnir nú borgi sig, þar
scm fiskimagnið við landið mun
aukazt í framtíðinni, einnig á
þeim miðum, sem íslenzkum og
erlendum togurum er heimilt að
veiða. Aðrar þjóðir en íslending-
ar koma til þess að hafa beinan
hag af auknum fiskistofni við Is-
land með tryggari aflabrögðum
síðar meir, auk þess sem reynslan
hefur sýnt, að á hættutímum kann
svo að fara, að Bretlandi berist
fiskur hvergi annarsstaðar að en
frá Islandi, enda hefur þá allur
fiskur, sem Islendingar hafa aflað
og ekki sjálfir notað, verið send-
ur til Bretlands, og stundum flutt-
ur þangað með ærinni hættu
hinna íslenzku fiskimanna.
Islenzka stjórnin treystir því
þessvegna í lengstu lög, að vin-
semd brezku stjórnarinnar endist
til þess að fallast á sjónarmið is-
lenzku stjórnarinnar, og að hún
a. m. k. komi í veg fyrir, að
kúgunaraðferðum verði beitt í
þessu lífshagsmunamáli Islend-
inga.“
Ikrata 80 arkir og 15 arkir yf-
ir konmiúnista.
Fengu bandartska þjálfun.
Það var Zinn, forsætisráð-
herra sósíaldemókrata í vestur-
þýzka fylkinu Hessen, sem
skýrði fyrst opinberlega frá því
að vesturþýzka lögreglan hefði
komizt á snoðir um leynifélags
skap leigumorðingjanna. Frétta
ritari Reuters segir, að banda-
ríska leyniþjónustan hafi veitt
100 liðsforingjum úr her Hitlers
sérstaka þjálfun í Odenwald-
fjöllum nálægt Frankfurt.
I Karlsruhe, aðseturstað
hæstaréttar Vestur-Þýzkalands,
hefur það verið staðfest að
rétturinn hafi úrskurðað að
handteknir forystumenn leyni-
félagsskaparins skyldu látnir
lausir vegna þess að þeir störf-
uðu á vegum bandaríska her-
námsliðsins.
Nýtt Gestapo.
Vesturþýzk blöð eru mjög
■harðorð í garð Bandaríkja-
manna. Frankfurter Rundschau
sem þótt hefur mjög bandaríkja
sinnað, segir til dæmis að reynt
hafi verið að koma á laggirnar
..nýju gestapo“ og ef það séu
aðferðir, sem Bandaríkjamenn
hyggist beita í baráttunni gegn
kommúnistum, ættu þeir að
hafa sig heimleiðis.
Frœgur hurmunihusniílimgur
rœntanlegur hingað hráðum
Norski harmonikusniHingur-
inn Toralf Tollefsen er væntan-
legur hingað til lands í næstu
viku og mun hann hahla opin-
bera hljómleilca í Reyltjavík á
fimmtudag og föstudag í Aust-
urbæjarbíó og síðan leika úti
á landi á tveimur eða þremur
stöðum.
Tollefsen er talinn vera
fremsti liamonikuleikari, sem
uppi er í heiminum. Hefur hann
haldið hljómleika í flestum
löndum Evrópu.
Tollefsen, sem er fæddur í
Glemmen í Noregi, kom fyrst
fram sem einleikari þegar hann
var átján ára gamall. Eftir
stríðið settist Tollefsen að í
Englandi og árið 1946 hélt hann
í fyrsta skipti sjálfstæða hljóm
leika. Ári síðar flutti hann
„Harmonikukonsert No. 1“ eft-
ir Pietro Deiro í Roygl Albert
Hall í London með aðstoð
„London International Sym-
fóníuhljómsveitarinnar“ undir
stjórn Fistoulari. Hljómleikar
þessir mörkuðu þáttaskipti
sögu harmonikunnar og leið
e'kki á löngu áður en harmonik-
an kom oftar og oftar fram
sem einleiks hljóðfæri 'með að-
stoð symfóníuhljómsveita.
Þess má geta að á efnis-
skránni verða ekki aðeins hin
vinsælu lög, sem Tollefsen er
kunnur fyrir heldur og verk
klassisku meistaranna, m.a. eft-
ir Mozart, Chopin, Tschaikow-
sky, Liszt og fleiri.
Aflasölur
1 gær seldu Jörundur og Eg-
ill Skallagrímsson afla sinn í
Þýzkalandi.
Jörundur seldi 192 lestir fyr-
ir 73 960 mörk og Egill 239
lestir fyrir 91700 mörk. I
næstu viku selja þrír ísl. tog-
arar í Þýzkalandi og auk þeirra
eru tveir á veiðum fyrir Þýzka-
landsmahkað.
Laugardagur 18. október 1952 — 17. árgangur — 235. tölublað
Meiri upplýsingar um manntalið
Breyting, sem gerð var á tilhögun hinnar fyrirhuguðu all.s-
herjarspjaldskrár eftir að manntalseyðublöðin voru prentuð,
gerir það að verkum, að nauðsynlegt er að taka fram á skýrsl-
unum, hvar í húsi menn búa. Þetta gildir þó aðeins um skýrsl-
ur úr kaupstöðunum og úr Kópavogshreppi og Seltjarnarnes-
hreppi.
Af eðlilegum ástæðum er
ekkert tekið fram um þetta á
manntalseyðublaðinu, og þykir
því rétt að láta í té eftirfar-
andi upplýsingar til frekari
skýringar:
1 Reykjavík, Kópavogshreppi
og Seltjarnarneshreppi skal til-
greina:
1. Á hvaða hæð ihúss hver
f jölskylda býr, en þó þarf ekki
að gera það, nema fjölslkyldur
í húsinu séu fleiri en ein. —
Sama þarf að gefa upp fyrir
leigjendur, ef fjölskyldur í húsi
eru fleiri en ein, svo framar-
lega sem þeir búa ekki á sömu
hæð og fjölskyldan, sem þeir
leigja hjá.
2. Ef íbúðir á hæð í húsi eru
. fleiri en ein, þá skal til viðbót-
ar ofangreindu gefa upp fyrir
hverja fjölskyldu, hvort íbúð,
sem hún býr í, er til hægri eða
til vinstri á hæðinni.
1 öer'um kaupstöðum en
Reykjavík skal hæðin, sem bú-
ið er á, gefin upp á sama hátt
og í Reykjavík, en ekki skal
gefið upp, hvort íbúð er til
hægri eða vinstri á hæð.
Skammstafanir.
Kjallari - kj., 1. hæð - l.h., 2.
hæð - 2.h., o.s.frv. Rishæð - ris.
Rishæð t.d. næst yfir 2. hæð
má annað hvort nefna ris eða
3.h.
Til hægri - t.h., til vinstri -
t.v.
Kennda
í sænskn
Það skiptir ekki miklu máli,
hvar á skýrslunni þetta atriði
er upplýst,, ef það er aðeins
gefið greinilega til kynna. Þó
er bezt að það sé sett í fremsta
dálk skýrslunnar, næst undir
tölunni, sem á Reýkjavíkur-
skýrslum á að vera í línu heim-
ilisföður eða heimilismóður.
Á eyðublöðum þeim, sem
notuð eru utan Reykjavíkur, er
bezt að þessi merking sé fram-
an við nafn heimilisföður eða
heimilismóður.
Ástæðulaust er að lagfæra
skýrslur sem búið er að skrifa,
nema þessi merking hafi verið
ófullnægjandi á einhvern hátt.
Húseigendur eða þeir, sem
færa skýrsluna síðastir í
hverju húsi, eru vinsamiega
beðnir að ganga úr skugga um,
að skýrslan sé réttilega færð í
þessu efni.
Snæski sendikennarinn, frú
Gun Nilsson, hefur í vetur
sænskunámskeið í háskólanum
fyrir almenning. Kennslan
hefst n.k. mánudag, 20. þ.m. kl. menna a
8.15 e.’h., í II. kennslustofu há-
skólans. Kennslan er fyrir byrj-
endur.
SendiráSið á
Þjóðviljanum hefur verið
tjáð af manni sem ætlaði í
Tjarnarkaffi í fyrrakvöld að
dyravörðurinn hafi skýrt svo
frá að þar væri einkasamkvæmi
á vegum bandaríska sendiráðs-
ins. Kvaðst maðurinn að sjálf-
sögðu hafa trúað þessu. er hann
sá bifreið frá bandaríska sendi-
ráðinu fyrir utan, en hinsveg-
ar nokkuð undrandi á því að
inn í húsið streymdu sjóliðar
með „dömur“ sínar.
Mellueigeiidur biðja
þeÍKEi griða
Að tilhlutan Fjáreigendafé-
lags Reyikjavíkur var haldinn
fundur í Verzlunarmannaheim-
ilinu í Reykjavík, 16. okt. 1952
kl. 8.30 um kvöldið. Á fundin-
um voru mættir um 140 sauð
fjáreigendur og nokkrir aðrir
jarðeigendur og ábúendur
Reykjavík, Hafnarfirði, Sel-
tjarnarneshreppi, Kópavogs
hreppi, Garðahreppi og Bessa-
staðahreppi.
Fundarmenn voru ákveðnir í
því að standa sem fastast sam-
an gegn hvers konar viðleitni
til að skerða þessa hagsmuni
þeirra.
Samþykktar voru tillögur
um:
1. að senda Alþingi bréf, þar
sem skýrt væri frá afstöðu
fundarmanna gegn banni við
sauðfjárbúska.p.
2. að skora á þingmenn kjör-
dæmanna á umræddu svæði og
aðra velunnara landbúnaðarins
að vera á móti frumvarpinu
um bann gegn sauðfjárbúskap,
ef það kæmi fram á Alþingi.
3. að senda Stéttarsambandi
bænda og Búnaðarfélagi ís
lands bréf og biðja þessar
stofnanir að beita sér fyrir þvi
við ríkisstjórn og Alþingi, að
hætt verði við fyrirætlanir um
bannið.
4. að boða til annars fundar
um málið þar sem óskað væri
eftir nærveru landbúnaðarráð-
herra, þingmanna Reykjavíkur,
Hafnarfjarðar og Gullbringu-
og Kjósarsýslu.
Fundinn setti Stefán Thor-
arensen, form. Fjáreigendafé-
lags Reykjavíkur, en Óskar
Bjartmarz stjórnaði fundi.
Myndin sýnir Lárus Pálsson í
hlutverki Daly Joxers í Júnó og
páfuslinn, leikritinu sein nú er
sýnt í Þjóðleikhúsinu. Sýning verð-
ur í kvöld, og ætti fólk að fjöi-
sýning-ar þessa ágæta
ieikrlts.
Hýðingardómarar
fuíu í iægra haldi
Sakadómarafélag Bretlands
felldi í gær með 219 atkvæðum.
gegn 166 áskorun á þing og
stjórn að lögleiða hýðingar
sakamanna á ný í Bretlandi en
þær voru teknar úr lögum fyr-
ir fáum árum. Margir brezkir
dómarar sjá mjög eftir hýðing-
unum, sem fyrir löngu hafa.
verið numdar úr lögum í öllum.
öðrum siðuðum löndum, en
andstæðingar hýðinganna bentu
á að þeim afbrotum, sem hýð-
ing lá áður við, hefði farið
fækkandi síðan hýðingarnar
voru numdar úr lögum.
Vöruhappdrætti á iðnsyningurmi
„Farið með vönirnar heim“
1 dag er næstsíðasti ilagur iðnsýningarinnar og hefur nú
verið tekin upp óvænt nýjung síðustu sýningardagana. Kjör-
orðið er: farið með vörurnar heim. Það er framkvæmt þannig
að aðgöngumiðarnir gilda sem happdrættismiðar.
Dregið verður um 5—7 vinn-
inga á klukkustundarfrest:'
báða síðustu sýningardagana
frá kl. 4 til 10 e.h. Vinningar
eru allt fyrsta flokks íslenzk-
ar vörur eins og konfekt, sæl-
gæti, öl, gosdrykkir, skiði, skjól
fatnaður, skyrtur, skór, stólar,
ullarteppi, sápur, snyrtivörur,
matvörur o.fl. o.fl.