Þjóðviljinn - 09.11.1952, Page 1

Þjóðviljinn - 09.11.1952, Page 1
KaupiS Eíisrki BEindraféiagsins Sunnudagur 9. nóvember 1952 — 17. árgangur — 254. tölublað ¥crkalýðs- og sjómannaféi&g Óiafsfjarðar lanösins Sijémim rerði skipuð þeim einwm er eerk- itjðssamtöhin geta tregst tií að kerpmt fgrir kmttum kjörum Verkalýðs- og sjómannafélag Ólafsfjarðar samþykkti 30. f. m. eftirfarandi með samhljóða atkvæðum: „Almennur fundur Verkalýðs- og sjómannafélags Ólafs- fjarðar haldinn 30. okt. 1952 felur fulltrúum sínum á 23. þingi Alþýðusambands íslands að vinna að eftirfarandi: 1. Að þtngið vinni að því, að útiloka áhríf atvinnurekenda í stjórn Alþýðusambands íslands, sem og annarra afla er hafa orðið ber að því, að vinna á móti hagSmunum verkalýðsins og að stjórn sambandsins verði skipuð þeim mönnum einum, sem reynzt hafa ótrauðir baráttumenn innan verkalýðssamtakanna fyrir bættum kjörum verka- lýðsins. tp Að þingið skori á Alþingi að samþykltja framkomið frumvarp um atvinnuleys- istryggingar og sömuleiðis frumvarp um breytingar á orlofslögum. 3 Að skattur sambandsfélag- anna til Alþýðusambands- ins verði stórlækkaður frá því sem nú er og verði mið- aður við eðliiegan reksturs- kostnað sambandsins. Æ Að Iðja, félag verksmiðju- fólks í Reykjavík fái á ný full félagsréttindi innan Al- þýðusambandsins. ffg Að Alþýðusamb.þing for- dæmi brottrekstur hinna þriggja forystumanna Fé- lags járniðnaðarmanna úr Héðni og hlutist til um að þeir fái fulla leiðréttingu mála sinna“. stofnuð á Akranesi Ný MfR-deiId var stofnuð á Akranesi 5. þm. á fundi í templarahúsinu. — Stofnendur voru 20. I stjórn voru kosnir: Halldór Þorsteinsson forma'ður, Ás- mundur Gíslason gjaldkeri og Jóhann Pétursson ritari. Mikill áhugi var á fundinum fyrir framtíðarstarfi og sam- þykkt að halda fræðslufund innan . hálfsmánaðar. Egypzki fulltrúinn í stjórn- málanefnd þings SÞ lagði í gær fram nýja tillögu um vopna- hló í Kreu og skipti á. stríðs- föngum. Er þar lagt til að hlutlaus nefnd kanni vilja þeirra fanga, sem sagt er að neiti að hverfa heim til sín. NýEenduveld- in urðu undir Heildsaiornir, SÍS og Sölu- miðslö^in vilfa einoka inn- flutninginn frá A-Þýzkalandi Samband smásölnverzlana hefur mótmælt þessum áíormum og vill frjáls viSskipti Þrír íslenzkir aðilar, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sam- band íslenzkra samvinnufélaga og heildsalasamtökin eru nú að bfndast samtökum um að einóka allan innfllutning á vörum frá Austurþýzkalandi. Hefur Samband smásöluverzlana þegar mót- mælt þessuin einokunaráformum og krafizt þess að um frjálsan Gæzluverndarráð SÞ felldi í gær með 40 atkv. gegn 12 til- lögu um að leggja niður nefnd þá, sem á vegum ráðsins hef- ur fylgzt meö stjórnarfari í nýlendunum. Að tillögunni stóðu nýlenduveldin svo sem Bretland, Frakklandi, Banda- ríkin, Hollandi og Belgía. Norðanmenn toke háísana í gær tók vetrarveður að mestu fyrir bardaga á landi í Kóreu. Brezka útvarpið sagði að hálsarnir á miðvígstöðvunum, sem barizt hefur verið um í ná- vígi undanfarnar þrjár vikur, væru nú flestir á valdi norðan- manna. Áður en bardagarnir hófust héldu Bandaríkjamenn þeim. Tvíkosið í Sjómanna- og verkalýðsfél. Ólafsfjarðar i Alþýðiisanii Samkvæmt skipun Alþýðusambandsstjórnarinnar Iét Verka- lýðs- og sjómannafélag Ólafsfjarðar fara fram nýja kosningu á fuíltrúum sínum til Aíþýðusambandsþings. Sömu fulltrúar og félagið hafði áður kjörið voru kosnir með 25 atkv. að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í tvo daga, en ffisti sem fram var borinn að undirlagi Afþýðusambandsstjómar- innar fékk 15 atkv. Við fyrri fulltrúakosningu fé- lagsins komu fram tveir listar, annar skipaður Sveiai Jóhanns- syni og Magnúsi Stefánssyni, en hinn Gunnlaugi Jónssyni og Eiríki Friðrikssyni, Áður en kosning fór fram var listinn með þeim Gunnlaugi og Eiríki dreg- inn til baka og listinn með þeim Sveini og Magnúsi því talinn sjálfkjörinn. Alþýðusambands- stjórnin fyrirskipaði að kosið skyldi aftur við allsherjarat- kvæðagreiðslu og vorú þá Sveinn og Magnús kjörnir í annað sinn með 25 atkv., en listi A. S. 1. stjórnarinnar fékk 15 atkv. Taftsinni fyrsti Talið var víst í gær að Eisenhower forsetaefni Banda- ríkjanna myndi skipa öldunga- deildarmanninn Eugene Millikin til að vera fulltrúa sinn við samningu næstu fjárlaga Bandaríkjanna. Millikin er sam- starfsmaður Robert Tafts, for- ingja afturhaldssamasta arms republikanaflokksins- Taft sagði í gær, að hann myndi brátt fara til fundar við Eisenhower að ræða vi'ð hann löggjafaráætlun fyrir næsta þing. Vinir Trumans forseta segja að hann muni hætta virkri þátttöku í stjórnmálabarátt- unni þegar hann lætur af for- setaembættinu. Stevenson verð- ur þá foringi demokrataflokks- ms. Kosnlngar i V-Þýzkalandi í dag fara fram bæjarstjórn- arkosningar í þrem fylkjum Vestur-Þýzkalands, þar sem um helmingur Vestur-Þjóðverja býr. í gær var útbýtt í borg- um Neðra-Saxlands flugmiðum með liakakrossmerki og níði um gyðinga, þar sem menn voru hvattir til að kjósa ekki. Ný- nazistaflokkur, sem nú hefur verið bannaður ,fékk yfir tí- unda hvert atkvæði í síðustu kosningum í Neðra-Saxlandi. Flak lokar Rotterdamhöfn 25 skip voru króuð inni í höfninni í Rotterdam í Hollandi í fyrrinótt, er 6000 tonna Pan- amaskipið Faustus sökk í'inn- siglingunni í stormi og stórsjó. Mörg skip bíða útifyrir eftir að 'komast inn í höfnina. Ákveðið hefur verið að sprengja flak- ið af Faustus í loft upp í dag. SKILADAGUR Á MÁNUDAGINN Árangurinn í söLu happdrættismiða síðastliðna vikur hefur verið heldur betrl en vikuna áður, en þó er eltki kominn nógu ntikill skriður á söluna enn. Næstu viku þurfum við að taka enn betur á, Jtví nú er skammt til þess, er dregið verður. A morgun höfum við almennan skiladag, og verður tekið á móti andvirði fyrir selda liappdrættismiða í skrifstofu flokksiiis Þórsg. 1 frá kl. 10—7. Snnflutning verði að ræða. Eins og Þjóðviljinn hefur skýrt frá hefur ríkisstjórnin nú loksins neyðzt til að slaka á banni sínu við viðskiptum við Austurþýzkaland, þannig áð út- flytjendur hafa fengið tækifæri til að byrja að hagnýta þá möguleika sem þegar lágu fyr- ir í opinberu tilboði sem Einar Olgeirsson flutti ríkisstjórninni 1950, eins og lesendum Þjóð- viljans er kunnugt. Hafa nú verið gerðir samningar um sölu á 3000 tonnum af freðfiski austur, og telur nefndin sem viðskiptin annaðist samning- ana mjög hagstæða. 1 staðinn fyrir fiskinn eiga Islendingar að kaupa vörur í Þýzka lýð- veldinu. En þótt þannig hafi verið brotið skarð í bannmúr einok- unarinnar, er reynt að vega það upp með öðru móti. Við- skipti viö Þýzka lýðveldið eiga. ekki að fara fram á venjulegan hátt — samkvæmt þeim reglum frjálsrar verzlunar sem Sjálf- stæðisflokkurinn þykist berjast fyrir — heldur hafa þrír sterk- ir aðilar, SÍS, heildsalarnir og Sölumiðstöðin bundizt samtök- um um að einoka allan inn- flutning frá Austurþýzkalandi. Er þetta auðvitað algerlega ó- viðunandi tilhögun; þessi við- skipti ættu áð vera öllum op- in, og það er hagsmunamál al- meanings að sérstaklega smá- salar, kaupmenn og kaupfélög, gæíu hagnýtt sér þessa nýju viðskiptamöguleika. Með - einok- un á þessu sviði yrðu innkaup- in eflaust bæði verri og dýrari almenningi, eins og dæmin sanna. Eins og áður er sagt hefur Samband smásöluverzlana þeg- ar mótmælt þessum einokunar- áformum, og þess er að vænta að þau mótmæli beri árangur. Leikfélag Hafnarfjarðar hefur frumsýning’u á Ráðskonu Bakka- bræðra á þriðjudaginn kernur. — Félagið sýndi leik þenna á árunum 1943—‘45 samtals 86 sinnum, aúk 5 sýninga í Vest- mannaeyjum. — Ráðskonuna leikur Hulda Runólfsdóttir en Bakkabræðurna þeir Sigurður Kristinsson, ÓIi Valgeir og Eiríkur Jóhannesson. Leiktjöld hefur Lothar Grund málað. Á myndinni hér að ofan eru „Bræðurnir“ eins og þeir litu út 1943. 1 samkeppni deildanna hefur Kleppsholtsdeild naumiega tekið forustuna. Flestar deildir hafa sótt nokkuð fiam, en enn vantar þó eina deild i hópinn, Nesdeild, sem hefur ekki skilað neinu. Röð deildanna er nú þannig: 1 Kleppshoitsdeild 24 % 2 BoJadeild 23 — 3 Túnadeild 17 — 4 Barónsdeild 16 — 5 Skóladeild 15 — 6 Valladeild 14 — 7-8 Sunnuhvo'sdeild 13 — Langholtsdeild 13 — 9 Njarðardeild 11 — 10 Meladeild 6 — 11-13 Þinghoitsdeild 6 — Laugarnesdeild 6 — Þórsdeild 6 — 14 Skerjafjarðardeild 5 — 15-18 Vesturdeild ’ 4 — Skuggahverfisdei’d 4 — Hlíðadeild 4 — Sogadeild 4 — 19 Vogadeild 3 — Miiitið eítir að skiiadag- ur er á marguR.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.